Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2013
Mánudagur, 29. júlí 2013
Þetta var það sem þurfti fyrst að bjarga skv. nýrri ríkisstjórn.
Neyðarlegri frétt er ekki hægt að finna fyrir nýja ríkisstjórn. Þau héldu lærðar bullræður um að sjávarútvegurinn væri bara alveg að fara á hliðina og það þyrfti að koma í veg fyrir hækkað veiðigjald svo þau færu að fjárfesta. En úps! Þeir borga eigendum út nú 1,1 milljarð og á síðasta ári 800 milljónir og sá peningur fer væntanlega ekki í fjárfestingar í fyrirtækjunum. Og þarna erum við bara að tala um eitt fyrirtæki.
Sýnir okkur vel að þetta var forgangsmál Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks og svo gjörsamlega vanhugsað eins og allt annað sem þau hafa farið af stað með.
Greiðir 1,1 milljarð í arð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 26. júlí 2013
En bíddu er þetta ekki stefna Framsóknar?!
Rökstuðningurinn er sá að við ætlum að fylgja þessu plani Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem gengur í rauninni út á að halda gjaldmiðlinum veikum og gera Ísland að einhversskonar framleiðsluríki, sem framleiðir til útflutnings fyrir lág laun en flytur sem allra minnst inn. Þetta finnst mér vera mjög skuggaleg framtíðarsýn, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 25. júlí 2013
Ríkisbákn? Hvar á að skera niður.
Hjá ríkinu starfa um 20 þúsund starfsmenn í um 16 þúsund ársverkum.
Starfsmenn ríkisins
Árið 2011 störfuðu rúmlega 21.000 manns hjá ríkinu og sinntu 16.808 ársverkum. Töluverðar sveiflur eru í starfsmannafjölda ríkisins yfir heilt ár. Þannig fjölgar starfsmönnum á sumrin vegna afleysinga en færri eru við störf yfir vetrarmánuðina.
Samkvæmt ríkisreikningi 2011 voru launagjöld ríkisins 119 milljarðar, eða 19,7% af heildargjöldum þess.
Fjölmennustu hóparnir sinna störfum á sviði heilbrigðismála, menntamála og löggæslu. Landspítalinn er stærsti einstaki vinnustaðurinn en þar starfa um 5.500 starfsmenn sem sinna um 3.800 ársverkum.
Þannig eru starfmenn á Landspítala einum um 25% af starfsmönnum ríkisins. Og ef við tökum öll sjúkrahús, heilsugæslu og hjúkrunarheimili þá geri ég ráð fyrir að yfir helmingur starfsmanna ríkisins sé bar í heilbrigðisgeiranum. Stór hópur eru svo kennarar í framhalds- og Háskólum og öðru sem tengist fræðslumálum. Síðan er lögreglan sem væntanlega er með um 5 til 10% hlut. Veit að starfsmenn í ráðuneytum beint eru um 500. Svo þegar fólk er að láta plata sig í að hér sé svakalega yfirbygging hjá ríkinu þá ætti það að skoða málin betur. Og meðal annarra orða þá hefur starfsmönnum fækkað frá hruni um upp undir 1000 minnir mig.
En þessi inngangur er til að benda á grein á visir.is í dag. Þar sem m.a. er bent á eftirfarandi fréttir sem sýna að það er kallað á aukna mönnun hjá ríkinu frekar en fækkun:
Eru ríkisstarfsmenn of margir?
Af nýlegri umræðu má ráða að uppi séu skoðanir um að ríkisstarfsmenn séu of margir, og hægt væri að ná fram sparnaði með því að skera af óþarfa fitulag með því að fækka ríkisstarfsmönnum. Erfitt er að finna vísbendingar sem styðja þessa staðhæfingu. Algengast er efni um hið gagnstæða, þ.e.a.s. að ríkisstarfsmenn séu of fáir. Nokkur nýleg dæmi:
1. Lögreglumenn landsins allt of fáir. Til að tryggja brýnustu þjónustu lögreglunnar á landinu þarf að fjölga lögreglumönnum um 236 eða um tæp 40 prósent. (visir.is 27. júní 2013)
2. 55 læknanemar með tímabundið lækningaleyfi starfa á Landspítalanum í sumar. Langvinn mannekla er hluti ástæðunnar, segir formaður læknaráðs spítalans. (RÚV 20. júlí 2013)
Ekkert krabbameinseftirlit á sumrin. Þeir sem eru í reglubundnu eftirliti vegna krabbameins fengu í vor bréf frá göngudeild blóð- og krabbameinslækninga Landspítalans þar sem kemur fram að vegna manneklu og sumarleyfa verði eftirlitstímum frestað fram á haust. (ruv.is 19. júlí 2013)
3. Ekki jafn fáir starfsmenn síðan 2005. Starfsmönnum háskóla fækkaði um 140 á milli nóvember 2010 og nóvember 2011 og hafa ekki verið færri síðan skólaárið 2005-2006. (mbl.is 13. júní 2013)
Skortur á menntuðu starfsfólki. Háskólarnir eru komnir að þolmörkum vegna aukins álags án þess að starfsfólki hafi fjölgað í samræmi. (RÚV 11. apríl 2013)
Það sem styður þessi dæmi um núverandi skort á ríkisstarfsmönnum eru kannanir á stjórnun og starfsumhverfi ríkisstarfsmanna sem gerðar voru 2006-7 og 2011-12 (sjá vef fjármálaráðuneytisins). Þar má finna skýrar vísbendingar um mikið og vaxandi vinnuálag innan ríkisstofnana. Sjá hér
Svo geta Vigdís og Ásmundur bullað út í það óendanlega um að það megi sko skera niður og hafa gaman af. Sé ekki hvar þau geta gert það. T.d. rekstur allra sendiráða kostar um 2 milljarða. Það er nærri það sama og þessi ríkisstjórn ætlar að láta ferðaþjónustuinni eftir af vsk.
Miðvikudagur, 24. júlí 2013
Svona sparnaður bítur okkur í rassinn fljótlega.
Minnir að þetta hafi verið áætlun sem unnið var að því að útfæra í nærri ár. Mikið af atriðum sem auðsjáanlega hefðu skilað okkur arðsemi á komandi árum auk þess sem þær stuðla að aukningu í greinum öðrum en þessu gömlu og stöðnuðu. Þarna m.a. nýsköpun og rannsóknir sem m.a. er eins og orðana hljóðan sprotafyrirtæki og frumkvöðlar. En auðvita byrjar stjórnin á að skera niður tekjustofna sem áttu að standa að þessu og koma um leið í veg fyrir sennilega einhver þúsundir starfa og auk þess afleiddum störfum. Og versta er að ávinningur af þessum störfum hefðu væntanlega sýnt sig á næstu árum.
"Meðal verkefna sem fjárfestingaáætlunin gerði ráð fyrir voru aukið fjármagn í skapandi greinar, ferðaþjónustu, Græna hagkerfið, rannsóknar- og tækniþróunarsjóði og fjárfestingar í samgöngumannvirkjum og fasteignum. Í fjármálaráðuneytinu er verið að fara yfir þessi fjárfestingaloforð. Alls óvíst er því hversu mikið af þeim verður hrundið í framkvæmd."
Okkur veitt nú ekki af vegna þeirra samninga sem við stöndum að fara að skapa stöf í greinum sem menga minna sem og að huga því að draga úr mengun frá þeim fyrirtækjum sem þegar starfa hér. Eins gildir um samgöngumál og fleira. En nei byrjað á því að skera niður tekjur í þessi mál og síðan hætt við þau öll. Þessi sömu flokkar voru síðustu 4 ár að hvetja til þess að stjórnvöld veittu auknu fé í verkefni sem sköpuðu vinnu.
Það er bara kristaltært að Íslandi dugar ekki að halda að allir geti fengið vinnu við sjávarútveg, ferðaþjónustu og stóriðju. Það þarf að skapa fjölbreytni og þá þarf að ganga á undan með góðu fordæmi og sjóðum og styrkjum sem sprotafyrirtæki og frumkvöðlar geta sótt um í og hjálpa þeim fyrsta áfangan. Slíkt hefur þegar skilað gríðarlegum árangri. Mörg af okkar stærstu fyrirtækjum í dag byrjuðu þannig.
Fjárfestingaáætlun skorin niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 19. júlí 2013
Verði þeim að góðu!
Ef þetta fer eins og ég reikna með og allt fari í loft upp í haust/vetur þá er málið ekkert annað en að bæði Framsókn og Sjálfstæðismenn töluðu um að nú væri tími niðurskurðar lokið nú ætti að fjölga vellaunuðum störfum og um leið lækka öll ég endurtek öll lán fólks. Það fór ekkert á milli mála í aðdraganda kosninga.
Málið var að lækka skatta og víkka út skattstofna með auknum tekjum fólks og þar af leiðir hærri greiðslur til ríkisins þrátt fyrir lækkun tekjuskatts.
Nú verða þessir labbakútar að standa við stóru orðin. Þeir vissu að það væri nær allir kjarasamningar lausir nú á næstu misserum og nokkurn vegin vissu þeir alveg hvernig staðan væri á ríkissjóð.
Þeir töluðu aldrei um niðurskurð þvert á móti sögðu þeir að nóg væri komið.
Svo skipa þessir labbakútar/fóstbræður fólk í þessa hagræðingarnefnd sem er frægt af því að málflutningur þeirra vekur oftar en ekki úlfúð og deilur. Og halda svo þessir flokkar að þetta hafi verið heppilegasta fólkið til að ná fram aðgerðum sem þjóðin sættir sig við og myndi þjóðarsátt?
Verði þessum flokkum að góðu.
Ólík afstaða til launakrafna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 13. júlí 2013
Nú verðu fólk að vera vakandi. Það eru hætturlegar horfur með heilbirgðiskerfið.
- Í umræðu í þessarar viku um að reyna að fá meira fyrir peningana.
Þurfum að auka einkarekstur í heilbrigðiskerfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 12. júlí 2013
Bíddu segir Heimssýn ekki að Írland sé að fara til andsk...?
En viti menn þeir eru að vinna sig upp á meðan að hér skv. ríkisstjórninni er allt að hruni komið. Væri þá ekki betra fyrir okkur að hafa evrur. Lán heimila hafa þó ekki hækkað hjá þeim.
Fyrirtækið nefnir þá ástæðu helsta fyrir jákvæðum horfum að útlit sé fyrir að skuldastaða írska ríkisins lækki hraðar en fyrirtækið hafi áður reiknað með. Gert er ráð fyrir að efnahagsaðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins við Írland ljúki eftir sex mánuði.
Metur horfur jákvæðar fyrir Írland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 11. júlí 2013
Gaman að kíkja á það sem Sjálfstæðismenn sögðu fyrir kosningar í ljósi þessarar greinar Kristjáns.
T.d. sagði hann sjálfur
Það verður að rjúfa þann vítahring skattahækkana og niðurskurðar sem núverandi ríkisstjórn hefur búið til. Við verðum að lækka skatta, ekki hækka þá. Við þurfum að efla nýsköpun og atvinnulíf til að auka atvinnutækifæri, hækka laun hinna lægst launuðu og auka kaupmáttinn. Við verðum að létta byrðar millitekjufólksins, sem flestir á vinnumarkaði á Íslandi teljast til, ekki síst barnafólk. Við verðum að skoða gaumgæfilega allar leiðir til að koma fjölskyldum í landinu undan oki verðtryggingarinnar.Ekkert af þessu kemst í framkvæmd undir núverandi ríkisstjórn. Við þurfum nýja pólitíska forystu. Alþingskosningarnar í apríl næstkomandi eru tækifæri til þess að skipta um stefnu, rjúfa kyrrstöðuna og sækja fram.
Vantar 8.600 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 9. júlí 2013
Þetta sagði forseti vor fyrir skömmu!
Þriðjudagur, 9. júlí 2013
Nokkir vafasamir punktar í röksemdum Forseta
Skv skýringum hans þurfa þingmenn að beita málþófi til að hann setji mál í Þjóðarakvæðagreiðslu. Sbr.
Þegar Alþingi fjallaði um þetta mál, ólíkt þeim málum sem ég hef áður vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu, fór þriðja umræðan bara fram á dagsparti. Ég man ekki nákvæmlega hvað það var, einn eða tveir eða þrír klukkutímar. En um hin málin þrjú, fjölmiðlamálið og Icesave-málin bæði, stóðu dögum og vikum saman, í bæði annarri og þriðju umræðu, harðar deilur á Alþingi,
Og svo hreinlega fer hann ekki rétt með þegar hann talar um 3 milljarðalækkun þvií greinagerð með frumavarpinu segir:
Í meðfylgjandi töflu má sjá hvernig áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum fyrir aflaheimildir geti orðið á rekstrar- og greiðslugrunni fyrir þessi ár samkvæmt frumvarpinu borið saman við forsendur fjárlaga 2013 og ríkisfjármálaáætlunarinnar:
2013 2014 mia. kr. rg. grgr. rg. grgr. Ríkisfjármálaáætlun 13,5 12,6 16,2 14,5 Eftir breytingar 10,3 11,7 9,8 9,8 Munur -3,2 -0,9 -6,4 -4,7
Og einnig segir þar:
Þegar litið er til lækkunar veiðigjaldanna í 9,8 mia. kr. á næsta fiskveiðiári, eins og kveðið er á um í frumvarpinu, má gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum lækki um 3,2 mia. kr. á rekstrargrunni 2013. Þegar metin eru áhrif breytinga veiðigjalda á tekjur ríkissjóðs 2014 skiptir einnig verulegu máli hvert veiðigjaldið verður á fiskveiðiárinu 2014/2015. Ef gert er ráð fyrir að gjaldtakan verði sú sama í krónum talið á því fiskveiðiári, eða alls 9,8 mia. kr., þá má áætla að tekjur ríkissjóðs á rekstrargrunni árið 2014 geti lækkað um 6,4 mia. kr. árið 2014 frá því sem reiknað var með í fyrri ríkisfjármálaáætlun.
Svo hlýtu Ólafur að viðurkenna að það er gjá milli þings og þjóðar núna eins og í fyrri málum sem hann hefur vísað lögum til þjóðarinnar. En nú er telur hann nóg að segja að stjórmálamenn verði að ná sátt vði þjóðina um fiskveiðauðlindinga og arðinn af henni. Ekki mikil áhugi á að vilji þjóðarinnar nái nú fram.
Forsetinn staðfestir lög um veiðigjald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson