Leita í fréttum mbl.is

Jæja nú sýna frjálslyndir sitt rétta andlit.

frjalslyndir
Nú á að fara að reyna að rugla fólk í rýminu og telja því trú um að ef hingað hefðu ekki komið útlendingar þá værum við með helmingi hærra kaup og allt væri betra. Þeir gleyma því blessaðir mennirnir að ef þessi fjöldi útlendinga hefði ekki komið þá værum við ekki að framkvæma nokkuð þar sem hér er ekki atvinnuleysi. Og það væri engin mannskapur til að borga göng og þessháttar því hann væri staddur á Reyðarfirði á ofurkaupi að vinna að borunum sem lyki þá einhverstaðar um 2010.

Úr frétt Fréttablaðsins

Samtök kvenna af erlendum uppruna íhuga að kæra Viðar Helgi Guðjohnsen, sem skipar fimmta sæti Frjálslyndaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, vegna ummæla hans í garðútlendinga á Íslandi.
Ummælin sem um ræðir birtirViðar á heimasíðu sinni undir yfirskriftinni „Ísland fyrir Íslendinga– Um hvað snýst málið.Hvað erum við hjá Frjálslyndumað tala um!“ Á eftir fylgir greinargerðþar sem Viðar rekur hættur og vandamál sem gætu skapastí landinu með fólksflutningum.
Meðal þeirra atriða sem eru nefnd í tengslum við útlendinga eru skipulagðar nauðganir, berklasmit,
hnignun heilbrigðiskerfis, misskipting í samfélaginu og því haldið fram að fjölmenningarsamfélög hafi aldrei virkað.
„Mér finnst þetta ekki of djúpt í árinni tekið,“ segir Viðar um skrif sín. Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður flokksins, vildi ekki tjá sig um málið, sagði það ekki koma sér við.

Frétt af www.visir.is 

Vísir, 01. apr. 2007 10:29

Áhersla frjálslyndra: Hömlur á innflytjendur

Frjálslyndi flokkurinn birtir heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í morgun undir yfirskriftinni: Viljum við sitja uppi með sömu vandamál og aðrar þjóðir sem hafa leyft óhindraðan innflutning erlends vinnuafls. Spurt er hver kaup og kjör íslenskra iðnaðar- og byggingaverkamanna verði þegar hægist um á vinnumarkaði. Þá er fullyrt að geta okkar til að kenna öllu því fólki íslensku sem
flyst til landsins sé takmörkuð.

Frjálslyndi flokkurinn, sem lagði aðaláherslu á baráttu gegn kvótakerfinu fyrir síðustu kosningar, virðist því ætla að gera þetta að einu helsta baráttumáli sínu nú, það er að setja hömlur á innflutning erlends vinnuafls til landsins.

Eins las ég eftirfarandi á www.mannlif.is

Frjálslyndir keyra á innflytjendavanda

31 mar. 2007

Forsvarsmenn Frjálsynda flokksins eru nú að hefja auglýsingaherferð þar sem grímulaust er gert út á innflytjendavanda. Þykjast menn þar merka áhrif Jóns Magnússonar, sem leiðir flokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður. Frjálslyndir hafa undanfarið farið halloka í könnunum eftir að hafa mælst með hátt í 15 prósenta fylgi og mælast nú við mörk þess að detta út af þingi. Klofningsframboðið, Íslandshreyfingin, sem stýrt er af Ómari Ragnarssyni og Margréti Sverrisdóttur mælist með svipað fylgi. Augljóst er að Guðjón A. Kristjánsson og félagar hans hyggjast slá margar keilur með því að gera beinlínis út á meintan innflytjendavanda með heilsíðuauglýsingum ...




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Samkvæmt niðurstöðum hagfræðinga Kaupþings, er verðbólgan hjá okkur síðustu árin um 1-1,5% minni því að menn af erlendum uppruna eru hér við störf. 

Einnig heyrði ég einn þeirra eitt sinn tala um að þeir kynnu svo vel að leggjast á spennan hjá ríki og sveitarfélögum, en það er búið að sýna fram á það að miðað við þann fjölda sem hafa komið hingað, þá eru þeir í raun að skila af sér meira en þeir fá frá okkur, semsagt miðað við höfðatölu þeirra og svo höfðatölu okkar. Þetta eru einstaklingar sem vita ekki einu sinni rétt sinn og það er hræðilegt.... 

Inga Lára Helgadóttir, 1.4.2007 kl. 12:52

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Frekar ógeðfelldur málflutningur svo ekki sé meira sagt.  Íslendingar nenna ekki að vinna í fiskvinnslu, efnalaugum, veitingastöðum o.s.fr. Án útlendinga værum við að bora í nefið ekki göng.

Björn Heiðdal, 1.4.2007 kl. 14:57

3 identicon

Heill og sæll, Magnús Helgi og aðrir skrifarar !

Hvaða helvítis viðkvæmni er þetta ? Sé ekki betur, en Frjálslyndi flokkurinn vilji stuðla að þjóðarheill, um ókomna tíð. Að minnsta kosti er ekki lagt upp, með eithhvert pukur, eins og hinir flokkarnir gera sig seka um, í veigamiklum málum, nema Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn; í sínum slepjuskap, gagnvart gömlu nýlenduveldunum, niður í Evrópu, Magnús minn, þar er ekkert verið að fela aðdáunina fyrir Stór- Þýzkalandi.

Björn Heiðdal ! Rangt hjá þér, að Íslendingar vilji ekki starfa í fiskvinnzlu, fann á eigin skinni (1983 - 1991) hvernig fjaraði smám saman undan þeirri grein, m.a. má kenna ódöngun Verkalýðsfélaga og margra annarra þar um. Of langt mál, að telja allar þær ambögur, hverjar yfir þé ágætu grein hefir gengið, vil ekki ganga of nærri gestrisni Magnúsar Helga, á síðu hans; í upptalningu meinbauga íslenzks atvinnulífs, enda margir mér færari, þar um að véla.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 15:57

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Heill og sæll sjálfur Óskar. Það held ég að útlendingar hafi jú bjargað því sem bjargað varð í fiskvinnslu hér víða um land síðan á 90 áratug síðustu aldar. Þeir voru í kippum fluttir hingað inn frá Ástralíu meira að segja. Þetta stafaði jú fyrst og fremst af því að ungafólkið gat ekki hugsað sér að vinna í fiski nema hugsanlega í sumarfríum sínum frá skóla. Það varð jú þannig að almennt var sífellt stærri og stærri hluti íslensku ungmenna fór að mennta sig frá svona störfum. Eins er hægt að nefna t.d. ræstingarstörf og þessháttar. Það bara fæst ekki fólk til að sækja um þessi störf. Þetta starfar af því að kannski svona 10 til 15.000 manns eru í háskólum og sérskólum og kannski svona um 5000 sem útskrifast eru þegar eftirsótt í önnur störf. Ísland er bara orðið þannig að markaðurinn þarf fleira fólk til starfa en er í boði hér. Ef að útlendingar kæmu ekki hingað þá færu störfinn bara út þar sem að fyrirtækin fengju en ódýrara vinnuafl.

Kveðjur úr Kópavogi

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.4.2007 kl. 21:43

5 identicon

Sælir, Magnús Helgi og Arnþór og aðrir skrifarar !

Hygg, að FF sé ei búinn að gefa upp baráttuna fyrir kvótanum, fjarri því, einungis um viðbót að ræða, hvað varðar innflytjendamálin, og Arnþór; gættu að,, óttalaus umræða um innflytjendur ætti vart að skaða, eða;............. hví ættu Íslendingar að óttast innflytjendur, svo sérstaklega ? Ertu ekki að draga fullviðamiklar ályktanir þarna, Arnþór ? Þurfum reyndar að stöðva fylgjendur helstefnunnar, frá Mekka, hingað út til Íslands. Þar fer um jarðarkringluna; einhver sú grimmasta og skelfilegasta trú, sem gervöll mannkynssagan kann frá að greina, sjáum Darfur, í V- Súdan, bara eitt dæmi af hundruðum ef ekki þúsundum, í okkar samtíma. Tel, Arnþór, að þú ættir að lesa Nýala Dr. Helga Pjeturss (1872 - 1949), til að átta þig betur á, hvað í húfi er fyrir vestræna menningu, almennt.     

Magnús Helgi ! Mér virðist, með skírskotun; til þróunar mennta stefnu þeirrar, hver rekin hefir verið, í landinu, að undanförnu, hafir þú nokkuð til þíns máls, reyndar er að koma niður á ýmsum iðngreinum, þverrandi verknámskennzla, nema umvent verði, hið skjótasta.

Með beztu kveðjum, í Kópavog og nærsveitir / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.4.2007 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband