Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
Miðvikudagur, 31. desember 2008
Gleðilegt ár!!!! Megi það verða þér auðveldara en þú reiknaðir með!
Miðvikudagur, 31. desember 2008
Ég stór efast um að þessir krakkar hafi kosið hingað til.
Þessir krakkar sem þarna beita sér eru ekki í mínu nafni. Þessir krakkar hafa varla borgað skatta nema í nokkur ár í það mesta og búa flestir heima hjá mömmu. Þeir eru að nota tækifærið að fá útrás fyrir eyðileggingarþörf sína. Því þeir eru orðnir þreyttir á að eyðileggja strætóskýli og ruslafötur. Þetta vekur svo mikla athygli.
Svona skemdarverk skila nákvæmlega engu. Og eins og Ingibjörg sagði tala þessir krakkar ekki fyrir þjóðina. Enda hafa þau litla sem enga reynslu á þeim málum sem þau eru að mótmæla. Þau eru annað hvort í framhaldskóla eða í háskólum á lánum frá okkur.
Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 31. desember 2008
Bara að benda andstæðingum ESB aðildarviðræðna á góða grein
Var að lesa þessa grein eftir Jón Sigurðsson fyrrverandi formanns framsóknar. Hann hefur skoðað þessi mál mjög vel. Æi nenni ekki að kubba hana niður heldur fá hana lánaða í heild.:
Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins: Víðtæk þjóðleg samstaða
Margir andmæla hugmyndum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. En þeim fjölgar sem sjá ástæðu til að kanna málið betur og vilja láta reyna á möguleika þjóðarinnar með aðildarviðræðum við ESB. Ef marka má blaðaskrif andmælendanna eru sterkar líkur á víðtækri þjóðlegri samstöðu í aðildarviðræðum.
Andmælendur leggja áherslu á fullveldi íslensku þjóðarinnar. Um þetta munu langflestir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála. 50. gr. nýs aðalsáttmála ESB gerir ráð fyrir fortakslausum einhliða úrsagnarrétti aðildarríkis. Þetta ákvæði mætir fullveldiskröfu þjóðarinnar. Það er allt annað mál að stjórnarskrá geri ráð fyrir möguleika á sértæku skilyrtu valdaframsali í fjölþjóðasamstarfi. Um þetta hefur verið rætt áratugum saman í tengslum við þátttöku okkar í Evrópuráðinu, Norðurlandaráði, Atlantshafsbandalaginu og stofnunum Sameinuðu þjóðanna.
Andmælendur leggja áherslu á að útlendingum verði ekki hleypt til veiða inn í íslenska landhelgi. Væntanlega eru flestir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála þessu, eða a.m.k. að slíkt sé á einhliða valdi Íslendinga í beinum tímabundnum og sértækum samningum. Samkvæmt reglu ESB um stöðug hlutföll koma engir útlendingar til greina við úthlutun fiskveiðiheimilda í landhelgi Íslands.
Andmælendur leggja áherslu á að Íslendingar einir ráði stjórnkerfi fiskveiða á Íslandsmiðum. Þrátt fyrir mjög skiptar skoðanir um kvótakerfið munu mjög margir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála þessu. Samkvæmt nálægðarreglu ESB er tilhögun fiskveiðistjórnunar sérmál hvers aðildarríkis.
Andmælendur leggja áherslu á að útlendingar geti ekki keypt ráðandi hluti í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum á Íslandi. Margir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB eru þessu sammála. Ákvæði 299. gr. í aðalsáttmála ESB, sem er 349. gr. í nýjum aðalsáttmála, gera ráð fyrir víðtækri sérstöðu og sjálfræði heimamanna á Madeira, Kanaríeyjum og Azoreyjum í sjávarútvegi og landbúnaði. Ákvæði í aðildarsamningi Möltu og aðildarsamningi Finna vegna Álandseyja hníga í þessa sömu átt. Þarna og víðar eru gildandi fordæmi innan ESB sem skynsamlegt er að nýta í hugsanlegum aðildarsamningi Íslands.
Andmælendur leggja áherslu á óskoruð yfirráð Íslendinga yfir orkuauðlindunum. Áður nefnd ákvæði um Madeira, Kanaríeyjar, Azoreyjar, Möltu og Álandseyjar hafa fullt gildi sem fordæmi í þessu efni einnig. Og þessi ákvæði gera ráð fyrir því að heimilt sé að hindra útlendinga frá því að kaupa eða yfirtaka fyrirtæki í öðrum greinum einnig eða fasteignir, lóðir og landareignir. ESB býður fram margvísleg slík fordæmi sem sjálfsagt er að nýta í aðildarsamningi. Trúlega eru mjög margir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála þessu.
Ofarnefnd ákvæði um eyjasamfélög snerta einnig fæðuöryggi íbúanna. Og ESB hefur lengi lagt áherslu á strangar heilbrigðisreglur um matvælaflutninga. Víðtæk samstaða ætti því að geta náðst um brýnustu hagsmuni landbúnaðarins.
Andmælendur vara við oftrú á tímabundin aðlögunarákvæði eða undanþágur. Væntanlega eru allir Íslendingar sammála um þetta. Þeir málsþættir sem hér hafa verið nefndir benda eindregið til þess að víðtæk þjóðleg samstaða geti náðst í aðildarviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið.
Umsókn í þjóðaratkvæði? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 30. desember 2008
Jæja nú er fylleríið búið. Næsta ár tökum við út timburmennina.
Nú þegar við erum búin að eyða 3 mánuðum í að kenna öllum öðrum á landinu um er nú komin nefnd til að rannsaka hvað gerðist hér eiginlega!!
- Við höfum jú kennt útrásarvíkingum um! Réttilega
- Við höfum kennt stjórnvöldum um! Réttilega
- Við höfum kennt Bretum um! Réttilega
En við höfum forðast að skoða eigin þátt í þessu.
En ef fólk skoðar breytingar á lífsstíl okkar síðustu 5 árinn þá held ég að fólk átti sig á að stór hluti þjóðarinnar, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í þessu af líf og sál.
- Afraksturinn mátti m.a sjá í búiðinni Góða hirðinum þar sem að nýleg húsgögn streymdu inn.
- Maður sá fólk kaupa hús í grónum hverfum á fullu verði og byrja á því áður en þau fluttu inn að rífa allt út úr húsunum, þó það væri fyllilega nothæft og síðan voru iðnaðarmenn í marga mánuði að setja allt nýtt í húsin. Og þá þurfti að nota merkjavöru sem kostaði 3x meira en sambærileg vara bara ekki með rétt merki. Lengst gekk þetta í því að fólk hreinlega reif gamla húsið og byggði nýtt.
- Fólk tók í upphafi húsnæðisbólunnar þátt í að yfirbjóða aðra við kaup á húsnæði þótt verðið væri komið langt yfir markaðsverð.
- Fólk keypti nýja bíla í hrönnum. 1 bíl a.m.k. fyrir alla yfir 17 ára aldur. Minni á Range Rover æðið. Og síðan mótorhjól eða vélsleða eða fjórhjól.
- Fólk var að kaupa fellihýsi, hjólhýsi á stærð við meðal sumarbústað, húsbíla og allir voru til í að losa sig við tjaldvagninn. Enda var það hallærislegt. Og fólk var kaupa sumarbústaði og smá skika fyrir upphæðir sem voru hærri en meðal íbúð í bænum
- Fólk fór til sólarlanda 2 til 3x á ári. Það jafnvel keypti sér hús á Spáni.
- Listinn gæti verið svo miklu lengri. Við gætum talað um sjávarpa, plasmasjónvörp, ipod, iphone, nýjar tölvur fyrir alla fjölskyldumeðlimi, gsm síma fyrir krakka frá 5 ára og fleira og fleira.
Og ofangreint hefði verið allt í lagi ef að fólk hefði ekki tekið allt þetta á lánum. 100% lánum!!!
Þarna liggja ófáir milljarðar sem bankarnir skulda núna. Og ég held að almenningur ætti að athuga það að það var jú bullandi þátttakendur í þessu. Jú jú það voru ekki allir en það voru samt andskoti margir.
En nú er svo þægilegt að kenna öðrum um þetta allt.
Gleðilegt kreppuár!!!!
Rannsóknarnefndin fullskipuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.12.2008 kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 29. desember 2008
Ég er bara að verða furðu lostinn á þessum rangfærslum
Var að benda á í fyrri færslu þar sem menn rugluðu með danskar og íslenskar krónur. Nú er er verið að tala um lögregluna í Keflavík. Þá að allir viti að hún er fyrir löngu orðin að lögreglu Suðurnesja og Keflavík er aðeins hverfi í Reykjanesbæ. Enda kemur þetta hvergi fram á síðu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Úr fréttinni:
Nýtt skipurit lögregluliðsins í Keflavík var kynnt á fundi Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra ........
Sigríður Björk Guðjónsdóttir tekur við lögreglustjóraembættinu í Keflavík hinn 1. janúar af Ólafi K. Ólafssyni.........
Þetta kemur ekki fram svona á www.bjorn.is
Nýtt skipurit kynnt í Keflavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 29. desember 2008
Ekki getur þessi frétt verið rétt?
Ekki getur þetta verið rétt :
Maðurinn var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir brot sitt á síðasta ári en hann varð uppvís af búðarhnupli í Illum versluninni fyrir 4.700 danskar krónur. Brotið var framið í október á síðasta ári en samkvæmt frétt á vef Politiken stal hann húfu, bindi og stuttermabol
Stuttermabolur, bindi og húfa geta varla kostað 4.700 danskar krónur. Er það ekki tæpar 90.000 íslenskar? þetta hlýtur að vera vitlaust. Mundi halda að þetta væri 230 danskar krónur eða 4.700 íslenskar krónur.
Vísað úr landi vegna búðarhnupls | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 29. desember 2008
Þeir geyma Palesínu fólk í girðingum til að nota í þessa hluti.
Blessuð konan gleymdi nú alveg að minnast á að það eru að koma kosningar í Ísrael. Og að til að sýna hvað þau eru sterk er sjálfsagt að þeirra mati að slátra nokkrum palestínu börnum, konum og mönnum sem Ísrael heldur í traustum girðingum til að nota í svona skemmtun og upplyftingu fyrir sig svona rétt fyrir kosningar. Þetta hafa þeir nú gert í rúm 60 ár. Byrjuðu á þessu sem hryðjuverkum til að hrekja palesínufólk á flótta. Síðan hafa þeir haldið þessu skipulagt áfram til að ná undir sig öllu landsvæði þarna.
Halda þessir menn virkilega að með því að loka reglulega á allan aðflutning til þessara svæða komist á ró og friður. Þeir ala með kúgunum á hatri fólks gagnvart þeim sem viðheldur svo skærum gegn Ísrael sem þeir nota svo til að ráðast á Gaza og sprengja allt til helvítis.
Livni: Árásir óhjákvæmilegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. desember 2008
Finnst nú helsta fréttin í þessum greinum umsagnir um Davíð Oddsson
Í geinum í Wall Streat journal og í Financial Times eru kaflar sem ekki er hægt að líta fram hjá í þessu samhengi þar er í raun hægt að segja að fall okkar sé persónugert í Davíð Oddssyni
Mr. Oddsson became prime minister in 1991 promising to bring an end to the country's boom-and-bust cycles tied to the fish catch. He blamed the trouble on the state-controlled economy, which put bureaucrats in charge of fishing, the media, even a travel agency.
Within a few years, Iceland had sold off companies worth a combined $2 billion, a big sum for the small economy, says Mr. Gissurarson.
For Mr. Oddsson, what most held Iceland back was government control of banking, which put politicians in the position of determining how capital should be allocated. "The crucial factor," he said in a 2004 speech, "was the iron grip that the Icelandic state had on all business activity through its ownership of the commercial banks."
He sold them all.
Og síðar í greinni
One thing that might have saved Icelandic capitalism was joining the euro. Appealing to national pride, Mr. Oddsson long resisted moves to join the European Union and adopt the common currency. Perhaps most crucially, joining the EU would have meant bureaucrats in Brussels would then regulate Iceland's use of its fishing stocks -- a political third rail in Iceland.
In the October TV interview, Mr. Oddsson was unbowed in his views of the euro. "If we were tied to the euro, for instance, we would just have to succumb to the laws of Germany and France," he said.
Í Financial Times stendur m.a.
There are further lessons. Politicians should not become central bank governors. Mr Oddsson is part of the problem, not of any solution, and should resign immediately. Allowing partial euroisation was a recipe for instability. And Iceland was unable or unwilling to arrange early international support, nor did it wish to call in the International Monetary Fund.
Tek loks undir með Sefáni Jóni Hafstein í grein á þar sem hann m.a. segir:
Ræða Davíðs er lengsta ,,ekki-benda-á-mig" ræða Íslandssögunnar. Í henni er Seðlabankinn bara veðurklúbburinn á Dalvík, mælir vindhraða en gerir ekkert í honum; spáir á rósamáli fyrir innvígða en hastar hvorki á veður né vötn. Fjármálaeftirlitið á tunglinu, en samt á Seðlabankinn mann í stjórn. Í Simbabwe er allt komið til fjandans en Mugabe segist ekki fara neitt því án sín fari allt ennþá meira til fjandans
En í þessari grein færir Stefán Jón líkur að því að hrun bankana hafi verið eitthvað sem menn reiknuðu með og héldu að við kæmumst upp með að fella niður allar skuldir bankana erlendis. Góð grein.
Evran hefði dregið úr fallinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 27. desember 2008
Eitthvað bogið við þetta?
Borgaði fólk 27 þúsund fyrir miðan? Held að annað hvort sé þetta frá upphafi tónleikana þ.e. á 9 árum eða 2,75 milljónir.
[ok þeir eru að laga þetta. Það gat ekki verið að tónleikar í Háskólabíó væru að skila 27,5 milljónum eins og stóð þarna.]
Tvær og hálf milljón safnaðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 26. desember 2008
Talandi um þjófa. Þetta er ógeðslegt pakk! Stálu bíl og jólagjöfum
Uppeldisbróðir minn var var að útrétta á aðfangadag um hádegið og þurfti að skreppa inn í verslunina Kistufell í Brautarholti. Hann skaust inn í búðina og þar sem hann er sendibílstjóri er hann einn af þeim sem á það til að skilja bílinn eftir í gangi. Þar sem hann er að tala við afgreiðslumanninn spyr sá hvort þetta sér ekki bíllinn hans sem sé að keyra þarna í burtu? Og viti menn það var rétt. Bíllinn er ekki enn fundinn og það versta er að allar jólagjafir hans til vina og vandamanna voru í bílnum.
Þannig að ef þið sjái TOYOTA COROLLA...STEINGRÁR....ÁRG.2008....SKRÁNINGARNR.
OF-J05
.DIESEL(D4D MERKI Á SKOTTI.)
þá væri gott að þið hefðuð samband við lögreglu í síma 444-1100 eða þið getið hringt beint í eiganda í síma 8925815.
Bíllinn er nýr og ónotaður. Hann var bara eins og hann segir að viðra hann
Þetta þjófapakk er gjörsamlega siðblint og það að sá alla pakkana í aftursætinu og vita að þetta voru jólagjafir finnst mér alveg keyra um þverbak
Löggan telur jafnvel samkvæmt lýsingu á þjófinum að þarna sé um að ræða einstakling sem hafi nokkrum mínútum áður verið látin laus úr fangelsi.
Þýfi fannst úr sumarbústöðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 10
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 969567
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson