Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010
Mánudagur, 7. júní 2010
Akkurat það sem ég sagði í gær.
Vill í þessu sambandi setja hér smá tilvitnun úr blogginu mínu frá því í gær. Því að ég er þess fullviss að hér er um skipulega aðför að Jóhönnu gerða og skipulagða af óvönduðum mönnum. Og þeir hika ekki við 7 dögum fyrir sumarleyfi Alþingis að taka tíma frá því að klára áríðandi mál til að reyna að koma höggum á Jóhönnu og stjórnina þar sem þeir vita að staða hennar er ekki sterk. En þetta sagði ég í gær.
Í stuttu máli virðist Sigurður Kári sjálfstæðismaður líta á þetta sem sitt helsta hlutverk eftir að hann komst á þing. En hann komst inn á þing þegar Illugi Gunnar tók sér ótímabundið leyfi frá þingstörfum. Sigurður Kári er jú að því mig minnir í nánast hring með Hannesi Hólmsteini og nú er kominn tími til að refsa Jóhönnu fyrir að hafa verið vond við Davíð. Og við vitum að þeirra meðöl eru ekki vönduð.
Hann hóf sín störf á þingi með því að koma upp við öll tækifæri og spyrja sömu spurninganna. Svo rammt kvað að þessu að Róbert Marshall líkti honum við Rafhlöðu kanínu
Andskoti væri það hart ef að þetta yrði til að koma sjálfstæðismönnum aftur að völdum. Því fólk ætti að gera sér grein fyrir að ef þessi stjórn segir af sér verða ekki kosningar fyrr en aðrir flokkar fá tækifæri á að mynda nýja stjórn. Og þá væri það sjálfstæðisflokkurinn sem kæmi þar inn.
Pólitískt áhlaup á mig" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 6. júní 2010
Hef verið að skoða umræður um launakjör Seðlabankastjóra
Í stuttu máli virðist Sigurður Kári sjálfstæðismaður líta á þetta sem sitt helsta hlutverk eftir að hann komst á þing. En hann komst inn á þing þegar Illugi Gunnar tók sér ótímabundið leyfi frá þingstörfum. Sigurður Kári er jú að því mig minnir í nánast hring með Hannesi Hólmsteini og nú er kominn tími til að refsa Jóhönnu fyrir að hafa verið vond við Davíð. Og við vitum að þeirra meðöl eru ekki vönduð.
Hann hóf sín störf á þingi með því að koma upp við öll tækifæri og spyrja sömu spurninganna. Svo rammt kvað að þessu að Róbert Marshall líkti honum við Rafhlöðu kanínu:
Robert Marshall þingmaður Samfylkingarinnar líkti Sigurði Kára Kristjánssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins við rafhlöðukanínu í umræðum um fundarstörf forseta á Alþingi í dag.
Var Róbert þar að ræða um síendurteknar spurningar Sigurðar Kára á Alþingi um launahækkun til seðlabankastjóra. Hann hefði nú spurt nær alla ráðherra ríkisstjórnarinnar um málið
Sigurður Kári var auðsjáanlega að vinna eftir einhverju plani sem átti að koma þessari umræðu af stað. En undirtektir voru ekki eins og hann vildi.
Nú komu einhverjir tölvupóstar í ljós en enginn þeirra frá Jóhönnu og mbl.is tekur að túlka þá yfir í að Jóhanna hafi sagt eitthvað eða lofað einhverju. Allir sem komu að málinu segja að hún hafi ekki skipti sér af launakjörum Seðlabankastjóra. Svo það er spurning hvaða sprengjum Davíðs drengir reyna að kasta næst. Spurning hvort að þær haldi áfram að springa í andlitið á þeim. Hefur alltaf fundist Sigurður Kári ómerkilegur pappír sem stjórnmálamaður
Ræddi ekki launamálin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. júní 2010
Ég er búinn að lesa þessa frétt og sé nú ekkert um að Jóhanna hafi lofað einu eða neinu
Andskoti frjálsleg túlkun Moggans á þessu. Ég hefði t.d. alveg eins skilið að þetta benti til viðtal við umsækjanda:
Þá vil ég nefna það sem mér láðist að geta í samtalinu. Ráðningarferli seðlabankastjóra hefur sem betur fer farið fram fyrir opnum tjöldum. Það hefur hins vegar þær afleiðingar að hinn alþjóðlegi seðlabankaheimur er vel upplýstur um það. Í aðdraganda umsóknar minnar komu ýmsir þeirra að máli við mig og sumir lögðu beinlínis hart að mér að sækja um," segir Már.
Við erum að tala um stöðu seðlabankastjóra sem ráðinn er inn væntanlega af stjórn Seðlabanka. Hann kann að hafa rætt við Jóhönnu en það er ekkert í þessari frétt að hún hafi lofað einu eða neinu heldur er hann að vísa í hugsanlegar lækkanir á launum seðlabankastjóra. Launum sem núverandi ritstjóri Moggans var á. Annað er ekki rætt. Svo má nefna að allir bankarastjórar viðskiptabankana eru með hærri laun en þau sem Már er með.
Enn þetta virðist vera megin áhyggjuefni Sjálfstæðisflokksins og Moggans í dag. Þó í dag hafi verið upplýst að Guðlaugur Þór hafi fengið 26 milljónir í kosningastyrki. Sem samsvarar þessum umræddu launahækkunum Más í 6 til 7 ár.
Við erum að tala um stöðu Seðlabankastjóra sem ´heldur betur tók við þröngu búi og hefur fengið heldur betur að finna fyrir nöldri, nagi og sleggjudómum allra "fjármálasnillingana" sem nú eru komnir hér fram á sviðið en földu sig sennilega fyrir hrun.
PS fletti upp á www.althingi.is hvað Jóhanna sagði og þetta fann ég:
Þetta sagði Jóhanna á Alþíngi:
Virðulegi forseti. Ég skal svara þessu alveg skýrt. Það hefur engin ákvörðun verið tekin í forsætisráðuneytinu um að seðlabankastjóri yrði ráðinn á sérkjörum. Ákvörðun um hvenær seðlabankastjóri var ráðinn, sem valinn var úr hópi nokkurra sem sóttu um ég man ekki hvort þeir voru fimm eða sex var fyrst tekin þegar fyrir lá niðurstaða þriggja manna nefndar sem var sérstaklega til þess kölluð að fara yfir umsóknirnar og gefa forsætisráðuneytinu álit. Þá fyrst var ákveðið hver skyldi hljóta þessa stöðu.
Varðandi ráðningar án auglýsinga eru reglurnar alveg skýrar: Það er heimilt að ráða án auglýsinga í störf sem eiga að standa í tvo mánuði eða skemur. Það er líka heimilt að ráða ef um afleysingar er að ræða, eins og ég nefndi áðan, vegna veikinda, orlofs, barnsburðarleyfis o.s.frv. En eins og ég sagði er verið að fara yfir þessi mál og mun væntanlega skýrast á næstu dögum eða vikum hvaða reglur munu í framtíðinni gilda um þetta.
Og á öðrum stað
Ég veit ekki hvað ég þarf að tala skýrt í þessu máli, virðulegi forseti, til að hv. þingmaður skilji það að ég hef engin loforð gefið í þessu máli. Ég átti engin samtöl við formann bankaráðs í aðdraganda þess að þessi tillaga var lögð fram (Gripið fram í.) og það er alveg öruggt mál að laun seðlabankastjóra geta ekki verið úr takti við aðrar ákvarðanir sem teknar hafa verið af hálfu hins opinbera. (Gripið fram í.) Það er niðurstaðan og mér finnst líklegt af orðum formanns bankaráðsins að dæma að þessi tillaga verði dregin til baka enda er það skynsamlegt (Gripið fram í.) vegna þess að það að hækka launin er úr öllum takti við þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur markað í þessu máli.
Hún segir ekkert um að þau hafi ekki verið í sambandi. Og ekkert um að hann hafi ekki kvartað yfir hugsanlegum launa lækkunum. Hún segir að hún hafi ekki lofað neinum sérkjörum. Ef hún hefur gert það hefur ekki verið sýnt fram á það ennþá.
Og smá viðbót enn:
Í samtali við Pressuna nú í kvöld vísaði Jóhanna því algjörlega á bug að hafa komið að ákvörðunum um launamál Seðlabankastjóra.
Ég sagði honum það afdráttarlaust í samtali okkar áður en hann sendi póstinn að það væri ekki í mínum verkahring að koma að launamálum.
Tölvupósturinn hafi síðan borist og afrit send á Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra og Láru V. Júlíusdóttur, formanns bankaráðs Seðlabankans. Jóhanna segir við Pressuna að hún hafi ekki svarað póstinum og ekki haft nein frekari afskipti af málinu.
Þremur dögum síðar, 24. júní, lagði Lára hins vegar fram tillögu til Ragnhildar um starfskjör Más og tveimur dögum síðar var tilkynnt um ráðningu hans sem bankastjóra Seðlabanka Íslands. ( www.pressan.is )
Már og Jóhanna ræddu launin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.6.2010 kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Föstudagur, 4. júní 2010
Þá getur fólk hætt að velta þessu fyrir sér! Samfylkingin er ábyrgur flokkur í Kópavogi!
Samfylkingin leggur meiri áherslu á hagsmuni Kópavogs en deilur um hver eigi að vera bæjarstjóri. Og ráðin er reyndur starfsmaður innan Kópavogs með reynslu af stjórnun og fjármálastjórn. Hvað vill fólk meira? Þetta sýnir stjórnvisku Samfylkingarinnar og hinna flokkana í þessu samstarfi.
Til hamingju Kópavogsbúar! Tími einræðis er liðinn í Kópavogi.
Nýr bæjarstjóri Kópavogs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 3. júní 2010
Nú eru Sjálfstæðismenn á eftir Samfylkingu eins og rakkar
Það virðist vera sárt fyrir Sjálfstæðismenn að missa völdin í Kópavogi. Nú má lesa á www.pressan.is og á www.eyjan.is að sjálfstæðismenn eru tilbúnir að bjóða Guðríði Arnardóttur bæjarstjórastólinn ef að Samfylking fer í samstarf við þá. Þessa sömu Guðríðii eru Sjálfstæðismenn búnir að úthrópa allt síðasta kjörtímabil sem óferjandi og óalandi og kallað hinum ýmsu nöfnum. En nú er það allt gleymt.
Halldór Jónsson sem um árabil hefur verið í innsta koppi í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi sendir pressunni bréf og segir:
Í grein í Mogga á kosningadaginn sagði Guðmundur Oddsson, yfirkrati í Kópavogi, að Samfylkingin væri stolt af Guðríði Arnardóttur og stæði heilshugar að baki henni. Þegar til stykkisins kemur vill Guðmundur og Samfylkingin ekki styðja oddvita flokksins, Guðríði Arnardóttur, til að verða bæjarstjóri í Kópavogi í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Heldur vilja stuðningsmennirnir bræðing fjögurra flokka sem ætlar að auglýsa eftir ópólitískum bæjarstjóra. Hvernig halda menn að krötunum gangi að halda þeirri hjörð saman, þar sem valdir kverúlantar og flokkahlauparar eru áberandi á þessum klofningslistum og grínframboðum?
Og á eyjan.i stendur
Eyjan hefur rætt við trúnaðarmenn Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, sem vilja ekki gefast upp svo auðveldlega og vilja að Ármann Kr. Ólafsson, oddviti þeirra, bjóði Guðríði til samstarfs þannig að Guðríður yrði bæjarstjóri. Það er talið ákveðið tromp, þar sem Guðríður getur ekki orðið bæjarstjóri með öðrum hætti. Hefur hugmyndin verið rædd við Ármann og er hann ekki talinn fráhverfur hugmyndinni. Sjálfstæðismenn í Kópavogi telja skilaboð kosninganna skýr; Sjálfstæðisflokkur og Samfylking séu langstærstu flokkarnir í bænum og eigi því að mynda sterkan meirihluta.
Guðríður segir þó engan úr röðum sjálfstæðismanna hafa boðið slíkt tilboð. Auk þess væri það til lítils, því Samfylkingin ætlaði sér í samstarf á grundvelli málefna og það yrði erfitt með aðkomu fyrri meirihluta. Hún sagðist vera í núverandi viðræðum af heilum hug og ræddi ekki við aðra á meðan.
Mynda meirihluta á næstu dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 2. júní 2010
Er fólk ekki lagi hér?
Er að velta fyrir mér hvernig talað er um Guðríði hér á blogginu. Hún er kölluð öllum illum nöfnum af fólki sem þekkir hana ekki neitt.
Sigurður Sjálfstæðismaður segir
Kópavogsbúar vita betur nefið á Guðríði er þekkt í bænum fyrir þann eiginleika að hafa nef sem geti lengst ótrúlega mikið og ótrúlega oft
Eins talar um að hugmyndum henna og henni sjálfri hafi verið hafnað. Halló flokkurinn missir 3% fylgi en sjálfstæðisflokkurinn hans um 14%
Einhver ómerkilegur Sjálfstæðismaður úr Hafnafirði (Halldór) segir:
Heldur frekjubreddan Guðríður Arnardóttir að fólk sjái ekki í gegnum þennan vef?
Þeir sem meta vinnu Guðríðar ættu að sjá að hún hefur ólíkt öðrum tekist að standa í hárinu á mönnum eins og Gunnari Birgissyni sem nærri óáreittur hafði fengið að leika sér með Kópavog eins og hann vildi.
Svona til hafa þetta á hreinu:
- Listi Kópavogsbúa rauk af stað í miðjum samningaviðræðum í gær í alla fjölmiðla og úttalaði sig um að það vildi EKKI Guðríði í bæjarstjórastól. Hverskonar samningaviðræður eru það að stilla Samfylkingunni upp við vegg þannig að hún í raun getur ekki gefið þetta mál eftir því þá væri túlkað að Y listinn hefði svínbeygt Samfylkingu.
- 3 af 4 flokkum vilja að bæjarstjóri sé einn af kjörnum fulltrúum.
- Venjulega eru svona mál kláruð áður en fólk ríkur með þetta í fjölmiðla. Þá eru slit á samningaviðræðum útskýrð.
- Listi Kópavogsbúa hefur lýst ánægju með málefnasamninginn.
- Hvað er faglegur Bæjarstjóri? Er hann ekki til þess að framfylgja stefnu flokkana og verður því Pólitískur í raun þó hann væri ekki flokksbundinn?
- Maður sér fyrir sér að flokkarnir hefðu t.d. getað ákveðið að Guðríður hefði tekið við Bæjarstjórastólnum í 2 ára og eftir þann tíma væri staðan endurskoðuð.
- Sé ekki alveg hvað "faglegur bæjarstjóri" á að geta gert umfram kjörinn fulltrúa. Bendi á að allar ákvarðanir verða teknar af bæjarstjórn. Og sem kjörinn bæjarfulltrúi og sem oddviti helmings fulltrúa í meirihluta sem og ein af 4 sem skrifa undir málefnasamninginn hlýtur kjörinn bæjarfulltrúi að vera góður kostur til að sjá til þess að ákvörðunum sé fylgt eftir.
Ef að Samfylking á að slá bara af sínum kröfum endalaust er þessu sjálfhætt.
Ekki gert kröfu um neitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 2. júní 2010
Listi Kópavogbúa ekki alveg raunveruleikatengdur!
Gæti verið að Y listinn stefni að því ljóst og leynt að slíta þessum viðræðum til að halda Sjálfstæðisflokknum og framsókn við völd áfram.
Ummæli og upphlaup þeirra í fjölmiðlum í kvöld benda til þess
Mér hefur verið bent á að 2 maður á lista Y- lista Guðmundur Freyr hafi gengið úr Framsókn fyrir nokkru og nú má lesa alveg óttalegt bull eftir Ásdísi Ólafsdóttur sem sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum fyrir nokkrum árum vegna andstöðu við Gunnar Birgisson:
Hún lætur hafa eftir sér svona bull nú í kvöld á www.visir.is
Hún segir að kjósendur bæjarins hafi gefið ákveðin skilaboð í kosningunum. Þau töpuðu meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn til samans. Þannig það eru bara skilaboð frá kjósendum að þeir vilja þá ekki heldur."
Blessuð konan kann auðsjáanlega ekki að reikna því að Samfylkingin tapaði ekki nema innan við 3%. Og alltaf í kosningabaráttunni var Guðríður Arnardóttir kynnt sem bæjarstjóraefni.´
2002 fékk Samfylkingin 27,73% Sjálfstæðisflokkurinn um 37%
2006 fékk Samfylkingin 31,13% Sjálfstæðisflokkurinn um 44%
2010 fékk Samfylkingin 28% Sjálfstæðisflokkurinn 30%
Svo ég held að ef fólk veit ekki hvað það er að tala um, þá eigi það að þegja. Það fer þeim best.
Skil ekki þennan leik þeirra í Y listanum nema að þau séu að vinna að því að koma Framsókn og Sjálfstæðismönnum að áfram í Kópavogi. Og þar með yrði hér bæjarstjórn sem væri með 50% atkvæða bæjarbúa að baki sér.
Miðað við að í þessu Lista Kópavogs eru fólk sem vill láta taka sig alvarlega þá eru þau búinn í kvöld að koma sér í þá stöðu að þau þurfa að sanna að þau séu stjórntæk.
Síðan væri gaman að vita hvernig bæjarstóri sem er ráðinn til að framfylgja stefnu flokka getur verið ópólitískur.
Listi Kópavogsbúa verður að meta það hvort að hann vill sömu stórn áfram í Kópavog eða breyta hér um. Hvort að þau geti fengið önnur markmið sín í gegn fyrir þetta með bæjarstjóran. Eða hvort þau vilji verða hækja framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Og umfram allt að vera ekki svona óð í að komast í fjölmiðla að þau klúðri öllu! Nú eru þau búin að koma málum þannig fyrir að það verður illmöglegt fyrir aðra semja við þau. Þau eru búin að lýsa andstöðu við Guðríði oddvita Samfylkingar og held að þau þurfi að halda krísu fund. Síðan annan þar sem þau skýra fyrir fólki hvar sé hægt að finna "Faglegan bæjarstóra" hvaða menntun er það t.d. Og á kannski að ráða einhvern aflóga Sjálfstæðis bæjarstjóra sem sagt hefur verið upp störfum nú eftir kosningar?
Samrýmist ekki stefnu listans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 1. júní 2010
Ekki klókur samningamaður þetta!
Sé ekki að þetta sé klókt hjá Guðmundi Frey Sveinssyni frá Lista Kópavogsbúa að láta hafa eftir sér:
Guðmundur Freyr segir sitt fólk ekki tilbúið til að svíkja það kosningaloforð, frekar gangi þau úr meirihlutaviðræðum. Það sé hinsvegar synd þar sem málefnasamningur flokkanna sé nánast tilbúinn. Y-listinn hafi gengið út frá því að gera siðbót í stjórnsýslunni og það að ráða ópólitískan bæjarstjóra sé hluti af því.(www.ruv.is )
Sér í lagi þegar haft er eftir Hjálmari Hjálmarssyni í sömu frétt:
Hjálmar Hjálmarsson, oddviti Næst besta flokksins segir að hlé sé á viðræðum en að flokkurinn styðji ekki að ráðinn verði ópólitískur bæjarstjóri (www.ruv.is )
Kannski eðlilegra að svar eins og Ólafur Þór hjá Vg
Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti Vinstri grænna í Kópavogi segir að oddvitar flokkanna hafi hist í dag til að ræða um niðurröðun í nefndir og embætti. Þar hafi engar ófrávíkjanlegar kröfur verið settar fram. Hann vildi ekki gefa upp hvort Vinstri græn teldu fýsilegt að ráða ópólitískan bæjarstjóra. (www.ruv.is )
Nú er Listi Kópavogs búinn að auglýsa ágreining um að þau séu ekki tilbúnir að slá af kröfum sínum, um leið og að aðrir flokkar hafi aðra skoðun. Um leið eru þau búin að setja aðra flokka í þá stöðu að þeir geta illa orðið við þessu án þess að sýnast hafa beygt sig fyrir vilja Lista Kópavogbúa. Svona atriði á ekki að láta upp fyrr en við slit viðræðna. Þetta þekkja allir sem hafa fylgst með kjarasamningum og í raun öllum samningaviðræðum. Þessi atriði eru ekki látin leka út fyrr en að viðræðum er formlega slitið. Og miðað við að honum finnst önnur vinna hafa gengið vel þá áttu þau að láta á þetta reyna næstu daga. Eða finna einhverja málamiðlun. En ekki að hlaupa með þetta í fjölmiðla. Því nú verða allar lausnir túlkaðar sem að þessi eða hinn hafi orðið að gefa sig.
Viðræður í uppnámi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 10
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 969567
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson