Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Óskaplega er hann Einar misheppnaður ráðherra

Nú er hann kominn til Wasington og viti menn:

www.ruv.is

Fyrst birt: 09.12.2006 19:04

Whole Food afþakkar fund með ráðherra

Einar Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er kominn til Washington að kynna málstað Íslendinga í hvalveiðum. Hvort einhver hlustar er spurning því forráðamenn bandarísku hafrannsóknarstofnunarinnar og verslanakeðjunnar Whole Foods hafa afþakkað fundi með Einari.

Ekki er útilokað að sölu á íslenskum vörum verði hætt í Whole Foods. (leturbr. Maggi)


mbl.is Whole Foods Market: Viðskiptavinir taki ákvarðanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiningardeild Sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli.

Ég geri mér grein fyrir því að Davíð Oddsson notaði  sýslumannin á Keflavíkurflugvelli til að hýsa þessa greiningarnefnd. Keflavíkurflugvöllur heyrir jú undir utanríkisráðuneyti og þar vorum við í samstarfi við USA. Mér skilst að hún hafi aðallega verið nýtt til að safna upplýsingum um ástand erlendis m.a. í tengslum við lönd sem við vorum að senda friðargæsluliða til. Sjálfssagt nauðsynleg til að geta verið í samskiptum við erlendar greiningar og leynideildir. En ég tek undir með fólki sem hefur mótmælt að tilvist hennar hafi verið leynt. Og eins með öðrum sem tala um hverning kostnaður við deildina hefur hvergi komið fram. Eins hvað var að því að kynna okkur tilvist og tilgang hennar?

Það er líka umhugsunarvert fyrst að nú er komið fram að þarna hafi verið um 4 starfsmenn og síðan hafi verið 3 starfsmenn við greiningar/leyniþjónustu í Reykjavík á sínum tíma og engin vissi af. Bæði hvað er mikið af slíku í gangi sem við vitum ekki enn. Og líka hversvegna máttum við ekki vita um þetta.

Það má lesa meira um þetta á blogginu hjá Guðmundi Magnússyni , Pétri Gunnarssyni Davíð Loga Sigurðssyni og fleiri stöðum


Almennt viðurkennt í Bandaríkjunum, að George W. Bush sé versti forseti sögunnar.

Af www.jonas.is

 

09.12.2006
Arfavitlaust stríð
Nýja íhaldið í Bandaríkjunum lauk því, sem Víetnamstríðið hóf. Bandaríska öldin byrjaði að Is Bush notshníga í Víetnam-stríðinu og hrundi endanlega í stríði Nýja íhaldsins gegn Írak. Síðari ósigurinn er verri en hinn fyrri, því að honum fylgir hrun bandarískra áhrifa erlendis. Martin Jacques segir í Guardian, að nú sé almennt viðurkennt í Bandaríkjunum, að George W. Bush sé versti forseti sögunnar. Hann hefur nú misst völdin í hendur ráðgjafa föður síns, sem reyna að sættast við demókrata. Týnst hafa tréhausar Nýja íhaldsins, er knúðu fram arfavitlaust stríð, sem saug merginn úr heimsveldi Bandaríkjanna.


mbl.is Bush vill að demókratar og repúblikanar starfi saman að nýrri Íraksáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugnalegt

 www.visir.is

Konan sem lést var 34 ára. Hún var krufin og niðurstaða krufningarinnar var sú hún hefði fengið hjartastopp. Jafnframt reyndist hún hafa neytt örvandi efna. Við krufninguna benti ekkert til þess að um voveiflegan atburð hefði verið að ræða. Engin merki voru um átök né annað sem vakið gæti grun um að orsök banameins hennar væri önnur en fíkniefnaneysla. Fólkið sem með henni var var allt á svipuðum aldri og hún. Það bar að fíkniefni hefðu verið höfð um hönd.

Það verður að segja að þetta er óhugnalegt og sérstaklega ef litið er til eftirfarandi kafla úr frétt á www.visir.is

Það var síðastliðinn sunnudag sem fjórir einstaklingar, tveir karlmenn og tvær konur, skráðu sig inn á gististaðinn. Þar dvöldu þau fram á þriðjudag. Laust eftir hádegi þann dag var lögreglan kvödd á staðinn. Reyndist konan þá vera látin. Var ljóst að sjö til átta klukkustundir höfðu þá liðið frá því að hún lést því á hana voru komnir líkblettir. Annar karlmannanna svaf í sama herbergi og konan og var það hann sem kallaði lögreglu til um leið og hann vaknaði og áttaði sig á hvernig komið var. (leturbreyting Maggi)


mbl.is Kona fannst látin á gistiheimili á þriðjudagsmorgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta heitir: að segja eitt í dag- annað á þingi

Ekki það að ég sé að lasta þessar hugmyndir. En mér finnst það erfitt þegar að samgönguráðherra virðist skipta um skoðun svona um það bil dagleg:

Fréttablaðið, 09. des. 2006 06:45


Vill þrjár akreinar sem fyrst

Samgönguráðherra mun leggja til að hafinn verði undirbúningur sem allra fyrst að framkvæmdum við hættulegustu kaflana á leiðinni frá Reykjavík að Selfossi, og þeim breytt í svokallaðan 2+1 veg. Þrjár akreinar verða áfangi í átt að tvöldun, að því er Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir.

Hann telur að uppbygging á Suðurlandi og Vesturlandi verði til þess að umferð muni aukast mikið á næstu árum og því sé markmiðið að hafa tvöfalda vegi næst höfuðborgarsvæðinu, jafnvel upp í Borgarnes og austur að Þjórsá. „Ég tel að þegar í stað eigi að hefja undirbúning að tvöföldun Suðurlands- og Vesturlandsvegar og hef ég lýst þessu sjónarmiði mínu fyrir vegamálastjóra." Sturla bendir þó á að nokkur misseri muni líða þar til hægt verði að taka í notkun fyrsta áfanga tvöfalds vegar, hann krefjist til að mynda umhverfismats. „Þangað til af tvöföldun getur orðið þarf að gera allt sem hægt er til þess að auka öryggi á þessum vegum. Ég mun því leggja til að Vegagerðin ráðist í breikkun vegarins á erfiðustu köflunum á leiðinni og sett verði upp víravegrið á milli akstursstefna. Þetta verði gert án þess að það tefji á nokkurn hátt eða komi í veg fyrir áform um tvöföldun þessara vega," segir Sturla.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er 2+1 vegur með víravegriði á milli akstursstefna nánast alveg jafnöruggur og fjögurra akreina vegur. Kostnaðurinn við 2+1 er hins vegar að minnsta kosti helmingi lægri en við tvöföldun og jafnvel þrefalt ódýrari, eftir því hvaða útfærsla verður valin. Sturla bendir á að útfærslan sem farin verður á nýjum 2+1 köflum á Suðurlandsvegi verði önnur en sú sem tilraun var gerð með í Svínahrauni. Nýju vegkaflarnir verði töluvert breiðari

Hann lagði þetta líka til í ræðum (Sjá hér) síðast vor. EN nú um daginn var hann búinn að skipta um skoðun og kominn inn á 2+2 leiðina. Nú á að byrja á 2+1 og reynsla mín er sú að þá verði nú langt í að 2+2 verði að veruleika. Bráðabirgðalausnir hafa nú oft verið látnar duga hér á landi allt of lengi.


Hverjir detta af þingi í vor?

Egill Helgason vitnar í blogg Einars Márs Þóðrarsonar stjórnmálafræðings í nýjustu færslu sinni á Silfri Egils.

Þar eru útreikningar Einars um hverjir séu í mestri hættu að detta út af þingi og hverjir gætu hugsanlega komið nýjir inn samkvæmt nýjust könnun Gallup. Sniðug lesning:

Einari telst til að samkvæmt síðustu Gallupkönnun séu það nítján þingmenn sem séu í mestri hættu, nefnilega eftirtaldir:

Anna Kristín Gunnarsdóttir
Ásta Möller (fer eftir kjördæmi formanns)
Birgir Ármannsson
Drífa Hjartardóttir
Guðjón Hjörleifsson
Guðjón Ólafur Jónsson
Guðrún Ögmundsdóttir
Gunnar Örlygsson
Hjálmar Árnason
Jón Gunnarsson
Jónína Bjartmarz
Kristinn H. Gunnarsson
Mörður Árnason (fer eftir kjördæmi formanns)
Sigurður Kári Kristjánsson (fer eftir kjördæmi formanns)
Sigurjón Þórðarson (gæti flutt sig um kjördæmi)
Sigurrós Þorgrímsdóttir
Siv Friðleifsdóttir
Sæunn Stefánsdóttir
Valdimar Leó Friðriksson

Á móti segir Einar að að eftirtaldir frambjóðendur eigi mestar líkur á að tryggja sér þingsæti samkvæmt niðurstöðum Gallupkönnunarinnar:

Auður Lilja Erlingsdóttir (V)
Álfheiður Ingadóttir (V)
Ármann Kr. Ólafsson (D)
Árni Johnsen (D)
Árni Páll Árnason (S)
Árni Þór Sigurðsson (V)
Björk Guðjónsdóttir (D)
Gestur Svavarsson (V)
Guðbjartur Hannesson (S)
Guðfinna Bjarnadóttir (D)
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (V)
Gunnar Svavarsson (S)
Herdís Á. Sæmundardóttir (B)
Illugi Gunnarsson (D)
Jón Gunnarsson (D)
Katrín Jakobsdóttir (V)
Kristján Þór Júlíusson (D)
Ólöf Norðdal (D)
Paul Nikolov (V)
Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)
Unnur Brá Konráðsdóttir (D)
þingmaður í NV (V)
þingmaður í RN (F)
þingmaður í RN (F)
þingmaður í RS (F)
þingmaður í NA (F)
þingmaður í S (F)


Jónas Kristjánsson ekki hress með "Jónínudóminn"

www.jonas.is

08.12.2006
Ertu móðgaður
Vitleysingarnir í héraðsdómi þurfa engan málflutning í persónumálum. Þeir geta bara spurt hinn móðgaða: "Hversu mikið ertu móðgaður?" Jónína svarar: "Svona í meðallagi". "Það verður hálf milljón", segir dómarinn og slær hamrinum í borðið. Bubbi svarar: "Ég er alveg rosalega móðgaður". "Það gerir milljón", segir dómarinn. Þessa umboðsmenn hræsninnar í stétt dómara varðar ekki um, að rétt sé skrifað, ekki einu sinni þótt viðurkennt sé af lögmönnum hinna móðguðu. Héraðsdómarar hafa margir tapað jafnvægi milli prentfrelsis og móðgunarfrelsis.


Ísafold og Steingrímur Sævarr í skotgröfunum

Steingrímur Sævarr Ólafsson og Ísaflold eru farin að skjóta föstum skotum. Þar er rætt um heimilda notkun og réttmæti fréttaskota. Þetta er nú bara skemmtilegt. Það nýjast er hér:

www.blad.is

08.12.2006
Frumheimildir Steingríms

Steingrímur Ólafsson á erfitt með að fóta sig á vegi sannleikans og frumheimildanna.
Bloggsíða Steingríms Ólafssonar hefur vakið nokkra athygli en í fjölda færsta hefur hann grátið undan því að heimilda sé ekki getið sem kann sumpart að vera réttmætt. "Það er dálítið merkilegt að fylgjast með hvernig skúbb eins fjölmiðils ratar í aðra fjölmiðla án þess aðislidag frumheildar sé getið," bloggar Steinrímur með kökkinn í hálsinum. Í dag boðar hann þau "nýmæli" að Sigurjón Magnús Egilsson sé að hætta á Blaðinu og að taka við DV sem fari undan 365. Á þessarri síðu var greint frá starfslokum sme í gær og Steingrímur tók málið upp í dag án þess að geta frumheimildar. Þá segir hann ritstjórann vera að taka við DV en búið er að upplýsa hér að hann er að taka við nýju dagblaði á gömlum merg. Öldungis er rangt að það blað muni heita DV. Vandinn virðist vera sá að þegar stórt er spurt koma oft röng svör ...


Hafði aðeins til saka unnið að vera ekki Framsóknarmaður

"Hræðilegur glæpur" - Var ekki í Framsókn

Af www.morgunhaninn.is

Hafði aðeins til saka unnið að vera ekki Framsóknarmaður

08.desember 2006 - kl. 11:46
Sigur Björns Friðfinnssonar ráðuneytisstjóra er mikill segir Jakob Möller lögfræðingur hans. Björn gerði í gær réttarsátt við þrjá ráðherra, hlaut tvær milljónir króna í miskabætur og heldur launum til 70 ára aldurs. Finnur Ingólfsson og síðar Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherrar á árunum 1996 til 2006 úthýstu Birni frá starfi sínu sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu í tíu ár. Jakob Möller segir að misakbæturnar séu mjög háar miðað við aðra dóma um miskabætur, hvað þá miskabætur sem samið hefur verið um. "Það eina sem ég get látið mér detta í hug er það að Björn hafi það til saka unnið, sem langsamlega mestur hluti þjóðarinnar hefur sér til saka unnið, að hann er ekki Framsóknarmaður."

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband