Verða bara að vera smá ósammála Andreu
Sunnudagur, 27. maí 2012
Bara að benda á að þarna erum við að tala um stúlku hana Grétu í fjarlægu landi þar sem hún þekkir ekkert til. Ætla henni að fara og tjá sig um mál sem hún veit ekkert um án þess að með henni séu einhverjir fulltrúar til að hjálpa henn er bara út í hött. Það er eins og fólk sé búið að gleyma því að þarna er 25 ára stelpa með hópi tónlistarfólks sem hefur ekkert kynnt sér málin. Og fólk hér heima að dæma hana fyirir eitthvað sem það vildi að hún segði eða gerði. Sorry hvað hefði fólk sagt ef hún hefði verið barin eða fangelsuð? Fyrir málstað sem hún vissi ekkert um bara af því að einhver forsetaframbjóðenda og þingmönnum datt það í hug. Af hverju fór þetta fólk bara ekki sjálft þarna út og mótmælti? Gréta var kjörinn og lag hennar til að taka þátt í þessari keppni. Við höfum ekki hingað til ætlast til þess að fólk okkar mótmælti. T.d. eins og þegar keppnin var í Úkraníu. Og ekki ætluðumst við til þess af Friðriki Þór Friðrikssyni þegar hann fór á Óskarsverlaunahátíðina. Þó að USA brjóti mannréttindi um allan heim. Ekki ætlumst við til þess að landsliðum okkar þegar þau keppa í íþróttum.
|
Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Er stjórnarandstaðan undrandi á þessu?
Fimmtudagur, 24. maí 2012
Hvað ætli þau séu búin að eyða mörgum þingdögum á þessu þingi frá síðasta hausti í málþóf. Það var málþóf fyrir jólafrí, það var málþóf fyrir Páska og það var málþóf núna. Ætli þetta sé ekki farið að leggja sig á 15 daga sem þau í raun hafa tafið þingið....
Og hvað vilja þau í staðinn
Miðvikudagur, 23. maí 2012
Nú er tunnuliðið farið að safna undirskriftum um þingrof og nýjar kosningar. Þetta vekur spurningar um: Hvað vilja þau í staðin. Nú skv. skoðanakönnunum eru Sjálfstæðismenn með um 35% fylgi og Framsókn með um 15%. Eru það þessir flokkar sem þau vilja að...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Gunnar Bragi ætti nú stundum að hugsa málin aðeins.
Miðvikudagur, 23. maí 2012
Svona til að byrja með þá væri ágætt að einhver benti Gunnari á að það voru kröfuhafar í bankana sem eignuðust þá alla. Þ.e. að þeir áttu bankana eða þrotabú þeirra. Það voru stofnaðir nýjir bankar og eigendur þrotabúana þe.. gömlubankana þurftu að...
Aumingja stjórnarandstaðan.
Þriðjudagur, 22. maí 2012
Held að fólk sé búið að kalla þetta yfir sig. Það vill bara engin tala við þau! Þau vilja ekki vinna með stjórnarliðinu að neinu máli og því ætti þá að ræða við þau? Enda verið að tala um peninga sem okkur bjóðast skuldbindingalaust. En stjórnarandstaðan...
Þessari ríkisstjórn verður allt til ama!
Þriðjudagur, 22. maí 2012
Eins og ég hef verið ánægður með vinnubrögð og staðfestu Steingríms J og varnarvinnu t.d. Björns Vals, Árna Þórs og Lilju Rafney þá er mér fyrirmunað að sjá tilgang margra annarra þingmanna VG. Manni verður t.d. hugsað til þess að fyrir 3 árum þá voru...
Gáfulegt eða hitt þó heldur
Mánudagur, 21. maí 2012
Finnst alveg svakalegt að þingmaður geti látið svona. Hún boðar í hverri ræðu að ungtfólk sé bara nærri allt farið til Norðurlanda. Að ungt fólk finni enga sumarvinnu. Að allt ung fólk sé að fara á hausinn. Og svo boðar hún fjármagnslausar framkvæmdir...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bændur ættu nú að kynna sér þetta blað!
Sunnudagur, 20. maí 2012
Þarna kemur fram að ESB er fyrirfram tilbúið að segja að gætt verði að hagsmunum Íslenska landbúnaðarins. Sem og að menn ættu að skoða hvernig við komum út úr Finnska módelinu. Lesið nú blaðið og fáið almennilegar upplýsingar sjá...
Held að þingmönnum væri holt að muna eftirfarandi!
Laugardagur, 19. maí 2012
Meirihluti þjóðarinnar vill nýja stjórnarskrá. Orð þingmanna nú í málþófi eru skrá og verða til bæði sem texti, hljóð og videóupptökur það sem eftir er. Því væri holt fyrir fólk að vanda það sem það segir sem og að bullið í þessu málþófi verður alltaf...
Guð minn góður! Hver skyldi gegna embætti Forseta núna hér á landi?
Fimmtudagur, 17. maí 2012
Svona í ljosi umræðu fólks sem er búið að ræða það stöðugt að Þóra er að verða móðir þessa dagana og því gæti hún verið í fæðingarorlofi eitthvað fram í ágúst og að Jóhanna, Ásta Ragnheiður gætu þurft að axla skyldur Forseta á meðan. Þá er við hæfi að...
Er ekki alveg að ná þessu!
Sunnudagur, 13. maí 2012
Nú verður í fyrsta skipti sem ég kýs ekki Ólaf. Ekkert sérstakt við það. En í dag hefur hann sagt hluti sem ég skil ekki: Ólafur boðar að forseti geti mótað utanríkisstefnu sem er þvert á þá stefnu sem Alþingi setur sér. Hvernig má það ganga upp? Hvaða...
Ótrúlegt málæði um ekki neitt.
Fimmtudagur, 10. maí 2012
Stjórnarandstaðan þarf að tala nokkuð mikið um breytingu á stjórnarráðinu. Hvað ætli sé vit í mörgu ræðum þarna: Ræðulisti Niðurstöður leitar í gagnagrunni: 02.05.2012 16:15:54 -16:17 Hlusta Guðlaugur Þór Þórðarson , um fundarstjórn 699. mál: breytt...
Ég er svona að velta fyrir mér varðandi ráðuneytin.
Miðvikudagur, 2. maí 2012
Nú erum við Íslendingar um 320 þúsund. Hvernig í ósköpunum stendur á að hér hafa verið allt upp í 12 ráðuneyti? Það gerir um 1 ráðherra á hverja 25 þúsund Íslendinga. Þessi tala yrði t.d. um 12000 ráðherrar í Bandaríkjunum. Svona t.d. afhverju þurfti sér...
Sorry er eða var Styrmir í verklýðsfélagi?
Mánudagur, 30. apríl 2012
Ég er nokkuð viss um að ár og dagar séu síðan að Stymir var í verkalýðsfélagi. Og á því ekkert með að vera að skipta sér af þeim. Sem og Guðni Ágústsson. Ef að hann var í félagi Mjólkurfræðinga, getur hann stungið upp á því á félagsfundi hjá þeim. Hann á...
Þetta er nú furðulegt
Sunnudagur, 29. apríl 2012
Hvernig er hægt að segja að: "fjármagnseigendur og lífeyrissjóðir" eigi of mikla eignir? Erum við þá að tala um að einhverjir aðrir eigi lífeyrissjóðina? Finnst þetta barnalegt. Eins þarf Lilja þá að segja okkur hvernig að skattkerfið eigi að ráða við að...


Augnablik - sæki gögn...







