Leita í fréttum mbl.is

Uppýsingar- Hvað er það nú Geir?

Held að miðað við alla fjölmiðlafulltrúa og upplýsingafulltrúa sem stjórnvöld hafa aðgang að sé það nálægt því heimsmet hversu litlar upplýsingar koma frá þessari blessaðri stjórn.

Ef að um náttúruhamfarir væri að ræða væri daglega jafnvel önnur rás RUV undirlögð undir fréttir og upplýsingar til fólks um stöðu mála og hvað fólk ætti til bragðs að taka. Eins væri þar lagt á ráðin um framtíðarhorfur og þróun mála.

En þessar hamfarir eru ekki náttúruhamfarir heldur mannanna verk og enn óútreiknanlegar. Og því enn meiri ástæða til að uppfræða fólk. Því annars skapast ástand eins og er orðið hér. Þar sem að kjaftasögur grassera um allt. Skuldir okkar sveiflast um hundruð eða þúsundir milljarða eftir því hver talar, menn eru að fá milljarða að gjöf frá bönkunum sem síðar er ekki rétt og svo snýst sagan aftur og aftur.

 

Hvernig í andskotanum getur ríkisstjórnin klúðrað upplýsingagjöf svona rosalega. Og nú þýðir ekki að segja eins og Þorgerður Katrín að það séu bara liðnir 3 mánuðir frá hruninu. Upplýngar og upplýsingagjöf  hefði þurft að vera frá byrjun eitt mikilvægasta málið. 


mbl.is Mikilvægt að stjórnin fái vinnufrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að þetta mál er leyst en.....!

Ég hef sem betur fer ekki lent í fjárnámi og þekki þetta ekki mikið en eru þetta ekki aðgerðir sem farið er í eftir að allt annað er reynt? Og eru þetta því ekki vanskil og skuldir frá þvi löngu fyrir bankahrunið? Geta þetta ekki verið skuldir eins og neysluskuldir, fellihýsi, hjólhýsi, snjósleðar, hjólhýsi og þessháttar? Er ekki í lagi að gera fjárnám í þessum hlutum.?Þarf ekki að aðgreina þessar skuldir þegar verið er að gefa afslætti og undanþágur. Geta þetta ekki verið skaðabætur og sektir og fleira þessháttar. Getur þetta orðið til þess að aðrir einstaklingar og fyrirtæki komist í vandræði.

Þýðir fjárnám ekki að menn mega ekki selja viðkomandi eigir. Eða er verið að taka þær?


mbl.is Endurskoðar fjárnámsaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um þetta er bara eitt að segja!

Það var kominn tími til! Og hafi Samfylking skömm fyrir að hafa ekki rætt þetta opinberlega fyrr!

Alþingismenn farið nú að taka ykkur saman í andlitinu!

Það er ekki nóg að kvarta yfir valdaleysi Alþingis svona á hátíðarstundum og þá helst þegar það er í fríi. Það þýðir ekki að horfa upp á framkvæmdarleysi ríkisstjórnar til lengdar og þurfa að svara fyrir það. Þið voruð kosin af okkur ekki ríkisstjórn og...

Sigmundur strax búinn að gefa færi á að skilja Framsókn eftir!

Með ummælum sínum í dag um að ESB sé ekki brýnasta málið og að ESB sé ekki að sækjast eftir að fá til liðs við sig gjaldþrota ríki, - gefur hann Samfylkingu og fleirum færi á að fara án framsóknar í aðildarviðræður og skilja Framsókn eftir fram að næstu...

Jæja er þetta framtíðin?

Ég verð nú að hrósa fólki fyrir að nenna þessu. Maður skilur fólk frekar sem er að mótmæla hvernig stjórnvöld og bankarnir brugðust. En þetta finnst mér vera komið niður í smámuni. Verður kannski næst mótmælt að einhver starfsmaður gleymir að setja...

Villta Westrið og/eða galdrabrennur

Ég hef verið að velta fyrir mér ástandinu hér á Skerinu okkar. Nú á síðustu dögum hafa birst 2 fréttir um þennan fursta frá Quatar. Fréttirnar eru mjög misvísandi og nú kemur yfirlýsing frá Sigurði Einarssyni sem segir eina söguna af þessu máli. En hér...

Hverju á maður að trúa?

Var ekki í síðustu viku fullyrt að peningar þessa manns hefðu verið greiddir og farið beint inn á reikninga í Cayman eyjum. Nú á hann ekkert að hafa borgað heldur hafi þetta verið eintómt plott til að hækka hlutabréf í Kaupþingi og hafi í raun valdið því...

Ég veit það ekki framsóknarmenn!

Formaður flokksins er ný útskrifaður úr Háskóla. Og ef Birkir verður varaformaður er hann kannski frægastur fyrir að hafa orðið aðstoðarmaður Páls Péturssonar 19 ára gamall og því verið í kerfinu meira og minna síðan þá. Stúdentspróf Fjölbrautaskóla...

Björn ætti kannski að skoða hvort að hann sé rétti maðurinn í dæma um hvað sé best fyrir okkur

Nú hafa Sjálfstæðismenn ráðið efnahags og peningamálum okkar um 17 ára skeið. Það hefur verið bent á það síðustu mánuði að stefna þeirra sem átti að leiða okkur til þess að verða alþjóðlegt stórveldir er kominn í ræsið. Og í raun um allan heim er þessi...

Var það þá markmið þeirra að drepa ákveðinn fjölda barna og kvenna?

Hefði ekki verið skynsamlegra að bjóða friðarviðræður? Þurfti að drepa á annað þúsund manna og særa 5000 og valda kannski 500 þúsund börnum óbætanlegum andlegum skaða til að hægt væri að semja svo um vopnahlé? Hvað ætli mörg börn í Palestínu hafi lært að...

Smá saga úr raunveruleikanum

Þessi frétt um bílafjármögunarfyrirtækin smellpassar við sögu sem ég þekki vel til. Um er að ræða mann sem fyrir einu og hálfu ári byrjaði í þeim bransa að ætla að fara að græða á bílaviðskiptum. Og tók að kaupa sér bíla og það dýra bíla af...

Borgartún dæmi um ruglið sem hér var í gangi.

Nú þegar að kreppan hefur skollið á eru merkin um brjálæðið sem hérna viðgengs víða. Borgartún með sínum háu byggingum og hálfbyggða turna. Glaðheimasvæðið í Kópavogi þar sem að fjárfestar og síðar Kópavogur keyptu hesthús til að komast yfir...

Þetta er nú ansi merkileg frétt!

Inntakið er semsagt að einhverjir spá því að vextir í ESB verð lækkaðir en þó geti verið að þeir lækki ekki neitt. Vantað bara að einhver segð að vextir hækkuðu. Þetta er svona ekki frétt.

Flott tillaga á framsóknarþing

Tillaga að markmiðum fyrir aðildarumsókn að ESB sem lögð verður fyrir landsfund Framsóknar er að mínu mati tillaga sem vert er að skoða. Þar segir í stuttu máli það sem við Íslendingar þurfum að leggja áherslu á í slíkum viðræðum Evrópusambandið Markmið:...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband