Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009
Ætla að vona að þetta sé ekki eitthvað leikrit!
Ef að þetta er rétt sem birtist á www.visir.isþá vona ég að þetta sé ekki leikrit til að í raun að falla samninginn. Ætla að vona að menn séu búnir að meta þanþol viðsemjenda okkar og séu ekki að ögra þeim.
Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að fjárlaganefnd vilji ganga mjög langt í fyrirvörum sínum. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri Grænna, segir að viðbrögð Hollendinga og Breta verði að koma í ljós. Fyrirvararnir þjóni samfélagslegum markmiðum íslendinga og líka að Íslendingar standi við skuldbindingar sínar
Við höfum ekki eftni á langvarandi deilum sem skila okkur kannski ekki neinu.
![]() |
Álit brátt kynnt fulltrúum samninganefndanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009
Sterkasta niðurstaðan!
![]() |
Fundur í fjárlaganefnd klukkan 15 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009
Ágætu "útrásarvíkingar"
Ágætu útrásarvíkingar!
Um leið og ég harma að það skuli vera til fólk sem ræðst að fjölskyldum ykkar og skemmi eignir ykkar þá langar mig að benda ykkur á leið sem þið gætuð farið til að draga úr líkum á að þetta endurtaki sig.
Nú vitið þið að það er hafin rannsókn á öllum ykkar fjármálum. Það er leitað að öllum þeim peningum sem þið hafið hafið hugsanlega falið. M.a. á aflandseyjum! Þið hljótið að gera ykkur grein fyrir því að þessir peningar finnast á endanum eða hvert þeir fóru.
Væri nú ekki leið fyrir ykkur, ef að það er staðreynd að þið eigið peninga sem þið hafið stungið til hliðar, fyrir ykkur að kaupa ykkur smá velvild með því að koma með þessa peninga heim. Semja við ríkið að þeir peningar sem þið eigið í raun og veru ekki verði skilað formlega og þeir eyrnamerktir upp í Icesave skuldirnar. Ef þið til samans eigið t.d. 6 milljarða þá nemur það um 1% af icesave skuldum okkar. Ef þið eigið 60 milljarða þá eru það 10% af icesave skuldinni. Og ég tala ekki um ef það er meira! Með því að þið sem einstaklingar eða hópur tækjuð ykkur saman um að greiða þessar skuldir niður fyrir okkur, hversu mikið sem það er mundi kaupa ykkur smá velvild. En ef að þið ætlið að bíða og sjá hvort að við finnum peningana þá verði þið að sætta ykkur við það að hér á landi er hópur fólks sem er mjög reytt og kemur ekki til með að láta ykkur í friði. Eins þá er hér vaxandi rannsóknarstofnun (saksóknari) með sérfræðingum sem finna þessa peninga að lokum.
Um leið og ég mótmæli að fólk sé að ráðast að heimilum fólks þá legg ég þessa tillögu fyrir ykkur sem hluti af lausninni fyrir ykkur. Minni ykkur á að ef þið hafið brotið lög þá eigið þið kannski eftir að lenda í fangelsi og þar hafa menn fengið að finna fyrir því ef þeir hafa reiði þjóðarinnar á baki sér.
Virðingarfyllst.
Magnús Helgi Björgvinsson
![]() |
Hús máluð í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009
Hversu miklir möguleikar væru á þessu?
Það er nú nokkuð ljóst að þetta hefur alltaf verið óvissuatriðið hvað fengist fyrir eignir Landsbankans. Á okkur lendir það sem ekki innheimtist upp í innistæðutryggingar af okkar kröfum í Landsbankann. Það er því spurning hvað breyttist við að semja um að greiða það sem útaf stendur eftir kannski 7 ár eða semjum um það núna með fyrirvörum um ábyrgð og endurupptöku ef að forsendur eru okkur ofviða. Kemur það ekki á sama staða niður? En augljóst skv. þessu að fyrirvari um endurskoðun á samningnum þarf að vera skýrt af okkar hálfu. Finnst líka að hann hafi gleymt því að við samþykktum að Bretar og Hollendingar greiddu þessi innlán út.
En ef þetta tefur hér allt á ný um marga mánuði er kannski verr af stað farið en heima setið .
Vildi líka heyra viðbrögð annarra en Höskuldar. Finnst hann ekki alltaf sýna fullann skilning á málum
![]() |
Skynsamlegt að semja að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009
Hvernig kemur sagan til með að dæma stjórnarandstöðuna?!
Finnst þessi frétt um að menn vilji fyrirvara við ríkisábyrgð á þessu ekki vera neina frétt jafnvel þó þá sé í Samfylkingunni!
En þingmenn stjórnarandstöðunnar hljóta að gera sér grein fyrir að þetta mál fer að lokum í gegn með þeim fyrirvörum sem fulltrúar þeirra í fjárlaganefnd vinna með stjórnarliðum við að skoða. Því fer maður að velta fyrir sér hvort að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi hugsað út í það að miðað við nú fyrstu mánuði þá er ekki víst að saga þessa kjörtímabils eigi eftir að fara fögrum orðum um orð og gerðir þeirra. Manni finnst að það hljóti að verða stór kafli í mati fólks hvernig þeir hafa talað um stjórnvöld, embættamenn og starfsfólk ráðuneyta og stofnana ríkisins. Þar sem allar gerðir hafa verið rengdar, skrumskældar og rangfærðar. Eins verður horft til þess að í stað þess að taka þátt í að hefja endurreisn þá hafa öll mál sem sérfræðingar hafa bent á sem nauðsyn verði gangrýnd. T.d. tillögur um stofnun Bankaumsýslunar. En það var einmitt gert til að færa ákvarðanir frá ríkisstjórninni.
Þá verður horft til þess að í stað þess að fagna því að í stærri málum hefur aldrei áður verið birt eins mikið af upplýsingum þá er stjórnarandstaðan í því að halda því fram að mikilvæg gögn séu falin sem reynast svo ekki skipta neinu máli.
Held samt helst að stjórnarandstaðan eigi eftir að sjá eftir að í stað þess að stunda uppbyggilega gagnrýni og standa með stjórnvöldum þá haf þau stundað niðurrif, svartsýni og reynt markvisst að draga kjark úr þjóðinni. Og ekki komið neinar uppbyggilegar tillögur sem hafa verið raunhæfar.
Þetta verður nú ekki falleg eftirmæli ef að allt fer eins og reiknað er með og við förum á næsta að hefja leiðina út úr kreppunni.
![]() |
Andstaða líka í Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009
Nú er stjórnarandstöðunar að semja um raunhæfa fyrirvara eða ramma um Icesave
Nú er að koma upp sú staða að ef að stjórnarandstaðan ætlar vera með í uppbyggingu og endurreisn, þá verður hún að koma að því að samþykkja þessa fyrirvara eða ramma um þessa ábyrgð. Því nú eru líkur á því að stjórnarliðar séu að semja um framgang málsins. Væri ekki betra fyrir Sjálfstæðismenn og framsókn að vera með á bátnum svo að þetta verði sameignleg niðurstaða sem kemur okkur vel þegar rætt verður við Breta og Hollendinga um þessar fyrirvara Alþingis.
Annars verður það algjör ósigur stjórnarandstöðu sem verður grafskrift þeirra eftir þetta kjörtímabil. Enda alltaf ljóst að það þurfti að semja um þetta og drauma samningur var aldrei í boði.
![]() |
Icesave líklega úr nefnd fyrir vikulok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Hrollvekja!
Þarna kemur fram að krónan er virkilega farin að verða okkur fjötur um fót. Samkvæmt þessu þá er ljóst að krónan á eftir að há okkur þar til við losnum við hana. Á www.ruv.is má lesa um þetta m.a.
Raunasaga gengis krónunnar nær aftur til ársins 1920 en þá var íslenska krónan skilin frá þeir dönsku á pari það er þær voru jafnverðmætar. Síðan hefur gengi krónunnar að meðtölu því þegar tvö núll voru skorin af henni 1981 lækkað um 99,95 prósent gagnvart þeirri dönsku.
Þetta segir okkur að í dag þurfum við 2400 gamlar íslenskar krónur til að kaupa eina Danska. En 1920 voru þær jafnverðmætar.
Eins kemur þar fram:
Bankinn fer ítarlega yfir ýmsa möguleika og segir að á meðan ekki verður skipt um mynt það er breytt yfir í annað gjaldmiðilsfyrirkomulag telji bankinn ráðlegast að efla viðbúnað Seðlabankans til að takmarka vöxt fjármálakerfisins og bæta framkvæmd stefnunnar í opinberum fjármálum þannig að hún styðji betur við peningastefnuna og dragi þannig úr líkum á innstreymi óstöðugs fjármagns og efnahagslegum óstöðugleika
Sem í raun segir okkur að auk þess að við erum að berjast við fjárlagagat nú upp á 200 milljarða þá þurfum við í raun áfram að draga úr kostnaði hins opinbera til að styrkja eða verja krónuna.
Væri ekki ráð að fara að skoða einhliða upptöku evru eða semja við ESB um algjöran forgang. M.a. má benda á að Svartfellingar komust upp með það að taka upp evru áður en þeir gengu í ESB þar sem þeir höfðu enga mynnt. Og í raun má segja sama um okkur. Krónan er jafnvel verri en engin eins og bent er á:
Seðlabankinn segir að frá 1920 hafi öllum tilraunum missjálfstæðrar peningastefnu lokið með rýrnun kaupmáttar krónunnar
![]() |
Ekki hagkvæmt gjaldmiðilssvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Svona kannski rétt að benda nýjum þingmönnum á hvað átt er við með meirihlutastjórn!
Held að Þór Saari verði að átta sig á að ef Alþingi fellir samning með atkvæðum stjórnarþingmanna þá er verið að lýsa vantrausti á Steingrím J um leið á Ríkisstjórn sem er að leggja málið fram. Og það er almennt svo um allan heim að ef að Alþingi er ekki sátt við leiðir ríkisstjórna sem sitja í umboði meirihluta Alþingis þá er komin upp sú staða að ríkisstjórn getur ekki treyst á að stefna þeirra nái fram og því eru umboðið sem þeir starfa eftir laskað eða ónýtt.
Þetta væri líka rétt að Sigmundur áttaði sig á en hann segir á www.visir.is :
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist alls ekki vera þeirrar skoðunar að ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og VG standi og falli með Icesave málinu.
Í fyrsta lagi finnst mér nú skrýtið ef ríkisstjórnarsamstarfið á að snúast um þetta mál umfram annað. Hvað segir það um þingið og stöðu þess ef þingmenn eiga ekki neinn annan kost en að kjósa eins og framkvæmdavaldið ætlast til. Og framkvæmdavaldið lítur svo á að ef þingmenn geri það ekki þá sé ríkisstjórnin bara fallin," segir Sigmundur Davíð. Að auki segist Sigmundur Davíð telja að það sé óhugsandi að Samfylkingin slíti ríkisstjórnarsamstarfinu á meðan að Evrópusambandsmálið er í vinnslu.
Sigmundur hlýtur að átta sig á að ef að Alþingi er ekki sammála ríkisstjórn í þessu, þá er Alþingi að segja að það sé ekki sátt við leiðir framkvæmdarvaldsins. Og þó að ríkisstjórnin gæti þraukað þá yrði það spurning fyrir ríkisstjórnina að hún gæti ekki gert neinar áætlanir til framtíðar því að það gæti orðið ströggl í hvert skipti sem þyrfti að bera eitthvað fyrir Alþingi. Og væri það eins og í fyrirtækjum að ef að meirihluti stjórnar er ekki sammála framkvæmdarstjóra þá er hann látinn víkja. Eins er þetta með þingið ef að öll stór þingmál verða í svona klípu þá er stjórnvöldum illmögulegt að starfa.
Bendi á það sem Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði:
Ef að þetta mál fellur þá er hin pólitíska staða orðin afar flókin," segir Gunnar. Það má segja að þá verði djúp stjórnarkreppa um stjórn landsins þar sem forysta landsins getur í raun og veru ekki komið sér saman um það hvernig bregðast á við brýnasta lífshagsmunamáli þjóðarinnar." (www.ruv.is )
![]() |
Hefðbundið pólitískt ofbeldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Þessi mótmæli væru nú trúverðugri ef að þeir sem standa fyrir henni væru ekki á kafi í stjórnmálum
Þessi meintu mótmæli á Austurvelli væru nú mun trúverðugri ef að þeir sem stæðu fyrir þessu væru ekki á kafi í stjórnmálum. Og sér í lagi í (sértrúarfélaginu) Félagi fullveldissinna.
Facebook hópurinn "Ég kýs þig ekki - Ef þú kýst með Icesave" sem auglýsir nú í dagblöðum með stórum auglýsigum með Jóni Sigurðssyni og hóta þingmönnum honum er stjórnað af
Gunnar Kristinn Þórðarson var í framboði fyrir L lista þjóðhyggjufokk Bjarna Harðarsonar. Og han skrifar m.a. hér http://landsvarnarflokkurinn.blogcentral.is/
Friðjón R Friðjónsson (stofnandi) en hann er helblár sjálfstæðismaður Og bloggar á eyjan.is
Síðan í þessari frétt er vísað í annan hóp sem kallar sig " Börn Íslands " og honum stýrir Axel Þór Kolbeinsson Sem er í Félagi Fullveldissinna sem tók við af L listanum. Og skrifar hér http://axelthor.blog.is/blog/axelthor/
Og loks eru það Indefence sem eru einskonar stuðningssamtök Sigmundar Davíðs.
Þetta eru því í raun Sjálfstæðisflokkur, framsókn og fullveldissinnar sem eru að reyna að koma stjórninni frá.
![]() |
Boða samstöðufund á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009
Bara að benda Ögmundi og fleirum á grein eftir Hróbjart Jónatansson
Í Mogganum í dag er grein eftir Hróbjart Jónatansson hæsta réttarlögmann þar sem hann fjallar um Icesave og ábyrgð okkar. Hann færir þar rök að því eins og ég hef sagt að að það sé ekkert í EES tilskipuninni sem undanþegi okkur ábyrgð á lámarksinnistæðum. Hann segir m.a.
Að sönnu segir ekki berum orðum í tilskipuninni að ríkið beri ábyrgð á lágmarksinnstæðunum. Hins vegar fer ekkert á milli mála að tilgangur tilskipunarinnar er að skylda aðildarríki EES til þess að koma á tryggingakerfi sem veitir öllum innstæðueigendum lágmarksvernd án tillits til þess hvar útibú lánastofnunar er staðsett á EES-svæðinu ef gjaldþol lánastofnunar brestur. Tilskipunin veitir samningsríki EES nokkurt frelsi til þess að ákveða fyrirkomulag tryggingakerfisins en það fyrirkomulag sem tekið er upp skal fullnægja réttmætum kröfum innstæðueiganda til þess að fá ótiltæk innlán greidd innan tiltekins tíma. Í tilskipuninni eru engir fyrirvarar um kerfishrun eða slíkar aðstæður. Það er því alveg ljóst af tilskipuninni að tilgangurinn er sá að veita innstæðueigendum lágmarkstryggingu ef lánastofnun verður gjaldþrota, sem sé að hver og einn innstæðueigandi í Landsbankanum geti sótt sínar u.þ.b. 20.000 evrur við gjaldþrot bankans svo dæmi sé tekið. (Hróbjartur Jónatansson Morgunbalðið 11. ágúst)
Og áfram segir hann
Af þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir um aðdraganda hruns bankanna virðist svo vera að eftirlit með bönkunum hafi verið algerlega ófullnægjandi og aðgerðir Fjármálaeftirlits og Seðlabankans einkennst af slíku yfirþyrmandi kunnáttu- og dómgreindarleysi að engu tali tekur. Í ljósi þessa er ekki líklegt að íslenska ríkið getið leyst sig frá ábyrgð á grundvelli þess sem á lagamáli heitir »Force Majeure«, þ.e. óvæntra ytri atvika sem engin leið var að sjá fyrir og ekki voru ráðgerð í tilskipuninni. Reikna má með að grundvöllur fyrir viðurkenningu á Force Majeure kæmi því aðeins til greina að sýnt væri fram á að íslenska ríkið hefði rækt hlutverk sitt með góðum og gegnum hætti og bankahrunið og afleiðingar þess hefðu orðið án tillits til frammistöðu ríkisins. Margt af því sem hefur verið upplýst nú í aðdraganda hrunsins veitir manni ekki þá tilfinningu að málstað Íslands yrði auðvelt að verja í slíku dómsmáli. (Hróbjartur Jónatansson Morgunbalðið 11. ágúst)
Hann gefu fyllilega í skyn að dómsmál yrðu ekki milli ríkjan sem slíkra heldur milli í raun eignenda innistæðnana við Íslenska ríkið og við gætum komið mun verrr út úr því. T.d. ef í ljós kæmi að orsök að því að innistæðutryggingarkerfið virkaði ekki hafi verið eftirlitsleysi stjórnvalda með starfi bankanna.
Svo reyndar endar hann greinina á að að gagnrýna val Svavars Gestssonar í samninganefndina sbr
Það að fela manni sem hefur hvorki lögfræðilega menntun né fljúgandi færni í enskri tungu og enskri menningu, sem kaus sér til bestrar aðstoðar doktorsnema í vísindaheimspeki, til þess að leiða samningaviðræður við Breta og Hollendinga um eitt allra mikilvægasta hagsmunamál þjóðarinnar á síðari tímum verður, að mínu viti, að teljast með stærstu mistökum Íslandssögunnar og eru afglöp Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans í aðdraganda hrunsins þar ekki undanskilin. (Hróbjartur Jónatansson Morgunbalðið 11. ágúst)
![]() |
Stjórnarsamstarf undir Ögmundi komið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 969738
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson