Leita í fréttum mbl.is

Spurning hvort fólk hugsi ekki áður en það talar á Alþingi?

En á ný rjúka þingmenn upp í ræðustól á Alþingi án þess að hugsa held ég til enda það sem það segir þar! Nú síðast man ég að Þorgerður Katrín fór í ræðustól til þess að krefjast þess að opinber rannsókn færi fram á því að stjórnarráðið, ruv og hagstofan væri notuð til þess að eyðileggja undirskriftarsöfnun indefence. Sem síðar kom í ljós að voru nokkrar "bullskráningar"

Nú er verið að tala um fjárfestingarverkefni sem hefur verið í undirbúningi um langt skeið. Jú vissulega tengist það Björgúlfi í tengslum við Novator sem er fyrirtæki sem hann á að miklu eða öllu leyti. En iðnaðarráðherra benti á að þetta fyrirtæki á minnihluta í þessu verkefni og stefnt er að því að minnka þann hluta á næstu árum með því að aðrir erlendir aðilar eru að koma inn í fyrirtækið.

En það er ekki það alvarlegasta í þessu heldur þessi fullyrðing þingmannsins um að Björgólfur skilað

þýfinu sem horfið hafi af Icesave-reikningum sem hann hafi borið beina ábyrgð á. 

Þetta er náttúrulega út í hött. Hún er að fullyrða eitthvað sem hún veit ekkert um. Hvaða peninga tók Björgólfur úr Icesave persónulega? Er ekki rétt að fólk á löggjafaþinginu biði eftir dómi áður en það fullyrðir slíkt. Minni á að Björgólfur rekur nú þegar fyrirtæki hér eins og Aktavis, Nova og fleiri fyrirtæki. Ekki það að ég sé að draga úr ábyrgð Björgólfs sem eiganda Landsbankans. Þeir klúðruðu málum alvarlega. Ef þeir verða fundnir sekir þá gildir væntanlega um þá eins og aðra að skv. lögum þá mega þeir ekki vera í stjórn fyrirtækja hér á landi.

En ef við förum út í svona leik þá eru fáir Íslenskir fjárfestar sem eiga að fá að fjárfesta hér í framtíðinni. Jafnvel formaður Sjálfstæðisflokksins var í braski beint og óbeint.

Held að það sem við viljum er hér sé fjárfest. Það er okkur nauðsynlegt. Við sættum okkur kannski ekki við að þessir fjárfestar séu í aðalhlutverki. En við setjum um fyrirtæki og hluthafa stífar reglur sem þeir verða fylgja og fylgst verði með því að þeir geri það.  

En ef við ætlum að beita svona ofstæki eins og Birgitta sýndi í morgun þá verður hér ekkert fjárfest. Og hingð koma þá engin fyrirtæki. Og hér skapast þá engin vinna.

P.S. Nú bætti hún um betur í stíðdegisútvarpinu! Hún sagði að það væri sannað að Björgólfur væri með skýr tengsl við Rússnesku mafíuna. Og hún segir að þetta geti bara beðið. Held að hún sé ekki að skora hátt á Suðurnesjum?


mbl.is „Hvar liggja siðferðismörk ráðherra?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hið sanna siðferðismat Samfylkingarinnar er að koma í ljós. Ekkert skiptir máli nema peningar. Það er þetta hugarfar sem leiddi til hrunsins og mun leiða aftur til hruns. Þetta er ekki glæpsamlegt hugarfar, bara heimskulegt.

Doddi D (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 12:23

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta er mjög gáfuleg athugasemd. Hvað hefur þetta með siðferðismat að gera? Þarna er fyrirtæki sem hefur veirð að vinna að þessu verkefni í 3 ár. Þarna á jú Björgólfur í fyrirtækinu sem vinnu að þessu. Hann er í minnihluta! Ef að allir sem hafa átt í fyrirtækjum sem hafa orðið gjaldþrota eru útilokaðir þá eru hér fáir eftir sem geta fjárfest. Minni þig á að um 30 þúsundu manns áttu hluta t.d. í Kaupþingi.

Það er spurning um að lög og reglur ásamt eftirliti með þeim tryggi gegnsæi, aðhald og að fyrirtæki geti ekkert gert sem stefni þjóðarhagsmunum í hættu.

Hér fyrir nokkrum mánuðum var fólk að heimta að þessir menn kæmu með fjármagn til að byggja hér upp! Þarna er verði að koma með erlent fjármagn hingað. Er það ekki það sem við þurfum?

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2009 kl. 12:44

3 Smámynd: corvus corax

Björgólfur er alsaklaus eins og allir hinir stórþjófarnir. Peningarnir löbbuðu bara sjálfir í burtu frá bæði þeim og réttum eigendum þeirra. Auðglæpahyskið er þar með alveg saklaust!

corvus corax, 17.12.2009 kl. 12:51

4 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús, samkvæmt íslesnkum hlutafélagalögum, þá dugar þessi eignarhluti til að ná meirihluta í stjórn.  40% er vissulega minnihlut, en sé eigandi með 40% langstærsti eigandinn, þá getur hann með margfeldiskosningu fengið meirihluta.  Það er t.d. sem gerðist á sínum tíma þegar Kögun fór yfir til Og fjarskipta (eða hvað það nú hét sem síðar varð Vodafone).  Það veltur því á hlutfallslegum eiignarhlut annarra hluthafa hvort Björgólfur ræður félaginu eða ekki.  Það finnst mér skipta mestu máli og síðan að Björgólfur standi við orð sín frá því á síðasta ári um að þjóðin muni ekki bera neinn skaða af Icesave.  Leggi hann fram greiðslu til ríkissjóðs fyrir tjóni ríkisins og þar með okkar skattborgara vegna Icesave, þá er honum velkomið að eiga stóran hluta í gagnaverinu.  Ég vil taka það fram, að mér finsnt gagnaverið mjög góður kostur inn í flóru íslensks atvinnulífs og fagna komu þess.  Ég mun heldur ekkert ergja mig yfir þátttöku Björgólfs í íslensku atvinnulífi, ef hann bara tekur til eftir síðasta partý sem hann hélt.

Þessi samlíking þín við 30 þúsund hluthafa Kaupþings er heldur döpur.  40% eignarhluti er ráðandi eignarhluti meðan ekki er annar stærri.  Við vitum að enginn er stærri en Björgólfur í þessu verkefni.  Þannig að burt séð frá því að ekki er um meirihlutaeign að ræða, þá er hún ráðandi og það er það sem skiptir mestu máli.  Í flestum fyrirtækjum erlendis er nóg að eiga 10% til að eiga ráðandi eignarhluta.

Marinó G. Njálsson, 17.12.2009 kl. 13:16

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Er ekki að segja að Björólfur sé saklaust um eitt né neitt. En er ekki rétt að vita um hvað hann er sekur. Þannig er t.d. líklegt að ekki sé hann sekur um að eignir Icesave reyndust minni en þær voru. Það eru væntanlega starfsmenn bankans sem vermátu þau veð sem þeir tóku fyrir útlánum bankans. Og skv. því sem fullyrt var í nóvember á síðsta ári voru eignir sem metnar voru upp á 4000 milljarðar á bak við Icesave. Eignir sem hrundu svo vegna ástandsins. Þ.e. fyrirtæki sem höfðu fengið lánað frá Landsbanka sem svo urðu gjaldþrota og geta því ekki borgað.

Ég geri nú ráð fyrir að ábyrgð á stjórn bankans sé nú mest hjá bankastjórum. Þannig er það í flestum fyrirtækjum að þeir fela forstjórum að stýra þeim.

Og svo bendi ég að Björgólfur er ekki gjaldþrota enn. Hann rekur fullt af fyrirtækjum hér á landi og erlendis. Pabbi hans og fleiri eru hinsvegar gjaldþrota með allt sitt.

Bendi líka á að fullt af fólki er tilbúið að skipta við fyrirtæki Novator sem á væntanlega t.d. Nova sem um margir tugir þúsunda Íselndinga eru að skipta við með því að nota þjónust þeirra fyrir GSM. Sem og við erum að nota töflur frá Actavis.  Og nú er fyrirtæki sem var byrjað að undirbúa gangver á Reykjanesi fyrir nokkrum árum og Björgólfur á í einhvern hluta sem fer minnkandi að fara á fullt í framkvæmdir. Framkvæmdir sem skila um 87 milljörðum í gjaldeyrir og skapar vinnu fyrir nokkur hundruð manna og þá fara allir á háa c-ið. Sama fólk og hefur kannski barist fyrir álverum þó að þau fyrirtæki sem þar eru að verki séu alræmd um allann heim fyrir ýmislegt misjafnt. Það er ekki hægt að beyta hér siðferðisrökum.

Ef að Björgóflur er sekur um eitthvða ólöglegt eða vítvert þá kemur það í ljós á næstu mánuðum og hann verður dæmdur og má þá ekki sitja í stjórnum fyrirtækja sinna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2009 kl. 13:18

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Marinó! Þú getur kannski bent mér á leið til að bjarga þessu 87 milljörðum sem eru áætlaðir í þetta gagnaver öðruvísi?

Síðan þó við nú vitum að icesave var algjör vitleysa þá þurfum við kannski að benda á hvað þeir gerðu rangt eða ólöglegt til að geta rukkað þá persónulega. Man ekki betur en þeir feðgar og bankastjórar litu svo á að það væru til eigur sem bökkuðu þetta Icesave upp. Minnir að þær hafi átt að vera um 4 þúsund milljarðar. Það geri ég ráð fyrir að hafi verið mat starfsmanna bankans, Ekki Björgólfs. Þessar eignir reyndust svo aðeins 25% af því virði sem áætlað var. Þar kemur væntanlega til bæði ofmat sem og hrun á mörkuðum.

En eins og þú veist þá er aðal vandamálið að stjórnvöld voru ekki að standa sig í eftirliti með þeim né aðhaldi. Og sérstaklega ekki í því að koma þessum óskapnaði til útlanda sem hann átti heima í.

En þegar ég var að tala um hluthafa t.d. í bönkum, þá var ég að meina að það eru forstjórar sem stjórna fyrirtækinu og taka dag frá degi ákvarðanir.

40% getur væntanlega dugað til að ná meirihluta í stjórn fyrirtækja. En skv. fréttum fer þessi hluti minnkandi. Og svo er þess að geta að gagnaver er væntanlega eitthvað sem stendur og fellur með eigendum en lendir ekki á okkur ef það fer á hliðina.

Það er ekki eins og ríkið sé að taka þátt í þessu þó gert sé samkomulag við þetta fyrirtæki um tekjuskatta næsu árin. Við gerðum það í Reyðarfirði þó ekki færu fallegar söugur af eigendum þar víða um heiminn. Við gerðum það við Norðuál þó það væri óvíst um fjármögnun.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2009 kl. 13:31

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

PS ég vildi gjarnan að allir þessir menn færu norðu og niður og kæmu aldrei að málum hér á landi. En ég er tækifærissinni og vill nýta fjármagn sem þeir geta skaffað ef að tryggt er að notkun þess sé eftir lögum ,reglum og skýru eftirliti og ekkert leyni pukur

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2009 kl. 13:34

8 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Magnús !

    Þú fyrirgefur mér vonandi hreinskilnina , en af skrifum þínum , þá leynir það sér ekki , að annað hvort ert þú handbendi Björgólfs , eða þá vægast sagt bláeygur , því ég  held það leynist afar fáum , sem horfðu á Kompás með þessum þjóf í fyrra , að hann er ekki aðeins stórþjófur , heldur sér ekki eftir neinu , enda sagði hann þar að það væri ekki hanns að koma með fé út af Icesave , eða eins og Corvus sagði ; "Peningarnir löbbuðu bara í burtu" .

    Í guðs almáttugs bænum skoða þú hug þinn , maðurinn er bullandi sekur , hvort sem hann fær dóm eða ekki , eða er maður saklaus er maður stelur , ef ekki er hægt að sanna það ?

Hörður B Hjartarson, 17.12.2009 kl. 19:16

9 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús, það er ekki mitt að finna nýja fjárfesta og er ekkert að tala um þann þátt.  Ég er að benda þér á, að minnihlutaeign eins og þessi er ráðandi eignarhluti og því fer Björgólfur líklegast með stjórn félagsins, ef hann vill.  Um það snerist færslan.  Ég vona þó að láti sér vitrari mönnum eftir að taka allar stefnumótandi ákvarðanir.  Þar er hann t.d. með Vilhjálm Þorsteinsson, sem almennt hefur tekið ákaflega góðar ákvarðanir, þegar kemur að upplýsingatæknibransanum.

Varðandi þá feðga, þá hvet ég BTB bara til að taka þátt í hreinsunarstarfinu og koma með eignir sínar inn í þá vinnu.  Mér finnst BTB ekki vera búinn að vinna rétt til setu við borð uppbyggingarinnar fyrr en hann hefur fyrst staðið við þau orð sín að skattgreiðendur eigi ekki að bera skarðan hlut frá borði vegna Icesave.  Ég kaupi ekki þá skýringu, að hann hafi ekki haft neitt með stefnumótandi ákvarðir Landsbankans að gera.  Ég held að hann hafi samþykkt allar stærstu ákvarðanir varðandi slíkt áður en þeim var hrynt í framkvæmd.  Annað væri einfaldlega óábyrgt af honum.  Ég held raunar að ákvörðunin um að gera út á íslenska tryggingasjóðinn hafi verið taktísk ákvörðun tekin með fullri vitund og samþykki þeirra feðga.

Marinó G. Njálsson, 17.12.2009 kl. 19:23

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Æi ég viðurkenni að ég var ekkert svakalega búinn að hugsa þetta. En ég leyfi mér samt að ítreka það að þingmenn verða að fara varlega með þinghlegi sína og vera ekki að dæma menn þaðan sem geta ekki svarað fyrir sig. Og eins að menn verða að muna að Björgólfur er nú þegar eigandi að ýmsum félögum hér á landi eins og CCP, Nove, Aktavis og fleiri sem eru enn í fullum rekstri og hafa enn að minnstakosti ekki lent á okkur. Sem og að óvart þá eru ekki margir hér á landi sem geta fjárfest í svona stórum verkefnum. Og eins að Novator á núna 40% en fjárfestar sem koma inn nú á næstunni til að halda áfram með verkið þá fer eignarhlutur hans í 30% og þannig heldur þetta áfram.

En ég er ekki Bjögólfsmaður. Alls ekki! En ég er frekar ekki Sigurjóns og  Halldórs maður sem voru jú bankastjórar Landsbanka.  Mín vegna væri ég fenginn að þeir væru ennþá í Rússlandi. En óvart þá eru þeir hér og eiga möguleika á að fá hingað fjárfesta og þá vil ég nýta.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2009 kl. 19:41

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og Marinó ég er alveg sammála þér og veit að 40% dugar oft til að ná völdum í fyrirtæki. Og eins um þessi tengs milli eigenda að þessu gagnaveri. En þetta er samt fyrirtæki sem er þegar komið á veg með framkvæmdir, þessar framkvæmdir skapa vinnu fyrir kannski um 20% þeirra sem eru á atvinnuleysisskár á Reykjanesi. Svo eru við í þeirri stöðu að setja þetta líka bara í bið um aldur og ævi. Því ég sé ekki alla fjárfesta sem hafa skoðað aðstöður fyrir gagnaver viðsvegar um landið koma á næstu mánuðum með fjármagn.

En þetta er alveg spurning. Hvað á að gera? Ég skil að fólk sé reitt en fólk verður líka að opna á tækifærismennskugenið þegar við eru í þeirri stöðu sem við erum í. Hins vegar á að útiloka þessa menn örugglega frá öllu sem heitir banka og fjármálastarfsemi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.12.2009 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband