Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú vatn á myllu stjórnarandstöðunar!

En nú hafa menn haft aðgang að þessum póstum síðustu 4 mánuði í Möppu trúnaðarskjala. Og því skil ég ekki að menn sem virðast skv. ræðum hafa allt á hreinu varðandi Icesave og hvort við þurfum að borga, en hafa svo ekki lesið þessi göng í möppu sem þeir hafa oft vísað í.

Eins þá er ég að velta fyrir mér út á hvað menn halda að samningaviðræður gangi út á. Meira að segja það sem ég þekki til kjaraviðræðna eru menn að kasta milli sín hugmyndum og útfærslum sem allur hópurinn færi ekki að vita um strax. Og veit ekki hvað fólki gengur til með þessum látum. Og ég veit ekki hvernig nokkur getur samið við okkur í framtíðinni ef að þeir geta ekki treyst að þreifingar milli þeirra séu í trúnaði.

En það er stundum með afbrigðum klaufaskapurinn í þessu máli. Af hverju var t.d. ekki strax í gær sagt að þessi gögn væru í möppunni inn á Alþingi og af hverju var Indriði að gefa upp persónulegt póstfang. Hélt að flest tölvupóstkerfi biðu upp á tryggan vefaðgang í gegum netið.


mbl.is Vilja að leynd verði aflétt af öllum skjölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hefði giskað að þetta væri tölvupóstur sem Indriði getur nálgast í gegnum farsíma. Vefaðgangur að pósti skiptir þá ekki máli nema að hann sé hannaður með slíkt tæki í huga (og raunar eru farsímar mismunandi eftir því hvaða vefsíður þeir ráða við).

Óli Gneisti Sóleyjarson (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 16:05

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Mér datt í hug að hann hefði getað náð í póstinn í gegnum pung í https://postur.stjr.is/portalr.nsf . Ef menn eru t.d. með outlook þá er boðið upp á örugga leið í gegnum vefskoðara explorer Firefox eða hvað þetta heitir. Og jú í gegnum farsíma á líka að vera hægt að ná í póst þaðan. Held að þetta séu bara smá mistök en þau eru pirrandi. Sér í lagi ef þetta eru skjöl sem þingmenn hafa hvort eð er séð og nota nú til að búa til vandamál  úr engu. T.d. Sigmundur Davíð sem segist hafa haft loforð um að ekki yrði skrifað undir neitt á meðan Framsókn styddi stjórnina. Hann er með læti í dag þó ekkert hafi verið skirfað undir neitt, og pósturinn fjallar einmitt um að ekki sé hægt að skrifa undir neitt fyrr en eftir kosningar

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.12.2009 kl. 16:33

3 identicon

Vatninu á myllu stjórnarandstæðinga var veitt af enn einni óheilindum, forheimsku og lygaveitu stjórnvalda.  Trúnaðarmálum á Alþingi er stranglega bannað að leka.  Þess vegna heita þau trúnaðarmál.  Það eru örugglega mun fleiri gögn sem stjórnarandstaðan vildi að kæmu fram, en hún er bundin trúnaði.  Hún var að kalla eftir því á þingi í dag að trúnaði yrði aflétt af öllum gögnum varðandi Icesave.  Alfræðingurinn Indriði toppaði heimskuna í sér með að fullyrða að þetta skjal væri ekki trúnaðarskjal, þó svo það hafi verið flokkað og merkt sem slíkt.  Stóra málið er ekki síst að Steingrímur J. lætur ráðuneytisstjórann sinn falsa fjármálstöðuna fyrir kosningar til að lát stöðu og störf ríkisstjórnarinnar líta mun betri út en hún í raun og veru var. 

Indriði er að örugglega brjóta lög og reglugerðir með að filtera pósta fjármálaráðuneytisins í einkapósthólf.  Honum er skillta að halda öllum samskiptum innan kerfis ráðuneytisins.  Hver meðalskarpur skólakrakki sér fáránleikan í þessum gjörðum hans. Það verður með

Ekkert ráðuneytanna eru með lokaðan aðgang að tölvugögnum viðkomandi starfsmanns.  Indriði hefur alla tíð getað opnað sín gögn hvar og hvenær sem er.  Þetta kom fram í ræðu þingmanns á Alþingi í dag.  Viðkomandi gjörþekkti kerfið og hefur starfað í fjölda þeirra.  Í Bandaríkjum er verið að rannsaka slík mál af yfirvöldum sem afbrot.  Indriði er einfaldlega staðin af enn einum lygunum.  Maður sem selur sig svona ódýrt og heimskulega á ekki að vera á framfæri þjóðarinnar nema á atvinnuleysisstyrk eða örorku.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 16:34

4 identicon

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 7.12.2009 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband