Leita í fréttum mbl.is

VR komið heim í sjálfstæðisflokkinn aftur!

Nú er það nokkuð ljóst að Stefán Einar er inngróinn Sjálfstæðismaður. Frægur fyrir smölun sína í flugvél til að taka völdin í SUS eða Heimdalli [man ekki hvort] á Ísafirði um árið. Aldrei verið upplýst hverjir það voru sem borguðu það. Og nú um 2 ára skeið hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki haft stjórn á VR og því ekki seinna vænna að koma sér til valda aftur og það gera félagsmenn VR með glöðu geði með því að kjósa ekki.

Halló maðurinn verður formaður með undir 1000 atkvæðum af 28 þúsund félagsmönnum sem höfðu atkvæðisrétt. Svo er fólk að tala um að stjórnlagaráð sé umboðslaust og þar áður stjórnlagaþing þar voru þó 85 þúsund af um 200 þúsundum sem kusu.


mbl.is Hyggst koma á starfsfriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorry hvaðan kemur þetta fólk í Sjálfstæðisflokknum?

Fer að velta fyrir mér hvort að þau séu ekki í neinum tengslum við raunveruleikan. Þau voru jú sjálf að reka þetta fyrirtæki og vita algjörlega hver staðan er. Ef þetta væri einkafyrirtæki þá væri það á leið í gjaldþrot núna. Og ef svona heldur áfram þá hefði það orðið enn alvarlegra. Sér í lagi þar sem að Reykjavík og aðrir eigendur eru í ábyrgðum fyrir öllum þessum skuldum.


mbl.is Of langt gengið í hækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í ljósi þessara niðurstaðna með OR fer maður að velta fyrir sér hvað Sjálfstæðismenn voru að hugsa

Nú eftir þessar fréttir með OR fer maður að velta fyrir sér ummælum Hönnu Birnu á meðan hún var Borgarstóri þá aftók það með öllu að OR væri í teljandi vandamálum. Og bæði þá og eftir að hennar tíma lauk þá hefur hún talað um að það væri engin þörf á...

Ýmislegt furðulegt í þessari frétt og útreikingum.

Svona bara til að byrja með þá er Icesave samningurinn vaxtalaus til 1 október 2009. Svo sé ég ekki hvernig Breski innistæðutryggingarsjóðurinn getur sótt sér fjármagn á sömu kjörum og Bresk stjórnvöld og Hollensk. Las einhverstaðar að það væri með álagi...

Svo segja hér "Nei" spekingar að fyrirtæki hafi ótakmarkaðan aðgang að lánsfé!

Nú heyrum við af Orkuveitunni. Í síðustu viku heyrðum við frá Landsvirkjun sem jú fá lánsloforð en þau eru skilyrt við fjármögnun og Icesave. Svo getum við nefnt Hafnafjörð og fleiri bæjarfélög sem er boðið upp á lán með 7% vöxtum. Reynið svo að segja að...

Er rétt að fórna Krýsuvík?

Rakst á þessa myndasýningu á YOUTUBE. Þetta þarf virkilega að skoða vel. Við hljótum að þurfa að vernda einhver svæði hér á Reykjanesi og sér í lagi svo fagurt svæði eins og Krýsuvík þar sem margir koma.

Rangfærslur/misskilningur "Nei" sinna

Hlustaði á þáttinn Vikulokin á Rás 1 í gær. Þar var m.a. annarra Dóra Sif Tynes, lögfræðingur sem m.a. hefur unnið hjá ESA - Eftirlitsstofnun EFTA. Hún hafði ýmislegt til málana að leggja: Hún hafði leitað dómafordæma um það að karfa fyrir Íslenskum...

Er Jón bara ekki á móti öllum breytingum?

Svona fyrir utan að við vitum að hann vill reyna að breyta kvótakerfinu, þá finnst mér að hann sé á móti öllum öðrum meiriháttar breytingum hvaða nafni sem þær nefnast. Hlýtur að vera ömurlegt að vera þá í stjórn þar sem mikill meirihluti vill...

Get ekki séð að þetta myndi hjálpa nokkuð við að taka rétta ákvörðun.

Held að "Nei" sinnar hafi nú heldur betur fengið að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í öllum fjölmiðlum og netinu síðustu misseri. Nú er komið nóg. Þetta gildi einnig um "Já" sinna. Hvernig halda menn að þetta yrði. "Nei" sinnar myndu halda fram...

Innlegg í umræðuna

Var að lesa þennan pistil Áhættuhegðun og Icesave eftir Oddnýju G. Harðardóttur formann fjárlagnefndar þar sem hún segir einmitt það sem fólk hætti að hafa í huga: Með dómstólaleið tækjum við mikla áhættu. Gleymum ekki að það var einmitt áhættusækni...

Bara að benda þeim á sem eru að krefjast afsagnar Jóhönnu á eftirfarandi:

Jóhanna gekk ítrekaði eftir því að farið væri eftir jafnréttislögum í þessu máli og hún fullvissuð af þeim sem unnu að þessari ráðningu að svo væri. Enda tölu þau að svo væri. Enda höfðu umsækjendur verið metnir og raðað í ákveðna röð. Þannig að skv. því...

Úps hvernig fer fólk að þessu?

Eru verkalýðsfélög ekki sjálfstæð félög? Ríkði hefur almennt ekkert með þau að gera. Þannig að það væri bort á stjórnarskrá held ég að taka fram fyrir verkefni aðalfunda félagana sem eru jú löggjafarsamkoma viðkomandi félags. Góð hugsun er gengur ekki...

Ég persónulega hefði farið nákvæmlega að eins og Jóhanna!

Skil ekki þetta upphlaup fólks. Fólk hefur verið að mótmæla persónulegum og pólitískum ráðningum ráðherra. Ég persónalega hefði farið eins að. Ég hefði falið sérfræðingi/sérfræðingum að sjá um allt ferlið og hefði síðan látið þeirra mat ráða því hver...

Loksins - Nú verða allir framfarasinnaðir Íslendingar að styðja þau.

Látum ekki þröngsýna aftuhaldsseggi koma í veg fyrir að við komumst upp úr þessar kreppu

Vantar ekki að Valtýr bendi á skýrari dæmi?

Ég býð enn eftir að hann bendi á hvar megi sjá þegar Jóhanna "nánast ærðist" af fögnuði. Forsætisráðherra hefur nánast ærst af fögnuði þegar þessir menn, eða menn úr þessum geira, eru hnepptir í gæsluvarðhald," Og eins þar sem hann skipar Láru V Júlísu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband