Leita í fréttum mbl.is

Alveg makalaust hvað Kínverjar eru taktlausir

Nú þegar að allur heimurinn hefur verið að mótmæla mannréttindabrotum Kínverja í Tíbet þá handtaka þeir munka sem þeir saka um að hafa ætlað að sprengja upp einhverja stjórnabyggingu í Tíbet. Til að byrja með þá geta þeir verið vissir um að þetta magnar upp mótmæli gegn þeim í tengslum við Ólympíulekana. Síðan með því að banna fjölmiðlum að fara til Tíbet er ómögulegt að staðfesta þeirra orð eða hinna sem eru á móti Kínverjum.

Það má kannski segja að Kínverjar eru búnir að koma ár sinni þannig fyrir borð að þeir eru minna háðir samskiptum við aðrar þjóðir og kannski eru aðrar þjóðir orðnar háðari samskiptum við þá vegna viðskiptahagsmuna. En nú um áraraðir hafa þeir verið að opna landið og almennt farnir að njóta mun meiri velvilja á Vesturlöndum en þá klúðra þeir málum þarna í Tíbet þar sem að þeim ætti að vera í lófa lagið að skapa sjálfstjórnar hérað, ríki og leyst þar með úr langvarandi krísu. Þeir hafa t.d. Hong Kong til fyrirmyndar.


mbl.is Tíbetskir munkar handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sammála þessu. Samt þurfum við Íslendingar að verja málstað Tíbeta
mun meira en við gerum í dag. Þetta er sérstök þjóð með sérstaka
menningu og tungu gagnstætt Kosovo sem íslenzk stjórnvöld hlupu
allt og fljótt til handa og fóta og viðurkennt Kosovo sem fullvalda
ríki.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.4.2008 kl. 15:23

2 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Sammála þér Guðmundur, það er merkilegt hversu litla athygli þetta mál hefur vakið hjá íslenskum stjórnvöldum og almenningi því hér er um afar mikilvægt mál að ræða. Það er algjörlega á hreinu að Tíbetar vilja frelsi undan oki Kínverja og hafa barist fyrir því síðastliðin tæp 60 ár án aðstoðar heimsbyggðarinnar. Eftir að þeir voru innlimaðir gegn sínum vilja með valdi undir veldi Kína. 

Merkilegt hvað kínversk stjórnvöld halda að fólk gleypi heimatilbúinn áróður. Þeir sem kynna sér búddisma vita að það er algjörlega andstætt öllu sem Tíbetar lifa fyrir að beita ofbeldi. En íslensk stjórnvöld virðast einblína á viðskiptahagsmuni og atkvæði í Öryggisráðið og fórna Tíbet fyrir það. Gengið á mannréttindum hefur fallið jafnhratt og gengi krónunnar.

Kristbjörg Þórisdóttir, 13.4.2008 kl. 16:58

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Beni á að Tíbet og Kína hafa verið í tengslum um aldaraðir. Nepal hefur líka ráðið yfir Tíbet og á löngum köflum hafa Tíbet og Kína verið í einskonar ríkjasambandi. Þetta les ég a.m.k út úr sögu Tíbet á Wikipedia.

Eins þá sýnist mér að fyrri aðilar nefndir Dalai Lama hafi leitt uppreisnir og stríð. Munkar þar og Klaustur skiptu á löngum tímum landinu á milli sín og létu bændur þræla fyrir sig. Byggja stórar hallir og halda upp munkaveldi sem fór illa með og arðrændi fólkið. Þannig að þetta eru engir englar í sögunni.

Því er ekki skrítið að Dalai Lama talar um sjálfræði en ekki aðskilnað frá Kína.

http://en.wikipedia.org/wiki/History_of_Tibet

En þetta afsakar ekki framkomu Kínverja og óhæfuverk þeirra sem eiga að stuðla að því Tíbetar verði víkjandi í sínu eigin landi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.4.2008 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband