Sunnudagur, 15. mars 2009
Ef við hefðum hlutstað á sérfræðingana?
Svona í framhaldi af Silfri Egils í dag þar sem hann á tímabili byrjaði að ausa úr viskubrunni sínum yfir Árna Pál um að við hefðum nú getað með því að grípa til aðgerða 2007 eða snemma árs 2008 gert eitthvað til að koma í veg fyrir þetta hrun sem varð hér. En semsagt í framhaldi af þessu þá datt mér í hug hvað sérfræðingar hafa verið að ráðleggja okkur. Bara það sem mér dettur í hug í bili:
- Taka upp nýjan gjaldmiðil einhliða. Menn hafa nefnt:
- Evru: En margir ráðlagt okkur frá því
- Dollar: Margir talið það glapræði
- Norska krónu: Norðmenn vilja ekki sjá það
- Svissneska franka
Er skrítið að ríkisstjórn eigi vanda á höndum að ákveða sig þegar allir tala í hringi.
- Ef að við hefður farið í aðgerðir gegn bönkunum og útþennslu þeirra 2007 eða 2008
- Eru líkur á að lánshæfismat þeirra hefði hækkað
- Gert hefði verð áhlaup á þá
- Þeir hefðu lent í þroti mun fyrr og við verð komin í bullandi kreppu 5 mánuðum eða meira áður hún raunverlega skall á
- Skuldir heimila og fyrirtækja
- Fella niður flatt 20% af öllum skuldum. Þykir mjög hæpið af mörgum
- Afnema verðtryggingu. Sumir segja að það sé algjört rugl
- Hjálpa þeim sem eru í mestri neyð með greiðsluaðlögun
Þetta síðast talda er að koma til framkvæmda
- IceSave:
- Neita að borga og fara með þetta fyrir dómstóla. Þrátt fyrir að á þeim tíma hafi öll viðskipti okkar við útlönd og með gjaldeyri verið lokuð og bönnuð
- Semja við Breta um þessar skuldir: Það er nú einmitt verð að því.
- Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
- Ekki taka lán frá honum því þá komi hann til með að stuðla að því að við mundum missa allar auðlyndir okkar
- Semja við AGS sem allra fyrst. Margir sem halda því fram að það hafi ekki verið gert nógu snemma vegna andstöðu m.a. innan Seðlabanka við að leita til þeirra.
- Ekki setja neyðarlög frekar gjaldþrot bankana.
- Rannsóknir á hruninu:
- Setja alla sem komu að málefni banka og útrásar í fangelsi. Þetta gætu verið 2 til 500 manns.
- Frysta allar eigur þessara mana. Jafnvel þó þær séu erlendis. Veit ekki alveg hvernig við eigum að geta fryst eitthvað sem er í banka sem er í örðu landi.
- Rannsóknargögnum eytt. Það hefur verið talað um það að bankarnir muni eða hafi eytt göngum vegna þess hvað rannsóknin hefur dregist. En staðreyndin er víst sú að FME tók afrit af öllum rafrænum gögnum bankana strax eftir hrun og eru þau geymd í tvíritum
- Rannsókn farið allt of seint af stað. Menn gleyma samt að þingið skipaði rannsóknanefnd sem hefur verið starfandi um mánaðaskeið og sérstakur saksóknari er búinn að vera við störf í mánuð. Eva Joly finnst mér fullyrða full mikið miðað við að hún hefur takamarkaðar upplýsingar eftir 2 daga veru hér á landi um hægagang. Enda sagði hún líka í norska sjónvarpinu að fámenni sérstaksaksóknara væri eitthvað sem
- Framtíðarsýn: Egill blés á það að það væri nauðsynlegt að fara að tala um ESB það kæmi okkur ekki að neinum notum nú. En samt eru flestir sérfræðingar á því að það hjálpi okkur.
- Og eins tala um blóðugan niðurskurð held ég ekki viðeigandi. Gunnar Smári benti á að nú væri kannski tími til fyrir okkur að ákveða hvað svona lítil þjóð ræður við að halda úti af þjónustu. Benti t.d. á að við ættum kannski að fara að semja við önnur lönd um aðgerðir og fleira sem eru t.d. fáar á ári. Og eins um nám á háskólasting. Að nemendur sæki það erlendis. Það er náttúrulega víst að næstu ár höfum við ekki efni á að halda hér á landi dýru námi, aðgerðum á spítölum og annarri hátækniþjónustu. Hana verðum við að semja um við erlend ríki og fyrirtæki.
Að ofansögðu er nema von að stjórnvöld taki sér tíma. Hér borgar sig heldur að fara hægt. Heldur enn að rjúka af stað gera alvarleg mistök og þurfa kannski að taka aðra dýfu ofan í þessa sem við erum í núna. En líka ef við færum eftir öllum álitsgjöfum og sérfræðingum okkar þá værum við virkilega komin í vandræði, því þeim kemur ekki saman og leggja til ólíkar stefnur.
Eins legg ég vara við að vitna í stöku sérfræðinga erlendis sem halda fram hinu og þessu. Hefur einhver kannað t.d. hvort að það sem þeir leggja til hafi verið reynt einhverstaðar? Og hvernig það dugði.
Ég fagna Evu Joly, en minni á að ég las að hennar rannsókn á ELF tók 9 ár og því ætti nú fólk að anda rólega.
Svo þegar verið er að dæma ráðherra væri nú kannski gott að menn eins og Egill og fleiri gerðu sér grein fyrir því að jafnvel hæfustu sérfræðingar okkar vöruðu okkur ekki sérstaklega mikið við hér fyrir hrun. . Þeir eru ekki sammála um viðbrögð og leiðir. Hvað þá ráðherrar! Ráðherrar eru nú sjaldnast sérfræðingar á sviðum björgunar úr kreppu
En þó má segja að helstu sérfræðingar okkar eru flestir á því að hluti af lausninni fyrir okkur er að sækja um aðild að ESB en það mátti Árni Páll ekki ræða við Egil í dag.
Hálft ár liðið frá því kreppan skall á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 2
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 969459
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 47
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Það eru tvær hliðar á öllum málum nema ESB?
Það liggur ekkert á þar sem annars staðar og í því máli er það sérstaklega mikilvægt að skoða sig um og vita nákvæmlega hvað maður er að gera. Þjóðir endurheimta ekki sjálfstæðið jafn auðveldlega og þær missa það. ESB hefur ekkert að bjóða eins og er. ESB löndin eru of upptekin við að bjarga eigin skinni.
Villi Asgeirsson, 16.3.2009 kl. 04:30
Það sem við fengjum strax eða fljótlega við inngöngu og ég horfi á er
Held að við mundum græða á þessu strax.
Bendi á að við höfum grætt og fengið betri samninga í öllu alþjóðlegu samstarfi en aðrir
Og þetta hefur lagt grunnin að því að við fórum frá því að vera fátækasta land Evrópu fyrir 50 árum yfir í að verða ein sú ríkasta
Magnús Helgi Björgvinsson, 16.3.2009 kl. 08:08
- Við getum sjálf lækkað tolla. Það sem vantað hefur er áhugi hjá ráðamönnum.
- Evran, pundið og dollar eiga eftir að sökkva á komandi mánuðum. Viljum við tengjast þeim núna á því gengi sem krónan er á og taka áhættuna á hún sökkvi enn dýpra?
- Við getum lækkað vexti. Það var Seðlabanki Íslands sem ákvað háa vexti. Nú hefur IMF hækkað þá enn meira og innganga í ESB mun sennilega ekki breyta því til skammst tíma. Þar fyrir utan er ESB innganga ekki skammtímalausn.
- Krónan er blóraböggull eins og er, en það er af því hún varð fyrst til að hrynja. Pundið hefur fallið um 50% (minnir mig) á einu ári. Kreppan er bara rétt að byrja. Viljum við varanlega afsala okkur fjárhagslegu sjálfstæði fyrir ástand sem mun vara 2-3 ár?
- EES samningurinn er hluti af ástæðunum fyrir núverandi ástandi. Hann gerði margt gott, en hann var ekki fullkominn eins og komið hefur á daginn.
Villi Asgeirsson, 16.3.2009 kl. 08:59
Hef nú ekki trú á því að við lækkum tolla eða opnum á aukin innflutning á matvöru án þess að við fáum tolllækkanir á móti. En það gerist við inngöngu í ESB. Ef við kæmust í evru umhverfi þar sem að krónan yrði bundin evru og síðar upptaka á evru þá yrðu sveiflur ekki svona griðarlega.
Var að lesa um þegar við gengum í EFTA þá var sama umræðan um að útlendingar mundu sækja hingað og ná undir sig öllum fyrirtækjum. Og eins um að við mundum missa fullveldi og svo framvegis. Ég kaup þetta ekki.
sjá hér um umræður á Alþingi 1968 og 9 http://bjss.bifrost.is/index.php/bjss/article/viewFile/21/45
Magnús Helgi Björgvinsson, 16.3.2009 kl. 09:13
P.s. við verðum alltaf með hærri vexti en ESB þar sem vð þurfum að verjast því að fjármagn rjúki hér úr landi. Sem og að við þurfum að eyða miklu í að eiga gjaldeyrisvarasjóði á meðan krónan er.
Magnús Helgi Björgvinsson, 16.3.2009 kl. 09:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.