Leita í fréttum mbl.is

Er Ásmundur Einar að boða þarna möguleg Landráð?

Ásmundur Einar Daðason skrifar grein í Moggann í dag. Þar sem hann sýnist mér boða að ef að áframhald viðræðna við ESB yrði samþykkt í þjóðaratkvæði, þá mundi núverandi stjórnvöld fara til Brussel með sýna hörðustu ESB andstæðinga til að eyðileggja möguleikana á viðundandi samningi. Hann segir:

Það yrði aðildarsinnum líklega mjög til framdráttar ef hörðustu ESB-andstæðingar landsins mættu til Brussel í þeim tilgangi að semja um hvernig aðlögun næstu ára verði háttað. Ef utanríkisráðherra er ekki tilbúinn að setja undirritaðan í forystu fyrir þessari sveit er ekki ólíklegt að t.d. Jón Bjarnason, Guðni Ágústsson eða Styrmir Gunnarsson verði fyrir valinu.  Það gæti orðið enn fróðlegra að fylgjast með því þegar einstök atriði er varða ESB-samningana verða rædd í utanríkismálanefnd Alþingis þar sem Birgir Ármannsson, einn öflugasti ESB-andstæðingur þingsins, gegnir formennsku og undirritaður varaformennsku. IPA- og Taiex-aðlögunarstyrkirnir fá eflaust flýtimeðferð hjá fjárlaganefnd þar sem Vigdís Hauksdóttir, formaður Heimssýnar, ræður ríkjum og varaformaðurinn, Guðlaugur Þór Þórðarson, mun eflaust berjast ötullega fyrir málinu. Forseti Alþingis mun örugglega halda okkur öllum við efnið enda „mikill“ áhugamaður um aðild Íslands að ESB,

Svona í ljósi þess að ef þjóðin vildi að viðræðum yrði haldið áfram og besti mögulegi samningur yrði lagður fyrir þjóðina, þá sé ég ekki betur en að Ásmundur sé að hóta því að núverandi stjórn sé tilbúin að vinna gegn því með öllum ráðum. Og það að hóta því að vinna kerfisbundið gegn hagsmunum þjóðarinnar hlýtur að jaðra við LANDRÁÐ.

Og því er ljóst eftir svona hótanir þá hlýtur Ásmundur og þeir sem hann nefnir að þurfa að segja af sér samþykki þjóðin áframhald viðræðna.


Ríkisstjórnin rassskellt af þvílíkri ritsnild og orðkynngi að maður fellur í stafi.

Las þessa grein á visir.is eftur Hannes Pétursson og flottari skrif óháð efninu hef ég ekki séð í langan tíma svo ég stelst til að birta hana hér:

Rúmfræði


.
Hannes Pétursson skrifar:
Forundarlegt er að fylgjast með snúningum nýju ríkisstjórnarinnar, svigrúmsstjórnarinnar, kringum aðildarumsókn Íslands að ESB. Fyrir alþingiskosningarnar síðustu hétu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur þjóðaratkvæðagreiðslu á þessu kjörtímabili um framhald viðræðna við sambandið, kæmust þeir til valda, enda klókt til atkvæðaveiða vegna þess að í flokkunum báðum er að finna fjölmarga kjósendur hlynnta því að samningsniðurstaða liggi fyrir.

En þegar þingmeirihluti þessara flokka fékkst í kosningunum og saminn hafði verið stjórnarsáttmáli gaf strokkurinn frá sér annað hljóð. Fyrirheitið um þjóðaratkvæðagreiðslu varð eins og hver annar orðaleikur. Lýðræðislega svigrúmsstjórnin hefur því ekki enn séð sér fært að gefa borgurunum lýðræðislegt svigrúm til ákvarðanatöku í ESB-málinu, enda þótt meirihluti þjóðarinnar óski þess samkvæmt skoðanakönnunum.

Bæði helbláir og gallgrænir stjórnarflokkamenn staðhæfa raunar að í alþingiskosningunum sjálfum hafi þjóðin afráðið að slíta aðildarviðræðum við ESB að fullu og öllu. Það eru að vísu falsrök. En setjum sem svo að það væri rétt, hvað dvelur þá Orminn langa, hvers vegna hefur ríkisstjórnin ekki nú þegar afturkallað umsóknina? Hefur hún kannski ekki bein í nefi til þess? Ríkisstjórnin áræddi hvorki annað né meira en að gera fortakslausara hlé á viðræðunum en verið hafði um sinn, viðræðum við ríkjasamband sem hún í öðru orðinu segist hatast við, nýtur þó áfram góðs af öllu því pólitíska brautryðjendastarfi Evrópumanna sem liggur til grundvallar innri markaði ESB.

Enda þótt svigrúmsstjórnin sjái hvorki svigrúm til að halda aðildarviðræðum áfram né að efna til áðurnefndrar þjóðaratkvæðagreiðslu áleit hún sig hafa fullt svigrúm til að krefja ESB um milljónir á milljónir ofan í styrki (IPA), bundna aðildarviðræðum. Yfir alla þessa grautargerð samanlagða slær formaður fjárlaganefndar Alþingis mildum ljóma sem betur fer, hin rósfingraða morgungyðja Framsóknar, Móamanna og Heimssýnarfólksins.

Svigrúm forsætisráðherrans til skuldaleiðréttingar handa „heimilunum í landinu“ dróst saman um sirka þrjá fjórðu hluta milli kosningabaráttunnar og haustsins sem í hönd fór. Skítt með það, stóra svigrúmið hafði þjónað vel tilgangi sínum á atkvæðaveiðunum. Það sem andstæðingarnir héldu fram fyrir kosningar reyndist nú laukrétt, svigrúm allra svigrúma gat aldrei orðið neitt í líkingu við það sem lofað hafði verið statt og stöðugt. Svigrúmið í ESB-málinu varð hins vegar að alls engu. Samt sem áður vísaði ríkisstjórnin því til Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Þar fengi það akademískt yfirbragð. Nú sem stendur brýtur sú stofnun, í umboði stjórnvalda, heilann um þetta þrotna svigrúm og mun skila niðurstöðu sinni hvað úr hverju.

Hagfræðingastéttin er alls góðs makleg. En seint verður sagt að innan hennar líti allir sömu augum á silfrið frekar en gerist og gengur um aðra menn, hvað svo sem verða kann um svigrúmsrannsóknirnar í Hákóla Íslands. Eiginlega er leitun meðal akademískra greina að þrálátari sundurþykkju um leiðir og markmið en einmitt í hagvísindum. Nýlegt dæmi um þetta er hrópandi: Þegar Grikkir höfðu spilað botninn úr buxunum enn einu sinni, nú komnir í evrusamstarfið, voru sex, ef ekki sjö, ofurhagfræðingar frá jafn mörgum löndum beðnir um rökstutt álit sitt á því til hvaða ráða vænlegast væri að grípa í skuldakreppu gríska ríkisins. Þeir lögðust undir feld hver á sínum stað. En þegar úrræðunum var skilað reyndust þau eins sundurleit og mennirnir voru margir.

Sumir hinna nafntoguðu ofurhagfræðinga standa í stórbisniss í þágu fjárfesta. Einn þeirra er Nouriel Roubini (í uppáhaldi hjá Móamönnum). Hann rambaði á að segja fyrir um bankakreppuna á Wall Street árið 2008, kreppuna sem send var þaðan heiminum með beztu kveðju, og hefur síðan ekki látið af að spá og spá eins og sjálfur Jesaja. Fyrri part sumars 2012 fór Roubini stað úr stað í Evrópu líkur hlaupadýri, þefaði víða og sannfærðist um fall evrukerfisins innan fárra daga. Hann ráðlagði áhættufjárfestinum John Paulson eindregið að veðja á hrun evrunnar. Paulson lét ekki segja sér það tvisvar og veðjaði. En það var evran sem ekki hrundi og er um þessar mundir fastari fyrir en nokkru sinni, var á síðastliðnu ári styrkust allra hinna alþjóðlegu mynta. Paulson tapaði hrikalega (einnig Soros gamli á sömu forsendum) og viðurkenndi eftir á að hafa „mislesið“ evrópska pólitík. Roubini hafði nefnilega allur verið í kauphallarhvískrinu, vissi auðvitað ekkert hvað Merkel, Mario Draghi og fleiri hugsuðu. Af Paulson er það annars að frétta að í júní síðastliðnum keypti hann kröfur á Glitni að upphæð 229 milljónir dollara.


Í ljósi umræðu í Kastljósi í kvöld!

Nú er ég ekki á nokkurn hátt að halda því fram að þeir sem eru með lægstu launin séu á boðlegu kaupi. En ég er líka þó ég sé jafnaðarmaður á því að síðustu ár hafa launatöflur skroppið saman því sífellt hefur verið barist fyrir að hækka lægstu launin og...

Lánalækkunin! Af því ég er svo skemmtilegur! :)

Svona eftir lauslega skoðun á gögnum sérfræðinganefndarinnar þá sýnist mér að meðal skuldir heimila séu um eð í kring um 15 milljónir. Og skv. því sem sagt er á höfuðstóll þeirra að lækka um 13% á næstu 4 árum. Og strax á að skipta láni upp í nýtt lán...

Sigmundur Davíð, Ólafur Ragnar og svo Kim Jong Un - Óþægilegar líkar áherslur!

Fólk kannski skilur hvað menn eiga við þegar menn ræða hér um þjóðernishyggju og furðulega ósk/kröfu um samstöðu sem byggir á að allir sætti sig við skoðun leiðtogans þegar fólk les þetta: Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, lagði áherslu á...

Úps var Palli Vill ekki búinn að afskrifa að þetta gæti gerst og vinir hans í Heimssýn

Bara varð að setja þessa fyrirsögn hér á bloggið. Því eins og Páll Vilhjálmsson og félagar í Heimssýn tala þá er og verður algjört svartnætti í ESB til framtíðar og Evran að draga þessi lönd til dauða sem voru plötuð til að taka upp sameiginlega mynt. En...

Það setur að mér ugg!

Svona fyrir utan hvað mikill samhljómur er milli forsetans og forsætisráðherra í ræðunum þá setur að mér ugg varðandi eitt atriði. Nú þegar Ólafur er viss um að við verðum stórveldi c.a. á morgun eða hinn vegna nálægðar okkar við ýmis verðmæti og...

Sammála Össuri um margt í þessu en þó ekki öllu.

Fyrir það fyrsta finnst mér að menn eigi að hefja innri skoðun og endurskoðun stefnu sinnar og verka innan hóps en ekki í fjölmiðlum. Þá væri gott að einhver benti Össuri á að það hafa engar skuldalækkanir farið fram í tíð þessarar nýju stjórnar. Og því...

"Íslendingaheilkennið!"

Alveg frábær greining á Íslandi og Íslendingum í Fréttablaðinu i dag. Sem ég bara set hér inn í heild sinni. Hún er eftir Árni Richard Árnason stærðfræðing sem ég hef ekki heyrt um fyrr, en hann tekur okkur fyrir og finnur út að við erum haldin sérstöku...

Rétt að benda á frétt RUV um þetta mál. Og smá skúbb!

Undirritaður hefur fyrir því heimildir að auk þessa sem segir hér fyrir neðan í frétt RUV þá hafi fengist samþykkt að skipuð verði þverpólitísk nefnd um tillögur að úthlutun afla í nýjum tegundum og gjaldtöku fyrir það á næsta ári. Svo bendi ég...

Skoðun mín á nokkrum atriðum fjárlagafrumvarpsins 2014

Nokkuð ljóst að ég er ekki ánægður með að auðlegðarskattur var tekinn af. Veiðigjald lækkað, vsk. á gistinætur lækkaður. En í stað þess eru sett þjónustugjöld á sjúklinga, aukin gjöld á þá sem skrá sig í háskóla og skorið niður í rannsóknum og nýsköpun....

Ragnheiður Elín ætti nú að kynna sér málin almennilega. Þetta segir Hörður hjá Landsvirkjun

Úr frétt á ruv.is Landsvirkjun getur ekki annast orkuöflun fyrir álverið í Helguvík nema að litlu leyti að sögn forstjórans. Álverð þyrfti að hækka um 30 til 40 prósent svo að hægt yrði að ljúka samningum. Og svo bætir hann við. Takið sérstaklega eftir...

Það er bara þannig að Sigmundi tekst að snúa öll sem aðrir segja á haus.

Jam nú er að ESB sem er að slíta viðræðum! Bíddu hvað átti Sigmundur þá við þegar hann sagði við þá í sumar þegar þeir voru að láta vit að viðræður væri komnar í bið. Þá segir Sigmundur sjálfur að hann hafi sagt þeim Sigmundur Davíð sagðist ekki hafa...

Fjárlög verða ekki afgreidd nema að atvinnulausir fái desemberuppbót

Held að því fyrr sem að Framsókn áttar sig á að fjárlög komast ekkert áfram nema að fundnir verði peningar til að fjármagna desemberuppbót, því fyrr komist önnur mál eitthvað áfram og með því að bjóða stjórnarandstöðu upp á að sleppa þessu nýju...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband