Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2016

Punktar fyrir alþingismenn næstu mánuði.

Nú er orðið nokkuð ljóst að Alþingi starfar áfram án kosninga a.m.k. næstu mánuði. Því væri gott að þið kjörnir fulltrúar munduð huga að nokkrum atriðum:

  • Atburðir síðustu vikna vekja enn upp nauðsyn þess að taka hér marga kafla upp í stjórnarskrá landsins og í raun er önnur náttúrulega næstum tilbúin. Það vantar tilfinnlega kafla þar um skildur þingmanna að gefa upp hagsmuni sína og víkja þá tímabundið eða alveg ef að fjallað er um mál sem snerta þá beint.
  • Væri því ekki gott að framlengja bráðabirgðarákvæði sem sett var á síðsta kjörtímabili um breytingar á stjórnarskrá. Þ.e. að hún þurfi ekki að fara í gegnum 2 þing til að taka gildi.
  • Nú situr ríkið uppi með alveg ógurlegar eignir. Það verður aldrei friður um sölu þeirra ef mönnum dettur í hug að reyna að selja einkavinum flokkana þær aftur. Sbr. fyrri einkavinavæðingu. Þá fyrst yrði allt brjálað. Og ég fer fram á að stjórnaranstaðan verði vel á verði.
  • Leggja þarf áheslu á að þessa fáu mánuði sem þingið stafar að setja í forgang að klára aðgerðir í húsnæðismálum, velferðamálum og heilbrigðismálum . Annað getur beðið. 
  • Eins að sökum þess að boða á til kosninga næsta haust þá farið þið ekkert í sumarfrí! Það er nokkuð ljóst.

mbl.is Vilja rannsóknarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig gátu Bretar gert Páli Vilhjálmssyni þetta?

Páll Vilhjámsson búinn að skrifa margar greinar um að lætin hér á landi væru bara skipulögð aðför RUV að Sigmundi Davíð. Þetta væri ómerkilegt mál sem væri bara blásið upp og gert út á heimsku fólks með því að draga það á Austurvöll án nokkurar ástæðu. Og hefur bent á að Bretar hafi ekki mótmælt opinberlega David Cameron.

En úps hvað er þá að gerast núna. Af visir.is:

Þúsundir eru saman komnir fyrir utan forsætisráðherrabústaðinn að Downingsstræti 10 í Lundúnum til að krefjast afsagnar Davids Cameron vegna tengsla hans við aflandsfélag í skattaskjóli. Boðað var til mótmælanna í vikunni, þar sem breskur almenningur var hvattur til að koma saman að íslenskri fyrirmynd.

Mótmælin fara friðsamlega fram en fólk lætur vel í sér heyra og ber mótmælaskilti með slagorðum á borð við „Cameron verður að fara“. Þá er nokkur konar strandarþema í ljósi þess að aflandsfélag Cameron var staðsett á Bahamaeyjum, en líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum er ber fólk meðal annars blómakransa um hálsinn.

 


mbl.is Cameron gengst við ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona grínlaust finnst fólki þetta bara vera í lagi?

Finnst fólki það bara hafa verið og sé bara allt í lagi að hér séu stjórnmálmenn, fjárfestar og auðmenn sem geyma fé í skattaskjólum. Hef séð að þar séu jafnvel geymdir tugir eða hundruð milljarðar ef við teljum líka með lönd þar sem í gildi eru bankaleynd. Finnst fólki það bara verið í lagi.

Ef svon er átti þá nokkuð að vera dæma bankamenn fyrir að svindla og pretta við að halda uppi verðmæti bankana eins og þeir gerðu? Hefði það kannski verið í lagi ef þeir hefðu verið stjórnmálamenn líka.

Er þá bara allt í lagi að gera eins og menn hafa gert hér í gegnum árin að greiða meira fyrir vörur erlendis á pappírnum og stynga mismuninum á reiknga erlendi sem svo aldrei er greiddur nokkur skattur af. Láta fyrirtæki sín hér svo taka peninga að láni hjá fyrirtækjum á leynieyjum og greiða háa vexti fyrir sem svo eigendur geta ávaxtað erlendir og koma aldrei hér inn eða borgaður af þeim skattur.

Getur verið að fólk hér á landi sé orðið svo bilað að það sé tilbúið með sínum sköttum að bæta upp það sem ávantar í samneyslurna og velferð vegna þess að menn eru ekki að greiða sinn lögbundna skatt.

Finnst fólk eðlilegt að enn siti á Alþingi að minnsta kosti 2 þingmenn og 2 ráðherrar séu i ríkisstjórn þar sem sannarlega eru tengsl við svona viðskipti.


mbl.is Krefjast kosninga og að Bjarni víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir atburði síðustu daga vitum þetta!

  • Það er allt í lagi fyrir Íslendinga að geyma fé og fyrirtæki í skattaskjólum. Þ.e. ef við segjum skattinum frá því að við séu þar með fyrirtæki í felum og segjum skattinum að engin hagnaðru sé af þeim og þurfum því ekkert að borga frekar en við viljum
  • Stjórnmálamönnum er frjálst að eiga slík félög ef þeir hafa vit á þvi að flytja þetta yfir á maka sinn áður en hagsmunaskráning gengur í gegn.
  • Að þrátt fyrir að ættingjar, vinir og jafnvel makar séu á kafi í viðskiptum þá er viðkomandi stjórnmálamaður ekkert vanhæfur að setja lög, skatta og fleira sem snertir þetta tengsla net.
  • Almenningur má ekki fara með peninga sína óhindrað í gjaldeyri til útlanda og stofna þar reikninga núna eða í fyrirsjánlegri framtíð.
  • Ef fjárfestar geta valsað hér út og inn eins og þeim lystir.
  • Eins að margir bloggarar og virkir í athugsemdum finnst það bara frekja að fara fram á breytingar á þessu.
  • Þeim finnst t.d. í lagi að Bjarni Ben og Ólöf séu áfram ráðherrar.

Heyrðist að Framsókn stefni að nýja stjórnin verði kosningatrix!

Hef ákveðna von um að það verði boðið upp á einhver kosningatrix nú á næstu mánuðum og gæti verið nokkuð um illa fjármögnuð tilboð til okkar. Svona eins og skattalækkanir og fjáraustur í ýmsar áttir sem ekki er innistæða fyrir.

P.s. ekkert talað um aukið skattaeftirlit. Stangari reglur um eignir í skattaskjólum og öflun gagna um þá sem þegar eru þar. Ekkert um aukið fjármagn til skattrannsóknarstjóra.


mbl.is Boðað til kosninga í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkilega! - Þessi maður ráðherra?

Hér má sjá 2 dæmi hvernig hann stendur sig undir álagi. Maðurinn bullar bara

Svona lét hann í dag:

http://nutiminn.is/er-thetta-eitthvad-grin-asmundur-einar-sjadu-endurtekningarnar-i-kastljosi-og-frettum/

 

Og svona lét hann um daginn

http://nutiminn.is/hlustadu-a-asmund-einar-endurtaka-sig-aftur-og-aftur-i-beinni-thu-verdur-ad-vera-med-fleiri-linur/

Hann bara endurtók sömu línurnar eins og vélmenni. Svona eins og hann væri forritaður af Sigmundir og gæti ekki sagt neitt annað.


mbl.is Gengið til kosninga 8. október?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirgefið en ég hef enga trú á væntanlegum forsætisráðherra

Ýmislegt skrautlegt sem Sigurður Ingi hefur borið ábygð á

m.a

Sigurður Ingi virti álit heilbrigðiseftirlitsins að vettugi þegar hann heimilaði sölu og dreifingu á hvalabjór. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Matvælastofnun höfðu komist að þeirri niðurstöðu að hvalamjölið, sem notað var í bjórinn, stæðist ekki skilyrði matvælalaga. Sigurður greip fram fyrir hendurnar á heilbrigðiseftirlitinu og leyfði söluna. Ákvörðun ráðherra var ekki tilkynnt formlega, heldur var sagt frá henni í fréttamiðlinum Skessuhorni. Mjölið í bjórnum var unnið úr „þarmainnihaldi“ hvalanna og var því saurmengað, auk þess að vera allt að fimm ára gamalt.

 

Einnig var þetta skrautlegt

Þá vakti athygli þegar Sigurður Ingi tilkynnti á vef umhverfisráðuneytisins að hann hefði ákveðið að afturkalla lög um náttúruvernd, sem taka áttu gildi hálfu ári síðar. Hann áréttaði síðar að hann hyggðist leggja fram lagafrumvarp um að náttúruverndarlögin yrðu felld úr gildi, fremur en að afturkalla þau, enda hefur ráðherra ekki vald til slíks.

Tekið að láni af stundin.is

Og þetta er bara smá brot af illa hugsuðum embættisfærslum hans og samt er hann bara búinn að vera ráðherra í tæp 3 ár.

Og áfram:

Þá sagði Sigurður Ingi að það væri flókið að eiga fé á Íslandi. „Það er auðvitað augljóslega talsvert  flókið að eiga peninga á Íslandi. Það er ekkert að því að fólk sé efnað á Íslandi,“ sagði hann. „Einhvers staðar verða peningarnir að vera,“ svaraði hann þegar hann var spurður hvort eðlilegt væri að forsætisráðherra ætti peninga á Tortóla. „Og talsverður misskilningur að um sé að ræða skattaskjól eða aflandsfélög eins og menn hafa greint frá.“

Einnig má nefna þetta

Sigurður Ingi hóf feril sinn innan nýrrar ríkisstjórnar sem umhverfisráðherra með því að segja frá þeirri skoðun sinni að leggja ætti niður umhverfisráðuneytið. 

og einnig:

Sumarið 2013 hætti Sigurður Ingi, sem var umhverfisráðherra, við að undirrita friðlýsingarskilmála fyrir Þjórsárver sama dag og til hafði staðið að gera það. Bæði umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun höfðu sent út boðskort vegna atburðarins. Ákvörðunin var gagnrýnd harðlega af umhverfisverndarsinnum og stjórnarandstöðunni. Skýringar Sigurðar Inga voru þær að oddviti Rangárþings ytra hefði gert athugasemdir við friðlýsinguna, en það reyndist hafa verið rangt.

Og þetta er ekki búið.

Aðstoðarmaður Sigurðar Inga boðaði bloggarann Agnar Kristján Þorsteinsson á fund vegna undirskriftarsöfnunar hans gegn lækkun veiðigjalda og var sent afrit af fundarboðinu á yfirmann Agnars hjá Háskóla Íslands. Agnar kvartaði undan því að verið væri að ógna atvinnuöryggi hans með því að blanda yfirmanni hans inn í það sem hann gerði í frítíma sínum.

Og þetta er nær endalaust

Ein umdeildasta ákvörðun Sigurðar Inga var að flytja Fiskistofu út á land með skömmum fyrirvara. Ætlast var til þess að starfsmennirnir flyttu til Akureyrar. Starfsmenn Fiskistofu sendu frá sér yfirlýsingu í september 2014 þar sem þeir kvörtuðu undan því að flutningurinn væri ólöglegur og ófaglegur.

Sigurður Ingi leitaði ekki til Alþingis áður en hann tók ákvörðunina, og því taldi starfsfólkið flutninginn vera ólöglegan.

 

 


mbl.is Afstaða Sigmundar „virðingarverð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá ekki frétt hér á mbl.is um orð sænska forsætisráðherrans. Svo ég bara birti þau :)

Ótækt þætti í Svíþjóð að þjóðarleiðtogar blönduðust inn í hneykslismál af því tagi sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, er nú flæktur í með aðkomu sinni að félagi í skattaskjóli á Bresku Jómfrúareyjum. Það bendi til græðgi hjá hlutaðeigandi, segir Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar.

Þetta kemur fram í viðtali sænska ríkisútvarpsins við Löfven. Þar var hann spurður sérstaklega hvort hann teldi að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætti að segja af sér sem forsætisráðherra. „Það er spurning sem lýtur að Íslendingum og þeir munu sjá um það, það verða þeir sjálfir að leysa. En frá sænsku sjónarhorni, þess hvernig litið er á svona mál hér, þá væri ótækt að vera þátttakandi í þessu og mér þykir það sýna græðgi hjá viðkomandi, sem mér er þó ekki neitt illa við.“ eyjan.is

img_0583_1280063.jpg


mbl.is Hiti í mönnum utanhúss sem innan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja honum tókst að verða frægur!

Sigmundur Davíð og framsókn hafa talað þannig að við værum bara vanþakklátt fólk sem ekki lögðumst á hnéin og tilbáðum hann sem frelsara okkar.

En nú hefur hann fenigð sína heimsfrægð! Og vona að hann njóti þess að vera loks búinn að tryggja sér pláss á spjöldum sögunar.

Sennilega fáir Íslendingar náð í eins marga fjölmiðla á sama tíma og hann.


mbl.is Sigmundur í fjölmiðlum um allan heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafn Vilhjálms Þorsteinssonar, fjárfestis, var ekki að finna í Panamaskjölunum

En hann sagði af sér sem gjaldkeri Samfylkingarinnar þrátt fyrir það. Tók hagsmuni flokksins fram yfir stöðu sinnar sjálfs.

Nafn Vilhjálms Þorsteinssonar, fjárfestis, var ekki að finna í Panamaskjölunum sem fjallað var um sérstökum Kastljósþætti í kvöld. Þetta staðfestir Jóhannes Kr. Kristjánsson hjá Reykjavík Media. Hann segir að þeir hafi leitað að nafni Vilhjálms í gagnagrunni gagnalekans en nafn hans hafi ekki komið upp.

Vilhjálmur upplýsti sjálfur í athugasemd á Facebook fyrir fjórum dögum að hann ætti félag í Lúxemborg.  Seinna greindi Stundin frá því að Vilhjálmur hefði ekki upplýst um félag sem hann ætti í Kýpur. Vilhjálmur sagði í framhaldinu af sér sem gjaldkeri Samfylkingarinnar. ruv.is


mbl.is Varaformaður Framsóknar: „Ekkert nýtt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband