Leita í fréttum mbl.is

Veit utanríkisráðherrann ekki hvað þróunarsamvinna er?

Hélt nú að heitið segði nú allt. Þ.e. að koma að þróunarverkefnum í fátækum löndum í samstarfi við viðkomandi ríki til að vinna að þróun þeirra í átt að sjálfbærni! Hefur bara ekkert að gera með móttöku flóttamanna frá Sýrlandi að gera. Þar er um allt annað að ræða!

Gunnar segir:

"Gunn­ar Bragi svaraði því til að fjár­magnið væri ann­ar­s­veg­ar tekið af ráðstöf­un­ar­fé rík­is­stjórn­ar­inn­ar og hins­veg­ar af þró­un­ar­sam­vinnulið ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins. Sagði hann mynd­ina sem um ræddi ekki aðeins verða mik­il­væga heim­ild held­ur jafn­framt náms­efni fyr­ir skóla­börn.

„Það er mjög mik­il­vægt að við drög­um fram þá veg­ferð sem flótta­menn fara í þegar við tök­um á móti þeim,“ sagði Gunn­ar Bragi. „Það voru all­ir sam­mála um það að þetta væri mjög gott og verðugt verk­efni til að sýna þess­ar aðstæður og það góða fólk sem hingað kem­ur."

Og síðar segir hann:

"Gunn­ar Bragi sagði það alrangt að farið væri fram hjá regl­um og að gert væri ráð fyr­ir að fjár­mun­um væri varið til upp­lýs­inga­gjaf­ar um þró­un­ar­sam­vinnu."


mbl.is Segir fjárveitingarnar undarlegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta nú bara ekkert svar!

Sko ef Sigmundur veit það ekki þá er Menntaskólinn í Reykjavík ríkisrekinn skóli. Þar starfar jú einhver bygginarnefnd um væntanlegar viðbætur eða ný hús við skólan. Hún hafði fengið samþykkt hjá Minjanefnd eða forvera hennar að viðkomandi hús yrði rifið. Borgin lagði að ráðuneyti að gera húsið upp. Svo kemur Forsætisráðherra blaðskellandi á facebook og gefur í skyn að það séu borgaryfirvöld í samstarfi við einhverja sem séu að leyfa þetta niðurrif. Sbr.

Ríkisstjórnin hefur engin áform um að láta rífa þetta hús, enda málið ekki hjá henni. Það er furðulegt hvað borgaryfirvöld eru allt í einu til í að leyfa niðurrif jafnvel friðaðra húsa til að troða inn nýjum stórhýsum þar sem þröngt er fyrir

Hefði nú ekki verið viturlegra hjá Forsætisráðherra að tala við sína eigin ráðherra og í framhaldi við fulltrúa í byggingarnefnd MR og stoppa þetta þar. Kynna sér aðeins málin eða er þetta hluti af herferð hans og Framsóknar gegn Samfylkingunni. Þar sem öllum aðferðum skal beitt og lygi og afvegafærsla mála er þar engin fyrirstaða.


mbl.is Sigmundur svarar Degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð bullar eins og venjulega! Ríkið vildi rífa húsið!

Sigmundur Davíð gerir eins og venjulega! Hann kynnir sér ekki málin. Málið er að Borginn hefur átti í stappi þar sem Ríkið (Sigmundur Davíð) hefur viljað rífa húsið og staðið farst á því. Af facebooksíðu Dags B Eggertssonar: Þarna h efði verið...

Mér leiðist svona léttvæg rök eins og Vilhjálmur notar!

Maðurinn ferlega barnalegur í sinni röksemdarfærslu. Hvað á hann t.d. við með IKEA? Nú ætti hann sem lögreglumaður fyrrverandi að vita að fólk má ekki fara með áfengi út af veitingastöðum. Og börn mega hvorki selja né kaupa áfengi. En held að í mörgum...

Hvað kemur Sigmundi Davíð þetta við?

Nú býr Sigmundur Davíð í Garðabæ og er með lögheimili fyrir austan á eyðibýli þar í Fljótsdalshéraði. Svo hvað kemur honum þetta við? Hef ekki heyrt að hann væri spurður út þá fyrirtætlan Kópavogs að selja félagsheimilið þar og flytja bæjarskrifstofur í...

Er ekki ljóst að innan allra trúarbragða leynist illska og skepnuskapur og hefur gert um aldir

Svona í anda þeirra sem tala um múslima og að við eigum að loka landamærum fyrir þeim "skríl" þá væri kannski rétta að spyrja: Eigum við ekki að banna hér Kaþólsku fólki að búa eða flytja hingað? Þau aðhyllast trúarbrögð sem hafa orðið vís að stöðugum...

Gjörsamlega vanhæf Fjölmiðlanefnd!

Hef ekki skoðun á hvort að Mörður er hæfur eða vanhæfur til setu í Útvarpsráði. En þar sem hann hefur jú setið þar síðan í janúar. Það var vitað þá að hann væri varaþingmaður og hann sat á þingi í viku í sumar. Það er náttúrulega furðulegt að þetta skuli...

Dálítið fyndið hvernig meirihlutin vinnur í fjárlaganefnd.

Skv. fangelsismálastjóra þarf sennilega að loka Kvíabryggju þar sem að það vantar um 80 milljónir til að reksturinn gangi upp óbreyttur. En í kvöld var samþykkt að eyða um 75 milljónum í að undirbúa hönnun á húsi fyrir Alþingi byggt á 100 ára teikningum...

Einavinareddingar í gangi ?

Það kom fram í breytingatillögum meirihluta fjárlaganefndar við frumvarp til fjárlaga að selja eigi Þjóðaskjalasafnið. Og flytja það í nýtt húsnæði sem verði keypt eða leigt. Nú í fréttum í kvöld þá kom fram að þjóðskjalavörður hefur ekkert heyrt um...

Ættum við að heimta að kaþólskum kirkjum hér verði lokað

Í Mið og Suður Ameríkur er Kaþólksa ríkjandi trúarbrögð! Og þar er komið fram við konur eins og ég veit ekki hvað. Hér er saga frá Amesty Árið 2008 var Teodora del Carmen Vásquez dæmd í 30 ára fangelsi fyrir morð að yfirlögðu ráði eftir að hafa fætt...

Kristnir hryðjuverkamenn að verki?

Þarna eru eflaust öfgatrúarmenn Kristnir að verki og ekki í fyrsta skipti sem þeir ráðast að fólki og húsnæði þar sem boðið er upp á fóstureyðingar. Ef þetta hefðu verið múslimar þá hefði þetta samstundis verið kallað hryðjuverk. En af því að þetta er...

Er ekki rétt að Ísland gangi á undan í góðu fordæmi og slíti stjórnmálasambandi við þessa þjóð hið fyrsta!

Það gengur ekki að þjóðir heims þori ekkert að ýta við þessu fornaldar fjölskyldueinveldi. Þegar farið er að dæma fólk til dauða fyrir trú eða trúleysi, berja fólk til dauða auk kvennakúgunar þá á olía og fjármálahagsmunir ekki að koma í veg fyrir að...

Allt í lagi! Ef að endanlega er hætt við evru eða aðra erlenda mynnt þá krefst ég:

Að öllum innlendum fyrirtækjum með starfsemi hér verði bannað að gera upp í evrum, dollurum eða annari mynnt en krónunni. Það er óþolandi að það sé svona mismunur í gangi. Að engu fyrirtæki sé heimilt að borga starfsmönnum sínum í erlendri mynnt. Af sömu...

Landsfundur Sjálfstæðismanna ekki að vekja hrifningu! (hér á blog.is)

Það að Bjarni lofar öllum landsmönnum að þeir fái að skipta með sér 5% af Íslandsbanka áður en hann verður EINKAVINAVÆDDUR vekur nú takmarkaða hrifningu enda hefur Kjarninn reiknað það það út að það séu kannski um 30 þúsund á kjaft. Og ég ætla að það sé...

Jæja allt að verða tilbúið fyrir EINKAVINAVÆÐINGU 2

Nú er ríkið væntnlega að fá Íslandsbanka ætli Arion fylgi ekki fljótlega líka. Það er búið að ákvaða að leggja Bankasýslu ríkisins niður um áramót minnir mig. Og þá heyra þessir bankar beint undir Fjármálaráðuneytið! Ætli að Útgerðaelítan fá...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband