Leita í fréttum mbl.is

Ómerkilegur maður Sigmundur Davíð.

Rétt að benda á að Framsókn hefur um áraraðir barist fyrir að Flugvöllurinn verði í Vatnsmýri af því að byggja eigi nýtt sjúkrahús við Hringbraut.  Og svona út úr snúningur úr vilja Alþingis segir mér bara eitt. Það eru einhverjir vinir Sigmundar sem horfa núnar vonar augum á gömglu bygginar Landspítala, lóðana eða svæðisins í kring. Það getur ekki verið nein önnur skýring.

http://www.nyrlandspitali.is/


mbl.is Samþykktu ekki nýjan spítala við Hringbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað með börnin Sigmundur Davíð!!!!!!!!!!!!!!

FDramsóknarflokkurinn stendur að lista sem hefur 2 fulltrúa í borgarstjórn sem hefur ásamt félögum talið lífsnauðsyn að hafa sjúkrahúsið við hliðina á Landspítalanum við Hringbraut. Ef að Landspítalinn flytur þá er viðbúið að það verður styttra og beinni leið í Hvassahraun! Eða skipta sjúklingarnir núna allt í einu engu? Ráðherra er nú popúlisti andskotans í þessu máli og fleirum. Hef ekki heyrt um forstætisráðherra áður sem fær að láta  áhugamál sitt og skoðanir á gömlum hverfum og húsum umbylta áratugavinnu og milljarða útgjöldum bara af því að honum finnst eitthvað. Ekki það að mér finnst ágætt að Víflistaðir yrðu skoðaðir sem möguleiki. En þá er draumur minn um að kaupa þá og breyta í luxushótel fyrir bí :)


mbl.is Vill nýjan spítala á Vífilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hallo Sigmundur Davíð - Forsætlisráðherra hverra ert þú?

Þó ljóst sé að Sigmundur Davíð hatar Reykjavíkurborg og stjórnvöld þar eins og pestina þá væri gott að einhver benti honum á eftirfarandi. Sigmundur Davíð er forsætisráðherra allrar þjoðarinnar og óvart býr örugglega um 65% hennar á Suðversturlandi og...

Veit utanríkisráðherrann ekki hvað þróunarsamvinna er?

Hélt nú að heitið segði nú allt. Þ.e. að koma að þróunarverkefnum í fátækum löndum í samstarfi við viðkomandi ríki til að vinna að þróun þeirra í átt að sjálfbærni! Hefur bara ekkert að gera með móttöku flóttamanna frá Sýrlandi að gera. Þar er um allt...

Þetta nú bara ekkert svar!

Sko ef Sigmundur veit það ekki þá er Menntaskólinn í Reykjavík ríkisrekinn skóli. Þar starfar jú einhver bygginarnefnd um væntanlegar viðbætur eða ný hús við skólan. Hún hafði fengið samþykkt hjá Minjanefnd eða forvera hennar að viðkomandi hús yrði...

Sigmundur Davíð bullar eins og venjulega! Ríkið vildi rífa húsið!

Sigmundur Davíð gerir eins og venjulega! Hann kynnir sér ekki málin. Málið er að Borginn hefur átti í stappi þar sem Ríkið (Sigmundur Davíð) hefur viljað rífa húsið og staðið farst á því. Af facebooksíðu Dags B Eggertssonar: Þarna h efði verið...

Mér leiðist svona léttvæg rök eins og Vilhjálmur notar!

Maðurinn ferlega barnalegur í sinni röksemdarfærslu. Hvað á hann t.d. við með IKEA? Nú ætti hann sem lögreglumaður fyrrverandi að vita að fólk má ekki fara með áfengi út af veitingastöðum. Og börn mega hvorki selja né kaupa áfengi. En held að í mörgum...

Hvað kemur Sigmundi Davíð þetta við?

Nú býr Sigmundur Davíð í Garðabæ og er með lögheimili fyrir austan á eyðibýli þar í Fljótsdalshéraði. Svo hvað kemur honum þetta við? Hef ekki heyrt að hann væri spurður út þá fyrirtætlan Kópavogs að selja félagsheimilið þar og flytja bæjarskrifstofur í...

Er ekki ljóst að innan allra trúarbragða leynist illska og skepnuskapur og hefur gert um aldir

Svona í anda þeirra sem tala um múslima og að við eigum að loka landamærum fyrir þeim "skríl" þá væri kannski rétta að spyrja: Eigum við ekki að banna hér Kaþólsku fólki að búa eða flytja hingað? Þau aðhyllast trúarbrögð sem hafa orðið vís að stöðugum...

Gjörsamlega vanhæf Fjölmiðlanefnd!

Hef ekki skoðun á hvort að Mörður er hæfur eða vanhæfur til setu í Útvarpsráði. En þar sem hann hefur jú setið þar síðan í janúar. Það var vitað þá að hann væri varaþingmaður og hann sat á þingi í viku í sumar. Það er náttúrulega furðulegt að þetta skuli...

Dálítið fyndið hvernig meirihlutin vinnur í fjárlaganefnd.

Skv. fangelsismálastjóra þarf sennilega að loka Kvíabryggju þar sem að það vantar um 80 milljónir til að reksturinn gangi upp óbreyttur. En í kvöld var samþykkt að eyða um 75 milljónum í að undirbúa hönnun á húsi fyrir Alþingi byggt á 100 ára teikningum...

Einavinareddingar í gangi ?

Það kom fram í breytingatillögum meirihluta fjárlaganefndar við frumvarp til fjárlaga að selja eigi Þjóðaskjalasafnið. Og flytja það í nýtt húsnæði sem verði keypt eða leigt. Nú í fréttum í kvöld þá kom fram að þjóðskjalavörður hefur ekkert heyrt um...

Ættum við að heimta að kaþólskum kirkjum hér verði lokað

Í Mið og Suður Ameríkur er Kaþólksa ríkjandi trúarbrögð! Og þar er komið fram við konur eins og ég veit ekki hvað. Hér er saga frá Amesty Árið 2008 var Teodora del Carmen Vásquez dæmd í 30 ára fangelsi fyrir morð að yfirlögðu ráði eftir að hafa fætt...

Kristnir hryðjuverkamenn að verki?

Þarna eru eflaust öfgatrúarmenn Kristnir að verki og ekki í fyrsta skipti sem þeir ráðast að fólki og húsnæði þar sem boðið er upp á fóstureyðingar. Ef þetta hefðu verið múslimar þá hefði þetta samstundis verið kallað hryðjuverk. En af því að þetta er...

Er ekki rétt að Ísland gangi á undan í góðu fordæmi og slíti stjórnmálasambandi við þessa þjóð hið fyrsta!

Það gengur ekki að þjóðir heims þori ekkert að ýta við þessu fornaldar fjölskyldueinveldi. Þegar farið er að dæma fólk til dauða fyrir trú eða trúleysi, berja fólk til dauða auk kvennakúgunar þá á olía og fjármálahagsmunir ekki að koma í veg fyrir að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband