Leita í fréttum mbl.is

Hannes heldur því fullum fetum fram að bankakreppa og staða okkar sé Ólafi Ragnari að kenna.

Ég held að Hannes Hólmsteinn hafi slegið öll met í vitleysunni í dag. Heyrði bút úr viðtali við hann á Útvarpi Sögu. Þar hélt hann því virkilega fram að með því að neita að skirfa undir fjölmiðlalögin þá hafi Ólafur Ragnar hrundið þessu öllu af stað. Með því hafi hann komið málum svo fyrir að auðmenn hafi átt öll blöðin og blaðamenn ekki þorað að rannsaka málin hér.

Svei mér þá þá held ég að honum takist illa að dreyfa málinu svona. Það hljóta allir að sjá í gegnum þetta. Það er rétt að Ólafur valdi að styðja við útrásina en svo gerðu flestir ráðherrar og seðalbankastjórar líka. En Hannes verður að viðurkenna að Ólafur hafði ekkert með lög og reglur að gera né eftirlit. Og þó maður fljúgi með viðskiptamönnum til útlanda þá er hann ekki sekur um neitt nema að hafa ekki fengið viðvaranir eins og aðrir frá stofnunum sem áttu að vara okkur við og stoppa þetta brjálæði.

Hér er frétt af www.visir.is um málið.


Hannes Hólmsteinn Gissurarson

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er harðorður í garð þeirra auðmanna sem eiga fjölmiðlana á Íslandi. Í viðtali hjá Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu í dag sagði hann Ólaf Ragnar Grímsson vera klappstýru auðmannanna og sakaði fjölmiðlamenn á Ríkisútvarpinu um meðvirkni og hræðslu í garð auðmanna.

„Með því að auðmennirnir eignuðust fjölmiðlana minnkaði allt aðhald," segir Hannes í viðtalinu og tekur nokkur dæmi. Þar nefnir hann m.a þegar Inga Jóna Þórðardóttir eiginkona forsætisráðherra sagði sig úr stjórn Flugleiða vegna þess að henni hefði ekki líkað hvernig komið var fram þar að sögn Hannesar.

„Fjölmiðlarir gerðu ekki neitt með þetta því þeir voru í eiguumsjón auðmannanna."

Hann sagði fólkið ekki treysta fjölmiðlunum því þeir væru allir keyptir eða leigðir af þessum auðmönnum og miðlarnir myndu ganga erinda þeirra.

Aðspurður hversvegna Ríkisútvarpið hefði ekkert látið í sér heyra segir Hannes að fjölmiðlafólk þar hafi verið meðvirkt því einn daginn gæti það misst vinnuna. „Og þá gæti það eingöngu farið að vinna á fjölmiðli sem auðmennirnir áttu. Þannig að fjölmiðlamennirnir á Ríkisútvarpinu urðu meðvirkir með fjölmiðlamönnum á öðrum stöðum."

Hann sagði einnig að það hefði verið ákveðin samtrygging þeirra sem áttu blöðin um að gagnrýna ekki hver annan. „Það var ekkert heilbrigt aðhald."

Hannes sagði að afrifaríkt skref hefði verið tekið í ranga átt árið 2004 þegar fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar hefði verið synjað af forseta Íslands.

„Ólafur Ragnar Grímsson og auðmennirnir settust upp í einkaþoturnar og lystisnekkjurnar, eignuðust fjölmiðlana, bankana, stærstu viðskiptavinana og gleyptu þetta allt."

Þetta heitir í minni bók að "hengja bakara fyrir smið."!

 

 


mbl.is Árvakur verði almenningshlutafélag á næstu árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað segir visir.is

Reyndar á þetta að hafa gerst í vikunni áður en Kaupþing var þjóðnýttur en hlýtur að vera ólöglegt.

Fréttastofa kannaði í dag hvað væri hæft í þessum orðrómi sem hefur vakið gríðarlega reiði hjá almenningi. Og hann virðist ekki úr lausu lofti gripinn. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að stjórn Kaupþings hafi skömmu fyrir þjóðnýtingu bankans ákveðið að fella niður skuldir æðstu stjórnenda, lán sem viðkomandi einstaklingar höfðu tekið til að fjármagna kaup á bréfum í bankanum.

Það er á huldu hversu margir fengu þessa lúxusmeðferð, að skuldum þeirra hafi verið sópað út af borðinu, en talið er að þeir hlaupi á tugum.

Gríðarlegar fjárhæðir munu hafa verið felldar niður með þessum hætti, og samkvæmt heimildum fréttastofu munu endurskoðendur bankanna hafa rekið augun í að þarna væri maðkur í mysunni.

Sjá nánar

Og á www.ruv.is  stendur líka m.a

Kaupþing afskrifaði skuldir fjölda starfsmanna bankans í lok september, örfáum vikum áður en bankinn var þjóðnýttur. Heimildarmaður fréttastofu, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að stjórn bankans hafi tekið þessa ákvörðun. Fjárhæðirnar munu vera háar og skuldir fjölda starfsmanna munu hafa verið afskrifaðar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu voru skuldir margra stjórnenda Nýja Kaupþings afskrifaðar. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings vildi ekki svara spurningum fréttamanns þegar náðist í hann í dag. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, né Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Nýja Kaupþings


mbl.is FME hefur ekki samþykkt niðurfellingu skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru farnar að berast furðulegar sögur frá bönkunum.

Þetta bréf gegnur nú ljósum logum á netinu. “ Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest tekið að láni) og allar skuldir hreinsaðar við hann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem tóku lán frá 10-1000 milljónir til að kaupa...

Fleiri þingmenn þurfa að fara að átta sig á vilja þjóðarinnar varðandi ESB

Fór í fljótheitum yfrir þingmannalista og hvaða skoðun ég held þeir hafi á aðildarviðræðum við ESB Arnbjörg Sveinsdóttir (ArnbS) 5. þm. Norðaust. Sjálfstfl. formaður þingflokks Nei Atli Gíslason (AtlG) 7. þm. Suðurk. Vinstri-gr. nei Ágúst Ólafur...

Eðlilegt að Samfylking vilji ekki bera ábyrgð á Seðlabankanum

Finnst þetta (ef rétt er) algjörlega eðlilegt. Ef að Samfylkingin getur ekki sætt sig við störf ákveðins embættismanns og hann er ekki látinn fara, þá er eðlilegt að neita því að hann starfi í þeirra umboði. Nú er það Geir sem ber ábyrgð á Seðlabanka og...

Vinstri sveifla en er hún til góðs? Evrópuflokkur?

Ég sem jafnaðarmaður fagna náttúrulega að fólk skuli átta sig á að til að manneskjulega verði tekið á þeim vandamálum sem við göngum nú í gegn, verði það að leita til þeirra flokka sem leggja áherslu á jöfnuð. En til þess að við fáum einhverja...

Ég hvet fólk til að lesa heimasíðu Björns. Nú á að kæfa ESB umræðu aftur.

Mér er t.d. hulin ráðgáta af hverju alltaf er verið að vitna í Jón Daníelsson eins og hann hafi hina einu réttu skoðun. Hann m.a. predika að prenta seðla og taka í kjölfarið á okkur gríðarlega verðbólgu. Í hann vitnar björn um að hættulegt sé að tala um...

Breytingar í vændum? - Niðurstaða skoðanakönnunar Moggans bendir til þess.

Nú er álit fólk fyrst að koma í ljós. Þetta er úr Sunnudags Morgunblaðinu 2 nóv Og 80% vilja evru skv sömu könnun

Held nú að menn ættu nú að passa sig í yfirlýsingum

Finnst eins og menn séu alveg að sleppa sér í að magna upp ástandið. Menn ættu að muna að hér á landi býr fólk sem er mjög viðkvæmt líka. T.d. fólk sem alltaf var hrætt um að það kæmi Suðurlandsskjálfti þó það byggi í Reykjavík og væri aldrei í neinni...

Af hverju í anskotanum var þá ekkert gert?

Manni skilst að Geir hafi verið út um allt að leita að lausnum og peningum. Öll lönd sem hann leitaði til bentu honum á IMF. En Davíð og Geir voru á móti því. Liti illa úr fyrir okkur. Og svo loks í október hrynur allt í hausinn á okkur. Maður gæti nú...

Furðuleg áhersla hjá útgerðarmönnum

Þetta finnst mér merki um að í samtökum útgerðarmanna eru menn sem eru illa meðvitaðir um stöðu sína og landsins. Halda menn að við séum í aðstöðu nú til að fá öll umhverfissamtök upp á móti okkur í viðbót við álitið sem við höfum nú ekki hjá...

Skil ekki að fólk sé hissa á þessu

Nú síðustu mánuði hefur stefna sem byggir á hugmyndafræði Sjálfstæðismanna, Regan og Thatcher hrunið með miklum hvelli og skelfingu hér á landi og víðar. Hér hefur hún gegnið út á að markaðurinn fái nær algjört frelsi auk þess sem eftirlit hefur verið...

Eitthvað skrýtið að gerast í bönkunum síðustu daga.

Var að lesa póst sem Egill Helgason birtir á síðunni sinni. Þetta er mál sem þarf að skoða: Frá bankamanni Smá saga af því sem er að gerast innan bankanna þriggja núna - staðfest frá fyrstu hendi þar sem ég er einn af þeim sem þetta á við. Finnst...

Hvað við græddum á bankabólunni?

Hér á eftir fara nokkur atriði sem við græddum á bankabólunni: Margir fengu að prófa að hafa aðgang að Range Rover og Toyota LandCruser 200 og fleiri tegundum sem menn höfðu ekki prófað áður. En nú eru víst margir að skila þeim. Sumir fengu að fljúga í...

Um 18% stýrivexti

Nú þegar ég er búinn að ákveða að vera bjartsýnn um sinn finnst mér vert að benda á eftirfarandi: Þar til fyrir 2 vikum voru stýrivextir 15 eða 15, 5%. Þannig að við erum að tala um 2,5 til 3% hækkun. Þessir vextir skora lítið inn á verðtryggð lán þar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband