Leita í fréttum mbl.is

Eru samskipti ekki einmitt lykillinn að bættum mannréttindum í Kína?

Hef verið að hugsa um þá bylgju sem gengur um heiminn núna að sniðganga Ólympíuleikana vegna mannréttindabrota Kína í Tíbet og almennt í Kína. En mér er til efs að það gagnist baráttunni fyrir auknum mannréttindum í Kína. Manni finnst það minnsta kosti að síðustu ár með einmitt auknum samskiptum og viðskiptum við kína séu mannréttindi og almenn réttindi borgara í Kína sífellt að aukast. Minni á að þegar að Kína var lokað gátu þeir farið sínu fram án þess að við vissum nokkuð af því . Minni á atburðina á Torgi hins himneska friðar  forðum. Eftir það finnst mér að bæði alþjóðasamfélagið sem og Kínastjórn séu sífellt að auka samskipti og staðan í dag er að t.d. stórhluti af húsgögnum hér á landi eru framleidd þar. Og um leið og þessi samskipti jukust þá höfum við fengið mun meir upplýsingar frá Kína og þar á meðal Tíbet.

Held að þessi opnun sem hefur fylgt samskiptum við Kína hafi skilað fólki þar umtalsverðu og eigi eftir að auka lýðréttindi þar. Það tekur væntanlega tíma en minni á alla áratugina þar sem samskipti voru lítil og þjóðir strækuðu á samskipti við Kína þá gerðist ekkert þar í þessum málum.


mbl.is Hvetja ráðamenn til að sniðganga Ólympíuleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband