Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Lögregla, einhver hefur lagað íbúðina mína!
Lögregla, einhver hefur lagað íbúðina mína!
Maður í Þýskalandi kom heim til sín eftir helgarferð og komst að því að brotist hafði verið inn og íbúðin gerð upp. Gunther Hagler hringdi strax í lögregluna.
Engu var stolið, en búið var að mála, hreinsa glugga, setja ný húsgögn og jafnvel skipta um ísskáp. Maturinn úr gamla ísskápnum hafði meira að segja verið færður yfir í þann nýja.
Lögreglan komst fljótt að hinu sanna í málinu. Húsráðandi hafði ráðið iðnaðarmenn til að gera upp íbúðina við hliðiná, en afhenti þeim vitlausan lykil.
Sniðugt | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Glæsilegir listar.
Þessir framboðslistar eru ekki árennilegir. Það verður erfitt fyrir aðra að keppa við þá. Þarna eru bæði reynsluboltar og svo í næstu sætum mjög frambærilegir aðilar á listunum. Ég held að nú fari sveiflan að liggja yfir til Samfylkingar.
Frétt af mbl.is
Listar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmum einróma samþykktir
Innlent | mbl.is | 21.2.2007 | 22:06
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Össur Skarphéðinsson leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Framboðslistarnir voru einróma samþykktir á fulltrúaráðsfundi Samfylkingar í Reykjavíkurkjördæmum í kvöld.
Listar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmum einróma samþykktir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2007 kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Álfar og óvættir á móti Bæjarstjóra og Klæðningu ehf.
Fann þetta á www.mannlif.is
Álfavinur ráðinn af Klæðningu
Verktakafyrirtækið Klæðning hefur staðið í harðri glími við bæði álfa og menn að undanförnu. Skemmst er að minnast að risafyrirtækið, sem stjórnað er af Sigþóri Ara Sigþórssyni, var sakað um trjáþjófnað og jarðrask í Heiðmörk án þess að sýnileg rök væru til þess að fyrirtækið legðist í slíkt. En vandi Klæðningar var öllu meiri í Borgarfirði þar sem fyrirtækið stóð í vegaframkvæmdum í Víðinesi. Stöðugar bilanir og ótímabær bílvelta búkollu benti til þess að álfar væru komnir í stríð við fyrirtækið. Var þá gripið til þess ráðs að fá Erlu Stefánsdóttur, sem kunn er af þekkingu sinni á huldufólki, til að renna í Borgarfjörðinn og kippa samskiptamálum í liðinn. Það þykir hafa tekist því óhappahrinunni linnti. Klæðning borgaði um 16 þúsund kall fyrir friðinn sem þykir ekki mikið ...
Frétt af mbl.is
Innlent | mbl.is | 21.2.2007 | 16:31Náttúruverndarsamtökin kæra náttúruspjöll í Heiðmörk
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent lögreglu höfuðborgarsvæðisins kæru vegna náttúruspjalla í Heiðmörk. Að sögn Árna Finnssonar, formanns samtakanna, er farið fram á að lögreglan rannsaki hvort jarðrask vegna framkvæmda Kópavogsbæjar á svæðinu sé brot á náttúruverndarlögum og skipulags- og byggingarlögum.
Árni sagði, að rannróknarskylda hvílir á lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og hann hafi svarað og tilkynnt að málið fari í venjubundinn farveg.
Í kæru Náttúruverndarsamtakanna er vísað til umhverfisspjalla sem unnin hafi verið í útivistar- og skógræktarsvæðinu Heiðmörk. Spjöll þessi stafi af framkvæmdum sem gerðar hafi verið á vegum Kópavogsbæjar af verkatakafyrirtækinu Klæðningu ehf.
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur samþykkir að fresta að leggja fram kæru
Innlent | mbl.is | 21.2.2007 | 19:37
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur samþykkt að fresta að leggja fram kæru á hendur Kópavogsbæ, vegna þeirra eignaspjalla og rasks sem orðið hefur í Heiðmörk, til miðvikudagsins 28. febrúar nk.
Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur samþykkir að fresta að leggja fram kæru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Siv: Það er bara allt í himnalagi í málefnum áfengis- og fíkiefnasjúklinga
Hlustaði í dag á utandagskrár umræðu á Alþingi. Umræðunna hóf Margrét Frímannsdóttir og spurði ráðherra út í þessi mál. M.a. hvað ráðherra findist um það að stofnanir á vegum trúarhópa væru að annast meðferð stjúklinga og standa að afeitrun. Og hvort að heilbrigðisráðherra ætlaði ekki af efla stuðning ríkisins við þær stofnanir eins og SÁA sem væru mannaðar fagfólki. En Siv fannst þetta bara vera allt í lagi og þyrftir jafnvel að flytja þjónustu í meira mæli frá heilbrigðisráðuneyti yfir í málaflokk félagsmálaráðherra.
Þingmenn vitnuðu í skýrslu frá 2005 þar sem rætt eru um m.a. að vistunarúrræði eru ýmist kölluð búseturúrræði eða eitthvað annað til að fyrra þær kröfum um að hafa fagfólk við störf. Og dæmi tekið af Byrginu sem var flokkað á ýmsan hátt.
Úr frétt á www.visir.is
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra sagði það háð mati sjúklings eða aðstandenda hans hvert hann væri sendur og benti á að yfirlæknir meðferðardeildar Landspítalans hefði lýst því yfir að aðgengi að meðferðum væri óvíða betra en hér á landi.
Þá sagði Siv að ekki væri veitt þjónusta, sem heyrði undir félagsmálaráðuneytið nú, sem skilgreind væri sem heilbrigðisþjónusta en rétt væri að athuga hvort flytja ætti ákveðna starfsemi sem nú heyrði undir heilbrigðisráðuneytið undir félagsmálaráðuneytið. Sagðist ráðherra jafnframt ætla að beita sér fyrir eflingu SÁÁ en tilgreindi ekki hvernig.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu að heilbrigðisþjónusta hefði brugðist hjá langt leiddum sjúklingum og að úrræði vantaði fyrir langtímameðferð. Þá þyrfti samræmt mat á gæðum þjónustunnar. Þá var jafnframt gagnrýnt að fólk sem væri alvarlega veikt hefði verið sent í Byrgið þar sem hvorki hefðu verið sálfræðingar né hjúkrunarfræðingar og aðeins læknir í hlutastarfi.
Magréti Frímannsdóttur líkaði ekki svör ráðherra og sakaði hana um þvaður og að láta sem allt væri í lagi. Benti hún á að meðferðarheimili eins og Byrgið hefði orðið til þar sem stjórnvöld hefðu ekkert gert í málefnum áfengis- og vímuefnasjúklinga sem væru á götunni.
Siv sagði í seinni ræðu sinni að unnið væri að stefnumótun í ráðuneytinu í málaflokknum og sagði greinilegt að stjórnarandstæðingar þyldu ekki að heyra orð yfirlæknis meðferðardeildar LSH sem segði aðgengi að meðferð óvíða betra.
Eins kom fram í þessum umræðum að árlega þarfnist um 1,5% þjóðarinnar að komast í áfengismeðferð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Þetta fer að verða alvarlegt mál
Að unglingar séu að verða svo háðir netinu og netleikjum að þeir gangi af göflunum er mjög alvarlegt og bendir til þess að þeir eigi orðið við fíkn að stríða. Þetta fara að verða eins viðbrögð og þegar langt leiddir eiturlyfjafíklar eru sviptir aðgangi að eiturlyfjum.
Þessu verður að fara taka kerfisbundið á. Spurning um að foreldrafélög í skólum komi sér saman um samræmdar reglur. Foreldrar verða líka að koma í veg fyrir að börnin einangri sig við tölvurnar.
Frétt af mbl.is
Stympingar vegna tölvunotkunar unglingspilts á höfuðborgarsvæðinu
Innlent | mbl.is | 21.2.2007 | 14:27
Óhófleg tölvunotkun veldur enn vandræðum á heimilum en fyrr í vikunni var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kölluð til aðstoðar í húsi þar sem ástandið fór úr böndunum. Foreldrar unglingspilts voru orðnir fullsaddir á óhóflegri tölvunotkun hans og gripu til aðgerða. Þeir tóku því svokallaðan beinir (router) úr sambandi en með því átti að takmarka tölvunotkun piltsins. Hann tók því afar illa og kom til stympinga.
Stympingar vegna tölvunotkunar unglingspilts á höfuðborgarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Óskaplega er allt þetta mál klaufalegt
Maður sér alltaf betur og betur að allir rannsóknaraðilar hér á Íslandi hafa verið vanbúnir til að rannsaka þetta mál.
Síðar í yfirheyrslunum kom fram, að í desember 2002 hafði Arnar Jensson, þáverandi starfsmaður efnahagsbrotadeildar, haft samband við Andra Óskarsson, þáverandi lögmann Tryggva, og sagt honum að þar á bæ vildu menn fyrst og fremst ná Jóni Ásgeiri. Ef Tryggi yrði samvinnuþýður kynni staða hans í málinu að breytast úr sakborningi í vitni.
Frétt af mbl.is
Tryggva sagt að staða hans myndi breytast yrði hann samvinnuþýður
Innlent | mbl.is | 21.2.2007 | 13:05
Yfirheyrslum er nú lokið yfir Tryggva Jónssyni, fyrrum aðstoðarforstjóra Baugs Group, í Baugsmálinu svonefnda í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fram kom við yfirheyrslurnar í dag, að Tryggvi fékk þau boð frá starfsmönnum efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, að staða hans í málinu kynni að breytast ef hann yrði samvinnuþýður og skýrði satt og rétt frá.
Tryggva sagt að staða hans myndi breytast yrði hann samvinnuþýður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Bretar og Danir að átta sig á því að vera þeirra í Írak skapar meiri vandamál en hún leysir?
Með því að breyta svona stefnunni og draga sig frá Írak, er fótunum vonandi kippt undan sumum af rökum sem þessi hriðjuverkamenn hafa notað fyrir aðgerðum sínum. Nú verður gaman að fylgjast með hvort að brothvarf erlendra herja dregur úr þessu árásum.
Frétt af mbl.is
Danir sagðir ætla að fækka verulega í herliði sínu í Írak
Erlent | mbl.is | 21.2.2007 | 11:01
Til stendur að Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, og Per Stig Møller utanríkisráðherra muni tilkynna á blaðamannafundi eftir hádegi í dag að verulega verði fækkað í herliði Dana í Írak, samkvæmt upplýsingum Ritzau-fréttastofunnar. Fréttastofan greinir ekki frá því hvaðan hún hefur þessar upplýsingar en einnig er talið að Tony Blair, forsætisráðherra Breta, muni tilkynna síðar í dag mikla fækkun í herliði Breta í Írak
Danir sagðir ætla að fækka verulega í herliði sínu í Írak | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
O þeir þurfa þess ekki. Þeir okra bara meira á okkur.
Það læðist að mér sá grunur að við almenningur þurfum þá að taka á okkur auknar birgðar með hærrri þjónustugjöldum og og vöxtum ef þetta er rétt hjá Standard & Poor´s
Frétt af mbl.is
S&P: komið að því að íslensku bankarnir sýni hvað í þeim býr
Viðskipti | mbl.is | 21.2.2007 | 10:18
Íslensku bankarnir þurfa að sýna hvað í þeim býr þar sem yfirvofandi er að það muni hægja á í íslensku efnahagslífi og erfiðara verður að útvega lánsfé erlendis frá, að því er segir í nýrri skýrslu sem matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur gefið út.
S&P: Komið að því að íslensku bankarnir sýni hvað í þeim býr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Afhverju er þessi vinnubrögð enn við lýði hér á landi?
Þetta finnst mér alveg óþolandi. Það er komið árið 2007 og enn þann dag í dag eru frumvörð og reglugerðir samdar án þess að hafa samráð við þær stofnanir sem mest vit eiga að hafa á þessu. Þetta skapar hættu á mistökum og götum í lögum sem lögfróðir nýta sér til að komst hjá lögum. Lög eiga í eðli sínu að vera eins gegnsæ og eins auðskilin og hægt er. Dæmi um óþarflega flókið kerfi eru lög og reglugerðir um Tryggingarstofnun. Nú eru umhverfismál mjög í deiglunni og því kjörið færi á að setja hér lög og reglur í þeim flokki sem eru til fyrirmyndar.
Innlent | Morgunblaðið | 21.2.2007 | 05:30Umhverfisstofnun óttast að stjórnskipan náttúruverndarmála verði of flókin
Umhverfisstofnun telur ekki þörf á sérstökum lögum til að stofna Vatnajökulsþjóðgarð og að með nýju frumvarpi umhverfisráðherra verði stjórnskipan náttúruverndarmála alltof flókin. Þetta kemur fram í umsögn stofnunarinnar um frumvarpið en það verður tekið fyrir á fundi umhverfisnefndar Alþingis í dag.
Í umsögninni er því fagnað að tekin hafi verið ákvörðun um að stefna að friðlýsingu Vatnajökuls og helstu áhrifasvæða jökulsins. Hins vegar sé ekki nauðsynlegt að gera það með sérstakri löggjöf heldur myndi nægja að nýta lög um náttúruvernd með smávægilegum breytingum. Þá bendir Umhverfisstofnun á að nefndin sem vann frumvarpið hafi haft lítið samráð við stofnunina. Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
Umhverfisstofnun óttast að stjórnskipan náttúruverndarmála verði of flókin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Síðast þegar spurt var um þetta voru engin svör
Síðast þegar spurt var um þetta var ekki hægt að fá nokkur svör. Björn sagði að ekki væri búið að taka þetta saman og ekki væri hægt að koma með nokkrar tölur. Reikna með að þetta verði svona líka núna
Frétt af mbl.is
Spurt um kostnað við rekstur Baugsmálsins
Innlent | mbl.is | 20.2.2007 | 22:02
Þingmenn úr fjórum þingflokkum á Alþingi hafa lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra þar sem spurt er um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins. Þá er m.a. einnig spurt hversu margar vinnustundir starfsmanna ríkislögreglustjóra hafi farið í málið frá júlí 2002 til dagsins í dag.
Spurt um kostnað við rekstur Baugsmálsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.1.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson