Leita í fréttum mbl.is

Vek athygli á dugnaði Talsmanna Neytenda

Það kom fram í fréttum að Talsmaður Neytenda er nú búinn að kynna hugmyndir sínar fyrir bönkum og fjármálafyrirtækjum sem þau hafa tekið vel í. En hugmyndin er á þann vega að bankar skipi gerðardóm sem taki höfuðstól lána til einstaklinga og afskrifi eftir einhverju kerfi. Þannig viðurkenni bankar væntanleg afföll á lánum sem verði hvort eð er. Þetta kerfi gengur út á að bankarnir geri þetta sjálfir án kostnaðar fyrir ríkið.

Og skv. því sem maður les á pressan.is eru bankar að skoða þetta. Það kom líka frétt á bylgjunni um að bankar hefðu tekið vel í þetta. En fréttin ekki komin inn á www.visir.is ennþá


mbl.is Nærri 19 þúsund á vanskilaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar bara skilur þetta ekki!

Gunnar talar um að dóttir hans eigi ekki að líða fyrir það að vera dóttir hans. Fyrir utan að greiðslur eru vafasamar þá er bara með öllu óeðlilegt að fyrirtæki dóttur bæjarstjóra og áður forseta bæjarstórnar sé að fá verk án útboðs.

Það er bara því miður að ættingjar verða að líða fyrir tengsl við bæjarstjóra. Öll viðskipti verða háð gagnrýni. En Gunnar lítur held ég á Kópavog sem verktakafyrirtæki sem hann sem bæjarstjóri getur farið með að vild. Og eðlilegt að hann ráðstafi bæjar málum eftir sínum duttlungum

En það voru athyglisverð viðbrögð Ómars Stefánssonar forseta bæjarstjórnar. Það er eins og hann sé að undirbúa stjórnar slit:

„Þetta eru ekki vinnubrögð sem við framsóknarmenn kærum okkur um að séu stunduð í Kópavogsbæ,“ segir Ómar.

og einnig

„Hvernig er með bókhaldið gagnvart öðrum fyrirtækjum? Er víða pottur brotinn eða er þetta bara um þetta eina fyrirtæki,“ spyr Ómar þegar hann er spurður út í það hvað þetta þýði fyrir bæjarstjórnarsamstarf Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.

Ómar segir að boðað verði til fulltrúaráðsfundar eins fljótt og hægt er  og þar verði staðan rædd. Þá hefur hann ekki náð að ræða málið við Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóra Kópavogs vegna málsins.


mbl.is Sé ekki hvað ég hef gert rangt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá vanskil aukast um 0,04%

Held að fréttamenn ættu kannski að hringja í Íbúðarlánasjóð og fá betir upplýsigar en að lepja bara upp eitthvað úr fréttatilkynnigu þeirra. Þá t.d. hefðu þeir vitað að vanskil nú eru langt frá því að vera þau mestu. T.d. las ég frétt frá 2003 á...

Þetta eru nú kannski svona aðeins ýktar fréttir.

Það er staðreynd að alltaf þegar hér hefur aðeins harnað á dalnum í atvnnumálum þá hafa Íslendingar leitað tímbundið í vinnu í Noregi. En þessi frétt hljómar eins og nú sé einhver ógurlegur fjöldi. Get ekki séð það. Hér eru tölur sem ég fann á...

Var að skoða þessar tillögur og ég er bara sammála þeim að mestu

Var að skoða þessar tillögur Sjálfstæðismanna og verða að segja að í stórum þáttum eru þær held ég bara raunhæfar. Enda þegar maður les þær yfir þá eru þær í höfðuatriðum það sem stjórnin hefur veirð að stefna að. Engar óraunhæfar tillögur um flata...

Ekki nokkur leið að fá Sigmund til að segja neitt um hvernig við ættum að leysa þetta mál.

Svona af því að Sigmundur er að rukka um svör og benda á aðrar leiðir þá væri nú ágætt að hann gæti svarað einföldum spurningum! Í Kastljósi í kvöld var hann þráspurður um hvaða dómstóll ætti að taka þessa deilu okkar fyrir skv. Dómstólaleiðinni. Hann...

Auðvita voru við kúguð til að til að skrifa undir.

Hvað héldu menn! Að við gætum unnið áróðursstríð við við Breta? Aðvið hefðum efni á að standa í ára eða áratugastríði við Breta Hollendinga og fleiri? Það hefði lítið tekið á þessar þjóðir þær höfðu allar aðrar þjóðir studdu þær og þetta eru ekki svo...

Fólk fljótt að gleyma!

Voru kröfu Breta og Hollendinga ekki í upphafi að í ljósi yfirlýsinga um ábyrgðir á innistæðum í Íslenskum bönkum að við ættum þar með að borga allar innistæður einstaklinga og fyrirtækja í IceSave. Mig minnir það. Eins hef ég heyrt að fyrra...

Vilhjálmur! Vaxandi hreyfing hér á landi sem vill bara alls ekki standa saman!

Mér er svo gjörsamlega nóg boðið! Ég hélt að Íslenska þjóðin væri einmitt sú sem hún er vegna þess að hér hefur fólk þjappað sér saman þegar að á reynir! Maður getur nefnt t.d. náttúruhamfarir, Þjóðarsátt og hin ýmsu áföll sem við höfum orðið fyrir. Á...

Sorry ég er ekki að ná þessu hjá Eiríki!

Hann veit náttúrulega að þetta voru Íslensk útibú? Hann veit náttúrulega að Bretar og Hollendingar þurftu að borga meiri hluta Icesave innistæðnana? Hann veit að við erum að borga 20 þúsund evrutrygginga? Þannig að ég skil ekki hvað er átt við belti og...

Það er nú spurning hvað hann á við skv. þessari frétt?

Skv. www.ruv.is er haft eftir honum: Tryggingasjóðurinn sé sjálfstæð stofnun sem ríkið beri ekki ábyrgð á. Stefán telur að sjóðinum beri skylda til að greiða reikningana þó ekki sé til nógir fjármunir í honum. Evrópusambandið sé ábyrgt vegna klúðurs í...

Get ekki skilið hvað allir eru að æsa sig yfir þessu núna?

Fólk hefur vitað af því að við mundum þurfa að borga innistæðutryggingar á þeim reikningum sem voru í útibúum bankana erlendis. Skv. ESB/EES reglum voru það rúmlega 20 þúsund evrur af innistæðum einstaklinga á reikningum þar sem upphæðinn var jöfn eða...

Látið stjórnarandstöðu ekki alveg rugla ykkur!

Skuldir okkar vegna IceSave eru í dag 630 milljarðar. En það er verið að miða við gengið í dag. Það á ekki að borga af þessu láni fyrr en eftir 7 ár. Gengið verður væntanlega allt annað þá. Ef það hækkar um 30% þá lækkar þetta lán um 200 milljarða....

Held að stjórnarandstaðan ætti að fara að mínu markmiði næstu misserin!

Ég held að málflutningur stjórnarandstöðunar að allt sem gert er hér af öðrum sé slæmt og allt sé hægt aað gera svo miklu betur, þjóni ekki neinum tilgangi nema þeim að kljúfa þjóðina, draga úr vonum fólks og skapa almennt vonleysi og kannski landflótta....

Af hverju er verið að gera svona mikið úr þessu?

Þetta mál kom upp í tegnslum við komu Dalai Lama. En nú búið að tengja þetta við allt annað. Ef að Össur sem utanríkisráðherra er búinn að leggja fram tillögu um að sækja um aðild að ESB er ekki allt í lagi að kynna sér viðhorf annarra. Og m.a fékk Össur...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband