Leita í fréttum mbl.is

"Íslendingaheilkennið!"

Alveg frábær greining á Íslandi og Íslendingum í Fréttablaðinu i dag.  Sem ég bara set hér inn í heild sinni. Hún er eftir Árni Richard Árnason stærðfræðing sem ég hef ekki heyrt um fyrr, en hann tekur okkur fyrir og finnur út að við erum haldin sérstöku heilkenni sem finnst sennilega hvergi annarstaðar.

Kaupmáttur meðaltímakaups á Íslandi er lægri en á Spáni, þrátt fyrir að Íslendingar séu ríkir af auðlindum og fái fleiri ferðamenn miðað við höfðatölu. Því veldur óhagkvæmni einangraðs íslensks hagkerfis þar sem störf eru varin og mynduð með íhlutun stjórnmálamanna.
Íslenskt hagkerfi einkennist af stjórnlyndi og ríkissósíalisma, og almenningur virðist halda að hlutverk stjórnmálamanna sé að skapa störf og hagvöxt. Hér eru einkenni að verki sem ég kalla Íslendingaheilkennið, en mætti líka nefna Þetta-reddast-heilkennið eða frekar Reddið-þessu-heilkennið. Ég ætla að reyna að gera þessu heilkenni skil með þessum pistli.

Einkennin
Sá sem er haldinn Íslendingaheilkenninu er með eindæmum skammsýnn. Hann aðhyllist ekki langtímalausnir, heldur töfralausnir. Hann hugsar oft stórt, en ekki mjög djúpt, og mest í eigin þágu. Hann virðist frjálslyndur gagnvart því hvernig annað fólk lifir sínu lífi, sem er stundum mistúlkað sem umburðarlyndi eða virðing, en í rauninni er honum sama um annað fólk á meðan það skaðar hann ekki. Hann óttast útlendinga sem geta svipt hann lífsviðurværi sínu og jafnvel stolið auðlindum þjóðar hans. Hann vill auka ríkidæmi sitt hratt, til dæmis með því að láta virkja fallvötn og byggja álver sem skapar gervihagvöxt.

Fylgifiskur gervihagvaxtar er þó að hann gengur til baka, með tilheyrandi samdrætti, en það stöðvar ekki þann sem er haldinn Íslendingaheilkenninu því hann hugsar ekki svo langt. Hann þolir illa viðvaranir eða svartsýnisböl, sérstaklega ef slíkt kemur frá útlendingum. Hann lætur sér ekki segjast, enda væri það „aðför að sjálfstæðinu“ að fylgja ráðgjöf útlendinga. „Allt sem er íslenskt er gott, sérstaklega hin blessaða króna sem kemur hagkerfinu til bjargar með sveigjanleika sínum.“ Þó er krónan í hlekkjum og blóðsýgur íslenskt hagkerfi, þar sem blóðið er í formi vaxtagreiðslna til erlendra lánardrottna og kröfuhafa.

En sá sem er haldinn Íslendingaheilkenninu er eindæma þrjóskur þegar kemur að því sem íslenskt er, enda er hann íslenskari en páfinn. Ef lausnir bjóðast sem fela í sér langtímasamstarf við útlendinga þá er þeim hafnað á þeim forsendum að lausnirnar séu ekki töfralausnir, nema með þeirri undantekningu að um styrki sé að ræða. „Þetta er líka allt saman útlendingum að kenna. Íslendingar eru svo sjálfstæð þjóð. Þetta reddast.“

Áhrif á samfélagið
Íslendinga sem eru veikir af Íslendingaheilkenninu er að finna í öllum starfsstéttum á Íslandi, og þeir gegnsýra allt íslenskt samfélag, svo að tala má um faraldur í þessu samhengi. Birtingarmynd þessa er einkum skýrust í fjármálaheiminum, fjölmiðlum og stjórnmálum.

Um það fyrstnefnda þarf ég ekki að fara mörgum orðum, enda þekkja allir þann skaða sem hefur hlotist af Íslendingaheilkenninu á þeim vettvangi, þó að fæstir kunni góð skil á heilkenninu sjálfu. Íslenskir fjölmiðlar eru að mestu leyti slúðurfréttamiðlar með það meginmarkmið að endursegja hvað fólk sagði í stað þess að greina og skýra hvað gerðist eða mun gerast.

Eitt vinsælasta viðfangsefni fjölmiðlastéttarinnar er fjölmiðlastéttin sjálf. Hvar annars staðar í heiminum birtast reglulega fréttatilkynningar um óléttu fjölmiðlakvenna? Hvar annars staðar í heiminum getur fólk orðið „frægt“ fyrir ekki merkilegri afrek en að vera fyllibyttur eða dópistar?

Lágkúrulegar slúðurfréttir eru vinsælasta efni veffjölmiðlanna og framboðið mætir eftirspurn.
Íslendingaheilkennið og grunnhyggnin ráða ríkjum. Ástandið minnir óþægilega mikið á gamlar zombí-kvikmyndir, með þeirri undantekningu að zombí-áhrifin eru aðeins innvortis, smitast sennilega ekki við bit, og gætu verið meðfædd.

Kjósendur vilja skammtímalausnir
Alþingi er helsta vígi Íslendingaheilkennisins. Þar ræða hugsjónalausir stjórnmálamenn skammtímalausnir sem eru best fallnar til þess að kaupa atkvæði auðkeyptra kjósenda. Sem betur fer fyrir stjórnmálamenn þá muna kjósendur ekki langt aftur, og hugsa ekki langt fram í tímann, enda flestir haldnir Íslendingaheilkenninu. En stjórnmálamönnum er refsað fljótt ef þeir finna ekki skammtímalausnir hið fyrsta sem gefa fólki aura í vasann, og því eiga stjórnmálamenn með framtíðarsýn ekki upp á pallborðið hjá kjósendum.

Til allrar hamingju fyrir ráðandi stjórnmálamenn þá hafa þeir þjálfað hæfni sína í að finna fjármuni og þeir geta jafnvel tekið þá af framtíðarskattgreiðslum, jafnvel þó að óvíst sé að þær muni nokkurn tímann eiga sér stað. Kjósendur hafa engar áhyggjur af því, enda er það þeim ofviða að hugsa svo langt fram í tímann. „Þetta reddast.“

Að svo komnu er Íslendingaheilkennið einangrað við Ísland sökum legu landsins. Ef þú býrð utan Íslands, þá hef ég þetta að segja: Don‘t panic.

( tekið af visir.is)


Rétt að benda á frétt RUV um þetta mál. Og smá skúbb!

Undirritaður hefur fyrir því heimildir að auk þessa sem segir hér fyrir neðan í frétt RUV þá hafi fengist samþykkt að skipuð verði þverpólitísk nefnd um tillögur að úthlutun afla í nýjum tegundum og gjaldtöku fyrir það á næsta ári.

Svo bendi ég sérstaklega á  það sem kemur um miðbik fréttarinnar þ.e. að hætt er við komugjöld á sjúkrahús, aukið fé í rannsóknarsjóði. Þannig að það er rétt hjá Árna að þau í stjórnarandstöðunni hafa komið viti að einhverju marki fyrir stákana í stjórninni. 

Samkomulag hefur náðst milli stjórnar og stjórnarandstöðu á Alþingi um þinglok. Eins og fram kom í tíufréttum í kvöld þá sagði forsætisráðherra það gleðiefni að tekist hafi að færa fjármagn til svo mögulegt verði að greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda.

Samkvæmt heimildum fréttastofu mun líka hafa náðst samkomulag um að hætta við komugjöld við innlögn á sjúkrahús og þá mun hafa náðst samkomulag um að bæta fjármagni við rannsóknarsjóði. Formenn flokkanna og þingflokksformenn hafa fundað í þinghúsinu í kvöld til að semja um afgreiðslu mála þótt enn sé óljóst hvenær þingstörfum ljúki fyrir jól. Hins vegar bendir allt til þess að atkvæðagreiðsla að lokinni annarri umræðu um fjárlög fari fram síðdegis á morgun.

Góður árangur af góðri vinnu minnihluta á Alþingi og í raun merki um að flokkar geti samið um mál á Alþingi sem eru okkur almenning til framdráttar. 


mbl.is Samþykkt að greiða desemberuppbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðun mín á nokkrum atriðum fjárlagafrumvarpsins 2014

Nokkuð ljóst að ég er ekki ánægður með að auðlegðarskattur var tekinn af. Veiðigjald lækkað, vsk. á gistinætur lækkaður. En í stað þess eru sett þjónustugjöld á sjúklinga, aukin gjöld á þá sem skrá sig í háskóla og skorið niður í rannsóknum og nýsköpun....

Ragnheiður Elín ætti nú að kynna sér málin almennilega. Þetta segir Hörður hjá Landsvirkjun

Úr frétt á ruv.is Landsvirkjun getur ekki annast orkuöflun fyrir álverið í Helguvík nema að litlu leyti að sögn forstjórans. Álverð þyrfti að hækka um 30 til 40 prósent svo að hægt yrði að ljúka samningum. Og svo bætir hann við. Takið sérstaklega eftir...

Það er bara þannig að Sigmundi tekst að snúa öll sem aðrir segja á haus.

Jam nú er að ESB sem er að slíta viðræðum! Bíddu hvað átti Sigmundur þá við þegar hann sagði við þá í sumar þegar þeir voru að láta vit að viðræður væri komnar í bið. Þá segir Sigmundur sjálfur að hann hafi sagt þeim Sigmundur Davíð sagðist ekki hafa...

Fjárlög verða ekki afgreidd nema að atvinnulausir fái desemberuppbót

Held að því fyrr sem að Framsókn áttar sig á að fjárlög komast ekkert áfram nema að fundnir verði peningar til að fjármagna desemberuppbót, því fyrr komist önnur mál eitthvað áfram og með því að bjóða stjórnarandstöðu upp á að sleppa þessu nýju...

Komugjöld á sjúkrahús!

Árni Þór í vinstri grænum sagði í dag að skv. áætlunum heilbrigðisráðuneytis er áætlað að 297 milljónir skili sér í komugjöld á sjúkrahús. Sem skv. fjölda innlagna gæti þýtt um 11 þúsund að meðaltali. En þar sem öryrkjar, aldraðir og börn fá afslátt þá...

Engin desemberuppbót fyrir atvinnulausa!

En samt ýmsir fjárlagaliðir árið 2013 ekki fullnýttir en á að nýta þá í vinnu við að stytta framhaldsskólan á næsta ári. M.a. eru þarna einhverjir peningar sem áttu að nýtast í nám er vinnandi vegur fyrir atvinnulausa. En úps Illuga langar til að nota þá...

Svona vorkenni meirihlutanaum og sérstaklega ríkisstjórninni?

Það er oft að menn setja sér háleit markmið en vita ekkert hvernig þeir eiga að ná því. Þannig er það nú held ég með fjárlög miðað við þær miklu breytingar sem menn eru nú búnir að vera að gera á þeim síðustu vikur og daga. Þrátt fyrir meiri tíma en...

5% lækkun á öll ráðuneyti?

Er það rétt sem ég heyrði í dag að hagræðingarkrafa á öll ráðuneyti yrði 5%? Nú er ég hissa! Er verið að tala um að það sé á heildarútgjöld í málaflokka ráðuneyta? Ef svo er sé ég ekki alveg hverning að það gangi upp? Eins held ég ef að bara er verið að...

Hugmyndir að fjármögnun fyrir ríkið svo ekki þurfi að lækka barna- og vaxtabætur

Nú er vitað að barna- og vaxtabætur eru tekjutengdar þannig að aðeins fólk með lágar og miðlungstekjur hafa fenigð eitthvað af þeim. Þannig held ég að þeir sem hafa fengið fullar vaxtabætur séu að stærstum hluta einstæðir foreldrar og þá eru það aðallega...

Hvað af þessum skuldum er gjaldeyrisvarasjóður sem við verðum að hafa vegna krónunar?

108,5% af áætlaðri landsframleiðslu ársins í skuludum ríkissjóðs en menn mega samt ekki horfa fram hjá því að vegna gjaldeyrisvarasjóða og fleira eigum við peningalegar eignir upp á um helming þessar skulda eða Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e....

Er þessi ríkisstjórn ekki í lagi?

Í fréttum á ruv.is má sjá hvernig að ríkisstjórnin ætlar að standa með skuldugustu heimilum en þar er haft eftir Bjarna Ben: „Það hefur í fjárlagafrumvarpinu ekki verið gengið út frá neinum skerðingum á vaxta og barnabótum, en hins vegar er í...

Hugleiðing eftir að hafa hlustað á "Á Sprengisandi" Og svo þáttinn hans Gísla Marteins

Finnst dálítið merkilegt að hlusta á núverandi stjórnarmeirihluta ræða tillögur starfshópa sem þegar orðna hluti og afleiðingar eins niðurnjörfaðar. Ég set fyrirvara um eftirfarandi: - Afnmám verðtryggingar með krónu áfram held ég að eigi eftir að auka...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband