Leita í fréttum mbl.is

Getur einhver skýrt fyrir mér eftirfarandi:

Nokkur atrið varðandi þessa ferð Forsetans til Páfa.

  • Ólafur Ragnar segir Guðríði fyrstu hvítu konuna sem kom til Ameríku?  Hvað hefur hann fyrir sér með það að hún hafi verið sú fyrsta?
  • Ólafur segir að hún hafi gengið síðan niður alla Evrópu að flytja Páfa sögu sína af ferðum sínum ´verstur veg.  Hvernig veit hann það? Það sem stingur mig er að hún konan á tímum sem konur voru í flestum löndum útilokaðar frá háum stöðum finnst manni hæpið að hún hafi bara gengið á fund Páfa bara sí sona.
  • Nú var hún Guðríður frá Norðulöndum/Íslandi. Talaði hún rómversku eða hvaða tungumál sem notað var þarna  niður frá.
  • Hvernig stóð á því að Páfagarður gerði ekkert með þessar upplýsingar hennar?
  • Hvernig fór kona að því að ferðast alla leið frá Íslandi niður alla Evrópu á þessum tímum? Þetta er væntanlega margra mánuði sigling, ganga eða hvaða ferðamáta sem hún notaði. Um allskonar lönd og ríki þar sem ólík tungumál eru notuð. Á hverju lifði hún á þessari ferð. Væntanlega ekki mikill farangur sem hægt var að flytja í einu gangandi eða hvernig sem menn hugsuðu þetta.

Nú er þetta nefnt í þeim fáu setningum sem til eru um þessa konu a hún farið í Suðurferð. Hvernig er síðan kominn allur þessi bálkur um að hún hafi farið til að segja Páfa ferðasögu sína? Gat hún ekki verið að fara allt annað. Nú hefur maður m.a. heyrt að víkingum í Konstantínópel þar sem þeir ferðuðust eftir ám. En kona labbandi til Páfa finnst mér frekar ótrúlegt.

Ætli Páfinn og stafsmann hans siti enn og hlæi að okkur eftir fundinn? Ætli páfinn eigi ekki í sjala - og bókasafni sínu einhver gögn um það ef hún kom þangað. Mér skilst að Bókasafn Vadikansins sé bæði mikið að vöxtum og ítarlegt.


mbl.is Forsetinn á fréttastöð páfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló bátar, halló skip!

Lilja, Sigmundur, indefence og fleiri hafa haft sviðsljósið í mánuði og misseri og fengið að fabulera um Icesave lon og don. Lilja síðast nú í janúar með ræður um að Ísland verið gjaldþrota og gott ef ekki að við myndum bara hverfa af yfirborði jarðar. Og ríkisstjórnin sagði varla nokkuð hvað þá samninganefndin. En nú þegar samninganefndin er að kynna samningin eins og hún sér hann og hefu jú mesta þekkingu á þessu þá mál það ekki. Og ríkisstjórn og Alþingi eiga að berjast á móti samningnum líka sem þó 70% þingmanna samþykktu. Þetta er út í hött.

 Minni á það sem forsetinn sagði þegar hann synjaði lögunum staðfestingu Hann sagði eitthvað á þá leið að: nú ættu bæði stuðningsmenn og andstæðingar samningsins að kynna sín sjónarmið á næstu vikum og vinna sínum sjónarmiðum fylgis.

Lilja, Sigmundur Davíð og co hafa fengið að ræða þetta mál alveg nóg takk fyrir.

 


mbl.is Kynning á Icesave ekki nógu hlutlæg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sennilegast réttast að kjósa aftur! Ennnnnn.......

Ég hinsvegar frábið mér þann málflutning að ekki sé heimilt að og í lagi að skipa þennan 25 manna hóp í stjórnlagaráð. Bæði er val þeirra niðurstað atkvæðagreiðslu tæplega 40% þjóðarinnar þannig að fáir ráðgefandi hópar eða nefndir hafa eins víðtækt...

Eru ekki þversagnir í þessu hjá Lilju?

Þetta er nú ekki svo greindarlegt há Lilju. Hvað á hún við með: Ef krónunni verður skipt út fyrir evru á núverandi gengi verður lítið úr skuldum fólks og laun munu smámsaman hækka og nálgast laun í evrulöndunum. Er þetta ekki gott! Og hvað á hún við með:...

Er ekki alveg nauðsynlegt fyrir stjórnarandstöðuflokk að hafa þetta í lagi?

Ef að flokkar eru stöðugt alla daga að setja út á hverning aðrir fara með t.d. fjárlög ríkiisins, er ekki nauðsynlegt að þeir hafa þessi fjármál sín í lagi og sníði sér stakk eftir vexti? Veit að það er með flesta flokka að þeir steypa sér í skuldir en...

Þetta er nú einmitt það sem Þór Saari var að biðja aðra um að gera ekki!

Sem sagt hræðslur áróður af verstu sort. Enda virðist málflutningur Þórs miða alltaf við að hann passi vel í fréttir, en ekki endilega að hann sé réttur. Er það ekki einmitt það sem Þór Saari og fleiri hafa verið að tala á móti að nú hefjist...

Hér er smá pakki varðandi Icesave sem gott er fyrir fólk að kynna sér

Sá frábæri Baldur Mcqueen bloggari tekur hér saman nokkur loforð og yfirlýsingar okkar varðand stöðu bankana og Icesave sem við gáfum m.a Bretum. Stel hér hluta af pisli hans. 3. mars, 2008 Davíð Oddsson fullyrðir, í viðtali við Channel 4, að lítið mál...

Ingibjörg er nú að tala um þingsályktunartillögu en gleymir m.a. þessu

Fréttatílkynning af vef www.forsaetisraduneyti.is : 16.11.2008 Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur...

Finnst þetta með afbrigðum!

Auðvita alltaf spruning hvort að það verði nokkrar kosningar hér á landi sem þola skoðun Hæstaréttar. Örugglega hægt að finna að einhverjum smáatriðum við allar kosningar hér á landi. En það sem ég er að hugsa er það að hér eru allir að heimta "Nýtt...

Þetta missti algjörlega marks hjá bæjarstjórn Vestmanneyja!

Hvað í ósköpunum gengur Bæjarstjórn Vestmanneyja til að blanda ESB viðræðum inn í þetta. Þeir verða að átta sig á að sumir hugsa kannski til framtíðar og telja að við eigum möguleika á betri stöðu til frambúðar innan ESB. Við gætum líka farið í svona...

Svona til að byrja með. - Hvað vita þessir blessaðir menn um eðli þessa máls?

Þeir tala alltaf erlendis um að Ísland muni þurfa að borga 600 milljarða. En það er náttúrulega ekki rétt. Það er talið að eignir Landsbankans gamla séu eða verði um 1200 milljarðar og það séu aðeins vextir í upphafi sem lenda á okkur. Það er eins og...

Rétt að benda fólki á hvað Elvira Méndez Pinedo segir um þetta

Af www.eyjan.is Elvira Méndez Pinedo, doktor í Evrópurétti og dósent við Háskóla Íslands, segir í svari við fyrirspurn Eyjunnar að það sé sitt mat að það myndi vera klárt brot á EES samningnum að fylgja ekki niðurstöðu EFTA dómstóls í hugsanlegu dómsmáli...

Kannski rétt að hnykkja á þessu!

Miðað við að Icesave er talið kosta okkur hugsanlega 47 milljarða sennilega minna. Þá er Íslenska þjóðin að fara að greiða atkvæði um eitthvað sem er aðeins dýrara en Harpa tónlistarhús sem er talið kosta endanlega með öllu um 32 milljarða. Og miðað við...

Væri ekki rétt hjá Heimssýn að flytja inn sterkari boðbera?!

Finnst þetta nú miklar fréttir sem þessi maður flytur. T.d. var það held ég 2009 sem að Vinstri flokkurinn í Svíðþjóð lagið niður kröfu sína um að Svíþjóð segði sig úr ESB. þannig að þeim finnst ESB auðsjáanlega ekki alslæmt þó enstaka eftirlegu kindur...

Hvað segir Lárus Blöndal

Lárus segir að höfnum við samningum og verðum dæmd til að greiða gæti það kostað okkur um 500 milljarða ofan á eigu Landsbankans. Lárus Blöndal sem sannarlega ætti að vita meira um þetta mál en ritstjóri Moggans og þessir sjálfskipuðu sérfræðingar sem...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband