Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2006

Við trúum ykkur því miður ekki

Var að lesa um að Bandaríkin segjast nú vera búnir að finna órækar sannanir fyrir að Íranir séu að senda skæruliðum í Írak vopn.

Þeir tilgreina að þar á meðal hafi verið vopn sem rjúfi brynvörn skriðdreka og fleira slíkt. Það sem vekur mér furðu er afhverju skæruliðar hafa ekki beitt þessu þá. Mér skylst að þetta sé mun oftar einhver frumstæð vopn eða bíla hlaðnir sprengiefni sem þeir eru að nota í dag. Ég verð bara að segja að maður trúir ekki neinu sem USA segir eftir að þeir sögðu að þeir hefðu órækar sannanir fyrir gjöreyðingarvopnum Saddams. Og þetta er skrítið að koma með þetta á sama tíma og Írakar eru að leita til Írana um aðstoð.

Vísir, 30. nóv. 2006 17:57


Íranir styðja uppreisnarmenn í Írak

Bandarískir embættismenn segja að þeir hafi fundið órekjanlegar sannanir fyrir því að Íranir styðji uppreisnarmenn í Írak. Segjast þeir hafa fundið glæný vopn, merkt með ártalinu 2006, á látnum uppreisnarmönnum.

Þetta gefur til kynna að vopnin fari ekki í gegnum svarta markaðinn til uppreisnarmanna heldur fari þau beint úr verksmiðjunni til þeirra og að það getur ekki gerst nema írönsk stjórnvöld viti af því, segja bandarísku embættismennirnir.

Talið er að hersveitir Írana séu þeir sem komi vopnunum áfram en Bandaríkjamenn vilja meina að þeir þjálfi uppreisnarmennina líka og þá sérstaklega her Moktada al-Sadr, Mahdi herinn svokallaða. Bandarískir hernaðarsérfræðingar telja að alls séu um 40.000 hermenn í Mahdi hernum en til samanburðar verða um 66.000 hermenn í íraska hernum þegar hann er tilbúinn. Sem stendur eru aðeins 6.500 íraskir hermenn tilbúnir í bardaga án aðstoðar.


Frábærara teikningar.

Nú þurfum við ekki að hafa áhyggjur ef að Sigmund hættir að teikna því að hann Halldór Baldursson sem teiknar fyrir blaðið er frábær. Kýktu á blggið hans. http://halldor2006.blog.is/blog/2006igrofumdrattum/

Fann þessa mynd þarna áðan

2_161deiluskipulagl
Smelltu á mynd til að stækka hana.

Er þessi Kjartan Gunnarsson með anga sína allstaðar?

Og finnst mönnum ekkert að því að versla bara við vini sína. 4 hektarar á 208 milljónir eru nú kannski ekki voðalegt. Kópavogur keypti 11 hektara af bröskurum og hestamannafélagi fyrir 3 milljarða. EN það er þetta að versla við vin sinn og framkvæmdastjóra flokksins er samt ekki talið annarstaðar en hér á landi í lagi.

Frétt af mbl.is

Segir hagsmuna Reykjavíkur hafa verið gætt með kaupum á lóðum í Norðlingaholti
Innlent | mbl.is | 30.11.2006 | 17:19
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, segir að hagsmuna Reykjavíkur hafi verið gætt í hvívetna þegar hann féllst á að Reykjavíkurborg myndi una úrskurði matsnefndar eignarnámsbóta um lóðir í Norðlingaholti, sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.

Kjartan var líka sá sem keypt húsið af Hannesi Hólmsteini þegar hann byrjaði í málaferlum út af ritstuldi.

Kjartan var lengi stjónarformaður Landsbankans og sat í stjórn áfram held ég þegar hann var seldur.

Maður heyrir varla af málum sem tengjast plotti í stjórnmálum án þess að nafn hans komi upp.

Kjartan Gunnarsson hefur auðsjáanlega nóg að gera eftir að hann hætti að framkvæmdastýra Sjálfstæðisflokknum


mbl.is Segir hagsmuna Reykjavíkur hafa verið gætt með kaupum á lóðum í Norðlingaholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju er aldrei hægt að undirbúa hluti hér á landi?

Það hefur verið vitað lengi að til stæði að stofnað yrði opinbert hlutafélag um flugumferðastjórn hér á landi. Nokkur ár hafa gefist til undirbúnings. En svo gleyma menn að athuga um lífeyrisréttindi. Svona atrið sem hefið átt að vera nokkuð augljóst að þurfti að ganga frá. Síðan er það spurning hversvegna er verið að hlutafélagsvæða þetta. Allt sem hefur verið hlutafélagavætt hingað til hefur verið selt. Gæti trúað það yrði FL grup eða Icelandair sem langar í þetta.

Ég hef oft sagt það: "Fólk er fífl"

Ég hef undanfarið heyrt fólk í frjálslindaflokknum hnakkrífast. Framkvæmdarstjóri og varaborgarfulltrúi hótar að ganga úr flokknum ef að sjónarmið lögmanns og fyrrum formanns Nýs afls komist til valda í flokknum. Fyrrum formaður segir að orð Jóns og Magnúsar Hafsteins sé rasistatal og Jón sé ekki löglegur í flokknum. Og samt sem áður þá eru um 11% fólks sem eru nú tilbúinn að kjósa flokkinn.

Frétt af mbl.is

  Fylgi Frjálslynda flokksins eykst
Innlent | mbl.is | 30.11.2006 | 19:32
Fylgi Frjálslynda flokksins mælist nú 11% samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups en var 4% í sambærilegri könnun um síðustu mánaðamót


mbl.is Fylgi Frjálslynda flokksins eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Telja óþarft að banna kynlíf með dýrum

Ég veit það ekki svei mér þá en eru Danir ekki flull frjálslegir á stundum. Ég hefði nú haldið að svona meðferð á dýrum væri ekki nokkrum dýraverndunarsamtökum að skapi.

Vísir, 30. nóv. 2006 10:56

Telja óþarft að banna kynlíf með dýrum

Dönsku dýraverndarsamtökin telja ekki ástæðu til þess að banna fólki að stunda kynlíf með dýrum, en vilja hinsvegar banna opinberar sýningar á slíku athæfi.

Dómsmálaráðherra Danmerkur leitaði álits samtakanna á því hvort ástæða væri til þess að grípa til aðgerða, eftir að danska blaðið Nyhedsavisen birti fréttir um dýravændi.

Í áliti samtakanna segir að meðan dýrin líði ekki fyrir að manneskjur stundi með þeim kynlíf, sé ástæðulaust að banna það.


Hef verið að kynna mér fyrirhugaða byggingarstaði í Kópavogi

Ég verð að segja að ég er ekki sáttur við að Kópavogstún komi til með að líta svona út. Ég held að Kópavogi hefði verið í lófa lagið að nýta þetta svæði fyrir lystigarð eins og Akureyri á sem og Reykjavík. Þessi byggð eins og hún gæti litið út verður eins og ég veit ekki hvað. Mér skilst jafnvel að húsinn verði ennþá stærri.

Kópavogstún

Þessi mynd sem ég fann á vefnum er reyndar eins og útsýnið á bílaplaninu hjá mér.

En ef ég þekki stjórnvöld í Kópavogi verður helst byggt þarna svona 20 hæða hús og síðan á að byggja stærðar byggð út við höfnina í Kópavogi. Því er nokkuð ljóst að umferðavandræði eiga eftir að hrjá Vesturbæ Kópavogs komandi ár. Því í Kópavogi er byggt fyrst og svo reynt að lappa upp á umferðarmálin þegar nálgast kosningar og fólk er orðið brjálað.


Oj bara!!!!!

Mér sem finnst gott að fá mér ís

Af ruv.is

ruv.is

Margt aðfinnsluvert við íssýni

Rúmlega sex af hverjum tíu stöðum sem seldu ís í sumar fengu athugasemdir frá matvælasviði Umhverfissviðs Reykjavíkur. Þegar sýni voru tekin úr ís á þessum stöðum kom í ljós að í flestum tilfellunum var heildargerlafjöldi of mikill og sömuleiðis fjöldi kólígerla.

Matvælasviðið tók 106 íssýni á 55 sölustöðum í Reykjavík síðastliðið sumar til að rannsaka örverufræðileg gæði íssins. Rúmlega fimmtungur sölustaðanna reyndist hafa allt sitt á hreinu í fyrstu umferð, 16% staðanna fengu sendar athugasemdir en rúmlega 60% þeirra sölustaða sem seldu ís voru með ófullnægjandi niðurstöður. Þeir sem fengu slakar niðurstöður fengu aðra heimsókn; þá voru 44% staðanna í lagi, fjórðungur fékk athugasemd og ísinn reyndist mengaður á rúmlega 30% sölustaðanna. Sala á ís var stöðvuð hjá þeim fyrirtækjum sem voru með ófullnægjandi niðurstöður í bæði skiptin. Þeim var hins vegar leyft að selja ís á ný þegar þau höfðu bætt sig.


Kannski að maður sé þá bara ekkert að hætta!!!!!

Frétt af mbl.is

  Reykingaráðgjafi deyr úr lungnakrabba
Veröld/Fólk | mbl.is | 29.11.2006 | 12:54
Mynd 301044 Allen Carr, sem hefur hjálpað milljónum reykingamanna að hætta er látinn úr lungnakrabbameini. Carr, sem var 72 ára er hann lést, hætti að reykja fyrir 23 árum

mbl.is Reykingaráðgjafi deyr úr lungnakrabba
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað hvort er þetta fífl eða þetta er auglýsingamennska. Nema þetta sé bæð!!!!!!

Ég held að Bandaríkin og ákeðnir hópar innan þess sé orðinir gjörsamlega úrkynjaðir:

Frétt af mbl.is

  Snoop Dogg handtekinn með eiturlyf við myndver NBC
Veröld/Fólk | mbl.is | 29.11.2006 | 10:53
Snoop Doog hefur oftar en einu sinni komist í kast við lögin Rapparinn Snoop Dogg var handtekinn í gærkvöldi eftir að hann yfirgaf myndver NBC í Burbank nærri Los Angeles í Bandaríkjunum. Rapparinn var að koma úr upptökum á spjallþætti Jay Leno þegar hann var handtekinn, en í bíl hans fannst skammbyssa, kókaín og maríjúana. Þetta er í þriðja sinn sem tónlistarmaðurinn kunni, sem m.a. hefur heimsótt Ísland, kemst í kast við lögin á þremur mánuðum.


mbl.is Snoop Dogg handtekinn með eiturlyf við myndver NBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband