Leita í fréttum mbl.is

Er fólk ekki lagi hér?

 Er að velta fyrir mér hvernig talað er um Guðríði hér á blogginu. Hún er kölluð öllum illum nöfnum af fólki sem þekkir hana ekki neitt.

Sigurður Sjálfstæðismaður segir

Kópavogsbúar vita betur nefið á Guðríði er þekkt í bænum fyrir þann eiginleika að hafa nef sem  geti lengst ótrúlega mikið og ótrúlega oft

Eins talar um að hugmyndum henna og henni sjálfri hafi verið hafnað. Halló flokkurinn missir 3% fylgi en sjálfstæðisflokkurinn hans um 14%

Einhver ómerkilegur Sjálfstæðismaður úr Hafnafirði (Halldór) segir:

Heldur frekjubreddan Guðríður Arnardóttir að fólk sjái ekki í gegnum þennan vef? 

Þeir sem meta vinnu Guðríðar ættu að sjá að hún hefur ólíkt öðrum tekist að standa í hárinu á mönnum eins og Gunnari Birgissyni sem nærri óáreittur hafði fengið að leika sér með Kópavog eins og hann vildi.

Svona til hafa þetta á hreinu:

  • Listi Kópavogsbúa rauk af stað í miðjum samningaviðræðum í gær í alla fjölmiðla og úttalaði sig um að það vildi EKKI Guðríði í bæjarstjórastól. Hverskonar samningaviðræður eru það að stilla Samfylkingunni upp við vegg þannig að hún í raun getur ekki gefið þetta mál eftir því þá væri túlkað að Y listinn hefði svínbeygt Samfylkingu.
  • 3 af 4 flokkum vilja að bæjarstjóri sé einn af kjörnum fulltrúum.
  • Venjulega eru svona mál kláruð áður en fólk ríkur með þetta í fjölmiðla. Þá eru slit á samningaviðræðum útskýrð.
  • Listi Kópavogsbúa hefur lýst ánægju með málefnasamninginn.
  • Hvað er faglegur Bæjarstjóri?  Er hann ekki til þess að framfylgja stefnu flokkana og verður því Pólitískur í raun þó hann væri ekki flokksbundinn?
  • Maður sér fyrir sér að flokkarnir hefðu t.d. getað ákveðið að Guðríður hefði tekið við Bæjarstjórastólnum í 2 ára og eftir þann tíma væri staðan endurskoðuð.
  • Sé ekki alveg hvað "faglegur bæjarstjóri" á að geta gert umfram kjörinn fulltrúa. Bendi á að allar ákvarðanir verða teknar af bæjarstjórn.  Og sem kjörinn bæjarfulltrúi og sem oddviti helmings fulltrúa í meirihluta sem og ein af 4 sem skrifa undir málefnasamninginn hlýtur kjörinn bæjarfulltrúi að vera góður kostur til að sjá til þess að ákvörðunum sé fylgt eftir.

Ef að Samfylking á að slá bara af sínum kröfum endalaust er þessu sjálfhætt.

 


mbl.is Ekki gert kröfu um neitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Fréttir af samningaviðræðunum verða alltaf meira og meira spennandi. Þær nýjustu er að Ómar Stefánsson yrði ráðinn bæjarstjóri og Guðríður yrði ráðinn á dráttarvélina.

Sigurður Þorsteinsson, 2.6.2010 kl. 11:07

2 Smámynd: Halldór Halldórsson

Einhver Samfylkingarkúkalabbi úr Kópavogi (Magnús Helgi Björgvinsson), það hlýtur að mega svara í sömu mynt, hefur hér í nokkrum færslum sagt álit sitt á fólki sem var í framboði fyrir Kópavogslistann og vill standa við það sem þau lofuðu fyrir kosningar.  Ekki finnst honum þetta lið kræsilegt, en heimtar jafnframt af því að það beygi sig bara fram og taki ósmurt allt sem Samfylkingin vill ná fram.  Frábær byrjun á samstarfi!

Halldór Halldórsson, 2.6.2010 kl. 11:32

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Halldór, það er nú bara þannig þegar tveir eða fleiri flokkar, fjórir í þessu tilfelli,  mynda meirihluta þá þurfa allir að slá af sínum ýtrustu kröfum og gera málamiðlun.

Þannig séð getur það verið vonlaust að ná fram öllum kosningaloforðunum, en ná samt fram fleiri málum en verður ef flokkurinn gerir ýtrustu kröfur og lendir í minnihluta fyrir vikið.

Halldór, það er alveg hægt að koma sínum skoðunum á framfæri án uppnefna og fúkyrða.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.6.2010 kl. 15:36

4 Smámynd: Guðmundur Björn

Þekkir þú þá eitthvað sem þú kallar illum nöfnum?

Guðmundur Björn, 2.6.2010 kl. 17:24

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Guðmundur nefndu mér þá sem ég hef kallað illum nöfnum og ég skal skoða það!

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.6.2010 kl. 21:26

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Halldór nefndu mér staði þar sem ég uppnefndi fólk og kallið það illum nöfunum? Ég er ekki sammála þeim og taldi að þau væru ekki á réttri leið í gær en ég uppnefndi þau ekki! Og þegar ég vitnaði í þig þá var ég bara að velta fyrir mér hvaða sleggjudómar þú sem Hafnfirðingur ert að leggja á manneskju sem hefur verið hér í stórnarandstöðu í Kópavogi sl. kjörtímabil og það var það fyrsta eftir að hún hóf afskipti að bæjarmálum 5 mánuðum fyrir kosningar 2006.

En ef þú ert svona einn af bloggurum sem getur ekki talað um annað fólk án þess að uppnefna það eða þeirra flokka stöðugt þá þarft þú ekkert að svara. Það er hægt að gagnrýna, vera jafnvel nasty án þess að uppnefna fólk. Það eru aðallega sjálfstæðisbloggarar sem gera það. Sbr. Samfspillingarflokkur, Solla stirða, Skallagrímur og svona uppnefni nota menn sem hafa engin rök. Sletta þessu bara allstaðar sem þeir geta og halda að þeir séu sniðugir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.6.2010 kl. 21:33

7 Smámynd: Guðmundur Björn

Ég hef ekki hugmynd, var bara að spyrja þig.    Mér þykir þú bara ansi sár og dapurlegur í skrifum.

Guðmundur Björn, 3.6.2010 kl. 01:02

8 Smámynd: Halldór Halldórsson

"Einhver ómerkilegur Sjálfstæðismaður úr Hafnafirði (Halldór) segir:"

Mér fannst þessi setning fullkomlega verðskulda kúkalabbatitil!!!

En það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem skinhelgin og hræsnin stjórnar orðum Samfylkingarmanna.

Halldór Halldórsson, 4.6.2010 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband