Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
Þriðjudagur, 30. júní 2009
Stjórnarandstaðan alveg að missa sig núna
Var að hlusta á Sigmund í fréttum í kvöld. Nú vill hann standa við bakið á stjórninni ef að frumvarp hennar verður fellt. En ef það verði samþykkt á þinginu verði að fella stjórnina. Og rökin nú gegn Icesave ábyrgðinni er komin m.a yfir í
Formenn og forsvarsmenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi gagnrýna frumvarp um ríkisábyrgð harðlega. Það sé óráðsía að samþykkja það, það sé í erlendri mynt sem ekki sé hægt að standa við, hlutdrægt og á því er áróðursbragur segir formaður Sjálfstæðisflokksins
Ég spyr nú bara! Hefur Ísland einhvern tíma fengið lán erlendis frá í krónum? Hverslags kjaftæði er þetta eiginlega.
Þeir hafa verið að rukka eftir mati á greiðslubirgði sem kom nú undir kvöld. Og sem eru þeir vissir án þess að skoða það að við getum ekki borgað. Er ekki að kaupa svona vinnubrögð.
Og Bjarni Ben sagði að greinargerð með frumvarpinu væri hlutlæg. Og miðað að því að réttlæta þessa ábyrgð. Nú við hverju bjóst hann?
Og Birgitta þurfti ekkert að kynna sér þessi göng sem var verið að leggja fram því þau vita að þjóðin ræður ekki við þetta eftir sínum göngum. Hverskonar málflutningur er þetta?
Er ekki lágmarks kurteisi við þjóðina að Alþingismenn kynni sér öll gögn málsins áður en þeir taka ákvörðun. Með fullri virðingu fyrir þessu fólki held ég að þeim væri nú hollast að vera ekki að æsa fólki upp hér enn meira án þess að þekkja vel til málsins. Þó þau í Borgarahreyfingunni hafi talað við einhvern úr samninganefnd Hollands og hlegið að þeirri manneskju þegar hún spurði þau hvort að Borgarhreyfingin vildi virkilega að Ísland einangraðist þá hafa þau ekki séð raunveruleg göng fyrr en nú og á næstu dögum.
Ekkert plan B" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.7.2009 kl. 02:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Þriðjudagur, 30. júní 2009
Hvernig samning vill fólk þá í staðinn?
Ég er bara ekki að skilja þessa umræðu í dag.
Indefence hópurinn er búinn að breyta málflutningi sínum frá því að ekki eigi að semja og fara með málið fyrir dóm. Nú er það að: "auðvita stöndum við við skuldbindingar okkar" en bara ekki þennan samning. Nú spyr maður hvað vilja þeir sjá í staðinn? Þeir nefna vexti. Hvað vexti vilja þeir? Ef að málið er að lækka vexti - hvað á að lækka þá mikið? Um 0,5% er þeir þá sáttir? Er það ekki lækkun um kannski nokkra milljarða? Hverju þarf að breyta? Eða eru þeir aðeins að vinna með Sigmundi Davíð vini sínum að reyna að koma höggi á stjórnina? Og eins væri gaman að vita hvaða sérfræðingar það eru sem eru að reikna þetta út fyrir þá sem eru svona miklu klárari en sérfræðingar sem unnu með samninganefndinni um icesave sem hefur nú verið upplýst að voru bæði innilendir og erlendir. Sem og virt ensk lögfræðistofa.
Nú og nú er fólk að heimta að forsetinn skrif ekki undir samninginn. Og hvað heldur að fólk að taki við ef við synjum að veita ríkisábyrgð? Þá væri spurning hvort að samninganefnd okkar hefði nokkuð umboð til að semja um nokkuð þar sem búið er að synja ríkisábyrgð. Þeir sem semja við okkur geta þá ekki treyst því að þeir sem skrifi undir nýja samning fyrir okkur hafi nokkuð umboð og líkur á því að næsti samningur yrði líka feldur.
Síðan skil ég ekki hvað verið er að tala um að báðir aðilar eigi að bera ábyrgð á þessu. En eru Hollendingar og Bretar beinir að taka ábyrgð á öllum lánunum og eru að rukka okkur um okkar hluta á þessu sem þeir eru þegar búnir að borga út. Og eins þá tóku þeir væntanlega lán til að borga innistæðueigendum. Þeir væntanlega tóku styttir lán sem bera lægri vexti en við erum að fá lán hjá þeim til 15 ára sem er eðlilegt að beri hærri vexti.
Vilja að forseti synji staðfestingu á ríkisábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 29. júní 2009
Bara svona vangaveltur!
Elvira hefur borið saman Icesave-samninginn og samninga Evrópusambandsins undanfarin ár, en sambandið hefur veitt ríkjum í efnahagsþrengingum, jafnt innan sambandsins sem og utan þess, lánafyrirgreiðslu. Í þeim samningum hafi vextir verið um 3,5% en vextir á Icesave lánunum eru 5,5%.
- Við vorum ekki að semja við ESB heldur Breta og Hollendinga! Þ.e. skuld okkar við þau. Það er bara allt annað en samningar sem ESB gerir við þjóðir í efnahagserfiðleikum.
- Held það hefði sungið í ESB andstæðingum ef við hefðum beðið ESB um lán!
- Væri kannski spurning um að höfða til ESB um að við værum á leiðinni þangað inn þannig að þeir lánuðu okkur sambærilegt lán og við gerðum við Breta og Hollendinga nema á lægri vöxtum og við greiddum upp lán Hollendinga og Breta.
- Er hægt að bera saman vexti núna við það sem var fyrir nokkrum misserum?
- Alveg er ég til í að gera eins og hún segir að fara í samningaviðræður við ESB um aðstoð. Og um leið að sækja þar um.
Undrast lánakjör Icesave samnings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 29. júní 2009
Hugmynd að því að komast hraðar út úr kreppunni.
Ég átti samtal við nokkra samstarfsfélaga í dag og hjá okkur kviknaði hugmynd að því hvernig við tæklum kreppuna helmingi hraðar:
Málið er að horfa til tillögu sjálfstæðismanna um tímabundna innsköttun lífeyrissjóðsgreiðslna. Horfa í það að nú eru sérstakir tímar sem kalla á sértækar lausnir. Ákveða að skattar skuli greiddir næstu 5 árin af greiðslum í lífeyrissjóð. Þessir peningar eyrnamerktir eða hafði rí sér sjóð. Síðan þegar að lífeyristöku kemur hjá sjóðsaðilum þá vegna skattgreiðslna eru þeir búnir að greiða skatt og mundu þá komast af í 5 ár á 35% lægri greiðslum þar sem þeir þurfa ekki að borga skatt af þeim. Eins hefðu lífeyrissjóðir og ríkið kannski 10 til 15 ár að bæta upp það sem tapast hugsanlega í ávöxtun.
En um leið og þetta mögulega skilar um 40 milljörðum á ári verði staðið við fyrirhugaða skatta sem og niðurskurð. Og þessir 40 milljarðar verði bara viðbót.
Með þessu móti þá eru góðir möguleikar á að við komumst út úr kreppunni á helmingi styttri tíma.
Um leið og kreppunni líkur hækka laun Sem á móti auka innstreymi í lífeyrissjóð. Eins væri hægt að semja um um að hluti kauphækkana næstu árinn eftir kreppu væru í formi tímabundina hækkana á greiðslum í lífeyrissjóði til að tryggja óbreytta stöðu þeirra.
Af hverju ekki að taka nú helmingi betur á og klára þetta á helmingi skemmri tíma. Vera búinn að rétta við ríkisbúið kannski 2011 í stað 2013 eða seinna.
Eins væri hægt að koma með miðlunartillögu um að inngreiðslur væru skattlagðar að hálfu.
Erfitt en óumflýjanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 28. júní 2009
Ég er ekki að skilja þetta fólk eins og Lilju Mósesdóttur
Hvað á hún við með þessu:
Ég hefði viljað bíða með að semja þangað til raunveruleg skuldastaða ríkisins liggur fyrir, segir Lilja, en ef hún hefði verið í samninganefndinni fyrir Íslands hönd þá hefði verið númer 1, 2 og 3 að íslenska ríkið þyrfti ekki að borga vexti af upphæðunum sem það gekkst í ábyrgð fyrir.
Ég næ þessu ekki hjá henni. Er hún ekki að skilja að Bretar og Hollendingar eru búnir að greiða um 1300 milljarða til þeirra sem áttu innistæður á Icesave þ.e. allar innistæðurnar. Skv. samkomulagi er það svo okkar að borga innistæðutryggingu upp á 20 þúsund evrur til Breta og Hollendinga sem eru búnir að taka lán til að greiða þessar upphæðir allar. þannig að í raun er um endurgreiðslu okkar að ræða. Nú eru Bretar og Hollendingar að greiða vexti af sínum lánum vegna þessa. Og gefa okkur gjaldfrest í sjö ár gegn því að við borgum vexti af okkar hluta ábyrgðarina. Hverning ætla menn að rökstyðja að við eigum ekki að borga vexti? Eiga þá Hollendingar og Bretar að borga okkar vexti líka. Er hún að halda því fram að þessar þjóðir séu svo mikið aflögufærar um þessar mundir?
Þjóðarbúið ekki á hliðina vegna Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.6.2009 kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 28. júní 2009
Orðsending til svokallaðra "álitsgjafa"
Mér datt í hug þessi leirburður þegar hlustaði á píanóleikara og lifefnafræðing tala fyrir höndi InDefence hópinn á ÍNN sjónvarpsstöðinni í nótt.
Mér er orðið tregt um mál
maðkaður heilinn eins og kál
ekkert að segja
best að þegja
Það saknar mín ekki nokkur sál
Það er talað við þá og um hugmyndir þeirra eins og þeir fari með heilagan sannleiki og að þeirra lausnir séu svo þrauthugsaðar og byggaða af svo mikilli reynslu og þekkingu. En óvart hafa þessir menn aldrei staðið í svona málum sjálfir.
Sunnudagur, 28. júní 2009
Svo ætlar hann blessaður bara að koma aftur eftir leyfið!
Skrifað grein um þetta sem birtist í gær í Morgunblaðinu!
Allt tortryggilegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.7.2009 kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 26. júní 2009
Ég á bara ekki orð!
Var þetta fólk ekki kosið fyrir nokkrum mánuðum til að taka á svona málum. Hvað halda þessir flokkar að við séum bættari með þjóðaratkvæðagreiðslu sem ekki er bindandi? Eins bendi ég á að þetta gæti tafið öll lán og aðra fyrirgreiðslu sem okkur bráð vantar um mánuði eða misseri. Eins og ég er með þjóðaratkvæðagreiðslum finnst mér lágmark að fólk viti hvað það er að kjósa um. T.d. þyrfti áður en atkvæðagreiðsla færi fram
- að senda sérfræðinga erlendis til að meta hvað áhrif það hefði fyrir okkur að hafna þessu.
- að meta hvað synjun mundi gera fyrir lánshæfi okkar
- að kanna hversu mikla líkur eru á að við fáum betri samning
- að meta hvað þetta mundi þýða viðskiptalega fyrir ríki og fyrirtæki
- að meta hvaða áhrif þetta hefði á stöðu Íslands í alþjóðasamstarfi.
Það er nokkuð ljóst að enginn vill glaður borga þessar skuldir. Og því möguleiki á að almenningur mundi greiða atkvæði gegn honum. En áður en til þess kemur þarf almenningur að vera full meðvitaður um hvernig staðan verður eftir það.
Síðan verða framsóknarmenn og sjálfstæðismenn að segja okkur hvernig þeir hugsa sér að framhaldið yrði og styðja það einhverjum öðrum göngum en indefence hópurinn heldur fram.
Ef þetta verður samþykkt fer ég alvarlega að verða hræddur um stöðu okkar næstu árinn. Við verðum þekkt sem þjóðin sem er gjaldþrota, eða þjóðin sem ekki er hægt að lán því að að við borgum ekki.
Þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Föstudagur, 26. júní 2009
Orðsending til Sigurðar Líndal og fleiri álitsgjafa!
Veit að í gegnum tíðina hefur Sigurður Líndal og fleiri álitsgjafar og sérfræðingar í lögum verið kallaðir til ávallt þegar upp hafa komið álitaefni. En nú er ég með orðsendingu til þeirra!
Ágætu álitsgjafar!
Ég undirritaður bið ykkur nú að vanda málflutning ykkar þegar þið gefið álit í svona flóknu málið eins og Icesave. Nú t.d. er Sigurður í annað skipti á nokkrum dögum að tjá sig um Icesave samningin. Í fyrra skiptið segir hann eitthvað á þá leið að hann telji að Icesave samninginn eigi að leysa fyrir dómstólum. Nú kemur hann og segir
"Sigurður Líndal segist hræddur um að Íslendingar eigi engan annan kost en að gangast undir Icesave samningana eins og hver önnur sigruð þjóð "
Sigurður svo snjall maður sem hann er hlýtur að átta sig á að hér er á landi eru logandi deilur um þetta mál. Á meðan að ríkisstjórn segir okkur að betri samningar hafi ekki verið í boði og að Bretar og Hollendingar taki ekki ´mál að far í samninga aftur við okkur, þá er hér líka hópur nýrra "sérfræðinga" sem eru á því að við þurfum ekkert að borga þetta. eða að það sé hægt að ná miklu betri samningum. Þó þeir viti ekki fyrir hvaða dómstól á að taka þetta mál fyrir né hafi nokkru sinni tekið þátt í svona samningum.
En sem sagt Sigurður og fleiri þegar þið eruð spurðir álits sem eðlilegt er gætið að því að gefa ekki falsvonir vanhugsaðar sem ákveðnir hópar geta síðan beitt í umræðunni, þ.e. ef þið eruð ekki vissir. Eins á þetta við um marga hagfræðinga sem eru að tjá sig þessa daga. Verið ekki að tala um einhverja möguleika sem eru svo ekki í rauninni framkvæmanlegir.
Það sem þjóðin þarf frá ykkur eru vönduð vinnubrögð!
Mynni ykkur álitsgjafar t.d. lögfræðingar, viðskiptafræðingar og hagfræðingar að gömlu bankarnir voru fullir af fólki með ykkar menntun, sama var í FME og Seðlabankanum og því má segja að hrunið hafi verið hannað, framkvæmt og rústað af fólki með ykkar menntun.
Svo það sem ég er að segja vandið þið ykkur. Skapið ekki óþarfa vonir um skyndilausnir ef þið eruð ekki vissir, skapið ekki óþarfa hræðslu og einbeitið ykkur að því að upplýsa fólk um stöðuna og hugsanlega aðgerðir til bóta án þess að kynna þær sem hinar einu réttu ef þið þekkið málið ekki til hlíta.
Óþarfi að skapa hér á þessum tímum óþarfa sundrung.
Dæmi um hverju svona málflutningur hefur skilað er
- sú hugmynd að láta erlenda kröfuhafa borga niðurfærslu lána hér á landi.
- að við þurfum ekki aðstoð AGS
- að það verði engar afleiðingar af því að samþykkja ekki ábyrgð á Icesave. Breta og Hollendingar komi bara glaðir aftur að samningaborðinu, annars borgum við þeim bara ekkert.
- að það þurfi ekkert að hækka skatta. Bara að styrkja atvinnulífið til að komast í gang. Enginn sagt hvaðan þeir peningar eiga að koma.
- að það sé endalaust hægt að skera niður hjá ríkinu. Án þess að til komi skert þjónusta t.d. á sjúkrahúsum, félagsmálum, hjá fötluðum, öryrkjum og öldruðum. Ja eða mennta málum. Þetta eru kannski 75% af öllum útgjöldum ríkisins sem fara bara í þetta.
En álitsgjafar vandið þið ykkur. Nú er full þörf á að þjóðin standi saman! Óvarlegar yfirlýsingar og illagrunduð álit geta komið hér öllu til andskotans.
Sigruð þjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 25. júní 2009
Stjórnarandstaðan búin að missa hluta vopna sinna!!?!
Held að nú séu Sjálfstæðismenn ekki hamingjusamir. Þeir treystu væntanlega á að þessi sáttmáli kæmist ekki á koppinn, því þar með er búið að semja á stórum grundvelli um mál sem þeir hefðu notið að hafa í sinni neikvæða og óuppbyggilega málflutning. Eins með framsókn! Var að lesa grein í Morgunblaðinu í dag eftir Vigdís Hauksdóttur alþingismann þeirra og ég held hreinlega að hún lifi ekki í sama landi og við. Hún segir
Á MBL.IS 19. júní er eftirfarandi haft eftir Paul Rawkins, hjá lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch: »Ástæða þess að fyrirtækið [Fitch] hefur ekki afskrifað lánshæfi Íslands er að landið hefur enn ekki vanrækt erlendar skuldbindingar sínar
Ég held í alvöru að hún misskilji þetta hér að ofan og haldi að maðurinn hafi verið að meina ef við skrifum undir Icesave þá lækki matið. Get ómögulega séð hvernig hún les þetta út. Því hann er að segja að lánshæfimat okkar ráðist af þvi hvort við ætlum að standa við samkomulag um icesave eða ekki. Ef við gerum það ekki föllum við í lánshæfi eðlilega þar sem við stöndum ekki við samninga um skuldir okkar.
>> Ríkisábyrgð í erlendri mynt er í raun veðsetning gjaldeyrisvaraforðans. Hvað er þá eftir þegar hann er uppurinn? Jú, Ísland sjálft og auðlindir þess.
Þá er komið að orðum Jóns Daníelssonar á ný er hann telur að erlendir lánardrottnar kyrrsetji allar okkar eigur erlendis, neitum við að borga erlendar skuldir. Þetta ákvæði er í Icesave-samningunum því erlendir lánardrottnar vita að við stöndum ekki undir þessum skuldbindingum og lántökum í framhaldinu. Erlendir lánardrottnar hafa í dag ekki allsherjarveð í eigum okkar og þurfa því að afskrifa allar okkar skuldir neitum við að borga enda tóku þeir áhættuna af því að lána íslenskum fjárglæframönnum út í hið óendanlega.
En leikritið skal keyrt áfram, með blekkingarleik og lygavef í þágu auðhringja heimsins undir forystu Samfylkingarinnar. Við erum »rusl« sem þýðir að lánshæfisfyrirtæki eru einu þrepi frá að afskrifa Ísland. Eina sem þarf er að viðurkenna opinberlega að við getum ekki staðið undir erlendum skuldbindingum.
Til hamingju með sáttmálann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 51
- Frá upphafi: 969571
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson