Leita í fréttum mbl.is

Nú verða Indefence að birta lista yfir allar þær ip tölur sem eru bakvið þessar gerviundirskriftir

Það dugar ekki að svara kvörtun um óábyggilegan undirskirftalista með því að nefna að einhverjar færstlur hafi komið frá iptölum í stjórnarráði og hagstofu. Því skv. þessari frétt mætti halda að meirihluti þessara fölsuðu skráninga hafi komið þaðan. Þetta kallast smjörklípa og er ekki ástættanleg. Það er svona fylliega verið að gefa í skyn að þetta sé skipulagt. 

Það hafa tölvuspekngar bent á það í dag og í gær að það var auðvelt að forrita listann þannig að svona gæti ekki komið fyrir. Og eins þá er ekkert athugað með aldur þeirra sem skrifa sig á þennan lista og ekkert fylgst með því.

Bendi t.d. á þetta. Tekið úr athugasemdum á síðu Gunnars Axels http://blog.eyjan.is/gunnaraxel/2009/12/11/andres-ond-a-moti-icesave/#comments 

"Halldór AS // 11. Dec 2009 kl. 11:57

Það er ekki erfitt að komast að því hvernig vartalan sem Gunnar Axel talar um er reiknuð út:

“Níundi stafur kennitölunnar er vartala, og virkar sem ákveðin prófsumma sem er fengin með því að beita ákveðnu reikniriti á fyrstu 8 tölurnar. Fyrstu átta tölurnar eru margfaldaðar með tölunum 2, 3, 4, 5, 6, 7, 2 og 3 frá hægri til vinstri, margfeldin eru svo löggð saman og módúlus 11 fundinn af summunni, þessi módúlus er svo notaður sem níundi stafurinn. Þannig er hægt að athuga hvort að kennitala sé löglega mynduð og hafna kennitölum sem slegnar eru inn sem ekki standast þetta vartölupróf.”

http://is.wikipedia.org/wiki/Kennitala

Svo er ég líka sammála að að lágmarki ætti fólk að geta flett því upp hvort það er skráð þarna og gert við það athugasemd, þó best færi auðvitað á því að gera allar skráningar opinberar.

Held það sé hagsmunamál allra að svona undirskriftarsafnanir séu vel framkvæmdar og hafnar yfir allan vafa, og furða mig því á hvernig sumir vilja lesa úr ábendingum um það sem betur mætti fara hvað þessa tilteknu söfnun varðar."

Ef að á að afhenda lista til forseta til að fá hann til þess að taka stóra ákvörðun er eins gott að vanda til verka.


mbl.is Bullundirskriftir raktar til stjórnarráðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Enn eitt blaðrið í þér.  Færðu aldrei nóg af þessu?

ÞJ (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 21:43

2 Smámynd: Eygló

Ekki minnsti vandi að henda út listanöfnum sem komið hafa úr öðrum en heimilistölvum.

Ennþá minni vandi að keyra það saman við þjóðskrá m.t.v. aldurs í kennitölu.

Eygló, 11.12.2009 kl. 21:51

3 Smámynd: Eygló

Alveg sama hvað forsetinn fengi óvandað og illa frágengið verkefni.... HANN á og mun vanda til verka.

Eygló, 11.12.2009 kl. 21:54

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

ÞJ! Ég var að bregðast við fyrirsögn þessarar fréttar:

"Bullundirskriftir raktar til stjórnarráðsins" Ég neita að trúa því að það séu margar undirskriftir þaðan nema það sé sannað! 

Og eins að það tiltölulega einfallt að koma í veg fyrir svona "svindl" með forritun á síðunni sem tékkar af kennitölur. 

Fólk verður að athuga að þessi undirskriftarsöfnun miðar að þvi að fella ríkisstjórnina sem og að fá forsetan til að neita að skirfa undir lög frá Alþingi.  Og ég sem hef ekki trú á að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur ásamt Hreyfingunni og 2 þingmönnum Vg séu heppileg blanda til að leiða okkur út úr þessari kreppu krefst þess að svona listi sé ábyggilegur. 

Ég get t.d. ekki sannreynt að einhver hafi ekki skráð mig á minni kennitölu. 

Fólki hlýtur að vera ljóst að ríkisstjórn er ekki stætt ef að mál sem hún hefur lagt svo mikla áherslu á að koma í gegn er fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem og að ekkert verður hér úr verki næstu mánuði meða verið er að undirbúia þetta. Sem og að næsta stjórn gæti svo skirfað undir sviptan samning og sega að ekki væri hægt að ganga lengra, eða við dæmd til þess að greiða þetta af dómstól ef hann finnst. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.12.2009 kl. 22:03

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

MHG reyndu að hugsa og reyndu að vera sanngjarn ! Eða er búið að ESB forrita þig svo gersamlega að ekkert sé hægt að rökræða við þig. !

Gunnlaugur I., 11.12.2009 kl. 22:20

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er ósköp sanngjarn. En þegar samtök bera fyrir sér svona rök þá verða þau að sanna mál sitt:

„Það sem hefur vakið furðu okkar er að stjórnarráðslén kemur upp sem og lén Fréttablaðsins, RÚV og Hagstofu Íslands. Þetta kemur sem sagt út tölvum sem er á þeirra vef,

Eru þeir þá að segja að enginn af mogga léninu hafi farið þarna inn, enginn af DV eða léni framsóknar eða Sjálfstæðisflokks? Þeir gátu bara lagað listann og sleppt svona athugsemdum

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.12.2009 kl. 22:59

7 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Magnús eigum við ekki að slaka aðeins á áður en þú ferð að væna menn um óheilindi.

"InDefence
Rétt er að árétta að áður en áskorunin á http://indefence.is verður afhent forseta Íslands verður undirskriftalistinn samkeyrður við þjóðskrá og allar rangar skráningar fjarlægðar. Einnig verður sérstaklega greint frá því hve stór hluti undirskriftanna er frá atkvæðabæru fólki.11 hours ago"

Carl Jóhann Granz, 11.12.2009 kl. 23:24

8 Smámynd: Carl Jóhann Granz

En veltu svo fyrir þér aðferðafræðinni sem er notuð.

Eitthvað er farið að verða óþægilegt fyrir ríkisstjórnina og þá fer allt á fullt að gera það hið sama eins ótrúverðugt og hægt er.
Samanber síðasta dæmi með Daniel Gros, það átti að reyna að sjokkera fólk gegn honum út af kostnaði út af því að hann sagði hluti sem ekki hentuðu.
Nú er spunakringlan að reyna að draga Davíð aftur inn í umræðuna út af lánum seðlabanka til að draga athyglina frá IceSave.

Það jákvæða er að fólk er farið að sjá vel í gegnum þessa taktík og alla frasana.

Carl Jóhann Granz, 11.12.2009 kl. 23:28

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvar get ég kannað hvort að einhver hefur notað mitt nafn og mína kennitölu Carl Jóhann.? Og ég bendi þér á að þeir sem eru að tala um að kanna færstlu á hverri ip tölu að nú á 3 tímum er ég búinn að skrá athugsemdir úr 3 tölvum á 3 ip tölum. Þetta kerfi er bara ekki ástættanlegt miðað við alvöru málsins.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.12.2009 kl. 23:28

10 identicon

Þetta á eftir að vera vatn á myllu InDefence og gera það að verkum að undirskriftir eiga eftir að aukast verulega.  Fólk er ekki fífl.  70% þjóðarinnar sem krefst þess að fá að kjósa um Icesave samninginn lætur ekki svona óþverraskap vinna gegn kröfunni um lýðræðisleg vinnubrögð í landinu.  Skrímsladeild Samfylkingarinnar, DV, RÚV, Fréttablaðsins, Hagstofunnar og Stjórnarráðsins eiga eftir að engjast eftir þessihryðjuverk. 

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 23:29

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

EIns bendi ég að margir eru ekki með fastar ip tölur. Ég er með fasta tölu hjá mér en þegar ég skoða í vefmæli hjá mér þá eru þið sem hingað komið mjög mörg hjá t.d. símanum og fáið bara ip tölu þar þannig að margir eru á sömu tölu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.12.2009 kl. 23:31

12 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Ég hef heyrt þessa athugasemd með að geta flett sjálfum sér upp til að vita hvort einhver sé að nota nafn manns. Hún er réttmæt.

Af hverju hefur þú þá ekki samband við InDefence og bendir þeim á það, því ég þykist vita að þeir vilji hafa listann hafinn yfir allan vafa.

Síðan skulum við ekki gleyma því að þetta er þverpólitísk áskorun.

Carl Jóhann Granz, 11.12.2009 kl. 23:36

13 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Finnst nú hæpið að kalla þetta þverpólitískt. Bendi þér á að þeir flytja sama boðskap og framsókn um þetta mál. Þeir segja að það breyti engu þó að þetta mál sé dregið fram á næsta sumar. Þetta er strákar mest á aldrinum 30 til 40 ára ný búnir í námi sem ganga um eins og þeir séu sérfræðingar í milliríkjasamningum og viðbrögðum annarra þjóða.

Þeir hafa t.d. ekki skýrt út fyrir fólki hvað gerist ef Forsetinn skrifar ekki undir:

  • Það kemur hér tímabil þar sem ekkert verður gert annað en að berjast fyrir ólíkum málstað og ekkert annað verður gert. Svona svipað og er nú.
  • Ef að þjóðin svo fellir málið þá verður stjórnin að segja af sér. Því að þar með væri verið að fella lausn sem unnið hefur verið að síðan í október í fyrra.
  • Þá tekur við stjórnarkreppa nema að Sjálfstæðismenn, framsókn, Hreyfingin og Lilja og Ögmundur og einhverjir 2 í viðbót myndi stjórn.
  • Ef það tekst ekki verður að kjósa upp á nýtt og þá tekur við kannski 3 til 5 mánuðir þar sem að engin þorir að taka erfiða ákvörðun vegna komandi kosninga.
  • Svo vitum við ekkert um viðbrögð Breta og Hollendinga. Við jú þekkjum hvernig þeir brugðust við síðast. Og það var nærri búið að skapa hér neyðarástand. Og staða okkar og fyrirtækjana er nú ekki beisin í dag.

Þetta er ekki hræðslu áróður frekar en gífuryrði Indefence og stjórnaandstöðunar um að allir sem segja að við ráðum vel við Icesave sé vitlaust þó það séu óvart allar opinberu stofnanirnar sem koma að þessu máli. Nei Stjórnarandstaðan og "sérfræðingar" hennar vita þetta svo miklu betur. Þeir eru ekkert að stressa sig yfir gjaldþroti seðlabanka sem við verður að takast á við núna. Nei það er Icesave sem líkur eru á að verði greitt allt að 70 til 80% áður en við hefjum afborganir það er miklu mikilvægara. Og þó allar þjóðir EES telji að okkur beri í ljósi þess að það er bannað að mismuna innistæðueigendum eftir búsetu eða þjóðerni að borga innistæðutrygginaga, þá eru þessir "sérfræðingar" vissir um að að við þurfum ekkert að borga þetta því að nokkrir Íslenskir lögfræðingar hafa fundið einhvern galla í EES tilskipun. Jafn vel þó ekkert annað land haldi þessu fram.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.12.2009 kl. 23:59

14 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Athugað verður með aldur allra áskorenda. Einnig verður listinn keyrður saman við þjóðskrá af óháðum aðila. Ef til dæmis nafn passar ekki við kennitölu, þá fer sú undirskrift ekki með í eintakið sem forsetinn fær afhent.

Reynir Jóhannesson, 12.12.2009 kl. 00:40

15 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Einu var ég að átta mig á!

Þetta gæti verið  fyrsta útspil Nágríms fyrir netlöggunni sem hann hefur boðað undanfarin ár!

Óskar Guðmundsson, 12.12.2009 kl. 01:07

16 identicon

Það er nú satt best að segja ásættanleg áhætta að hér komi upp stjórnarkreppa ef það þýðir að mögulegt sé að Icesave falli ekki á þjóðina.

Blahh (IP-tala skráð) 12.12.2009 kl. 07:10

17 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Blahh! En hvað heldur þú að það kosti okkur. T.d. varðandi

  • Lánshæfismat næstu árin. Og þar af leiðandi hærri vexti á öll lán sem. Bankar, Ríki og fyrirtæki þurfa að taka næstu kannski 5 til 7 ár. Möguleiki á að hærri vextir sem við borgum af öðrum lánum fari langt upp fyrir þann kostnað sem þjóðin ber af icesave. Þe. um 150 til 300 milljarðar. Og eins að allar greiðslur sem hafa komið inn af Eignum Landsbanka sitja í Bretlandi vaxtalausir í Bretlandsbanka nú um 180 milljarðar.
  • Eins að það verða engar ákvarðanir teknar hér næstu mánuði eða ár sem koma okkur af stað aftur. Því að því að engin flokkur þorir að taka óvinsælar ákvarðanri fyrr en eftir kosningar ef þær eru væntanlegar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.12.2009 kl. 11:10

18 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Indefence hefur t.d. bent á það að ef nýju lögunum verður hafnað þá eru ennþá í gildi lögin frá því í sumar þar sem þverpólitísk sátt náðist um fyrirvarana.

Bretar og Hollendingar geta samþykkt þá fyrirvara ef nýju lögunum verður hafnað.

Carl Jóhann Granz, 12.12.2009 kl. 12:38

19 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bendi þér á að ég perónulega tek ekki mark á þessum "Indefence" Þetta er hópur manna sem átti það sameiginlegt i byrjun að hafa verið við nám í Bretlandi. Þetta eru menn með ýmsa menntun en fæstir með menntun á þessum sviðum.

Finnst þeir líta meira á þetta icesave mál semeinskonar  fjárhættuspil og það sé það sem gerir það spennandi fyrir þá. 

Og það er ekki hægt að segja að þverpólitísk sátt hafi náðst um fyrirvarana. Framsókn var á móti og Sjálfstæðismenn sátu hjá. Og Indefence gerði fjöl margar athugasemdir við þessa fyrirvara. Bendi þér líka á að Helgi Áss lögfræðingur sem var mjög mikið með Indefence vann að þessum samningum sem nú er verið að fjalla um. Þar eru flestir fyrirvarar kominir inn í samninginn. En það var einmitt minnir mig atrið sem Indefence og fleiri sögðu í sumar að fyrirvarar stæðust ekki fyrir dómi. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 12.12.2009 kl. 12:49

20 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Þetta er nú ekki alveg rétt hjá þér.

Það var þverpólitísk sátt um fyrirvarana þó svo að Framsókn hafi sagt nei og Sjálfstæðismenn sátu hjá við samþykkt Icesave sem slíkt.

Það er svo fullt af bæði sjálfstæðis og framsóknarmönnum sem hafa engann áhuga á þessari áskorun.
Ég aftur á móti skrifaði undir síðast og aftur nú. Því ég geri mér grein fyrir því að það eru allar líkur á að það verði erfiðara hjá þjóðinni næstu árin út af því en er ég þó handviss um að það ástand verði styttra heldur en að samþykkja svona afarkosti.

Einnig í samtölum mínum við fólk úr öllum flokkum sem styður þjóðaratkvæði um þetta mál er að þau gera sér grein fyrir því sama. Það er bara ekki tilbúið að láta brjóta sig svona niður þó svo það þýði að hlutirnir verði erfiðari.

Carl Jóhann Granz, 12.12.2009 kl. 13:31

21 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Maggi þú segir í athugasemd númer 9 hér að ofan:

 ,,Og ég bendi þér á að þeir sem eru að tala um að kanna færslu á hverri ip tölu að nú á 3 tímum er ég búinn að skrá athugsemdir úr 3 tölvum á 3 ip tölum. Þetta kerfi er bara ekki ásættanlegt miðað við alvöru málsins"

Þegar undirskriftalistar ganga og menn skrá á þá með undirskrift sinni, þá er líka hægt að falsa undirskriftir. Að gera slíkt gera menn nú ekki nema drukknir eða eitthvað hefur farið úr lagi í toppstykkinu.

Sigurður Þorsteinsson, 12.12.2009 kl. 14:47

22 identicon

Já, þetta er skrítin fréttatilkynning hjá InDefence hópnum. Nefna sérstaklega þessa aðila, eins og einu gerviundirskriftirnar hafi komið frá þessum stöðum.

Svo eru þessir framsóknarpjakkar bara að bulla. Þeir eru örugglega að vinna fyrir einhvern vogunarsjóð sem pabbi hans Sigmundar á, eða eitthvað. Bulla svo bara um að redda 2000 milljarða króna lánum eins og ekkert sé. 

Bjöggi (IP-tala skráð) 13.12.2009 kl. 01:05

23 identicon

Það er rétt hjá þér Magnús að staðan er vond og við megum illa við kosningum á 6 mánaða fresti.

En hvað er hægt að gera ?? 

Síðan skilur fólk ekkert í því að Hitler komst til valda við svipaðar aðstæður.

Verst var að hann stóð við allt sem hann sagði... og meira til.

Í svona aðstæðum verður leiðtoginn að vera sterkur, margt gott má segja um Jóhönnu, en hún er ekki sterk.

Það væri ekkert mál fyrir stjórnmálamann að sópa að sér fólki á Íslandi í dag, hann þyrfti aðeins að vera heiðarlegur (í það minnsta að líta út fyrir það), gefa fólkinu upplýsingar (kannski ekki allar, en slatta).

Íslendingar eru sterk þjóð og ég tel að flestir geri sér grein fyrir því að róðurinn framundan verði þungur. Flestir eru tilbúnir í slaginn en aðeins, og AÐEINS, ef réttlætinu er fullnægt.

Það er ekki möguleiki á því að fólk berjist áfram ef hrunameistararnir halda bæði frelsi sínu og eignum !!!

Engin stjórn fær þegnana með sér ef fyrri málsgrein er óuppfyllt, Engin !!

Þessum einfalda sannleika verða okkar handónýtu stjórnmálamenn að troða inn í sinn þykka haus !

runar (IP-tala skráð) 13.12.2009 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband