Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Sunnudagur, 26. október 2008
Samfylkingin kemur vel út úr skoðunarkönnun - Vinstri öflin sækja á í kreppu
Það er auðséð að nú þegar kreppir að þá leitar fólk eins og venjulega til vinstri. Eins er auðséð að fólk er meira og meira að átta sig á gildi þessa að fara að hefja undirbúning að samningaviðræðum við ESB.
En gengi náttúrulega ekki í samvinnu við Vg
Laugardagur, 25. október 2008
Sammála Samfylkngunni í Norðvesturkjördæmi.
Held að okkur sé nauðsynlegt að komast í ESB sem er sambandi nú 27 sjálfstæðra þjóða. Við erum nú að taka lán upp á hundruð milljarða til að reyna að lífaga krónuna við. Við erum háð útflutningi og það verður aldrei stöðugleiki á krónunni þannig að til þess að krónan falli ekki verðum við að safna þúsundum milljarða í gjaldeyri og ofan á skuldir okkar núna er það ekki mögulegt.
Auk þess segja allir hagfræðingar, formenn allra samtaka á vinnumarkaði og meirihluti þjóðarinnar að ef við ætlum að vera til sem þjóð verðum við að komast þarna inn. Við mundum ekki lifa af aðra svona sveiflu í nánustu framtíð sem sjáfstæð þjóð.
Spyrjið
Guðmund Ólafsson Hagfræðing
Ólaf Ísleifsson Hagfræðing
Friðrik Már Baldursson Hagfræðing
Þorvald Gylfason hagfræðing
Gylfa Zoega hagfræðing
Vilhjálm Egilsson SA
Gylfi Arnbjörnsson ASÍ
Guðmund Gunnarsson RÍ
Og í raun er sama hvern við hlustum á. Flestir sérfræðinga og formenn hagsmunasamtaka mæla allir með að farið verið í samningaviðræður um inngöngu í ESB og vinnu við að taka upp Evru í framhaldi af því.
Aðildarviðræður við ESB strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 08:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 25. október 2008
Það verður að virða þetta framtak Finns
Mér er sama hvað hver segir þessi gjörð er merki um mann sem áttar sig á ábyrgð sinni og stöðu. Hefði séð í anda fyrrverandi bankastjóra gera slíkt hið sama. En undrast að skilanefndir og bankaráð hafi ekki verið sett betur inn í starf sitt og svona hafi komið fyrir.
Vona að þetta sé fyrirboði um gott starf í "Nýja Kaupþingi"
Bað um launalækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 25. október 2008
Evrópuflokkur?
Hef verið að velta fyrir mér eins staðan er í dag þar sem að stjórnir Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins eru elveg á móti þvi að sækja um aðild að ESB og að taka upp evru, hvort ekki sér grundvöllur til að stofna tímabundið flokk ESB sinna. Sem væri flokkur fyrir þá sem ekki treysta sér að ganga í Samfylkingu. Evrópuflokkurinn gæti þá verið grundvöllur til einhvers tíma fyrir Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn að ganga í og bjóða sig fram í næstu kosningum. Þarna gæfist stuðningsmönnum þessara flokka kostur á að kjósa um valkost sem endurspeglaði vilja kjósenda.
Síðan geri ég ráð fyrir að þessi flokkur mundi taka umtalsvert fylgi af framsókn og sjálfstæðisflokk og jafnvel yrði þá grundvöllur fyrir að Samfylkingin og Evrópuflokkurinn gætu náð til þess meirihluta að koma okkur í samningaviðræður við ESB
Eins er ég að velta fyrir mér hvort að þörf sé á að skapa hér umbótaflokk. Flokk sem hefur að markmið að skera hér upp stjórnkerfi okkar og skapa hér þjóðfélag sem ekki er svona gegnsýrt af einkavinavæðingu og hagsmunapoti.
Krónan stærsta vandamálið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Laugardagur, 25. október 2008
Hvernig ég hef ákveðið að hugsa þessi mál
Vissulega verða hér erfiðleikar en ég hef kosið að hugsa málið þannig að síðustu ár hefur orðið hér verulegur kaupmáttarauki. Hann skiptir mörgum tugum prósenta. Þannig hafa mín laun á síðustu 5 - 6 árum hækkað um rúmlega 45%- 50%.
Ég kýs að líta á ástandið þannig að ég komst af fyrir 5 til 6 árum. Þannig að þó kaupmáttur dragist saman um 10 til 20% eða meira þá ætti ég að hafa þetta af.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. október 2008
Ögmundur farðu nú að slappa af
Ögmundur þú ágæti formaður BSRB átt heldur slappa spretti nú sem þingmaður.
- Þú fullyrtir í vikunni að IMF mundi heimta að einkavætt yrði í heilbrigðiskerfinu, þar skorði verulega niður. Ekki heyrði ég neitt um það.
- Þú fullyrtir að IMF mundi taka hér yfir stjórn á flestum sviðum efnahagslífsins og við gætum okkur ekki hrært.
- Þú fullyrtir að við værum með þessu að skuldsetja ófædd börn okkar
Og þannig hefur þú látið. Nú stefnt er að því að við greiðum lánin okkar við IMF upp eftir 6 ár. Þannig að þau ófæddu börn þurfa að að fara að koma undir.
IMF hefur ætlar ekki að skipta sér neitt að innra skipulagi hér
Þeir fara aftur fram á að við:
- Endurskoðum allt laga- og reglukerfi varðandi fjármálastarfsemi.
- Höldum vöxtum háum
- Reynum að draga úr útgjöldum eins og hægt er
- Reikna með að við komumst yfir þetta á nokkrum árum
Óþarfi að hræða fólk meira en þarf Ögmundur.
Eftir 10 daga eða fyrr liggja þessar áætlanir væntanlega fyrir. Skoðum þetta þá.
Og síðan hvaða lausnir voru þið Vg að boða? Haldið þið að Norðurlöndin hefðu talið sig hafa efni á því að lána okkur hundruð milljarða án þess að einhver stofnun tæki út kerfið okkar til að sjá hvort að við réðum við að koma okkur á réttan kjöl? Heldur þú að við mundum lána einhverjum svona upphæðir án þess að kanna hvort að að þeir geti borgað til baka?
Nú er tími fyrir vinstri menn að snúa sér að því að fylgja því eftir að í þrengingum næstu mánaða og ára að standa vörð um þá sem minnst mega sín.
Efnahagsnefnd fundi á morgun vegna IMF-láns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 24. október 2008
Guðjón við höfum skuldað áður!
Finnst þessi rök um 7% vexti vera út í hött. Það er ekkert ríki sem borgar 7% vexti. Fyndist það furðulegt ef að við værum látin gera það.
Steingrími og Guðjóni svíður það sennilega að reiknað er með að við greiðum þetta lán til baka á 3 árum 2012 til 2015 og eins að þessir peningar verða ekki notaðir sem slíkir í að greiða í bankana. Heldur er þetta gjaldeyrir sem notaður er hér til viðskipta. Þeir gleyma að á móti þessum gjaldeyri sem verður notaður fær Seðlabankinn krónur sem vonandi innan einhverstíma verða einhvers virði aftur. Og eins að þegar að greiðslu lánanna er komið verður hluti þessara lána sem við fáum á næstunni búnir að safna vöxtum.
Guðni vill bara stríð við Breta og gleymir því að nær öll okkar viðskipti fara í gegnum Bretland og því væri auðvelt fyrir þá að gera okkur lífið leitt næstu árin. Og héldi okkur í heljargreypum áfram.
Finnst óþarfi að mála skrattann á vegginn.
Og fyrir okkur Evrópusinna er þessi dagur góður því að áætlun ríkisstjórnar og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins miða að því að hér verði efnahagsumhverfi innan 2 ára sem gera okkur gjaldgeng í ESB og myntsamstarfið.
Ég er ekki að líta framhjá því að hér verðir erfiðir tímar en þetta er ekki eins svart og ég reiknaði með . Nú fer maður bara og reynir næstu ár að halda aftur af sér varðandi utanlandsferðir og dýr tæki. Ég keypti nýjar felgur á bílinn minn því ég ætla að eiga hann áfram næstu árinn í stað þess að skipta eins og til stóð.
Ég ætla að reyna að aðeins að líta á skárri hliðarnar á þessu. Þetta kemur mér og neyslu minni niður í eitthvað sem þótti eðlilegt fyrir 15 árum.
Skilyrði um vaxtahækkanir hjálpa engum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 24. október 2008
Skattleggja fjármagnsflutning erlendis?
Þessi hætta sem Poul talar um varðandi streymi gjaldeyris erlendis er náttúrulega eitthvað sem verður að fást við. Var það ekki leið sem sum lönd hafa farið í að skattleggja sérstaklega gjaldeyri sem ætlaður er í fjárfestingar erlendis? Má ekki nota það hér? Með því hvetjum við til að íslendingar fjárfesti frekar hérlendis.
Mjög erfiðir tímar framundan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 24. október 2008
Kannski að hér sé sönnun fyrir ábyrgð Sjálfstæðisflokksins
Var að glugga í landsfundarsamþykktir Sjálfstæðismanna frá 2007. Það er merkileg lesning. Svo ég hendi bara stóra kafla um Viðskipta og neytendamál í heild sinni hér inn og feitletra það sem ég hjó eftir í henni.
Efni tengt 37. landsfundi 2007Ályktun um viðskipta- og neytendamál
Frelsi í viðskiptum hefur ævinlega verið leiðarljós Sjálfstæðisflokksins og er grundvöllurinn að stefnu hans í þessum málaflokki. Sjálfstæðisflokkurinn telur að hag landsmanna sé best borgið þegar frelsi í viðskiptum og frjáls samkeppni á markaði eru sem mest. Ríkið á ekki að taka beinan þátt í atvinnulífinu en hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að þróa leikreglur og viðhalda þeim til að heilbrigt viðskiptalíf geti þrifist og starfrækja þær stofnanir sem valda því hlutverki að farið sé eftir þessum leikreglum.................
Traust efnahagsstjórn er undirstaða öflugs viðskiptalífs. Efnahagsstjórn síðustu ára á Íslandi hefur átt stóran þátt í að skapa traust á íslensku viðskiptalífi og hefur það leitt til þess að einstaklingar og fyrirtæki hafa áhuga á að hafa atvinnustarfsemi hér á landi og leggja til hennar fé. Stjórnvöld hafa á síðustu árum lagað mjög viðskiptaumhverfið, meðal annars með því að auðvelda viðskipti við önnur ríki og gera fyrirtækjum kleift að hasla sér völl erlendis. Það er mikilvægt að áfram verði unnið að því að bæta viðskiptaumhverfið, sérstaklega með það að leiðarljósi að efla stöðu þeirra fyrirtækja sem starfa í harðri alþjóðlegri samkeppni. Tryggja þarf að allt starfsumhverfi þeirra sé áfram í fremstu röð...........
............Einkavæðing, skattalækkanir og aukið frelsi í viðskiptalífinu hafa skilað bæði íslensku viðskiptalífi og íslenskum neytendum miklum ávinningi.
Fyrirtæki í einkageiranum eru farin að færa sig inn á fleiri svið en áður með jákvæðum ávinningi fyrir neytendur. Húsnæðislánamarkaðurinn er dæmi um þær framfarir sem orðið hafa í íslensku viðskipta- og atvinnulífi á síðustu árum Tryggja skal aðgengi að húsnæðislánum óháð búsetu.........
Mikilvægt er að kostir viðskiptalífsins og almennrar markaðsstarfsemi verði nýttir betur á fleiri sviðum. Þetta er ekki síst brýnt á sviði menntamála og heilbrigðismála þar sem mikið liggur við að framfarir verði örar, góður árangur náist og fjármunir nýtist sem best. ......................
Með því að hleypa viðskiptasjónarmiðum frekar að má því gera ráð fyrir örari þróun, hagræðingu í rekstri og auknum möguleikum á útflutningi á þekkingu og þjónustu. Hið sama má segja um menningarmál, þar kunna að vera auknir möguleikar fyrir hendi ef samkeppnisstaða einkaaðila verður bætt.
Hið opinbera þarf stöðugt að huga að því að lögbundið eftirlitskerfi verði ekki of íþyngjandi fyrir atvinnulífið og þarf að gæta þess að gera ekki óþarfar kröfur til atvinnulífsins og taka ekki upp meira regluverk en nauðsyn krefur. Þá skal lögð áhersla á að eftirlit verði eftir því sem kostur er í höndum einkaaðila, meðal annars með því að fyrirtæki njóti innra eftirlits. Það að ákvörðunarvald um hvaða kröfur skuli gerðar liggi hjá hinu opinbera, þarf ekki að þýða að ríkið þurfi sjálft að hafa allt eftirlitið með höndum. .......................
Held að Sjálfstæðisflokkurinn vildi núna að ekki væri hægt að finna allt á netinu
Endurreisn gjaldeyrismarkaðarins forgangsmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 24. október 2008
Burt með þessar bankastjórnir
Ef að byrja á með þetta leynimakk starx í nýju bönkunum er það gjörsamlega óásættanlegt. Við erum að taka á okkur þungar birgðar vegna þeirra og það er ekki að koma á sátt um þessar stofnanir ef að þær ætla að greiða einhver ofurlaun og gefa þau ekki upp.
Svo burt með þessar bankastjórnir sem gera sér ekki grein fyrir ástandinu. Við viljum fólk þarna inn sem er að starfa fyrir okkur og við getum treyst.
Finnur launahæstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Af mbl.is
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson