Leita í fréttum mbl.is

Verðum við rekin úr EES?

Nú þegar brjótum vð eina af meginstoðum EES um frjálst fjármagnsflæði. Nú verður m.a. deilt um jafnræði fjármagnseigenda áháð landamærum innan EES sem klárlega er brotið ef við borgum ekki Icesave á meðan allar aðrar innistæður hér á landi eru varðar.

Þetta má lesa á www.visir.is

Dómstólaleiðin ein stendur eftir ef þjóðin hafnar Icesave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu að mati fulltrúa stjórnarandstöðunnar í samninganefnd Íslands. Tapi Íslendingar málinu gæti það leitt til þrýstings á að Íslendingar verði gerðir brottrækir úr Evrópska efnahagssvæðinu.

Bara svona að setja þetta í umræðuna.


mbl.is Kosið 16. apríl?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geðklofa þjóð!

Miðað við þessar niðurstöður þá eru fylgjendur því að málið fari í þjóðarakvæði aðeins nokkrum þúsundum fleiri en vilja samþykkja ICESAVE. Það má því segja að eini árangur forsetans sé að draga lausn málsins í 2 mánuði. Og það verða hér gríðarleg læti.

Nú hafa allir helstu sérfræðingar í lögum og samningum mælt með því að þessi samningur sé samþykktur. Og það sem meira er að þetta eru mennirnir sem andstæðingar þess að semja um Icesave hafa vitnað til.

  • Lee Buchheit
  • Lárus Blöndal
  • Ragnar Hall

Bara svo við nefnum einhverja. Eins má nefna að með samninganefndinni unnu stórar alþjóðalegar lögfræðistofur eins og: "Með samninganefndinni störfuðu náið um lengri eða skemmri tíma þeir Andrew Speirs fjármálaráðgjafi frá Hawkpoint lögfræðistofunni, Nigel Ward lögmaður frá Ashurst lögfræðistofunni" Og þar fyrir utan fjöldi sérfræðinga og ráðgjafa.

Minni á að hvorki Sigmundur Davíð, Þór Saari, Indefence eða aðrir sem fara framarlega í þessari baráttu að synja Icesave, eru sérfræðingar í þessu mál. Þetta eru upp til hópa reynslulitlir menn með menntun út og suður en enginn í samningum milli landa eða evrópskum lögum.

Allir þeir sem unnu að þessu telja að ekki verði komist lengra með samningum. Þarna er búið að semja um afborgunartíma til rúmra 30 ára með þaki á greiðslum á hverju ári þannig að þær fari aldrei yfir 5% af tekjum ríkisins. 70% þingmanna sem hafa legið yfir þessu í í 3 mánuði. Og fengið fullt af sérfræðingum til að fara yfir málið. En nei fólk vill þjóðaratkvæði um málið sem gæti leitt til þess að við fáum hærri reikning, verri greiðslukjör og hærri vexti ef við töpum því.

Ef að 58% ætla að samþykkja hann til hvers er þá af stað farið.

icesave_med-moti


mbl.is 57,7% myndu samþykkja Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagði forsetinn ekki að Indefence hefið vísað í Ragnar Hall í ráðgjöf sinni til hans

Og nú hefur komið fram að Ragnar Hall var með í ráðum varðandi samningin og útfærslu á hans hugmyndum í þessum samningi. Og Ragnar Hall mælir með þessum samningi. Nú held ég að andsæðingar þess að ganga til samninga geti bara ekki bent á neinn sérfræðing...

Gæti þetta verið viðskiptatækifæri?

Er að velta fyrir mér hvort það gæti verið viðskiptahugmynd að stofna fyrirtæki sem safnar undirskriftum til að senda forseta. Þ.e. gæti t.d. verið með undirskriftarlista á lagaer. Auðvelt að safna undirskriftum því að það er stór hópur fólks sem skrifar...

Hefði ekki verið betra fyrir Alþingi og ríkissjórn að kynna málið betur fyrir fólki

Nú er svo mikið bull komið í gang. T.d. hvað vill fólk sem skrifaði undir þessa áskorun til forseta? Veit að þeir sem stóður að henni telja að við eigum ekkert að semja. Þeir telja að við eigum ekkert að borga. En allir lögfræðingar sem um þetta mál...

Lýðskrum!

Svona viðbröðg leysa engan vanda!

Fannst engum furðulegt að forsetinn skulu hafa kalla til Indefence til ráðgjafar?

Og sérstaklega ef að þetta er rétt sem Björn Valur segir: Björn Valur segir að forsetinn hefði getað fengið upplýsingar hjá fjárlaganefnd, en hefði þess í stað kosið að leita ráða hjá InDefence sem hafi sagt honum rangt til, m.a. um hið svokallaða...

Ég lýsi því strax yfir að ég mun segja: JÁ við Icesave og þó fyrr hefði verið

Ólafur er að tala um sátt um málið. En ef að það fer 51% gegn 49% á annan hvorn vegin. Er það sú sátt sem hann vildi? Getur hann kallað það sátt milli þjóðarinnar? Ég vill fá þjóðaratkvæðagreiðslu strax! Og ég vill að Sigmundur og Lilja Mósesdóttir hætti...

Getur einhver nefnt mér einhverja erlenda sérfræðinga sem hafa talið að við ættum að fara með þetta dómstólaleiðina

Eins og ég hef áður bloggað um í dag þá segir Lee Buchheit í Fréttablaðinu: Því hefur verið haldið fram að Buchheit hafi á fyrri stigum málsins talað fyrir því að fara dómstólaleiðina svokölluðu frekar en að leita samninga við Breta og Hollendinga....

Sigmundur Davíð hefur rangfært orði Lee Buchheit alvarlega hér um missera skeið

Úr grein sem Sigmundur Davíð birti í Mogganum fyrir skömmu: Því var meira að segja ranglega haldið fram að Lee C. Buchheit formaður samninganefndarinnar teldi að Íslendingar þyrftu að óttast dómsmál. Þvert á móti hafa hann og fjölmargir aðrir fært rök...

Stjórnarandstaðan og fleiri lugu upp á Lee C. Buchheit

Í ótal mörgum ræðum á Alþingi og í málflutningi andstæðinga Icesave samningsins þá sögðu menn að Lee Buchheit hefði talaði að við myndum vinna Icesave fyrir dómi en af því að hann hefði verið ráðinn sem samningamaður fyrir okkur hefði hann samið. Þetta...

Já kjósum bara!

Það eru um 90% þjóðarinnar með aðgang að netinu. Ef að þjóðin í heild væri á því að fella þennan Icesave samning þá hefði stærri hluti en 37 þúsund skrifað undir. Það má segja að um 190 þúsund kusu að skrá ekki nöfn sín undir þessa ósk til forsetans. Og...

Hvar hefur Vigdís verið síðustu ár!

Veit ekki betur en að Rússar áður Sovétríkin, Frakkland, Bandaríkin og fleiri hafi stundað markvissa kynningarstarfsemi hér á landi. Fjármagnað hinar ýmsu menningarstofnanir og haldið hinar ýmsu kynningar á sínum málstað. Sama gera sendiráð okkar um...

Eru sjálfstæðismenn að tala um skuldir?

Dálítið gaman að 2010 var talað um að skuldir Kópavogsbæjar næmu um 43 milljörðum. Og það var eftir stjórnartíð Sjálfstæðismanna. Það er svipað og þarf að borga Icesave sennilega. Jafnvel þurfum við á endanum að borga minna af Icesave. Ef að 30 þúsund...

Nú er Marinó sérfræðingur í öryggismálum hélt ég.

Hvað segir Marinó t.d. um það ef að fólk getur ekki með góðu móti kannað hvort það er skráð á listann? Eða hvað með ef ég settist nú niður með þjóðskrá opna og skráði bara í rólegheitum 30 nöfn hér. Færi svo heim og skráði 30 nöfn þar eftir þjóðskrá og...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband