Leita í fréttum mbl.is

Örlítil athugasemd!

Var að lesa þessa ályktun SUS og hún er í beinum tengslum við það sem áður hefur komið fram hjá Sjálfstæðismönnum á þingi. Það er sér í lagi þessi klausa sem mér finnst athugunarverð:

Ungir sjálfstæðismenn hafa áhyggjur af því að skattahækkanir muni af miklum þunga leggjast á unga fólkið í landinu. Þannig verði verulega dregið úr hvatningu til aukinnar menntunnar og aukins vinnuframlags, þar sem ríkisstjórnin vill taka nær helming launatekna einstaklinga til sín með beinum sköttum.

En það er sá hluti þarna sem fjallar um aukið vinnuframlag. Gera menn sér ekki grein fyrir því að hér eru um 16 þúsund manns atvinnulausir eða í hlutastörfum. Er einmitt ekki þess vegna meira áríðandi en að auka yfirvinnu á þá sem eru nú þegar við störf að ráða inn fleira fólk. Og eins með menntun þá eru allir skólar bæði framhalds- og háskólar fullir svo að til vandræða er. Þannig að ég held að þetta standist ekki.

Þá er athugandi fyrir þessa drengi að átta sig á þegar þeir tala um skera meira niður hjá ríkinu að þar eru þeir farnir að að tala um þjónustu sem fólk þarf að fá. Og þá er líklegt að einkaaðilar taki við þeirri þjónustu og síðar að ríkið eða fólkið sjálft þurfi að greiða fyrir hana.  Og það mundi skapa enn fleiri vandamál en það leysir. Vissulega margt smátt sem hægt er að spara en það skipti örugglega ekki tugum milljarða sem eftir er þegar tekið er tillit til þess sparnaðar sem unnið er að nú fyrir næsta ár.


mbl.is SUS mótmælir skattahækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkið er svo illa rekið batterí að það getur endalaust tekið fjármuni af fólki og fyrirtækjum og skilað engu í staðin.

Skera það niður, skera það niður, skera það niður.   Henda RÚV út í hafsauga, kostar okkur of mikið að halda úti þessu batteríi.  Henda Kirkjunni út í hafsauga, fáránlegt að 5 milljarðar fari í það batterí árlega.  Henda hverslags geðþótta styrkjum út í hafsauga.

Ríkið er eins og fyrirtæki rekið af öpum, peningarnir fuðra bara út í loftið. Áttaðu þig á því að þegar fyrirtæki eru skattlögð upp í rjáfur er það nauðvörn þeirra að segja upp fólki, lækka laun, draga úr öllum kostnaði og hækka verð.  Þannig aukum við atvinnuleysi og kyndum verðbólguna.... sannarlega glæsileg niðurstaða.  Burt með þessa ríkisstjórn.

Vimmi (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 11:21

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

það hefur ekki verið neinn niðurskurður á opinberum fjármálum á þessu ári eða gert tillögur á því næsta í krónutölu. nema þá í heilbrygðismálum úti á landi og félagslegri þjónustu eins og td. barnabótum.

á meðan erum við með fjöldan allan af sendiráðum sem kosta okkur milljarða og flest þeirra eru á einum og sama blettinum í evrópu og nánast göngufæri við hvert annað. 

Fannar frá Rifi, 10.12.2009 kl. 11:22

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta er ekki rétt Fannar ég man ekki betur en að a.m.k. 4 sendiráðum eigi eða hafi verið lokað og niðurskurður í Utanríkisráðuneytinu sé um 15%. Heilbrigðis og félags og trygginarmál eru líka um 60 eða jafnvel 70% af útgjöldum ríkisins.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.12.2009 kl. 12:23

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gleymdi í upptalningunni átti að vera menntmál líka

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.12.2009 kl. 12:23

5 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Magnús þú gleymir að koma með á móti töluna um þau ráðuneyti sem búið að búa til núna síðustu mánuði....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 10.12.2009 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband