Leita í fréttum mbl.is

Skrítið það heyrðist ekkert í þessu fólki þegar skorið var niður á Landspítala

Ég hef í gegnum árin lítið heyrt í fólki þarna fyrir Norðan þega skorið hefur verið niður á Landspítala. Nú er t.d. ljóst að það var skorið niður á síðustu 2 árum um 6 milljarða á Landspítalanum. Sem þýðir jú hvað um 6 eða 700 störf. Og á þessu ári verður skorið niður þar um hálfan milljarð í viðbót. Sem þýðir þá hundrað störf í viðbót. Þetta eru allt fólk sem þarf þá að leita sér að vinnu eins og annarstaðar. Þá heyrði maður ekki neitt utan að landi. Bæði læknar og hjúkrunarfræðingar sem hafa ekki hlaupið í störf annarstaðar hér á SV horninu og því m.a. leitað til útlanda. En mér skilst að sjúklingum hafi ekki fækkað heldur hafi vinnuálag aukist þar gríðarlega. Ekki heyrt neitt frá landsbyggðinni varðandi það.
mbl.is „Fólk fór að gráta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein hugmynd sem vaknaði við að hlusta á Bjarna Ben

Nú skv. honum þá er lausn á öllu að auka atvinnutækifæri. Hann hefur haldið því fram að að það sé gert með því að lækka skatta, vexti og fleira. En óvart þá stenst það ekki að ríkð fái af þessu meiri tekjur það sem þær hafa tilhneigingu til að skila sér mun seinna til ríkisins sem og að fjárfestar eru nú ekki tilbúnir með fé til að fjárfesta hér á meðan að vextir á fé til Íslands er svo hátt.

Því datt mér í hug að ríkð í gegnum bankana myndi yfirtaka N1 og laga til í rekstri þar og selja með hagnaði eftir kannski 2 ár. N1 skilst mér eða eigendur skulda tugi eða hundruð milljarða og ætti því að fást ódýrt ef að bankarnir ganga að því. Síðan myndi ríkði hirða út allan hagnað af olíusölu fyrirtækisins sem eru jú um 30 kr. á líter.


mbl.is „Algjör falleinkunn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð ráð til bankanna! - og skuldara í vanda

Langar að benda fólki á grein sem birtist víst í Mogganum í dag. Þar skrifar Gunnlaugur Jónsson framkvæmdastjóra Straumborgar og fyrrum fjármálaráðgjafi. Gunnlaugur tekur sig til og sendir bankamönnum sjö einfaldar tillögur til að gera lífið bærilegra...

Kjaftasaga?

Var að lesa eftirfarandi á kjaftasögusvæði Eyjunnar " Orðið á götunni " Orðið á götunni er að hugmyndir um að fá Framsóknarflokkinn inn í ríkisstjórn hafi fengið vængi nú síðustu daga. Hugmyndin er reyndar ekki sprottin vegna mótmælanna síðustu daga,...

Næ þessu ekki með neyðarstjórn!

Nú er ljóst að utanþingsstjórn eða Neyðarstjórn gerir ekkert nema að Alþingi samþykki það. Það hefur engin leyfi til að stjórna útgjöldum ríkisins eða breyta lögum nema Alþingi. Síðasta utanþingstjórn var hér rétt fyrir lýðveldisstofnun og var mjög...

Nokkrar milljónir þar

Þessar skemdir kosta nokkrar milljónir sem þarf þá að skera útgjöld niður fyrir líka. Spurning hvað fólk finnst vinnast með því að skemma Alþingishúsið sjálft? Hvað fólk græddi á að skemma ráðherrabíla og bíla þingmanna? En þetta finnst fólk svo gaman....

Ég er hund óánægður með Samfylkinguna núna!

Ég var þess fullviss að nú væri Samfylking búin að setja niður áætlun um verkefnin framundan, kæmi með lausnir og talaði almennilega kjark í fólkið en því miður þá finnst mér flokkurinn og ríkisstjórnin alltaf skrefi of sein. Og það eru nokkur atriði sem...

Finnst að fyrst verk Alþingis á morgun eigi að vera

Finnst að fyrsta verk Alþingis á morgun eigi að vera: Samþykkja þingályktunartillögu þar sem vinnubrögð bankana eru hörmuð og ef þeir nú þegar komi ekki með raunhæfar umbætur fyrir verst settu viðskiptavini sína. Þá verði settur á þá skattur sem dugi...

Ég á von á jákvæðum fréttum í kvöld!

Held að það sé næsta víst að í kvöld þá færa ráðamenn okkur fréttir af aðgerðum í þágu heimila og fyrirtækja. Annað væri merki um sjálfseyðingarhvöt! Því hefur aldrei verið leynt að ég styð Samfylkingu. En ef Ríkisstjórnin hefur ekkert fram að færa í...

Það ætti kannski einhver að benda Lilju Mósesdóttur og fleirum á þessa staðreynd.

Lilja kemur í fjölmiðla að talar eins og það sé ekkert mál að koma hér aftur á "norrænu velferðarkerfi" Bara að kasta AGS út og draga minna úr niðurskurði og allt bara í þessu fína. Hún sem hagfræðingur ætti nú að átta sig á að ríkið er stórskuldugt. Eða...

Nokkur orð til Höskuldar!!!!!

Nú var mér sagt frá því áðan að þú hefðir verið í viðtali við einhverja útvarpsstöðina áðan. Og þar hefðir þú og Ragnheiður Ríkharðsdóttir verið að ræða um breytt vinnubrögð á Alþingi. Og því ljósi verða þessi ummæli sem hér eru höfð eftir þér hjákátleg....

Þetta voru nú allt viðbúnir skatta nema ég set spurningu við:

Sérstakt vörugjald verður tekið upp á áfengi og tóbak í Fríhafnarversluninni árið 2011 Get ekki séð að þetta skili neinu nema að ákveðin hefð er þar með afnum n og fólk hættir að kaupa sér áfengi og tóbak í Fríhöfninni. Nema að þetta verði lág...

Bara svona að spyrja?

Manni sýndist að fólk væri að mótamæla helst lágum bótum og eins að vilja lækkun lána. Og svona ýmsu í leiðinni: Ég veit að fólk hefur það skítt á bótum og þeir sem skulda mikið líka. En ég spyr: Ef að bætur hækka, hver á að borga þá hækkun? Ef að...

Held að menn geti nú slappað svolítið af!

Jú vissulega er þörf á breytingum hér á flestum hliðum stjórnmála og stjórnsýslu. En að því sögðu þá er nú óvart málið þannig að í flestum ríkjum þar sem að kenna sig við lýðræði og frjálsar kosningar leita stjórnunarhættir í sama farið. Það er jú hægt...

Gaman þegar maður finnur einhvern sem segir allt sem maður ætlaði að segja

Var búinn að skrifa langloku hér inn um svartagalls rausið í bloggurim og fleirum hér. Það er alveg sama þó lokks komi góðar frétti þá hafa menn allt á hornum sér. Menn tala um biðraðir við hjálparstofnanir. Þær hafa vissulega lengst en af hverju sagði...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband