Leita í fréttum mbl.is

Smá fróðleikur um hælisleitendur kafli 2

Fólk er að sífellt að æsa sig yfir að hælisleitendur fái húsnæði og um 10 þúsud á viku til framfærslu á meðan mál þeirra er klárað. Svo ruglar fólk kosnaði sem ríkið heur á hverjum einstakling sem er jú rúmlega 200 þúsund á mánuði en þar inní er leiga á húsnæði og þjónusta sem þeim er skaffað.

  • Hælisleitendur fá ekki Íslenska kennitölu og mega því ekki vinna hér. Þeir mega ekki gera neina samninga og því gætu þeir ekki skaffað sér húsnæði. Þeir mega ekki gista hjá vinum því þá detta þeir út úr hælisumsóknarferlinu.
  • Það er ótrúlegt hvernig þeir sem ala á hatri gegn þeim afbaka staðreyndir.
  • Svíar eru löngu búnir að viðurkenna að hælisleitendur hjá þeim er orðinn meiri en þeir ráða við með góðu móti og eru farnir að gera eins og við að reyna að hraða afgreiðslu málana.
  • Þegar talað um Arnarholt, Bifröst, hótel og fleiri staði þá láta sumir eins og þar búi fólk við alsnægtir, En þetta er aðeins húsnæði sem einkaaðilar leigja útlendingastofnun. Þarna hafa viðkomandi herbergi einn eða fleiri í hverju og t.d. á  flestum þessu stöðum líður fólki örugglega ekki vel lokuð að mestu af langt út úr. Svona svipað og fangelsi.
  • En þetta fólk er samt tilbúið að láta bjóða sér þetta því þaðan sem þau koma bíður þeirra fleatra ekkert nema hörmungar.
  • Þó þau séu send héðan þá halda þau áfram að leita sér að varanlegri búsetu einhverstaðar fyrir sig og fjölskyldu sína sem hýrist hugsanlega í flóttamannabúðum eða á stríðssvæði.
  • Auðvita væri það tilraunarinnar virði að t.d. þjóðir heims styrktu Jórdaníu til að halda utan um fleiri flóttamannabúiðr en ríki heims þau gera það bara ekki. Það er þannig t.d. í Jórdaníu að þar eru flóttamenn um það bil 35% af fólkfjöldanum í dag. Og meira en helmingur ekki skráður þar.
  • Það er flott hjá anstæðingum flóttamann að tala um að aðstoða fólkið nær sínum heimalöndum en gera svo ekkert í því
  • Fólk af erlendu bergi brotið má ekki t.d. hjálpa ættingjum með því að skaffa þeim vinnu og húsnæði hér á landi því þau fá ekki kennitölu ef farið er sú leið. Heyrði einmitt af Sýrlendingi sem hér hefur búíð í áratugi rekur fyrirtæki og vildi svo gjarnan bjóða bróðour sínum hingað og hann mundi sjá um hann varðandi húsnæði og vinnu. En það má ekki.  Bróðir hans fær ekki landvistarleyfi.
  • Þess vegna er ómaklegt þegar flólk er að skjóta á Elsku Egló og sjálfboðaliðana sem þar buðu sig fram. Þeir geta aðstoðað Kvótaflóttamenn og gera það. En hælisleitendur má ekki einu sinni heimsækja nema einstaka aðilar frá Rauðakrossinum.

Smá fróðleikur um hælisleitendur og flóttamenn

Var á fyrirlestri í dag í vinnunni. Þar  mættu fulltrúar frá Rauðakrossinum sem vinna með flóttafólki og hælisleitendum.  Það var ýmislegt sem þar kom fram sem fólk almennt gerir sér ekki grein fyrir.

  • Síðan  á sjötta áratug síðustu aldar þegar við skrifuðum undir samninga um mál flóttamanna fyrst þá hafa ekki nema um 400 hælisleitendur fengið stöðu flóttamanna og dvalarleyfi hér.
  • Hælisleitendur er yfirleitt karlmenn vegna þess að þeir eru sendir af fjölskyldum að reyna að finna einhvern dvalarstað fyrir fjölskylduna því að konur og börnum er ekki treyst í þetta ferðalag t.d. bátsferðir yfir höfin.
  • Flestir hælisleitendur koma til að að fara heim um leið og stríðsástandi og hörmungum líkur í heimalandinu. Því eins og okkar var bent á að þá velur fólk sem er alið upp við aðra menningu, annað lofslag og fleira ekki að búa í landi þar sem menning og lífshættir eru allt aðrir. Þau eru leita í burtu út af neyð.
  • Múslimakonur með höfuðslæður eða hvað þetta heiti bera þær vegna menningar. Og þó þær flytji til annarra landa þá vilja þær síður taka þær niður. Þær líkja því við ef að einhver mundi heimta að konur gengju um í stuttu pilsi.  Slæðurnar eru hluti af menningu þeirra minna út af trú.
  • Kvótaflóttamenn hér eru frá upphafi eitthvað um 400 líka en mikill hluti þeirra flytur aftur burtu ef að aðstæður breytast í heimalandi þeirra eða annað.
  • Lang flestir hælisleitendur eru sendir til baka þaðan sem þeir komu. Og afgreiðslu mála þeirra eru flestar kláraðar á innan við 90 dögum.


Sá að Íslenska Þjóðfylkingin ætlar að aflétta viðskiptabanni á Rússa. Sem er merkilegt.

Aðallega er það merkilegt því við höfum ekkert sett neitt viðskiptabann á Rússa. Heldur voru það þeir sem settu viðskiptabann á okkur til að refsa okkur fyrir að styðja vopnasölu bann á þá vegna átaka í Úkraníu.

Hvað eiga menn við þegar þeir segja á útlendingar aðlagist ekki okkar menningu?

Maður heyrir þetta í umræðunni víða. En hvað eiga menn við? Sumir tala um að fólkið tali ekki Íslensku. En ég man þá tíð þegar ég var lítill fyrir mörgum áratugum að þá voru hér útlendingar sem höfðu komið í kjölfar stríðsins og þeir töluðu mjög óskýra...

Skv. fréttum af innanbúðamálum Framsóknar þá eru fullt af mönnum að ljúga.

Fólk vísar út og suður þegar það lýsir sama fundi sem fólk var á. Kona sem var í símasambandi veit þetta betur en Ásmundur sem var á fundinum og einhverjir í kring um hann ljúga líka skv. þessari konu, Sigmundi og fleirum. Skv. þeim voru allir í...

Menn hafa verið að spyrja af hverju ég hef verið að skjóta á Þjóðfylkinguna og þeirra líka.

Aðallega af því að þeir hafa rangt við í baráttu sinni fyrir útlendingalausu Íslandi. Þeir láta eins og ríkisstjórnir annarra landa séu haldnar einhverju masókokisma og viðurkenni ekki opinberlega gríðarlegan vanda af innflytjendum sem séu að nauðga og...

Málflutingur Þjóðfylkingarinnar stenst ekki skoðun.

Heill flokkur byggður á misskilningi eða hreinlega lygum? Sjá hér Bosse Hedberg sendiherra Svíþjóðar á Íslandi segir ekkert hæft í fullyrðingum Helga Helgason formanns Íslensku þjóðfylkingarinnar um að sænska lögreglan veigri sér að fara inn í hverfi...

Áríðandi upplýsingar til hlustenda og sérstaklega innhringiliðsins þar

Nú aftur og aftur hef ég heyrt í símatímum Útavarps Sögu talað eitthvað á þessa leið: "Af hverju tekur þetta "Góða fólkið" þetta fólk ekki inn til sín" Nú það skrifaði undir Elsku Eygló" Það er nokkur atrið sem fólk þarna ruglar saman. Þegar fólk var að...

Jæja ætli þessi hafi verið í Þjóðfylkingunni?

Nei kannski ekki! En hefði ekki komið mér á óvart. Í frétt­inni kem­ur fram að fórn­ar­lambið sem nafn­greind­ur er í þýsk­um miðlum, Al­ex­and­er B., hafi setið í ró­leg­heit­un­um í lest­inni þegar sessu­naut­ur hans hafi upp úr þurru verið kallaður...

Var að lesa facebooksíður Íslensku Þjóðafylkingarinnar og fleiri

Og komst að því að hér á Íslandi eru furðulegir hópar fólks í gangi. M.a. á opinni facebook síður Þjóðafylkingarinnar og svo einhverjum vef sem heitir stjórnmálaumræða. Þarna m.a. er að hægt að lesa lýsingar af hörmungum Svía þar sem múslimar eiga að...

Sýnist skv. þessu að Vigdís sá að átta sig á að hún var aldrei í Framsokn :)

Það kæmi manni ekki á óvart að henni hafi verið haldið fyrir utan svona viðkvæmt mál: „Þegar hún kem­ur fram hjá Sig­urði Inga á þing­flokks­fund­in­um á föstu­dag­inn, þessi lýs­ing sem þú ert að lýsa frá því í apríl 2016, þá kom það mér...

Furðuleg atburðaðarrás í Framsókn.

Þetta er náttúrulega orðið efni í farsa. Öruggt að þeir sem gera áramótaskaupið geta nýtt sér þetta efni. Ef við bara horfum á síðustu daga. Það er haldinn auka þingflokksfundur. Hann stendur lengi. Út af honum koma allir svo sáttir og lýsa stuðningi við...

Hér getið þið séð afleiðingar stefnu framsóknar og sjálfstæðismanna á matarkostnað ykkar.

Þegar að framsókn og sjálfstæðismenn keppast við að segja ykkur að lífsskilyrði ykkar séu sambærileg við önnur norðurlönd eru þeir í vesta falli að færa í stíllinn eða hreinlega að ljúga og treysta á að það er ekki erfitt þegar hér búa svo margir...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband