Leita í fréttum mbl.is

Spurning hvað menn koma með næst sem rök fyrir að borga ekki?!

Ég verð að hrósa Steingrími fyrir Kastljósviðtalið í gær. Þrátt fyrir að Sigmar hafi nánast verið dónalegur og á tíma var ég farinn að halda að hann með ítrekunum ætlaði að koma í veg fyrir að Steingrímur gæti svarað nokkrum af grundvallarspurningum sem hann bar þar fram.

Þar voru t.d. atriði eins og túlkanir Stefáns Már og Lárusar varðandi þá túlkun að við eigum ekkert að borga! Þeir horfa í það að í EES tilskipuninni standi að ríki séu ekki ábyrg fyrir bankahruni. En gleyma eins og fleiri að þar stendur líka að ríki EES og ESB eiga að vera með kerfi sem TRYGGI lámarksinnistæður. Og það er nokkuð ljóst að innistæðutryggingarsjóður gerði það ekki. Langt frá því og því bar ríkinu að gera viðeigandi ráðstafanir. Enda 2 í stjórn sjóðsins fulltrúar ríkisstjórnarinnar.

Síðan bent Steingrímur á að hvergi í gjaldþrotalögum væri tilgreint um forgang innistæðutryggingasjóðs okkar í þrotabú Landsbankans. Og það atrið hafði verið kannað.

Síðan eins og Steingrímur benti á að ef við synjum þessari ábyrgð þá gjaldfalla eðlilega þessir 700 milljarðar. Sem og við getum reiknað með að allar innistæður þar með komist í forgang. Líka það sem lögaðilar áttu eins og sveitarfélög í Hollandi og Bretlandi. Og eins þá verða væntanlega gerðar kröfur í þær eignir sem fluttar voru í Nýja Landsbankann.

En það var flott hjá Steingrími að nefna rök þeirra sem hafna samningnum. Þetta byrjaði jú með að lögfræðingurinn Magnús Thoroddsen lýsti því yfir að hér mundu erlendir aðilar geta gegnið að eignum ríkisins eins og þinghúsinu og fleira. Síðan hefur hvert atriði rekið annað. Og þegar því er svarað þá kemur nýtt. En ekkert reynst standast skoðun. Því veltir maður fyrir sér hvað kemur næst.

Og að lokum var það gott hjá honum að minna fólk á að ef þessi stjórn færi frá þá væri hinn möguleikinn Framsókn og Sjálfstæðismenn. Og finnst fólki þeirra málflutningur traustverður þessa dagana!


mbl.is „Það er búið að semja!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús, það er ekki verið að tala um að borga ekki.  Það er verið að tala um að gera samning sem við eigum og ráðum við að borga.

Marinó G. Njálsson, 7.8.2009 kl. 11:26

2 identicon

Sammála þér um að Steingrímur Sigfússon hafi unnið gott og þarft verk með orðum sínum í Kastljósi í gær.

Ég átti ekki von á að neinn af okkar forustumönnum myndi vinna jafn vel úr spurningum (?) Sigmars. og gera það á "mannamáli" með  rökvísi, kurteysi og sannfæringu.

Agla (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 11:35

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Marínó! Það hefur verið bent á að þessi samningur sé með því besta sem gerist nú um stundir. Vextir eru undir því sem gengur og gerist, lánstímin er betri en gerist.

En það koma regluleg upp einhverjir sem gagnrýna hann og bera fyrir sig hin og þessi lög. En einmitt eins og þú segir þá er þetta samningur!

Og rökin varðandi það við eigum að eiga ofurforgang í eignir þrotabúsins eru eins og Steingrímur sagði ekki rökstudd í lögum.

Þetta eru ömurlegar aðstæður sem kalla á lausnir sem verða líka alltaf ömurlegar. Það má gagnrýna sumt í þessum samning en rétt að minna menn á að það eru 3 aðilar að þessum samning og það er ljóst að frá upprunalegum kröfum t.d. Breta og sérstaklega Hollendinga þá hafa þeir slegið mjög af sínum kröfum. Munum það Marínó að upprunalega vildu þeir að við greiddum allar innistæður á þeim grundvelli að við lýstum því yfir að allar innistæður íslendinga hér á landi væru tryggðar. Bæði einstaklingar og fyrirtæki og aðrir. Síðan var krafan að við tækjum lán fyrir allir upphæðinni. Og við skirfuðum undir samningdrög upp á 6,7% vexti á láni til 10 ára með fyrstu afborgun eftir 3 ár. Þannig að núverandi samningur eru langtum betri enn þessi drög. Og um leið erum við að kaupa okkur frið næstu 7 árin.

Agla sammála þér. Steingrímur hefur eftir að hann komst í þetta embætti vaxið að mínu áliti verulega.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.8.2009 kl. 11:52

4 identicon

Ég sem hélt ég væri búin að ná þessu Icesave klúðri að mestu leyti en svo kemur Marinó , sem hefur sérhæft sig á þessu sviði og hver er ég.

Ég hef þá kannski ekki skilið það rétt að það væri búið að gera samning við Bresku og Hollensku ríkisstjórnirnar um Icesave hörmungina og að okkar ríkisstjórn ætti "bara" eftir að fá Alþingi til að samþykkja ríkisábyrgðina sem tengist samningnum margumtalaða?

Agla (IP-tala skráð) 7.8.2009 kl. 11:52

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Alveg rétt hjá þér Magnús. Við eigum að samþykkja þessa samninga óbreytta. Þetta andskotans kommalið í VG sem ekki gerir sér grein fyrir að einhver endurskoðun gæti stórskaðað okkur í umsókninni um ESB. Það þyrfti að senda þetta lið á hlýðninámskeið. Svo gasprið í Evu Joly og þessum Ragnari Hall, sem allt þykist vita, frekar hlusta ég á hann Magga þroskaþjálfa. Það er maður að mínu skapi. Ekki að flækja hlutina. Bara kíkt á skilaboðin frá flokknum reglulega, ekki eyða tímanum í að velta hlutunum fyrir sér. Tala fyrst, hugsa ekki.

Ef taka þarf upp þessa samninga vil ég fá Magnús Helga Björgvinsson sem formann samniganefndar. Bjórinn fyrst og síðan er bara að skrifa undir.

Sigurður Þorsteinsson, 7.8.2009 kl. 18:29

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sigurðu slakaðu á! Og ég ætla að biðja þig ekki að gera lítið úr minni menntun! Óþarfi að vera alltaf að hamra á henni. Eva Joly er bara ekkert inni í greiðslugetu Íslands. Hún er þingmaður á Evrópuþingi og rannsóknarsaksóknari í málum er tengist efnahagsbrotum. Ragnar Hall heldur fram einni skoðun en það eru aðrir sem mótmæla hans túlkun m.a. þeir sem við erum að semja við, sem og nær öll þau lögfræðiálit innlend og erlend sem hægt er að skoða m.a. inn í www.island.is .

Enda hafa þessir menn ekki sagt hvernig t.d. að megi koma þessu máli fyrir dóm.

En svona málflutningur eins og þinn hefur jú verið málflutningur Sjálfstæðismanna. Þ.e. að segja að þetta og hitt gangi ekki, gera lítið úr fólki sem er að vinna að lausn mála en koma svo ekki með neinar lausnir. Minni þig t.d. á að Tryggvin Þór sagði á þingi að við yrðum að samþykkja þennan samning með fyrirvara um að greiðslur færu ekki upp fyrir vist mark.  Aðra fyrirvara nefndi hann ekki og hann skildi vel þann þrýsting sem var á okkur sl. haust og neyddu okkur inn á þessa braut samnnga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.8.2009 kl. 18:50

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Steingrímur fær prik frá mér fyrir kastljósið í gær. Þetta var sannarlega ekkert drottningarviðtal hjá Sigmari.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.8.2009 kl. 23:29

8 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Magnús á fótboltavellinum eru dómhörðustu aðilarnir yfirleitt staðsettir í áhorfandastúkunni, og eiga yfirleitt það sameiginlegt að hafa lítið spilað fótbolta, þekkja lítið til knattspyrnulaganna og hafa yfirleitt enga þekkingu á þjálfun. Þetta eru svona sjálfskipaðir sérfræðingar. Á blogginu eru líka svona sérfræðingar, sem vita betur en þeir sem eru menntaðir á viðkomandi sviðum. Þú hefur alveg örugglega þekkingu á málefnum þroskaheftra og ég ber mikla virðingu fyrir þekkingu og reynslu sem þú hefur á því sviði. En að þú getir fullyrt að Eva Jolý hafi ekki þekkingu á greiðslugetu Íslands, er fráleitt. Þá slær útí fyrir þér. Það sem þú hefur látið hafa eftir þér um einn okkar virtasta lögfræðing Ragnar Hall, gerir bara lítið úr þér. Ég fullyrði að þar ert þú að fjalla um mál sem þú hefur ekki hundsvit á. Umfjöllunin lyktar af flokkssauðahætti.

Sigurður Þorsteinsson, 7.8.2009 kl. 23:37

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sigurður þú ert semsagt einn af þeim sem heldur því fram að ríkisstjórnin sé vísvitandi með öllum þeim sérfræðingum sem hún hefur haft sér til aðstoðar að gera samning sem kostar okkur mörghundruð milljarða meira en við hefðum þurft að borga. Kjaftæði.

Minni þig á að fyrir mánuði kom fram lögfræðingur Magnús Thoroddsen og hélt því fram að með samningnum værum við að leggja stjórnarráðið og Alþingishúsið að veði fyrir þessum samning. Og menn gripu það hrátt upp og bloggheimar loguðu með yfirlýsingum um að við værum búin að opna leið fyrir Hollendingar og Breta að taka yfir allar opinberar fasteignir og fleira.  Síðan koma 2 lögfræðingar og segja að við séum ekkert ábyrg fyrir þessum icesave skuldum. Án þess að segja okkur hvernig við eigum að fara að því að reka þetta mál fyrir nokkrum dómstól. Síðan kemur einn og segir að fara eigi með þetta mál eins og þegar tryggingarsjóður launa gerir upp mál. En aðrir lögfræðingar sem vinna mikið við gjaldþrot fyrirtækja benda á að þessi rök hans eða þeirra standist ekki.

Ég hef fullt leyfi til að mynda mér skoðun á þessu máli. Það eru allir aðrir að gera það. Og ég leyfi mér að treysta því að menn sem hafa unnið að þessum samningi hafi náð eins góðum samningi og hægt var á þeim tíma. Það eru gallar í þessum samning eflaust en það kemur til líka af því að viðsemjendur okkar voru að gefa eftir líka.

En ég bendi þér líka á Sigurður að það eru mörg þúsund bloggarar sem hafa tjáð sig um þetta mál. Og ég leyfi mér að fullyrða að innan við 1% af þeim hafi menntun eða þekkingu til að fjalla um þetta en þeir leyfa sér samt að hafa skoðun. Og um þá skoðun er hægt að rökræða en að stimpla þá alla aumingja og vitleysinga er algjörlega út úr kú. Þetta eru þeirra skoðun.

Menn töluðu nú ekki svona fallega um Ragnar Hall þegar hann var einn af aðallögfræðingum Baugs. Og einnig vil ég minn þig á að það eru lögfræðiálit sem ganga gegn hans áliti. Sem og að með og í  samninganefndinni störfuðu reyndir lögfræðingar. M.a.

Peter Dyrberg, forstöðumaður
Peter Dyrberg hefur gegnt stöðu forstöðumanns Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík frá árinu 2005. Hann hefur víðtæka starfsreynslu á sviði Evrópuréttar og hefur auk þess flutt fjölda erinda og fyrirlestra tengdum Evrópurétti við ýmis tækifæri.

Þá voru allir nema Svavar og Indrið í nefndinni lögfræðingar með reynslu af samningum. Þá voru enskar lögfræðisstofur sem unnu með nefndinni einnig voru innlendar lögfræðistofur og lögfræðingar kallaðir til. Þá hefur Alþingi kallað til tugi eða hundruð lögfræðinga. Heldur þú að nefndirnar væru ekki búinar að henda út þessu máli og hafna því ef að það væri 100% skilningur allra að við værum vegna mistaka að borga hundruðum milljörðum meira en við þyrftum?

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.8.2009 kl. 00:33

10 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Nei Magnús ég held ekki að ríkisstjórnin hafi ætlað sér að gera slæman samning. Nokkru áður en Svavar fór út sagði Steingrímur að þeir væru ekki að fara út til þess að gera samning. En saminganefnin kom heim með slíkan. Ég held að ríkisstjórnin eða e.t.v. frekar Steingrímur hafi ekki vandað sig við valið á nefndarmönnum og þess vegna var niðurstaðan klúður.

Þú hefur fullt leyfi til þess að mynda þér skoðun á Icesave samningum, og þú hefur fullt leyfi til þess hafa skoðun á góðum fótbolta. Þú hefur hins vegar að öllum líkindum jafn lítið vit á hvort tveggja. Flokkssauðir éta það upp sem flokksforystan ropar upp úr sér og rökstuðningurinn er þá yfirleitt enginn.

Sigurður Þorsteinsson, 8.8.2009 kl. 00:44

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Æ nú er ég gjörsamlega hættur að nenna þessu. Ég hef engan áhuga á að vera kallaður "Flokkssauður" Ég spilaði knattspyrnu í 10 ár hér áðurfyrr og handbolta líka. Var m.a. 1 ár í stjórn HK og rak tómstundamiðstöðu fyrir ÍK. En hvað veit ég. Ég var með dómararéttindi í Knattspyrnu. En það er náttúrulega ómögulegt að ég hafi nokkurt vit á þessu. Ég les þau gögn sem ég finn á netinu og í sambandi við Icesave þá hef ég aðgang að fullt af gögnum.

En nú nenni ég þessu ekki lengur enda náttúrulega að til lítils að rökræða við snilling eins og þig.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.8.2009 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband