Leita í fréttum mbl.is

Nú verður Ómar að endurgjalda greiðann

Það var umtalað í Kópavogi fyrir síðustu kosningar að Sjálfstæðismenn hefðu fjölmennt til að taka þátt í opnu prófkjöri Framsóknarmanna. Þetta gerðu þeir til að að tryggja Ómari Stefáns fyrsta sæti á lista framsóknar í Kópavogi. Þetta var á kostnað Samúels Arnar Erlingssonar sem sjálfstæðismenn vildu síður.

Nú mætir Gunnar á fund með Ómari og hermir þetta upp á hann. Eða að Ómari verður boðið upp á eitthvað fyrir sinn snúð. Betra starf eða eitthvað í þá áttina.

Og að lokum þá verður ekkert breytt í Kópavogi. En ég veit ekki hvort að þeir fá nokkurn frið. Það á eftir að skoða mörg mál í Kópavogi. Ég man eftir bréfum frá verktaka þar sem hann kvartaði yfir því að vera skikkaður til að skipta við Klæðningu við byggingu á knattspyrnuhúsi. Ég man eftir að ákveðnir verktakar hafa fengið alveg ótrúlega fyrirgreiðslur hér í Kópavogi. Og fullt af fleiri málum.

Ef eftir stendur að sjálfstæðismenn í Kópavogi sá ekkert athugavert við það að fyrirtæki dóttur Gunnars hafa verið áskrifendur að verkum í Kópavogi síðustu 18 árin. Þeim finnst það bara allt í lagi.


mbl.is Falið að ræða við Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar er ekki að ná þessu.

Fólk er að gera athugasemdir við að dóttir hans virðist hafa verið með fastar greiðslur frá Kópavogi um áraraðir. Þó að bænum sé heimilt að kaupa verk án útboðs ef þau eru undir ákveðnum mörkum eru við skipti við dóttur hans með öll óeðlileg. Og fjöldi viðskipta bendir til að hún hafi verið á nærri föstum launum frá Kópavogi. Rauðir reitir sýna mánuði sem Frjáls miðlun fékk greiðslur frá Kópavogi

FM

fm2

Sjá nánar á http://www.tidarandinn.is/dotturfelagid

Ps.

Kópavogur: Bærinn keypti föt af bróður bæjarstjórans fyrir 7 milljónir

Kópavogsbær keypti fatnað fyrir starfsfólk bæjarins fyrir 7 milljónir króna í tveimur aðskildum kaupum af fyrirtæki sem er í eigu bróður Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi.

Samkvæmt heimildum Pressunnar áttu fyrri kaupin sér stað árið 2002 og hin síðari árið 2005. Heildarupphæð viðskiptanna milli Kópavogsbæjar og fyrirtækis í eigu Sigurðar Blöndal, bróður Gunnars nam 7 milljónum króna. Leitað var verðtilboða í bæði skiptin og reyndist fyrirtæki bróður bæjarstjórans með hagstæðustu tilboðin.

Viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun, fyrirtæki í eigu dóttur bæjarstjórans, hafa verið mikið í umræðunni síðustu vikur og ekki síður viðskipti Lánasjóðs íslenskra námsmanna við sama fyrirtæki, en Gunnar var þá stjórnarformaður Lánasjóðsins. Samtals er þar um að ræða viðskipti upp á tugmilljónir króna.

Hart hefur verið deilt á Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi fyrir viðskipti við venslafólk bæjarstjórans og fyrir helgi bauð Gunnar Framsóknarflokknum, sem myndar meirihluta í bæjarfélaginu ásamt Sjálfstæðisflokki, afsögn sína sem bæjarstjóra. Sjálfstæðismenn eru margir hverjir hins vegar á því að Gunnar eigi að sitja áfram. Engin samstaða hefur heldur náðst um mögulegan arftaka hans. Hugmyndir hafa líka komið upp um að Gunnar fari í veikindaleyfi sem bæjarstjóri.

(www.pressan.is )


mbl.is Var ekki skylt að bjóða verkin út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkurinn er náttúrulega að pæla í greiðslum í kosningasjóði fyrir næstu kosningar

Eins og myndir í Vogum blaði Sjálfstæðismanna bera með sér þá eru verktakar og fjárfestar stór hluti virkra félagsmanna. A.m.k. myndir sem maður hefur séð frá þorrablótum og öðurm fundum. Þar hafa þekktir verktakar verið stærsti hópurinn, jú og Gunnar í...

Held að þeir ættu nú líka að huga að því að ná sáttum við bæjarbúa!

Nú þegar Gunnar er að víkja úr stóli bæjarstjóra væri kannski ráð fyrir samflokksmenn hans að staldra aðeins við og skoða síðust ár og áratug sem þeir hafa verið í meirihluta hér í bæ. Það er alveg einstakt hér á landi hversu oft Kópavogur hefur farið í...

Eins gott að framsókn geri sér grein fyrir því að þar með eru þau persónulega ábyrg fyrir afleiðingunum!

Furðulegur flokkur Framsókn! Nú alykta miðstjórn flokksins, sem ég geri ráð fyrir að sé ein æðsta stofnun flokksins milli landsfunda, um mál sem þau vita bara alls ekki nóg um. Þó að formaður þeirra sé viss um að við þurfum ekkert að borga. Þetta sé eins...

Það væri nú við hæfi að Sigmundur væri spurður um sínar leiðir að lausnum

Maðurinn dælir hér út svartnætti í hvert sinn sem hann tekur til máls. Skv. honum ætti Hálf þjóðin að vera orðin gjalþrota Ríkð orðið gjaldþrota Börnin okkar og barnabörn gjaldþrota Svo má lesa eftirfarandi á www.pressan.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,...

Nú? Ég skil ekki afhverju Ómar Stefáns vildi ekkert segja í fyrradag

Ómar hafði sagt að hann ætlaði ekki að tilkynna hvað honum og Gunnari hefði farið á milli. Gunnar ætti að kynna það á mánudagskvöld. En þetta sem haft er eftir Gunnsteini þ.e. Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir enn ekki ljóst...

Hugmynd hvernig við reddum Icesave

Fékk þessa hugmynd þegar ég var að skrifa athugasemd einhverstaðar í bloggheimum: Alþingi fær Icesave skuldbindingarnar til með höndlunar fljótlega. Í framhaldi af því veiði skipuð samninganefnd sem skipuð verði þeim Sigmundi Davíð, Tryggva Þór og...

Hér er verið að nota eðlilega spurningu. Enda niðurstaðan skýr

Það er eins og ég segi að fólk ætti ekki að trúa skoðanakönnunum Heimssýnar. Þar er notast við loðnar spurningar sem fólk á erfitt með að átta sig á og lesið út úr könnunum á skrýtinn hátt. Eins og t.d. hér: Hversu mikla eða litla áherslu finnst þér að...

Guð gefi að Vigdís Hauksdóttir komist aldrei í ríkisstjórn

Var að hlusta á þáttinn "Í vikulokin" á rás 1. Og eftir hann segi ég bara þó ég sé ekki trúaður maður: "Guð og/eða góðar vættir gefi að Vigdís komist aldrei í ríkisstjórn" Ég er bara sleginn yfir því sem manneskjan lætur út úr sér. Hún er held ég langt...

Nú er ég ekki löglærður maður en er innistæðursjóður ekki ábyrgur skv. þessu?

Var að glugga í lög um innistæðusjóðinn: Þar segir í 3. gr Viðskiptabankar, sparisjóðir, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu og aðrir sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti, sem hafa staðfestu...

Ekki ætla þeir að gera Gunnstein að bæjarstjóra

Var það ekki Gunnsteinn sem réð undirmann sinn í embætti hjá Kópavogi. Gömul frétt af mbl.is Eftirfarandi frétt birtist á vef www.mbl.is í dag. Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað fyrrverandi formann Íþrótta – og tómstundaráðs í Kópavogi, Gunnstein...

Ætli Þorvaldur hafi frétt af skýrslu Seðlabankans.

Svona af því að vitnað er í Þorvald Þorvaldsson smið þarna niður á Austurvelli er spurning hvort að hann hafi heyrt frá kynningu Seðlabankans á niðurstöðum úr rannsókn þeirra á stöðu heimilanna. Þar er um að ræða nákvæmustu upplýsingar sem völ er á unna...

Gætt að þvi hvað þú gerir maður!

Held að Einari og fleirum á Alþingi ættu nú heldur að halda sig á mottunni. Væri ekki vit hjá þeim að fá til sín sérfræðinga og kanna hvaða möguleika við eigum áður en við ögrum Bretum og Hollendingum aftur. M.a. hefur maður heyrt t.d. EES samningurinn...

Heimsýn ætti nú kannski að segja okkur hvað framtíðarsýn hún hefur fyrir okkur!

Við vitum að þeir eru á móti aðild að ESB. Þeir koma líka með spurningar þar sem fólk þarf virkilega að hugsa sig um hveru þau eru að svara! Þetta á við um fyrri könnun þeirra líka. En hvaða framtíðarsýn boðar Heimsýn okkur? Hvað á að gera varðandi...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband