Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Bíddu er þetta mögulegt!

Í fréttinni segir:

"Synji forseti lagafrumvarpi staðfestingar fær það þó engu að síður lagagildi en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu"

Þannig að á morgun tekur ríkisábyrgð gildi. Sem og viðbóta samningurinn við Icesave skuldina. EN síðan ef það færi í þjóðaratkvæði þá gæti verið að ábyrgðin yrði feld og önnur lög sem samþykkt voru 28. ágúst og eru líka um ríkisábyrgð. Og hvernig reiknar fólk með að einhver trúi á að við kunnum fóltum  okkar forráð eða séum ábyggileg í samningum. 

Það gæti því farið að nýju lögin séu í gildi í nokkra mánuði. Á meðan verið er að undirbúa kosningar og þjóðaratkvæðagreiðslu. Síðan taki við önnur lög sem framsókn var á móti sem og lög sem sjálfstæðisflokkur studdi ekki. Og bæði lögin eru um nær sömu hluti.

Eins sem mundi breytast er að sennilega kæmust framsókn og sjálfstæðismenn aftur til valda og færu og semdu um alveg sömu kjör aftur. Og bæru fyrir sig að viðsemjendur væru ósveigjanlegir og ósanngjarnir. Og dómstólaleiðin væru ekki möguleg.


mbl.is Engin ákvæði um frest forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins - Loksins - Loksins!

Ömurlegu máli lokið með ömurlegri lausn. En þó var þessi lausn sú besta sem var í stöðunni. Á morgun verða þessi lög afhent Ólafi Ragnari væntanlega til undirskriftar. Vona að hann geri það samstundis. Þarna inni eru flestir fyrirvararnir sem hann hrósaði í haust. Þannig að hann hefur að mínu mati engar ástæður til að fella stjórnina á þessu. Hann hefur væntanlega fylgst vel með og leitað ráðgjafar færra manna nú þegar. Undirskriftalisti á netinu setur væntanlega á hann þrýsting en má ekki verða til þess að þetta mál eigi eftir að þjaka okkur næstu árinn. Forsetinn má ekki láta von um vinsældir trufla sig.

Stjórnarandstæðingar og fleiri sem greiddu atkvæði gegn þessari ríkisábyrgð töluðu tungum tveimur og hafa gert allan tíman. Í kvöld töluðu þau flest um að við ættum ekki að borga Icesave en samt sögðu þau að lögin frá því í sumar ættu að gilda. En þau lög kveða einmitt á að við ætlum að borga með ákveðnum skilyrðum. En út á við hefur þeim tekist að telja fólki trú um að með því að fella þessa ríkisábyrgð þurfum við ekkert að borga. Það er bara ekki það sem þau sjálf hafa sagt. Og skv. lögunum frá því 28 ágúst og horfum núna eru líkur á að við verðum búin að greiða lánið upp 2024 líka. Þá tala þau alltaf eins og við séum að borga innistæðutryggingarnar beint. Það er ekki rétt. Það er löngu búið að greiða þær út af Hollendingum og Bretum eftir að við samþykktum að þeir lánuðu okkur og sæju um að greiða þær út. 

En loksins er þetta búið! Og fólk getur snúið sér að öðrum málum. Eins og t.d. að auka hér bjartsýni fólks. Fólk er búið að láta misvitra menn troða hausnum á sér á staði þar sem sólin aldrei skin. 

Ég persónulega ætla að ganga bjartsýnn inn í nýtt ár eftir sólarhring.


mbl.is Alþingi samþykkti Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski rétt fyrir stjórnarandstöðuna að lesa þetta blað.

Það segir þarna allt sem menn þurfa að vita sem hafa talað fyrir dómstólaleiðinni:

Aðdragandi málsins væri sá að allir á Ecofin fundinum hefðu verið hissa á þeirri lagalegu óvissu sem við hefðum talið málið vera í. Skýra þyrfti hina lagalegu stöðu málsins og því hefði verið valin sú leið sem farin var. Spurninginn sem hópurinn fékkst við hafi verið mjög skýr en núverandi ástand skapaði force majeur. Þeirri spurningu hefði verið beint til hópsins hvort hægt væri að vekja force majeur en hópurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að komast undan skyldum tilskipunarinnar undir slíkum kringumstæðum. Álitið væri skýrt og öll 27 aðildarríki ESB væru ósammála túlkun Íslands.

Mandelson, fulltrúi framkvæmdarstjórnarinnar í lagahópnum sagði að um hefði verið að ræða málsmeðferð sem stæði fyrir utan EESsamninginn. Þess vegna hefði spurningin sem hópurinn fékk til úrlausnar þurft að vera skýr og afmörkuð sem hún hafi verið. Svara hefði þurft tveimur spurningum.

  • Sú fyrsta hefði verið hvort það að hafa tryggingakerfi sem gat ekki staðið skil á lágmarksinnistæðuvernd væri brot á EESsamningnum.

  • Í annan stað að 24. mgr. aðfararorðanna hafi ekki haft það hlutverk að leysa ríki undan skyldum sínum. Túlkun þessara málsgreinar sé mikilvægust í lagaálitinu. Ekki sé rétt að túlka tilskipunina þannig að ríki beri ekki ábyrgð samkvæmt henni

Og einnig segir þarna

Sellal lagði áherslu á að ekki væri hægt að komast með málið lengra nema að ekki leiki minnsti vafi á lagaskyldunni til greiðslu lágmarksverndarinnar. Fyrr væri ekki hægt að ræða málið á pólitískum forsendum. Hægt væri að byggja viðræðurnar á áliti lagasérfræðinganna. Ef að aðilar geti komið saman um það þá sé hægt að ná niðurstöðu fljótt og vel, og ESB og aðildarríkin muni koma hratt til aðstoðar til þess að loka ,,fjárhagspakkanum'' á vettvangi IMF. Nefndi hann bréf Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB, til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, og Macro Financial Assistance líka í þessu sambandi.

Þá kemur fram síðar að um leið og búið væri að ganga frá þessu máli væru Norðurlandaþjóðirnar og ESB tilbúin að atstoða okkur á allan hátt m.e. varðandi lánasafnið tengt AGS.

Hvet fólk til að lesa þetta minnisblað sem er hægt að finna hér http://file.wikileaks.org/leak/icesave-eu7.pd

Athugið að það byrjar á skýringu frá wikileaks á ensku en síðan kemur minnisblaðið á Íslensku

Held að Sigmundir Davíð og félagar í indefence ásamt fylgifiskum í Sjálfstæðisflokknum ættu að lesa þetta áður en þeir tala um að það hefði engar afleiðingar fyrir okkur að fella ábyrgð á Icesave láninu og halda því fram að það sé auð unnið fyrir dómsstólum


mbl.is Wikileaks birtir minnisblað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var reyndar búinn að blogga um þetta en þetta skjal er held ég á netinu!

Og það er búið að vera það síðan í sumar. http://www.island.is/media/frettir/MB_290309.pdf

Össur kannast ekki við skýrslu..

Innlent - þriðjudagur, 7. júlí, 2009 - 18:17

Össur kannast ekki við skýrslu breskra lögmanna um Icesave. Var samin sérstaklega fyrir Össur

ossurskyrsla.jpg

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kannast ekki við skýrslu lögfræðistofunnar Mischon de Reya í London um Icesave-málið. Skýrslan, sem dagsett er 29. mars á þessu ári, er merkt sem trúnaðarmál, og fram kemur á forsíðu hennar að hún sé sérstaklega samin fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Skýrslan var birt opinberlega í dag að kröfu alþingismanna eftir að Morgunblaðið sagði frá tilvist hennar.

„Ég hef ekki beðið það um neina vinnu fyrir mig eða utanríkisráðuneytið og kannast ekki við það,” segir Össur.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Haft var eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að  skýrslan  snúist aðallega um eigur Landsbankans í Bretlandi og meðferð þeirra þar. 

Í skýrslunni kemur fram að engin skrifleg staðfesting hafi fengist á því að íslensk yfirvöld hafi formlega undirgengist skuldbindingar vegna tryggingarsjóðs innistæðueigenda. Í skýringu fjármálaráðuneytisins í dag kemur fram að samninganefnd Íslands vegna Icesave reikninganna hafi leitað til fjölmargra aðila, þar á meðal þessarar lögfræðistofu.

Haft var ennfremur eftir fjármálaráðherra að þetta hefðu verið minnispunktar fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, fyrir fund hans með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, um málefni Landsbankans. „Aðalinntakið snýr að eignum Landsbankans og meðferð þeirra í Bretlandi og það var í því máli sem var stuðst við ráðgjöf þessa fyrirtækis en ekki í málinu almennt.”

Össur kannast hinsvegar ekki við þetta plagg og segir fyrirtækið ekkert hafa unnið fyrir sig.

Tekið af www.hvitbok.vg

mbl.is Steingrímur segist trúa Össuri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég heimta að eftirfarandi verði upplýst!

Í ljósi látanna á Þingi í kvöld. Þá heimta ég að eftirfarandi verið upplýst í þessu máli.

  • Hversu oft fór Svavar Gestsson á klósett á meðan hann vann að samningum?
  • Hversu margar lögfræðistofur eru í Bretlandi og af hverju var ekki talað við þær allar?
  • Af hverju er ekki búið að gera og gefa út æviminningar allra samninganefndarmanna okkar frá því í október 2008 til dagsins í dag?
  • Af hverju er ekki búið að senda auglýsingar í erlend blöð þar sem auglýst er eftir gögnum sem stjórnarandstaðan getur notað til að tefja málið?
  • Af hverju er ekki búið að kortleggja allar færslur út og inn af Icesave frá stofnun og fjalla um hverja þeirra úr stóli Alþingis?

Nei ég meina það! Það eru hér stjórnvöld og samningamenn sem eru búin að taka afstöðu til þessa máls. Ákveða leiðina sem var farin í samningum og þeir liggja fyrir. Svo eru menn að æsa sig yfir gögnum sem Lögfræðistofa er að senda núna þar sem að hún telur að hægt hefði verið að sækja mál gegn Bretlandi en ekki af stjórnvöldum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. En önnur stofa taldi ólíklegt að það mál ynnist. Og í framhaldi af því voru skilanefndum boðin stuðningur í slíka málshöfðun. Þetta eru gögn sem Mishcon de Reya fékk  einhverstaðar að og taldi ekki skipa meira máli en svo að þeir lögðu það ekki fram með álitum sínum. Ef það er ekki annað markvert er stjórnarandstaðan bara kaupa sér athygli hjá almenning.

Það var tekin ákvörðun um að gera ákveðin samning við Breta og Hollendinga í vor. Hann endurbættur í haust og um ríkisábyrgð á honum er verið að greiða atkvæði.

PS smá viðbót. Ég googlaði dagsetningu þessara glærur sem talað var um á þingi og fann þetta bara svona strax.

http://www.island.is/media/frettir/MB_290309.pdf

Þetta fann ég inn á http://www.hvitbok.vg/Profilar/OssurSkarphedinsson/OssurKannastEkkiVidSkyrslu/

Þar segir

Össur kannast ekki við skýrslu..

Innlent - þriðjudagur, 7. júlí, 2009 - 18:17

Össur kannast ekki við skýrslu breskra lögmanna um Icesave. Var samin sérstaklega fyrir Össur

ossurskyrsla.jpg

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kannast ekki við skýrslu lögfræðistofunnar Mischon de Reya í London um Icesave-málið. Skýrslan, sem dagsett er 29. mars á þessu ári, er merkt sem trúnaðarmál, og fram kemur á forsíðu hennar að hún sé sérstaklega samin fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Skýrslan var birt opinberlega í dag að kröfu alþingismanna eftir að Morgunblaðið sagði frá tilvist hennar.

„Ég hef ekki beðið það um neina vinnu fyrir mig eða utanríkisráðuneytið og kannast ekki við það,” segir Össur.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Haft var eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að  skýrslan  snúist aðallega um eigur Landsbankans í Bretlandi og meðferð þeirra þar. 

Í skýrslunni kemur fram að engin skrifleg staðfesting hafi fengist á því að íslensk yfirvöld hafi formlega undirgengist skuldbindingar vegna tryggingarsjóðs innistæðueigenda. Í skýringu fjármálaráðuneytisins í dag kemur fram að samninganefnd Íslands vegna Icesave reikninganna hafi leitað til fjölmargra aðila, þar á meðal þessarar lögfræðistofu.

Haft var ennfremur eftir fjármálaráðherra að þetta hefðu verið minnispunktar fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, fyrir fund hans með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, um málefni Landsbankans. „Aðalinntakið snýr að eignum Landsbankans og meðferð þeirra í Bretlandi og það var í því máli sem var stuðst við ráðgjöf þessa fyrirtækis en ekki í málinu almennt.”

Össur kannast hinsvegar ekki við þetta plagg og segir fyrirtækið ekkert hafa unnið fyrir sig.


mbl.is Meginefnið liggur skýrt fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru það ekki sjálfstæðismenn sem komu í veg fyrir bindandi þjóðaratkvæðagreiðslur?

Er það ekki rétt munað hjá mér að í voru fyrir kosningar komu Sjálfstæðismenn í veg fyrir breytingar á stjórnarskrá sem gerði skoðanakannanir bindandi?  Man ekki betur. Og nú á að fara að nota þetta sem er þá skv. stjórnarskrá ekki bindandi fyrir ríkisstjórn né Alþingi.

Er ekki kominn tími til að hætta þessari vitleysu?

Það hljóta allir að sjá hvað gerist þegar við höfunum Icesave!

  • Stjórnin fer frá
  • Ný stjórn verður aðeins hrist af Hollendingum og Bretum. Og hleypur til að klára málið.
  • Gengið verður frá ríkisábyrgð lítið breyttri en ný stjórn ber við að horfur séu nú hagstæðari.
  • Við erum í engri stöðu til að standa í langvinnu stríði. Það er með ólíkindum að meiri hluti þjóðarinnar láti fólk eins og Sigmund Davíð, Höskuld, og Vigdísi plata sig. Þarna fara einstaklingar sem vita lítið um hvað þau eru að tala. Ef fólk les eða hlustar á ræður þeirra þá dettur það stanslaust um fullyrðingar þeirra sem standast ekki. Eins og það hafi engar afleiðingar að fella þessa ábyrgð. Þetta er hlutur sem þau vita ekkert um. Þór Saari er þó heiðarlegur og segir að þetta kosti okkur nokkur mjög slæm ár!
  • Heldur fólk að Steingrímur eða Jóhanna eða flokkarnir þeirra væru á þessari vegferð ef þau hefðu auðveldari lausnir?
  • Heldur fólk virkilega að stjórnamálamenn fari af stað með svona erfið mál ef að til væru auðveldari og betri lausnir?

Æ verið ekki svona vitlaus.

Ekki vanur að vitna í Bjarna Harðar en er sammála þessu hjá honum:

Mikið væri nú gott að trúa Mogganum og stjórnarandstöðunni þegar kemur að Icesave.

Að Íslendingar geti gert miklu betri samninga um Icesave.

Að Alþingi geti einfaldlega sagt hvað eigi að standa í samningunum sem íslenska ríkisstjórnin fari svo og segi Bretum og Hollendingum -  sem væntanlega hneigja sig fyrir hinum göfugu eyjaskeggjum.

Að Steingrímur J. hafi vitaskuld sett illviljaða og lata kjána í samninganefndina og allir aðrir geti búið til betri samninganefndir og fengið betri niðurstöðu. 

Að það sé ekkert því til fyrirstöðu að fella nú Icesave og hleypa þar með stjórnarandstöðunni að samningaborðinu. Sömu flokkum og sköpuðu það ástand sem nú er unnið úr. Sjálfstæðisflokknum sem talar út og suður í málinu og lagði sjálfur drög að Icesave-samningum sem voru sínu verri en þeir vondu samningar sem nú liggja fyrir.

En mikil má Moggatrúin þá vera!

Já einmitt fólk skildi muna það að Sjálfstæðisflokkurinn stýrði samningviðræðum um Icesave fram til Febrúar 2009 og hvernig gekk þeim?


mbl.is Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrumarar

Þessu fólki hefur tekist að telja fólki trú um að það þurfi ekki að semja. En samt ef þið lesið allar ræður þeirra þá tala þau öll um að vissulega ætlum við að standa við skuldbindingar okkar. Bara ekki þennan samning.

Birkir Jón Jónsson (BJJ)
Eygló Harðardóttir (EyH)  
Guðmundur Steingrímsson (GStein)  
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS)
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ)   
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG)  
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ)
Siv Friðleifsdóttir (SF)
Vigdís Hauksdóttir (VigH)

Árni Johnsen (ÁJ)  
Ásbjörn Óttarsson (ÁsbÓ)
Birgir Ármannsson (BÁ)   
Bjarni Benediktsson (BjarnB)   
Einar K. Guðfinnsson (EKG)    
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ)    
Illugi Gunnarsson (IllG)
Jón Gunnarsson (JónG)   
Kristján Þór Júlíusson (KÞJ)  
Ólöf Nordal (ÓN)    
Pétur H. Blöndal (PHB)   
Ragnheiður E. Árnadóttir (REÁ)
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR)
Tryggvi Þór Herbertsson (TÞH)
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK)
Þorgerður K. Gunnarsdóttir   

Birgitta Jónsdóttir (BirgJ)
Margrét Tryggvadóttir (MT) 
Þór Saari (ÞSa)

Ætlaði að

týna út þá sem tel að ekki séu hættulegir þjóðarhagsmunum en nenni því ekki. Þau kjósa að vera í liði með fólki eins og Vigdísi Hauksdóttur, Höskuldi Þórhallssyni, Jóni Gunnarssyni og Árna Johnsen svo nokkur dæmi séu nefnd. Þannig að þau verða bara að sætta sig við að lít á þau sem lýðskrumarar.
mbl.is Vilja vísa Icesave frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins sér fyrir endan á þessu dæmi!

Reiknað með að umræðan taki 2 daga. Og að henni lokinni er nú  líklegt að þetta dæmi verði loksins leitt til lykta. Enda er ekkert annað í boði.

Allir flokkar á Alþingi hafa viðurkennt að við þurfum að bera ábyrgð á Icesave. Menn deila bara um kjörin á Icesave.

Held að öllum sé ljóst að auðvita hefðu stjórnvöld viljað ná betri samningum. En held að fólk hljóti að átta sig á því að þau gerðu allt sem í þeirra valdi var til að ná betri samningum. Bæði nú og sl. vor og í raun sl. rúmt ár eða frá því í nóvember í fyrra.

Það er nokkuð ljóst að ef það hefði verið möguleiki á því þá hefðu þeir verið fullreyndir. Það er engin sem að gamni sínu leggur fyrir Alþingi samning upp á þvílíkar upphæðir ef að stjórnvöld hefðu talið sig eiga möguleika á öðru.

T.d. er nokkuð ljóst að við eigum engan forða til að fara í efnahagslegt stríð við Holland og Bretland. Gjaldeyrir okkar yrði fljótt uppurinn. Og við kaupum ekki gjaldeyri fyrir krónur í dag. Nokkuð ljóst að við erum beitt þrýstingi frá öllum hliðum.

En ef að kjörin á þessu láni eru svo ömurleg þá hljótum við innan nokkurra ára að geta farið og fengið lán á þeim kjörum sem menn segja að við hefðum átt að fá á þetta lán og greitt það upp. En ég skil Breta og Hollendinga að þeir vilji eitthvað álag á að lána til lands sem ekki er fullvíst að geti borgað lán sín. Þetta eru jú skattpeningar Breskra og Hollenskra fjölskyldna sem við eru að fá að láni.

En þeim mun  fyrr sem við hættum að draga þetta mál og förum að byggja hér upp þeim mun meiri líkur eru að við komumst út úr þessu standandi.


mbl.is Icesave á Alþingi á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bið fólk að anda með nefinu!

Sé hér á blogginu að verið er að tengja Jón Sigurðsson og ráðningu hans sem formann bankastjórnar við Samfylkinguna.

En fólki væri nú holt að átta sig á því að við eigum ekki lengur  nema um 5% í þessum banka í dag. Það eru væntanlega inn- og aðallega útlendir kröfuhafar sem hafa eignast bankann. Og þeir hafa sameinast um val á formanni bankaráðs og horfa kannski til þess að Jón Sigurðsson var bæði Seðlabankastjóri sem og bankastjóri Norræna bankans um áraraðir. Hann er hagfræðingur með mikla reynslu og menntun.  Þá er það skilanefnd og bankasýsla sem fara með þessi mál ekki ríkisstjónin.

Ríkið kemur ekkert að þessari ráðningu og þaðan af síður Samfylkingin. Þá var hann ekki búinn að vera í FME nema fram janúar/febrúar 2008 þ.e. í 7 eða 8 mánuði þegar bankahrunið varð. Og hann var stjórnarformaður FME en það þýðir að hann var ekki í daglegum rekstri FME það var í höndum framkvæmdarstjóra.


mbl.is Ný stjórn Íslandsbanka skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband