Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
Fimmtudagur, 24. apríl 2008
Þarna fauk samúð mín með þessum aðgerðum vörubílstjóra
Þessi vitleysa sem varð í gær þegar að unglingum var útveguð egg til að kasta í lögreglu. Vitni tala um að komið hafi verið með þau í kassavís á staðinn. Og unglingum síðan hleypt í þau. Sem og þetta atvik í dag eru að mínu mati komin út í það að snúast um skrílslæti og fólk sem tekur þátt í þeim er ekkert tengt þessum málum. Í gær voru nemar úr Iðnskólanum í Hafnarfirði sem voru að dimitera mætt þarna á staðinn ásamt fjölda unglinga úr framhaldsskólum til að komast í smá læti og í fjölmiðla.
Held að þessi maður í dag hafi fyrirgert þeirri samúð sem fólk hafði með þeim. Hann kom með einhverjum bílstjóranum og kom málið ekkert við.. Og heyra svo í fólki hvetja hann áfram er með öllu óþolandi.
Einnig eru svona skilaboð náttúrulega vitni um að það eru veikir menn að æsast upp við þetta. EN þetta eru skilaboð send Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra:
Þar sem ég finn ekki tolvupóstfangið þitt fannst mér ég verða að senda þér skilaboð hér. Ég vona af ollu minu hjarta að þú fáir banvænan og sársaukafullann sjúkdóm og lifir sem lengst í þjáningum, kannski gerir þér grein fyrir hversu mikil mannfýla þú ert undir þeim kringumstæðum, valdasjúkur ofbeldisseggur og geðsjúklingur. Þið ráðherrar og þingmenn þurfið að athuga ykkar gang.
Kveðja, Snorri.
Þannig að ef vörubílstjórar eiga svona vini þá þurfa þeir ekki halda að nokkur vilji semja við þá!
![]() |
Ráðist á lögregluþjón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Skipulagslögum verður að breyta!!!!!
Var að hlusta á umhverfisráðherra í fréttum í kvöld og rann kalt vatn milli skins og hörunds. Staðan í þessum málum er að hvert sveitarfélag hefur í raun fullkomið vald til að setja inn í skipulag og leyfa hvaða stóriðju sem er.
Þetta mál er þeim mun alvarlegra þegar við setjum dæmið þannig upp að í sveitarstjórn eru kannski 7 menn og í meirihlutanum eru 4 sveitarstjórnarmenn. Þeir geta upp á sitt einsdæmi sett inn í skipulagið hjá sér og samþykkt t.d. olíuhreinsunarstöð,geymslur fyrir kjarnorku úrgang eða eitthvað svipað ógeð sem sannanlega snertir alla þjóðina. En við höfum bara ekkert um það segja.
Þetta er bara alls ekki ásættanlegt og verður að breyta. Svona stórar framkvæmdir sem hafa gríðarlega áhrif á alla t.d. þensla í efnahagslífi, mengun og fleira sem fylgir þessu og því með öllu óásættanlegt. Sveitarfélög vilja hafa þessi ákvæði óbreytt og bera fyrir sig að með þessu yrðu þau svipt sjálfsákvörðunar rétti sínum. En sorry þau en þau eru flest ekki sjálfstæðari en svo að þau eru sífellt að kalla eftir stuðningi frá ríkinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. apríl 2008
Nú er að koma í ljós markmið Guðlaugs og það er algjörlega ólíðandi
Það bara kemur ekki til greina að gera Landspítalinn að ohf. Við vitum að þá fengi spítalinn tækifæri á að fikta í sjúklingagjöldum og síðan yrði um einkavæðingu að ræða. Sem leiddi til að við þyrftum að kaupa sjúkdómatryggingar eða að öðrum kosti að borga aðgerðir að fullu. Þeir sem það gætu ekki yrði síðan vísað frá. Sem sagt Bandaríska kerfið. Hefur fólk ekki séð myndir Mikaels Moore. Er það kerfi sem við viljum? Og ólíkt USA hefur fólk ekki að öðru að ganga hér!
Fólk veit að stuttbuxnalið Sjálfstæðisflokksins hefur lengi haft þessar hugmyndir og nú er einn þeirra kominn til valda í þessu ráðuneyti.
Það eru náttúrulega fullt af athafnamönnum sem dauðlangar í bita af þeirri stóru köku sem heilbrigðiskerfið er. En mér óar við að þeim verði hleypt inn í það og gróða sjónarmið fái að ráða þar.
Þessari árás verður að hrinda.
![]() |
Landspítalinn opinbert hlutafélag? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 20. apríl 2008
ESB hér komum við
Held að nú sé kominn sá tími að menn fari fyrir alvöru að vinna sína vinnu þarna á Alþingi og stjórnarheimilinu.
Það þarf að fara ákveða samningsmarkmið okkar. Hvað viljum við fá út úr samningum um inngöngu og hvað getum við als ekki sætt okkur við? Síðan er bara að hefja undirbúningsviðræður og sjá hvort að ESB er tilbúið að veita okkur aðild á forsendum sem við sættum okkur við!
Aðeins Frjálslyndir kjósendur Frjálslyndra sem enn eru á móti
![]() |
67,8 vilja hefja undirbúning aðildarumsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 19. apríl 2008
Sjálfstæðismenn búnir að finna lausn á þessu mál?
Þeir ætla að selja allt nema nafnið. Þá geta þeir sagt að RAI sé áfram í almennings eign. Og Ásta Þorleifs og Ólafur F bara kát með þetta!
Hvað er átt við með að REI eigi að einbeita sér að Ráðgjafa og þróunarverkefnum. Ætla menn að segja að þróunarverkefnum fylgi engin fjárhagsleg áhætta?
Held nú að allir borgarfulltrúar ættu að leggjast á eitt við að hætta þessum draumum um ofsagróða í útlöndum. Reykjavík á Orkuveituna hún er að þjóna þeim ágætlega og græða fullt af peningum sem aldrei hafa verið notaðir til að lækka verð á heitavatni né rafmagni. Því held ég að aukin gróði mundi ekki skila sér til neytenda hvort eð er. Spurning hvort að kjörnir borgarfulltrúar megi hvort eð er fara í svona ævintýri með fé borgarbúa. Minni á mál sem kom upp í Noregi um daginn þar sem að sveitarstjórn hafði fjárfest fé í hlutabréfum og tapað milljörðum af fé skattborgara. Ef útrás í orkuiðnaði er svona spennandi leyfið þá einkaaðilum að gera það og taka áhættuna.
![]() |
Haldið áfram á ógæfubraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 19. apríl 2008
Hin Guðs útvalda þjóð
Þetta voðaverk lýsir Ísraelsmönnum vel. Vil líka benda á færslu Egils Helgasonar sem og greins sem hann vísar í á vef The Independent þar sem fyrrum Ísraelskir hermenn segja frá pyndingum og örðum óhæfuvverkum sem ísraelski herinn stendur að. Þar er m.a. frásögn af því hvernig hermenn dunda sér við að pynda 10 ára dreng og margt fleira
Or using a 10-year-old child to locate and punish a 15-year-old stone-thrower: "So we got hold of just some Palestinian kid nearby, we knew that he knew who it had been. Let's say we beat him a little, to put it mildly, until he told us. You know, the way it goes when your mind's already screwed up, and you have no more patience for Hebron and Arabs and Jews there.
"The kid was really scared, realising we were on to him. We had a commander with us who was a bit of a fanatic. We gave the boy over to this commander, and he really beat the shit out of him ... He showed him all kinds of holes in the ground along the way, asking him: 'Is it here you want to die? Or here?' The kid goes, 'No, no!'
"Anyway, the kid was stood up, and couldn't stay standing on his own two feet. He was already crying ... And the commander continues, 'Don't pretend' and kicks him some more. And then [name withheld], who always had a hard time with such things, went in, caught the squad commander and said, 'Don't touch him any more, that's it.' The commander goes, 'You've become a leftie, what?' And he answers, 'No, I just don't want to see such things
Maður er að velta fyrir sér að ef Ísrael er Guðs útvalda þjóð - Hverskonar Guð er þetta þá?
![]() |
Skotið á ljósmyndara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 18. apríl 2008
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna stilltur á Self-destrukt
Síðustu dag hefur maður orðið vitni að alveg svakalegum vandræðagangi. Það er eins og þetta fólk þarna í meirihluta geri sér ekki grein fyrir að þeir eru farnir að stjórna borg með yfir 100 þúsund íbúum.
Varðandi REI hefur maður heyrt síðustu daga:
- Selja REI
- EIga REI og bjóða einkaaðilum að koma þar inn
- Ekki standa í áhættufjárfestingum erlendis
- Formaður stjórna skrifar undir viljayfirlýsingar um verkefni í Afríku
- Selja verkefnin frá REI
- REI verði ráðgjafafyrirtæki
- Og svo framvegis.
Það er eins og menn fái mikilmennskubrjálæði ef þeir komast í meirihluta í stjórn OR. Sbr. Hús orkuveitunnar.
Og eins er skrýtið að mönnum virðist bara alveg sama um milljarðana sem er búið að setja í REI. Talað um að þetta og hitt verkefnið gæti kostað einhver hundruð milljóna eins og það séu smá munir
Síðan er ekkert farið að vinna í málum brunarústanna á horni Lækjagötu og Austurstrætis. Búið að kaupa fleiri rústir upp á Laugarvegi. Það verður glæsilegt fyrir túrista að fara um miðbæinn næstu sumur.
Síðan má nefna vesenið varðandi Fríkirkjuveg 11 og Hallargarðinn.
Og svo þegar stóð til að stofna til 5 ára bekkja í Grunnskólum. Höfðu ekki reiknað með að það gæti reynst þessu litlu krílum erfitt að vera í skóla með krökkum upp að 16 ára aldri sem og að það var löngu búið að móta aðra stefnu í þessum málum.
Nú var ég að lesa á blogginu hennar Helgu Völuummæli frá fundi sem haldin var með fólki um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. En skv. henni á Gísli Marteinn að hafa sagt í umræðunum:
Þá á GMB að hafa sagt - þótt akfeit kona sé sett á háa hæla... er hún samt sem áður ljót!!!!
Held að það þurfi enga stjórnarandstöðu í Reykjavík.
![]() |
Ekki boðlegt borgarbúum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Þetta hefur verið einhver út borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins
Þeim finnst Kjartan ekki standa sig nógu vel í klúðra málum þarna í RAI. Þannig að þeir hafa ákveðið að hjálpa honum.
Síðan stendur Ólafur F sig vel á kantinum eins og í kvöld í Kastljósi. Ekki búið að skrifa undir samninga við Björgólf en samt er allt orðið of seint þarna við Fríkirkjuveg. 100 ára hestarétt sem er við húsið á að rjúfa að hluta og einhver vegaslóði í gegnum Hallargarðinn. Og hann getur bara ekkert gert. En hann gat eytt 600 milljónum í að kaupa leyfar af 2 húsum við Laugaveg.
![]() |
Ekið á heitavatnsleiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Gunnar er og hugsar eins og einræðisherra!
Alveg er þetta dæmigert fyrir Gunnar. Nú hafa forsjárhyggjuöflin og valdboðið náð yfirhendinni," þetta er dæmigerð túlkun manns sem vill ráða einn og valtar yfir alla. Nú er hann að berjast fyrir þvi að fá að byggja inn á vatnsverndarsvæði við Elliðavatn og skilur ekki að umhverfisráðuneyti sé á móti því. Hann vill byggja turna og hallir en skilur ekki að fólk verði reitt þegar hann straujar yfir Heiðmörk með skurðum og röralögnum af því að honum datt í hug að byggja vatnsveitu. Sem minnir mig á að enn má sjá sár í Heiðmörk eftir rörin sem ég hélt að ætti að vera búið að laga.
Hér í nágreni við mig í Smárahverfi vill hann byggja turna og helst þá hæstu á landinu. Honum er fyrirmunað að skilja að fólk í nágreni við þetta vill ekki sjá þetta. Hann skilur ekki að hér er fólk búið að byggja og kaupa út frá því skipulagi sem var en af þvi að vinir hans í verktakabransanum vilja fá að byggja þá finnst honum það frekja að vera á móti því.
Ég gæti sagt margt fleira en það verður að bíða betri tíma og líka hægt að vitna í það sem ég hef skrifa hér um Gunnar og co
![]() |
Valdboðið náði yfirhendinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 16. apríl 2008
Held að ríkisstjórnin ætti að flýta sér hægt núna!
Hef verið að velta fyrir mér hvað er réttast að gera í þeirri stöðu sem nú er komin upp hér á landi!
- Það er nokkuð ljóst að til þess að ná niður verðbólgunni verður m.a. nauðsynlegt að:
- Minnka neyslu
- Draga úr framkvæmdum sem auka þenslu
- Auka sparnað
Í framhaldi af þessu er maður að velta fyrir sér eftirfarandi:
- Það stendur til að ráðast í álversframkvæmdir í Helguvík og maður veltir þá fyrir sér eftirfarandi:
- Varðandi orkuöflun fyrir álverið. Mér skilst að Hitaveita Suðurnesja ætli að skaffa þeim einhvern hluta og OR eða Landsvirkjun rest. Hvernig er með lánakjör sem bjóðast þessum fyrirtækjum núna verða þetta ekki rándýr lán?
- Eða hvernig er með lán fyrir Norðurál í Helguvík. Er það fyrirtæki ekki skráð hér á landi og þarf að sætta sig við íslensk kjör á lánum.
- Getur verið að tími þessara framkvæmda eigi eftir að valda orkufyrirtækjum okkar vandamálum í framtíðinni
- Eins þá fer maður að velta fyrir sér að ef að Seðlabanki auðveldar bönkum aðgengi að fjármagni. Fara þá bankarnir ekki aftur af stað með húsnæðislánin fyrir alvöru? Og leiðir það ekki til að húsnæðisverð fer aftur að hækka og þar með verðbólgan líka.
- Væri ekki skynsamlegt að setja nú inn tímabundið einhverjar reglugerðir eða lög sem hvetur fólk til að spara. T.d. að fé sem lagt er inn á reikninga sem eru bundnir í 12 mánuði séu frádráttarbærir frá launum eins og lífeyrisgreiðslur í dag.
Held að allir sem eru að kalla eftir aðgerðum vegna stöðumála verði að leggja fram heildstæðar tillögur sem taka á öllum þáttum þessara vandamála. Ég er orðinn þreyttur á því að fólk sé að kalla eftir aðgerðum en koma svo ekki með neinar tillögur. Það eitt að reka Davíð og bankastjórina dugar ekkert. Það eitt að taka gjaldeyrislán og tryggja gjaldeyrisforða dugar ekkert sér.
Við verðum auðsjáanlega að hægja á hér á landi og ég vill fá vel útfærðar aðgerðir. Engar skyndilausnir þar sem að árangur getur orðið verri en enginn.
![]() |
Spáir 10% verðbólgu í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson