Leita í fréttum mbl.is

Landspítalinn ehf.

Finnst skrítið að bloggið logi ekki af umræðu um það sem kom fram í kvöldfréttum RUV. Þar er haft eftir Vilhjálmi Egilssyni sem af öllum mönnum er yfir nefnd sem á að móta stefnu fyrir Landspítalann til framtíðar.

Eins er hægt að vísa í vitali  í Mogganum í dag sem sagt er frá  hér á Eyjunni þar er er haft eftir Magnús Péturssyni fyrrverandi forstjóra Landspítalns

Magnús segir að það eigi eftir að koma betur í ljós fyrir hvað Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra og stjórnarflokkarnir standa í heilbrigðismálum og hvernig þeir ætla að framkvæma ákvæði stjórnarsáttmálans um að nýta betur kosti einkarekstrar. “Ef gengið er mjög hart að heilbrigðisþjónustunni þannig að biðlistar myndist og þörf fyrir forgangsröðun eykst þá rís upp einkaþjónusta. Því meira sem skorið er niður því meiri líkur eru á að einkaaðilar taki upp þráðinn. Þeir starfa þannig að þeir þurfa að fá greitt fyrir sína þjónustu. Smám saman kynni þetta að leiða til þess að fólk kaupi sér einkatryggingar eins og reyndin er sums staðar erlendis. Í Þýskalandi eru t.d. tvö kerfi í raun í gangi. Það hefur reynst vel fyrir þá sem hafa efni á að borga.”

Fréttin eins og hún er á www.ruv.is

Rekstrarform Landspítalans

Allar gerðir rekstrar verða athugaðar við rekstur Landspítala, líka einkarekstur. Þetta segir formaður nefndar sem fer yfir reksturinn. Fráfarandi forstjóri hafi ekki nefnt við nefndina að skipun hennar hafi verið ein ástæða þess að hann hætti.

Allar gerðir rekstrar verða athugaðar við rekstur Landspítala, líka einkarekstur. Þetta segir formaður nefndar sem fer yfir reksturinn. Fráfarandi forstjóri hafi ekki nefnt við nefndina að skipun hennar hafi verið ein ástæða þess að hann hætti.

Ákvörðun heilbrigðisráðherra að skipa nefnd yfir spítalann var ein ástæða þess að Magnús Pétursson lét af forstjórastarfi.

Nefndin hefur síðan í haust farið yfir rekstur spítalans og ætlar að skila ráðherra tillögum í júní um stjórnskipulag spítalans og framtíðarstefnumótun.

Ég bara spyr er það virkilega stefna heilbrigðisráðherra að einkavæða Landspítalann. Það hefur einmitt einkennt tal hans síðustu mánuði að rekstrarform spítalans skipti ekki máli því að það sé áfram að ríkið greiði fyrir þjónustuna. En ég tel að það sé ávísun upp á hér verði fólk látið borgar meira .

Finnst það segja sitt að framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins sé skipaður formaður þessarar nefndar.

Það er náttúrulega ef maður hugsar það búið að einkavæða allt annað sem eitthvað kveður að og vinir xD fengið góðan slatta af því á góðum kjörum. Landspítalinn veltir náttúrulega milljörðum sem að góðir vinir xD hefðu áhuga á að komast yfir. Þ.e. peninga frá okkur í gegnum ríkissjóð.

Ég vona að frjálshyggju maðurinn Guðlaugur Þór sé ekki á þessari vegferð. En ef svo reynist verðum við að spyrna við. Og þá verður að grípa til aðgerða sem hlustað er á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Sjálfstæðimenn ætla að einkavæða allt. Þess vegna eru þeir ekki allir komnir í einkageirann sjálfir. Þeir eru að sjá til þess að hlutirnir verði einkavæddir og að þeir eða þeirra vinir og fjölskylda fái störfin.

Ég get ég ímyndað mér að Guðlaugur Þór hafi kunnað betur að reka LSH en Magnús Pétursson.

Það er eins og fólk sjá ekki samhengið á milli stjórnmála og líðan þess sjálfs. Skoðanakönnunin hjá gamla fólkinu sagði sitt. Gamla fólkið kvartar, en það ætlar að kjosa sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum. Svona er Ísland í dag.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 14.4.2008 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband