Leita í fréttum mbl.is

Höskuldur á móti lýðræðinu

Hvað eiga Birgitta og Höskuldur við með því að mæta á fund fjárlaganefndar og fyrirfram vera búin að ákveða málsmeðferð og hverja á að spyrja. Það var samið um að kanna 16 atriði betur en það þarf væntanlega að ákveða það innan fjárlaganefndar til hverra er leitað. Það er ekki Höskuldar að ákveða það ein og sér.

Finnst þetta minna á sumarið þar sem hann kom á hverjum degi í fjölmiðla og tjáði sig um hina og þessa fyrirvara sem yrðu að vera inni. En síðan greiddi hann atkvæði á móti málinu sem hann hafði tafið um langan tíma með þvaðrinu í sér.

Miðað við að Höskuldur er lögfræðingur er skilningur hans á hvernig ríki og samskipti við önnur ríki ganga fyrir sig, ósköp takmarkaður.


mbl.is Átök innan Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú vatn á myllu stjórnarandstöðunar!

En nú hafa menn haft aðgang að þessum póstum síðustu 4 mánuði í Möppu trúnaðarskjala. Og því skil ég ekki að menn sem virðast skv. ræðum hafa allt á hreinu varðandi Icesave og hvort við þurfum að borga, en hafa svo ekki lesið þessi göng í möppu sem þeir hafa oft vísað í.

Eins þá er ég að velta fyrir mér út á hvað menn halda að samningaviðræður gangi út á. Meira að segja það sem ég þekki til kjaraviðræðna eru menn að kasta milli sín hugmyndum og útfærslum sem allur hópurinn færi ekki að vita um strax. Og veit ekki hvað fólki gengur til með þessum látum. Og ég veit ekki hvernig nokkur getur samið við okkur í framtíðinni ef að þeir geta ekki treyst að þreifingar milli þeirra séu í trúnaði.

En það er stundum með afbrigðum klaufaskapurinn í þessu máli. Af hverju var t.d. ekki strax í gær sagt að þessi gögn væru í möppunni inn á Alþingi og af hverju var Indriði að gefa upp persónulegt póstfang. Hélt að flest tölvupóstkerfi biðu upp á tryggan vefaðgang í gegum netið.


mbl.is Vilja að leynd verði aflétt af öllum skjölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Moggamenn" fara rétt með!

Af þessu m nærri 9 þúsundum eru nú ekki helmingur með Íslenskt ríkisfang. Eða eins og segir á ruv.is "Af þeim sem fluttu úr landi fyrstu ellefu mánuði ársins eru: 4035 með íslenskt ríkisfang 2152 með pólskt ríkisfang 265 með litháenskt ríkisfang 223 með...

Alveg makalausir bloggarar og athugsemdafíklar

Hef verið að kíkja á sum bloggin við þessa frétt og eins inn á Silfri Egils. Þar eru margir sem eru ánægð með að fá innsýn í hvað þessi blaðamaður Roger Boyes hafi um hrunið hér að segja eftir að hafa dvalist hér um tíma og skrifað bók um málið auk þess...

Já það var nefnilega það!

Heiðrún Lind frá Heimssýn sagði það fullu fetum að Þýskaland væri ekki fullvalda ríki. En við værum það! Jafnvel þó hún sem lögfræðingur ætti að Þýskaland og önnur ríki ESB sameinast um ákveðna þætti fullveldis einmitt til að halda fullveldinu. Því t.d....

Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur

Finnst skrýtið að hafa hvergi lesið nein viðbrögð við fréttir Sjónvarpsins í kvöld. En þar kom fram að OR skuldar um 250 milljarða. Og maður heyrir bara ekkert um þetta þó Reykjavíkurborg sé náttúrulega sem nær eini eigandi OR í ábyrgðum fyrir öllu...

Þetta er nú dálítið sniðugt!

Þarna fara leikstjóri og læknir og eiga fund með AGS og koma af fundinum og úthúða sérfræðingum AGS. Má ég spyrja hvaða þekkingu og reynslu hafa þessir menn varðandi hagfræði og skuldir ríkja. Bendi þeim á að seðlabanki og fjármálaráðuneyti eru að starfa...

Annarri umræðu lýkur á þriðjudag!

Fyrir þá sem hafa verið að fagna sigri stjórnarandstöðunar bendi ég á eftirfarandi: Samkomulag hefur tekist milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að ljúka annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave á þriðjudaginn , þegar greidd verða atkvæði eftir aðra...

Ömurlegt að það sé ekki hægt að treysta orðum stjórnarandstöðunar

Í gærkvöldi komu 2 fréttir þar sem haft var eftir fulltrúum bæði framsóknar og sér í lagi Hreyfingarinnar að skulda staða ríkisins væri mun verri en áður hefði verið sagt. Og Þór Saari sagði að AGS hefði sagt að við stefndum í greiðsluþrot. Nú þarf AGS...

Talandi um dylgjur!

Var að hlusta á Alþingi áðan. Þar talaði Sigumundur Davíð. Í ræðu hans kom fram m.a. sú furðulega skýringa að þeir sérfræðingar sem tali fyrir því að Icesave brjóti ekki gegn Stjórnarskrá og að við eigum að klára málið, séu sérstakir vinir og hreinlega á...

Þetta er nú meiri svartsýnin!

Alveg makalaust hvernig að Þór getur stundum látið. En ef þetta er rétt hjá honum þá væri kannski hægt að benda honum á að drífa Icesave af því þá skipti það engu máli lengur því erum hvort sem er að verða gjaldþrota! Og þá hvað? Er það þá lausn fyrir...

Þetta var nú niðurstaða sem hægt var að sjá fyrir!

Ef að fólk hugsar þetta þá var þetta nú eðlilegur dómur! t.d. ef að gengið hefð jú allt í einu hækkað um helming hefði þá SP fjármögnun átt kröfur til þess að heimta að viðkomandi samningur væri ógildur eða að viðkomandi borgaði meira en semningurinn og...

Er furða þó að þingið sé í uppnámi með þessa þingmenn sem fara nú hamförum.

Svona í tilefni þess að Vigdís Hauksdóttir er efni hér í umræðunni þá langar mig að benda þessari konu sem nú fer hamförum gegn ESB aðildarviðræðum og kennir ESB um Icesave. Vigdís er á Alþingi fyrir flokk sem hafði þetta á kosningastefnuskrá sinni: ......

Gott mál!

Um að gera að fólk tæmi sig núna! Stjórnarandstæðingar eiga að fá að tala sig hása! Það verður gaman í framtiðinni ef einhver nennir að taka ræður þeirra og sjá hvort að þau hefðu ekki komið máli sínu fyrir í einni hálftímaræðu þegar búið er að skila...

Stjórnarandstaðan furðulega sein að "fatta"

Þetta er nú það sem allir hafa verið að tala um síðan sl. ár.Þ.e.að allar aðrar þjóðir hafa verið að þrýsta á okkur að klára þetta mál. Þrýsta, hóta og pressa á okkur. Af hverju heldur stjórnarandstaðan að afgreiðsla AGS hafi dregist? Af hverju halda...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband