Leita í fréttum mbl.is

Það sem mbl.is sleppir í tilvitnun í frétt ruv.is

Þar segir ennfremur að í upphafi hafi íslensk stjórnvöld lagt fram smánarlegt tilboð. Íslendingar hafi ekki ætlað að borga til baka að fullu Icesave lánið - ennfremur hafi íslensk stjórnvöld ekki viljað greiða neina vexti. Næsta tilboð hafi verið örlítið skárra - falið það í sér að greiða upphæðina til baka að fullu á löngum tíma - en ekki neina vexti. Því höfnuðu Bretar og Hollendingar enda hafi það ekki fallið undir skilgreiningar sem Parísarklúbburinn svokallaði - sem fjallar um skuldamál þjóða - setji sér. Icesave málið virðist hafa verið rætt reglulega á fundum Parísarklúbbsins. Rætt er um Nicole Bollen, yfirmann hjá Hollenska fjármálaráðuneytinu - að hann hafi setið fund Parísarklúbbsins sem fulltrúi Hollands 22. til 25. febrúar síðastliðinn í París þar sem þessi mál voru meðal annars til umræðu.

Í skjalinu koma einnig fram umkvartanir hollenskra og breskra stjórnvalda varðandi viðræður þeirra við Íslendinga. Rætt er um að fullur trúnaður hafi átt að ríkja um viðræðurnar. Engu að síður hafi samninganefndir ríkjanna ávalt heyrt um það í fjölmiðlum daginn eftir hvað fram fór á þessum fundum.

Svo leyfa Indefence og Framsókn sér að tala um að kjörin sem okkur hafa verið boðin á Icesave séu úr öllu korti og setja út á stórnvöld. En halló þarna fer tilvitnun í Parísarklúbbuinn sem segir

en ekki neina vexti. Því höfnuðu Bretar og Hollendingar enda hafi það ekki fallið undir skilgreiningar sem Parísarklúbburinn svokallaði - sem fjallar um skuldamál þjóða - setji sér.

Síðan er hægt að vitan í vaxtakjör sem Írland er að fá núna.

En í umræðunni hér á landi var talað um að Bretar og Hollendingar væru að krefjast kjara sem engin önnur þjóð væri rukkuð um í lánasamningum. Og þjóðin gleypti allt sem þessir leikmenn í indefence sögðu eins og þeir væru sérfræðingar í þessum málum. Og m.a. forsetinn gleypti þetta hrátt.


mbl.is Rætt um Icesave í Parísarklúbbnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér við þessa frétt hafa mannvitsbrekkur bloggað (eða hitt þó heldur)

Verða að segja að mat manna á Steingrími þarna í Bandaríska sendiráðinu er svipað mínu. Ég hafði mínar miklu efasemdir um Steingrím sem fjármálaráðherra en verð að segja að maðurinn hefur staðið sig frábærlega og ekki skrítið að eftir því sé tekið víða um heim hvernig okkur hefur gengið að koma okkur áfram hér eftir allt þetta hrun. Og þrátt fyrir að hann hafi þurft ofan á allt annað að berjast við flokksmenn sína meðfram öllu þessu.
 En "mannvitsbrekkur" Moggabloggsins eru samar við sig. Sbr þessar færslur sem nú eru komnar:

 


mbl.is Bjó hjá foreldrum Steingríms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æi ég vill ekki vera dónalegur en greyin farið nú að hætta þessu!

Nú er loks búið að lenda málum með verulegum lausnum fyrir flesta sem skulda. T.d. bara vaxtabætur upp á 200 til 300 Þús á heimili. Niðurgreiðsla á vöxtum og niðurfærsla lána og margt annað. Það er kominn sú staða að lengra verður ekki gengið að sinni....

Gat nú verið bloggarar með allt á hornum sér.

Nú er verið að tala um eftirfarandi lausnir: Kjarnastriði viljayfirlýsingarinnar eru sem hér segir: Eigendum íbúðarhúsnæðis, þar sem áhvílandi skuldir eru umfram 110% af verðmæti eignarinnar, verður boðið með tilteknum skilyrðum að færa skuldirnar niður...

Alveg svakalega þreyttur á þessu fólki

Er ekki rétt hjá mér að samningurinn við AGS nær fram í ágúst á næsta ári? Þau tala um í þessari tillögu að : Verði tillagan samþykkt á efnahagsáætlunin að liggja fyrir 1. mars 2011 og koma þá þegar til framkvæmda. Það er semsagt verið að tala um að...

Hvað er þessu Sjálfstæðismönnum?

Vær gott að einhver benti Sigurði Kára á að stjórnarskrá og breytingar á henni er ekkert einkamál Jóhönnu. Og ef þingmaður sem reyndar komst á þing eftir að annar úr hans flokki hrökklaðist þaðan er að halda svona fram um stjórnarskrá þá hann bara ekki...

Þetta er nú auma þjóðin!

Það eru allir að blaðra um "Nýtt Ísland" "nauðsynlegan aðskilnað framkvæmdar-, löggjafar og dómsvalds. Við skulum ekki einu sinni minnast á eignarhald á auðlindum. En svo þegar að fólk hefur tækifæri á að taka þátt í að breyta grundvallarforsendu...

Furðulegt upphlaup Gunnars!

Nú hefur komið fram í fjölmiðlum áður: Guðríður segir Gunnar ekki lýsa því rétt að honum hafi verið vikið af fundi. „Ég spurði hvort hann ætlaði að sitja með okkur og hann svaraði já. Ég sagði þá að það væri skrýtið þar sem hann hugðist ekki...

Það kaus engin Ólaf til þessara verka!

Ólafur Ragnarvar sannarlega ekki kosinn til að stjórna eða túlka sína skoðun í utanríkismálum og samningum milli ríkja! Og alls ekki að hann hafi nokkurn rétt á að tala fyrir ákveðnum skoðunum erlendis, sem skoðunum þjóðarinnar. Enda hefur hann ekkert...

Er þetta ekki rétt hugsað hjá mér?!

Það er talað um að meðal skuld þeirra heimila í vandræðum sem eru með verðtryggð lán sé um 18 milljónir. Ef að um almennar niðurfærslu upp á 15,5% Þá væri meðal skuldari að fá lækkun upp á 2.790 þúsund. Sem gerir að meðallán verða upp á 15.2 milljónir...

Spurning til spekinga hér á landi!

Nú hefur "fræðingar" hér bæði á þingi og utan keppst við að segja okkur að við hefðum aldrei átt að kalla hér til AGS! Og best fyrir okkur væri að losa okkur við þá hið fyrsta. Nú eru Írar væntanlega mun fleiri en við og hagfræðingar þar fleiri en hér og...

Svona smá ráð til Lilju!

Svona í ljósi þessa óánægju hennar með störf á flokksráðsfundi Vg! Lilja verður að átta sig á að Vg er ekki einn flokka í stjórnarmeirihluta. Ályktun flokkráðs eru væntanlega bindandi fyrir þingmenn flokksins. Og því væri það fáránlegt að samþykkja svona...

Ætli Sigumundur Davið eigi ekki sinn þátt í að 2 ár hafa farið til spillis?

Það væri t.d. gaman að velta fyrir sér hvað Icesave hafi kostað okkur. Þannig mæli Guðmundur Gunnarsson : Óábyrgastir allra voru formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Forseti lýðveldisins stóðst ekki mátið að stíga lýðskrumsölduna í örvæntingarfullri...

Sorry er ekki að hægt að tala við einhvern annan en Ásmund Einar!

Þessi strákur hefur bara ekkert vit á því sem hann er að segja. Hvað á formaður Heimssýnar með t.d. „Ég hef áhyggjur af því að menn hafi í rauninni verið að hafna ferlinu sem er nú í gangi, en á móti kemur að það er enginn mótleikur um það hvað...

Svona bara að velta fyrir mér hvaða dómsstól hafa þeir í huga?

Svona bara að velta fyrir mér hvaða "Alþjóðlegi dómsstóll" það er sem þessir þingmenn vilja að málið fari fyrir? Nú er var þessi aðgerð þeirra byggð á breskum lögum. Getum við farið með þetta fyrir hvaða dómstól sem er. Eins sé ég ekki hvað Indefence...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband