Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Þessi atkvæði sam Einar var að kaupa með þessu verða dýr

Ég var að segja í fyrri færslu að þetta ætti eftir að verða dýrt fyrir okkur að leyfa Kristjáni Lofts að hefja hvalveiðar. Við megum ekki við þessu núna!
mbl.is IFAW: Undrun og vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gat nú verið! Einar að kaupa sér atkvæði í næstu kosningum

Finnst þetta glæsilegt að ögra nú öllum umhverfissamtökum í heiminum. Þannig að ofan í hrun álits fólk á okkar um allan heim vegna bankahrunsins koma nú væntanlega mótmæli gegn okkur og rata væntanlega í heimspressunna. Þannig að það er ekki nóg með að við verðum hötuð vegna taps fólks á peningum vegna okkar heldur verðum við ein af fáum þjóðum sem eru að drepa alla Keikóana í augum margra.
mbl.is Hvalveiðar leyfðar til 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og svo er ekki hægt að reka hann með góðu móti!

Var að lesa eftirfarandi á www.visir.is :

Vísir, 27. jan. 2009 16:08

Óvíst hvort forsætisráðherra er heimilt að reka Seðlabankastjóra

 

Óvíst er hvort forsætisráðherra hafi lagalega heimild til þess að víkja bankastjórum Seðlabankans úr sætum sínum komi ekki til skipulagsbreytingar í bankanum. Margrét Vala Kristjánsdóttir, lektor við lagadeild í Háskólanum í Reykjavík, segir að grunnspurningin sé sú hvort starfsmannalög eigi við í tilfelli Seðlabankastjóra. Samkvæmt þeim sé hægt að víkja embættismönnum úr starfi á tveimur forsendum. Sé um að ræða ávirðingar á embættismanninn þurfi að veita honum áminningu áður en að til brottvikningar úr starfi kemur.

Hins vegar þurfi ekki að veita áminningu ef brottvikning er af öðrum ástæðum, svo sem vegna skipulagsbreytinga. Margrét segir að ef embættismönnum er vikið úr starfi án þess að fyrrgreindum skilyrðum sé fullnægt geti viðkomandi embættismaður látið á það reyna fyrir dómsstólum hvort starfsmannalög hafi átt við og þau verið brotin.

Held reyndar að það væri þess virði að borga þeim bara þennan uppsagnarfrest þó þeir hafi 7 ára samninga. Eins væri að ráðast í kerfisbreytingu og flytja fjármálaeftirlitið inn.


mbl.is Times: „Óvinsælasti maður Íslands?"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágúst Ólafur gefur tækifæri á endurnýjun!

Ágúst Ólafur gerir þarna hárrétt. Hann er ungur maður og slær 2 flugur í einu höggi. Hann sem lauk á sama tíma bæði prófi í  viðskiptafræði og lögfræði minnir mig er náttúrulega maður sem á að mennta sig meira. Um leggur hann sitt á vogarskálarnar til að koma á móts við óskir um endurnýjun í flokkunum í næstu kosningum.

Enda finnst manni að honum hafi ekki liðið allt of vel í þeirri stöðu sem hann var í. Hann getur svo bara komið aftur í slaginn ef honum sýnist svo síðar.

Gangi honum vel í því sem hann tekur sér fyrir hendur.

Rétt hjá honum að pólitík eigi ekki að vera allt. Og engin eigi að vera þar of lengi.

[Smá viðbót vegna misskilnings hjá lesendum. Ég er á því að Ágúst hefð vel getað haldið áfram. Hann hefur veirð heiðarlegur þingmaður og kappsfullur. En er lentur í erfiðri stöðu þar sem aðrir hafa verið teknir fram fyrir hann. Bíða bara spenntur eftir að hann komi aftur]


mbl.is Ágúst Ólafur hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði Davíð verið látinn fjúka í október þá hefði stjórnin kannski setið enn!!

Held að Geir gleymi því að það hefði kannski komið í veg fyrir þessa megnu óánægju. Það sem fólki sveið mest var að stjórnvöld voru ekki að láta neina sæta ábyrgð.  Ég er næsta viss um að ef brugðist hefði verið við í október byrjun strax með því að setja Davíð af hefðu þessi læti ekki stigmagnast svona eins og þau gerðu.

Ef að stjórnin auk þess að takast á við efnahagshrunið, hefði  tekið á þeim stöðum þar sem eðlilegt var að krefjast ábyrgðar þá sæti hún kannski í dag.

Ef að stjórinn hefði upplýst fólk um hvað væri að gerast á hverjum tíma í stað þess að segja alltaf: Já það þarf kannski að uppýsa fólk betur en gera svo ekkert í því.


mbl.is „Samfylkingin bugaðist"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið nú að hætta þessu! - þetta er að verða bull.

Þetta er nú að verða full langt gegnið. Það er búið að segja Forstjóra FME upp og hann á nú bara óvart sín réttindi sem embættismaður ríkisins. Á hann hefur ekki verið sönnuð brot í starfi. Hann hefur starfað eftir þeim reglum og lögum sem um hann voru sett. Og ég er alveg óskapleg þreyttur á því að menn séu alltaf að tala um starfslok sem eina greiðslu. Þetta eru laun í uppsagnarfresti. Held að fólk átti sig á hvað þetta er hallærislegt. Ef maður með 600 þúsund á mánuði er sagt upp þá eru það starfslok upp á 1,8 milljón. Hingað til hefur verið talað um tíman og hann er að fá 12 mánaða starfslok. Held að þetta sér skv. lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna eða hluti af ráðningasamning hans nema hvoru tveggja sé. Þessi laun greiðast m.a. af gjöldum sem fyrirtæki greiða til FME held ég.

Eins nú þegar stjórnin er búin að segja af sér og næsta stjórn kemur til með að hreinsa út úr Seðlabanka, þá finnst mér að Raddir Fólksins ættu nú að fara að vinna að einhverju uppbyggilegu eins og að koma með hugmyndir að því hvernig þeir vilja byggja hér upp. Það er óþarfi að drulla hér yfir alla þingmenn. Það verður jú kosið fljótlega.

Raddir fólksins hljóta að gera sér grein fyrir að þó það sé nauðsyn að breyta hér stjórnarskrá, kosningalögum, og koma á virkara lýðræði þá er ekki hægt að smyrja því ofan á brauð. Við erum á víðsjárverðum tímum þar sem við þurfum að leggjast á árar við að byggja hér upp og skapa verðmæti til að geta komist hér út úr kreppunni. Það verður ekki gert á stjórnlagaþingi. Og það ætti öllum að vera ljóst að stjórnarskrá verður ekki tilbúinn fyrir næstu kosningar.Einfaldlega vegna þess að stjórnarskrá þarf að taka mið af hagsmunum þjóðarinnar ekki bara hugmyndir nokkra aðila sem kalla sig grasrót. Þar þarf að fara um allan heim og týna til í hana öll þau bestu atrið sem aðrar þjóðir hafa gert. Þetta krefst vinnu og þolinmæði, því annars situm við uppi með handónýtt gagn sem við förum ekki eftir eða eigum auðvelt með að fara í kring um.

Flestir stjórnmálamenn sem talað var við í dag og forsetinn voru einmitt að opna á stjórnlagaþing og er það ekki það skynsamlegasta. Til þessa þings yrði boðið öllum þeim færustu sérfræðingum sem við eigum í Siðfræði, stjórnsýslufræðum, lögfræði og mannréttindamálum. Þessu þingi yrði falið að skila af sér t.d. í lok ársins og á næsta ári yrði þing rofið og kosið um nýja stjórnarskrá.

En fyrir alla muni leyfið nú nýrri stjórn og Alþingi að fara að vinna að því sem skiptir máli núna og á næstu mánuðum/misserum.


mbl.is Áfangasigrar í langri baráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú bera mótmælendur ábyrgð á því sem skeður næstu mánuði

Þetta var m.a. krafa mótmælenda að stjórnin færi frá og nú bera þeir ábyrgð því sem skeður hér næstu mánuði. Vonum að allt fari vel!
mbl.is Geir til Bessastaða klukkan 16
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja gott fólk! Nú er stjórnin farin!

Mér sýnist að þetta komi Samfylkingu í forsætirembætti. Nú fá Vg að sýna hvað í þeim býr og hvaða málum þeir ætla að halda halda af þeim sem þeir hafa rætt mest um.

Nú geta mótmælendur farið kannaski að slaka á. 

Vona að samfylkingarfólk fari ekki að gefa eftir af þeim málum sem eru á stefnuskránni.  


mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhamingju Íslands verður allt að vopni þessa daga.

Það má segja að allt verði Íslandi að fjörtjóni þessa dagana. Og að fylgjast með þessum leik í gær tók á. Hvað í ósköpunum þurfti að ræða svona mikið í gær. Held að þau Ingibjörg og Geir hljóti að hafa rætt alla þessa möguleika áður.

Nú eru líkur á því að Vg taki hér við stjórninni. Annað hvort núna fram að kosningum eða eftir kosningar. Og framtíð okkar næstu árinn gætu tekið mið af því. Spurning hvort að þeir ætli að halda fast í þessar hugmyndir sínar um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ESB og Noreg.

Vg hefur verið duglegt að halda að fólki sögum um hversu djöfullegur AGS sé. Þeir séu eingöngu að lána okkur til að ná undir erlenda aðila orkunni okkar og fiskinum í sjónum. Þeir vilja endursemja við AGS eða skila láninu til baka. Þeir gleyma því að aðrar þjóðir sem ætla að lána okkur byggja á áætlun okkar við sjóðinn og ég geri ráð fyrir að þar með séu þau lán úti. Jafnvel gengið svo langt að tengja AGS við eitthvað plott á heimsvísu.

Vg er á móti ESB og halda því fram að ESB stefni markvisst að því að verða sambandsríki eins og USA. Þessu er haldið að fólki þó að í ESB séu margar öll þessi stóru ríki eins og Bretland, Frakkland, Þýskaland, Norðurlöndin að okkur og Norðmönnum undanskildum. Þeir ætlast til að við trúum að æðstu markmið þessar 27 landa sé að steypa sér í eina heild. Ég held nú ekki!  

Af því að Steingrímur þekkir fólk í stjórnmálum í Noregi vill hann leita lausna í að Noregur taki okkur að sér. Veiti okkur lán og leyfi okkur að taka upp þeirra gjaldmiðil. Ég er nú ekki trúaður á að nokkur þjóð af þeirra stærðargráðu geti tekið slíka áhættu. Þetta gæti kostað þá fall norsku krónunnar og verðbólgu. Og norska stjórnin getur væntanlega ekki tekið slíka áhættu fyrir hönd sinna þegna.

 

Nú er fólk að horfa til siðbótar og breytinga hér á landi og það er vel. En ég minni á það leysir ekki vanda okkar í nánustu framtíð. Við verðum að einbeita okkur að því að landið verði byggilegt. Það er til lítils að setja hér upp fyrirmyndarríki ef að fólk á ekki í sig og á. Og stefna eins og Vg hefur boðað eykur hættuna gríðarlega á að hér verðum við afskipt út á hjara veraldar og getum ekkert framkvæmt eða keypt inn nema það sem við hugsanlega gætum fengið í vöruskiptum. Hér væri ekki hægt að fá lán erlendis frá þar sem við værum búin að neita að gangast við kröfum vegna erlendra lána okkar nú.

En þetta er kannski það sem fólk vill. Að minnstakosti eru 60% þjóðarinnar á móti því að möguleikar okkar á aðild að ESB sé skoðað. Og 32% segjast styðja Vg 


mbl.is Vilja taka að sér verkstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábending til "grasrótarhreyfinga"

Held að þið þurfið að athuga vel þær fréttatilkynningar sem þið setjið frá ykkur. Eins og hún er núna er hún alveg svakalega uppskrúfuð og illskiljanleg.

Ályktun fundar ýmissa grasrótarhreyfinga í dag:

Á glæsilegum fundi talsmanna fjölmargra grasrótarhreyfinga um  lýðræðisumbætur var samþykkt að tengja saman grasrótina og mynda  samstöðu breiðfylkingar með það meginmarkmið að koma á nauðsynlegum  breytingum og umbótum á íslensku samfélagi. Breytingum sem ekki verður  undan vikist að gera í kjölfar efnahagshruns þjóðarinnar, allt frá  bráðaaðgerðum til varnar heimilum og atvinnulífi til endurreisnar lýðræðis á Íslandi. Fundurinn samþykkti að vinna að framboði  grasrótarhreyfinga við næstu kosningar

Þetta er hið mesta torf hjá ykkur og kannski í stíl við allt þetta tal um grasrót. Ef þið viljið fá velvild og skilning er nauðsynlegt að tala máli almennings ekki eitthvað uppskrúfað mál.

Veit að þið hljótið að laga þetta


mbl.is Unnið að framboði grasrótarhreyfinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband