Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

Ekki viss um að það væri sterkur leikur hjá Valdemar Leó

Var að lesa síðunna www.morgunhaninn.is sem er síða Jóhanns Haukssonar á Útvarpi Sögu. Þetta er flott þjónusta að geta hlustað á öll viðtöl hans úr þáttunum. Og lesa úrdrátt úr þeim.

En semsagt þar kemur fram að Valdemar Leó þingmaður, sem kom illa út úr prófkjöri hyggist segja sig úr þingflokki Samfylkingar og bjóða sig fram fyrir Frjálslynda. Ég verð bara að segja að það er að mínu mati ekki sterkur leikur. Kjósendur horfa til þess sem þau heyra og sjá frá þingmönnum og satt að segja hefur ekki heyrst mikið í honum. Og hann gerir þetta, kæmi til með að fylgja því að honum hafi verið hafnað í Samfylkingunni og þá fari hann bara í næsta flokk.

En hér kemur fréttin af www.morgunhaninn.is

Gengur hann úr þingflokknum?

15.nóvember 2006 - kl. 12:17
Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Samfylkingarinnar, íhugar framtíð sína í stjórnmálum, en hann hafnaði í 14 sæti í prófkjöri flokksins í SV-kjördæmi á dögunum. Hann gagnrýnir komu Reykvískra þingmannsefna, sem raðað hafi sér í efri sæti listans í prófkjörinu með stuðningi peningamanna. Sjálfur kveðst hann hafa varið meira en 800 þúsund krónum úr eigin vasa í prófkjör og það sé allt á yfirdrætti. "Ætli ég komi ekki næst í strætó í útvarpsviðtal." - Valdimar Leó kveðst ætla að gefa út yfirlýsingu um framtíð sína á sunnudaginn kemur. Hugsanlegt er að hann segi sig úr þingflokki Samfylkingarinnar og óstaðfestar heimildir herma að hann íhugi að bjóða sig fram fyrir Frjálslynda flokkinn í SV-kjördæminu. "Ég kem aftur," segir Valdimar

Nei sko gæti verið að hlutirnir færu að breytast í Bandaríkjunum?

Fann þessa frétt á www.visir.is

 
 

Vísir, 15. nóv. 2006 23:48


Umhverfismál ofarlega á baugi í Bandaríkjunum

Þrír demókratar í bandarísku öldungadeildinni sem koma til með að verða yfir nefndum um umhverfismál í Bandaríkjunum segjast óánægðir með framlag George W. Bush, bandaríkjaforseta, í umhverfismálum. Þeir segjast ætla að setja á hann pressu um að koma með lög sem takmarka losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið.

Í bréfi sem þeir skrifuðu Bush kom fram að þeir héldu að sigur sinn í kosningunum þýddi ekki aðeins stefnubreytingu í Írak heldur hefðu kjósendur líka verið að gagnrýna stefnu Bush í umhverfismálum.

Fulltrúi Bush á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Næróbí í Kenía hefur hafnað öllum hugmyndum sem þar hafa fram komið varðandi að takmarka losun gróðurhúsateguna meira en komið er.


Hann hefði betur búið á Íslandi

Hér hefði þessi fengið skilorðsbundið fangelsi og svo verið ráðinn af einhverjum bankanum í áhrifastöðu.

Við sáum sáum hvernig að Skjár 1/ Símamálið fór

Frétt af mbl.is

  Aðalendurskoðandi Enron dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi
Erlent | mbl.is | 15.11.2006 | 20:52
Mynd 413957 Richard Causey, fyrrverandi aðalendurskoðandi Enron, var í dag dæmdur til fimm og hálfs árs fangelsisvistar fyrir þátt sinn í Enron-málinu svokallaða. Hann var eini hátt setti yfirmaðurinn hjá fyrirtækinu sem enn átti eftir að dæma. Causey samdi við saksóknara í málinu og játaði sig sekan um fjársvik í desember á síðasta ári, tveimur vikum áður en rétta átti yfir honum.


mbl.is Aðalendurskoðandi Enron dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær grein um lífeyrismál

Bara að benda á grein eftir Ólaf Hannibalsson sem er að finna á visir.is  Þar segir m.a.

Yfirvöld leggja oft hart að þegnunum að spara og leggja fyrir til elliáranna. Hvar er hvatinn til þess ef sá sparnaður leiðir einungis til skerðingar á lífeyri að sama skapi? Oft virðist hægri hönd ráðamanna þjóðfélagsins ekki hafa hugmynd um hvað sú vinstri er að bauka!
Ekki nóg með það. Með því að hverfa frá hinni upphaflegu grunnreglu almannatrygginga um áunninn einstaklingsbundinn rétt, yfir í ölmusukerfi, þar sem bótaþeginn verður að sanna fyrir yfirvöldum að hann sé „verðugur" sökum fátæktar, er lagður grunnurinn að eins konar fjölmennri eftirlaunalögreglu, sem snuðrar í skattskýrslum fólks og bankabókum, og krefst endurgreiðslna á hverjum eyri sem til hefur fallið utan marka fátæktargildrunnar.

Hér má finna greinina í heild


Nei nei þeir þurfa ekkert að gera eins og aðrar þjóðir!

Meira segja Arnold Schwarzenegger veit betur en fulltrúi Bandaríkjastjórnar og er að vinna að aðgerðum. En Bandaríkin eru sífellt að þumbast við

ruv.is

BNA: Tilmælum Annans hafnað

Bandaríkjastjórn vísar á bug tilmælum Kofis Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að minnka losun eiturlofts og tekur ekki til greina ásakanir hans um skelfilegt forystuleysi í baráttunni gegn hlýnandi loftslagi.

Formælandi Bandaríkjastjórnar, Paula Dobriansky, fullyrðir að Bandaríkin fylgi þeirri stefnu að stöðva eiturefnalosun, ekki að minnka hana. Fjárfest sé í grænni tækni og nýjum aðferðum til að gera kolabruna hreinni.

 


Erum við að gefa stóryðjum rafmagnið?

Á ruv.is fann ég þetta sem sjá má hér á eftir. Er það ekki algjör aumingjaskapur hjá fyrirtæki sem hefur haft nær einokunaraðstöðu á raforkumarkaði í áratugi að fá ekki betra mat. Getur verið að þetta sé vegna þess að þeir hafa selt tiltölulega fáum megnið af raforkunni á verði sem varla stendur undir fjárfestingum:

.ruv.is

  • » Fréttir
  • Rekstraráhætta LV meiri en gengur og gerist

    Rekstaráhætta Landsvirkjunar er meiri en gerist á almennum markaði og mun meiri en meðal sambærilegra fyrirtækja í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta má ráða af skýrslu sem lögð var til grundvallar verðmati á Landsvirkjun vegna kaupa ríkisins á hlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar í fyrirtækinu.

    Doktor Jón Þór Sturluson, dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, segir að almennt gildi að orkufyrirtæki hafi litla rekstaráhættu. Stuðullinn beta er notaður til að gefa rekstraráhættuna til kynna, ef beta er lægri tala en 1 gefur það til kynna minni áhættu en almennt á markaði. Fyrir flest orkufyrirtæki í Evrópu gildir að beta er frá 0,4 upp í 0,8. Fyrir norska ríkisorkufyrirtækið Statskraft er þessi tala 0,6. Fyrir Landsvirkjun er sambærileg tala hins vegar 1,3 sem gefur til kynna meiri áhættu en að meðaltali á almennum markaði og mun meiri en almennt í orkugeiranum. Landsvirkjun reynir að vísu að tryggja sig gegn þessari áhættu með ýmsu móti, m.a. með framvirkum samningum.


OK á að byrja ferilinn sem stjórnmálamaður á skítkasti og smásmuguhætti?

Sigríður Andersen sem eftir miklar auglýsingar og læti lenti í 10 sæti á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík er að blása í Fréttablaðinu um auglýsingabann samfylkingarinnar í Reykjanesi. Mér finnst nú að hægt sé að segja að hún sé nú ekki að byrja glæsilega sinn feril.

Hún gerir grín að þessu banni og segir að fólk hafi eitt stórum upphæðum í kynningarbæklinga í staðinn. Hún virðist ekki átta sig á því að ef ekki hefði verið bann á auglýsingum í blöðum á hefðu flestir frambjóðendur bæði auglýst í fjölmiðlum og sent út svona bæklinga. Því er það að frambjóðendur Samfylkngar voru flesti að eyða innan við milljón meðan hún og aðrir voru að eyða 3 til 8 milljónum.

Er ekki sagt um svona málatilbúnað "að hæst bylji í tómri tunnu"

(Smá í viðbót: Hver skildi hafa borgað kosningabaráttu Sigríðar. Hún er óneitanlega tengd við fyrirtæki landsins því hún var jú lögfræðingur Verslunarráðs Íslands)


mbl.is Sigríður Andersen gerir athugasemd við skrif Guðmundar Steingrímssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirbyggjandi árásir

Ég var að lesa inn á visir.is ummæli eftir vin minn Bush:

 

Vísir, 14. nóv. 2006 23:35

Bush1Ekki hægt að útiloka fyrirbyggjandi árásir

Bandaríkin eða aðrar þjóðir verða að íhuga möguleikann á fyrirbyggjandi árás ef Íran eða Norður-Kórea halda áfram að sækjast eftir kjarnorkuvopnum. Þessu skýrði háttsettur embættismaður innan bandarísku stjórnarinnar frá í kvöld.

Bandaríkin og bandamenn þeirra hafa sakað löndin tvö um ætla sér að koma upp kjarnorkuvopnum en Íranir neita þeim ásökunum. Embættismaðurinn, sem talaði gegn því skilyrði að ekki yrði skýrt frá því hver hann væri, sagði að önnur ríki á þessum svæðum gætu farið að íhuga kjarnorkuvopnaeign ef þessi tvö ríki héldu áfram með áætlanir sínar. Þess vegna væri ekki hægt að útiloka fyrirbyggjandi árásir á þau í framtíðinni.

George W. Bush hefur sagt að hann styðji viðræður en hefur þó ekki útilokað hernaðaraðgerðir gegn Írönum enn. Sérfræðingar segja að árás á búnað Írana til kjarnorkuframleiðslu myndi aðeins seinka áætlunum þeirra um 4 ár. Sumir halda að Ísrael eigi eftir að gera loftárásir á búnaðinn ef Íranar halda áfram að ögra þeim en Íranar hafa sagt að þeir myndu svara slíkri árás um leið.

Hann er en við sama heygarðshornið. Ætlar hann aldrei að læra. Hverju hafa fyrirbyggjandi árásir hans skilað okkur hingað til. Í Afganistan eru enþá fjölmennt erlent herlið til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld og sífellt er verið að drepa fólk. Ástandið í Írak er verra. Það er spurning hvernig þetta verður ef að ráðist verður á Íran og Norður Kóreu. Þá verða væntanlega hundruð þúsunda hermanna bundnir þar m.a. frá Bandaríkjunum. Á endanum verður megin hluti hermanna Bandaríkjani í löndum sem þeir eru búnir að hernema.

Hvernig væri nú að fara að leita annarra leiða til sátta við þessi lönd. Aðferða sem byggjast ekki á því að: Gera eins og Bandaríkin vilja, heldur á samkomulagi og samvinnu að sameiginlegu markmiði sem er friður í heiminum.


Tapað - fundið1,7 milljarður í forvarnarstarf gegn eiturlyfjurm - hvar lentu þeir peningar?

Skoðið þessa frétt hér fyrir neðan. Skemmtilega málefnalegur eða hitt þó heldur hann Guðni Ágústsson og eins þá findist mér fróðlegt að einhver fjölmiðill færi út í að athuga í hvað þessi 1.7 ,milljarður (sem Sæunn talar um að hafi verið ráðstafað í þennan málaflokk) hefur farið:

Af ruv.is

Alþingi: Meint svik Framsóknar rædd

Framsóknarflokkurinn bar af sér sakir á Alþingi í dag um að hafa svikið loforð um miljarðs framlag til fíkniefnaforvarna á kjörtímabilinu. Kveikjan að umræðunni voru ummæli Björgvins G. Sigurðssonar Samfylkingu sem sakar Framsóknarflokkinn um svik. Landbúnaðaráðherra sagði Björgvin ljúga og það gengi ekki á Suðurlandi þar sem stjórnmálamönnum væri kennt að segja sannleikann.

Björgvin hefur að undanförnu fullyrt að mjög hafi skort á átak gegn fíkniefnavandanum sem Framsóknarflokkurinn auglýsti fyrir síðustu kosningar til að gera Ísland fíkniefnalaust meðan vandinn hafi vaxið. Sæunn Stefánsdóttir, Framsókn, tók málið upp og fór yfir framlög til fíkniefnamála hjá öllum ráðuneytum og komast að því að samanlagt næmu þau hærri fjárhæð en lofað var eða 1,7 miljarði króna og taldi hún málefnafátækt einkenna málflutning Björgvins.

Björgvin sagði nálgun Sæunnar útúrsnúninga og talnaleiki sem væri til lítils meðan sprenging væri í neyslu ólöglegra fíkniefna. Landbúnaðarráðherra sagði málflutning Björgvins alls ekki ganga upp á Suðurlandi því þar hafi menn tamið sér að segja satt og kennt stjórnmálamönnum það.

 


Enn segir af Árna Johnsen

Hann segir í viðtali á ruv að hann hafi gert tæknileg mistök en síðan kemur skítin klausa og væri gaman ef einhver gætir svarað því hverjir hinir eru sem hann segir að hafi sloppið við sakfellingu í þessu máli.

„Tæknileg mistök ”segir Árni Johnsen

Árni Johnsen, verðandi alþingismaður, segist iðrast og biðst fyrirgefningar á mistökum sínum, annars væri hann gerður úr steini. Hann segist hafa gert tæknileg mistök sem enginn hafi tapað á. Margir hafi gert mistök í því máli en enginn hafi sem betur fer verið sóttur til saka nema hann. (leturbreyting maggi B)

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband