Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014

Finnst nú full bratt af stað farið hjá nýjum oddvita

Heyrði ekki annað í fréttum RUV að hún segði að Borgin ætti að sjá til þess að allir gætu fengið íbúð við hæfi á viðráðanlegu verði og það ætti að vera borgin sem skaffað þær eða sæi til þess. Því allir sem þyrftu nýjar íbúðir væru að flýja í nágranasveitarfélögin.

  • Svona til að byrja með þá skil ég ekki hvernig Borgin  á að gera það. Því eins og hún skýrði þetta út þá átti Borgin að skaffa eða fjármagna þetta og þetta væri fjárfesting til framtíðar. En hún var ekki viss um hvaðan peningarnir ættu að koma.
  • Þá er vert að benda henni á t.d. að um leið og hún vill ekki byggja t.d á flugvallarsvæðinu þá er mun styttra úr t.d. Kópavogi niður í miðbæ Reykjavíkur en frá Grafarholti eða Úlfársdal! Og frá Úlfársdal er mun styttra í miðbæ Mosfellsbæjar en í miðbæ Reykjavíkur.  Þannig að það er ljóst að fólk sem flytur þangað þarf að eiga helst 2 bíla nema að fjölskyldur vinni allar sama vinnutíma. Það eru nær engin vinnustaður þar nálægt.  Það eru ekki aðrir stórir byggingareitir nær í Reykjavík nema flugvöllurinn. Og svo kemur á móti að iðnaðarfyrirtæki í Ártúnshöfða og þar hafa nær ekkert að fara nema þá nærri upp í Mosfellsbæ ef menn vilja fara að byggja Íbúðabyggðir þar.
  • Skolli einfalt að ætla að selja kjósendum fullt af nýjum íbúðum á viðráðanlegu verði en vita ekkert hvernig á að fjármagna það, hvernig á byggja þær eða hver á að gera það. Og þetta allt korter fyrir kosningar.

mbl.is Bjartsýn fyrir hönd framboðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er furðulegt!

Eins og fréttin hljómaði í morgun þá skildi ég vel að Framsókn hefði hafnað hugmyndum um að stækka framboðið með því að leggja áherslu á að bjóða flugvallarvinum aðkomu að framboðinu! En eins og þessi yfirlýsing formanns Kjördæmissambands Framsóknar hljómar voru þeir tilbúnir í allt sem Guðni stakk upp á.

Ég hefði betur ekki verið að hrósa þeim á facebook í morgun fyrir að láta Guðna ekki eftir einsdæmi um hverjir væru á listanum og eðli framboðsins. Nú kemur í ljós að þeir voru bara alveg tilbúnir í það.  Hverskonar flokkur er það þar sem nokkrir menn taka ákvörðun um áherslumál flokksins og hverjir eiga að skipa framboð af hálfu hans. 

Er Framsókn virkilega á því að fyrir fólk t.d. í Breiðholti eða Grafarholti sem er í umferðahnútum á morgnana og kvöldin, sé það aðalatriði að Reykjavíkurflugvöllur sé þar sem hann er óbreyttur.  Ætli það séu ekki önnur mál sem brenna á þeim.  Reykjavikurflugvöllur leggur sjálfan sig niður smátt og smátt. T.d. var ég að fatta að fyrir svona 30 árum flaug maður reglulega innanlands. En nú eru komin um 15 ár síðan ég flaug síðast. Því það er svo miklu betra að vera á bíl t.d. á Akureyri til að komast eitthvað um og það eru ekki nema hvað 3 eða 4 tíma sem maður er á leiðinni þangað.  Eins er flugið svo dýrt nema að maður bóki það með löngum fyrirvara. 

Var á ferðinni úr Grafarholti um daginn. Ég var um 30 mínútur um klukkan 9 að komast niður í Miðbæ. Fór um daginn upp á Keflavíkurflugvöll og var um 40 mínútur á leiðinni.  

Flugvöllurinn verður áfram næstu árin það er vitað. Það er nefnd að fjalla um þetta mál. Þetta ætti ekki að vera kosningamál núna. 


mbl.is Höfnuðu ekki hugmynd Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá hugleiðingar um samfélagið á blog.is!

Nú hef ég bloggað svona nokkuð reglulega á blog.is í hvað um 8 ár. Fór að hugsa um þetta í dag þegar ég rakst á athugasemdir við blogg frá öðrum sem kvartar fyrir að vera ekkí í efstu sætum blog.is eða þeim lista sem reglulega birtist á mbl.is. Þar hafði ég einhverntíma lent og sést stundum þegar ég blogga! Veit ekkert hverning ég komst þangað. En sennilega var það á einhverjum tíma þegar ég fór hamförum í að blogga um eitthvað mál sem brann á mér.

En semsagt í athugsemdum sem ég las við þetta blogg í dag er einhver sem skrifar að hann skilji ekki af hverju blogg mitt birtist þar. Ég sé skv. þessum athugsemdum:

að ómerkingar eins og Magnús Helgi samfóisti fái stærðar pláss en ekki menn eins og kannski Guðmundur Jónas, Gunnar Heiðarsson og þú.  

Og svo 

Hann er ómerkingur, hann sem dæmi laug blákaldur að ÞJÓÐARHEIÐUR, algerlega ópólitísk samtök, væri hægri-menn í grunninn.  Það er ýmislegt eftir þessu.

 

Og svo bætir sami við:

Það að Magnús Helgi fljóti með lygunum (ekki síst lygaskuld okkar við Breta og Hollendinga) er sorglegt. 

Svona velti í framhaldi af þessu hvaða fólk er eiginlega að stunda lestur á hér á blog.is. Fólk getur verið svo langt leitt í þessu að menn hafa klagað mig fyrir vinnuveitenda mínum, menn hafa gefið upp vinnustað minni, verið að vega að fjölskyldu og vinum. Hverskonar menn eru þetta eiginlega?

Ég hef oft verið kominn á það að hætta þessu bara og fá mér pláss annarstaðar. En hef gaman að geta sett inn athugasemdir við fréttir hér á mbl.is  Og eins komið með mína skoðun.  Og því losna menn ekki svona auðveldlega við mig.

Það er eins og menn séu margir hér á því að það sé bara ein rétt skoðun og allir aðrir eigi að þegja. Bara að benda mönnum á að ef allir væru sammála og sáttir þá mundum við enn búa í hellum og éta hrátt kjöt. Því að þá hefðu engir þorað að viðra sína skoðun um aðrar leiðir. Og því engar framfarir orðið. 

Auðvita veit ég að hér í þessu umhverfi er ég í minnihluta og ég set inn blogg og athugasemdir þar sem ég er meinlegur en ég er yfirleitt ekki meiðandi við aðra bloggara en sumir eru það hreinlega. Þ.e. engin rök bara skætingur og leiðindi. 


Samfylkingin í Kópavogi

Ég skal fyrstur viðurkenna að ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar að slitnaði upp úr samstarfi Samfylkingar, Vg, Næst bestaflokksins og Y lista í Kópavogi. Þau höfðu í raun unnið mjög gott starf í heild sinni á meðan þau voru í meirihluta. Og í raun svo gott starf að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn ásamt Y lista hafa án mikilla átaka notið þess að taka til sín heiður af starfi sem þau unnu í raun ekki fyrir sjálf.

Síðan kom upp aftur vonbrigði með val á framboðslista nú í vetur. Þ.e. hvernig hann var unnin. 

En nú hef ég verið að líta svona yfir landslagið í Kópavogi og sé ekki að við höfum betri kost í stöðunni og Samfylkingin í Kópavogi  hefur verið að vinna heimavinnu sína síðustu mánuði.  Nú hefur orðið algjör endurnýjun á framvarðarsveit flokksins fyrir næstu kosningar og vinna þessara nýju fulltrúa er m.a. að sýna sig á þessari vel uppsettu síðu http://betrikopavogur.is/

Eftir að hafa lesið yfir það helsta sé þarna góðar hugmyndir, raunhæfar hugmyndir og eitthvað sem virkilega nýtist okkur Kópavogsbúum. Ýmis atriði sem ég hefði viljað bæta við en margt þar sem vekur athygli eins og t.d. varðandi skólamál

 

  • Skoða þann möguleika að taka börn inn í grunnskólann tvisvar á ári og tryggja þannig betri samfellu milli fæðingarorlofs, dagforeldra, leikskóla og grunnskóla.
Sem er náttúrulega leið til að losa um leiksskólapláss og um leið að nota skólahúsnæði grunnskólans betur. 

Eins má nefna varðandi húsnæðismál:

  • Vinna gegn félagslegum aðskilnaði með því að bjóða upp á fjölbreytt húsnæði í öllum hverfum Kópavogs.
  • Leita leiða til að stofna hlutafélag í eigu Kópavogsbæjar sem heldur utan um félagslegt íbúðarhúsnæði bæjarins, húsnæði fyrir fatlaða og þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Rekstur íbúða í eigu Kópavogs verði því aðgreindur frá rekstri bæjarfélagsins en hlutverk Kópavogsbæjar verður eftirlit með gæðum þjónustunnar og aðhald í rekstri félagsins. Rekstur leiguíbúða verði sjálfbær.
  • Vinna að framgangi hugmynda í anda þess sem ASÍ setti fram um uppbyggingu á nýju félagslegu húsnæðiskerfi fyrir einstaklinga sem ekki komast inn á húsnæðismarkaðinn og hafa ekki aðgang að félagslega kerfinu. Þannig mun Kópavogur skapa úrræði fyrir ungt fólk, aldraða og tekjulága þannig að þeir geti leigt öruggt húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
  • Taka þátt í að byggja upp traustan og hagstæðan leigumarkað meðal annars með því að auka samvinnu við húsnæðisfélög eins og Búseta og Félagsstofnun stúdenta.

 

Sýnist að ég komi til með að hafa meiri áhuga á mínum gamla flokki og kynna mér nýja frambjóðendur því að flokkurinn hefur unnið heimavinnuna síðan ég kíkti á hann síðast.

Enda hafa aðrir flokkar ekki höfðað til mín.  Besti flokkurinn er safn af fólki sem t.d. skipaði Kópavogslistann, Sjálfstæðisflokkurinn búin að vera klofin síðustu misseri í Kópavogi. Framsókn hefur ekki heyrst nema varðandi óskir um að Kópavogur verið gerður að borg eða silungur í Kópavogslækinn. Vg er en dálítið óráðin þar sem hann er komin í samstarf við hóp úr Samfylkingu og Píratar eru óþekkt afl sem engin veit hvað standa fyrir varðandi Kópavog


Þetta sagði Guðni um Reykjavíkurflugvöllinn 2007

Takið af www.vikurfrettir.is þar sem Guðni vann að því að ná í atkvæði frá kjósendum þar:

 Stærstur hluti Íslendinga vilja hafa innanlandsflugið í Vatnsmýrinni, eða 60%. 

Nú er það svo að Reykvíkingar deila mjög um þetta mál, það skapar óvissu.  Fari svo að flugvöllurinn verði að víkja er lang líklegast og nánast einsýnt að innanlandsflugið fer til Keflavíkur.  Hólmsheiði og Löngusker kosta einfaldlega alltof mikið.  Hitt er svo ljóst að hinn fjórbreiði vegur til Keflavíkur gefur nýja möguleika og styrkir mjög að miðstöð alls flugs verði hér í Keflavík.  Ég hef nefnt stærstu tækifæri Suðurnesjanna F-in fjögur: Flugið, flugvöllinn, ferðamennina og flugstöðina.

Anddyri Íslands er Keflavíkurflugvöllur.  Þar liggja ómæld ný tækifæri.  Framsóknarflokkurinn hefur farið með og leitt þá sóknarstefnu sem nú ríkir í kringum flugvöllinn, eins og ég rakti í síðasta blaði Víkurfrétta.  Með þeirri miklu aukningu ferðamanna sem blasir við, er líklegt að það henti betur fjarlægum byggðasvæðum ef ferðamenn geti gengið beint yfir í innanlandsflugið og flogið til Vestmannaeyja, Akureyrar, Ísafjarðar, Hornafjarðar og Egilsstaða frá Keflavík.  Öll óvissa skaðar og það er ljóst að umræðan um Reykjavíkurflugvöll veldur óvissu.  Því verða Reykvíkingar og stjórnvöld að eyða þessari óvissu sem fyrst.

Verði flugvöllurinn að víkja, styrkir fjórbreið Reykjanesbraut Keflavík sem miðstöð alls flugs á Íslandi.  F-in fjögur eru stærstu tækifæri Suðurnesjamanna.


Einhvern annan en Guðna takk!

Held að fólk sé farið að gleyma ýmsu varðandi Guðna. Því kannksi rétta að benda á þetta t.d.

 

gudni.jpg
 
 
 
 
 

 Svo er rétt að fólk gleymi ekki t.d. þessu 

Fjárlaganefnd Alþingis var líka einróma í skýrslu sinni um ríkisreikning 2010 þar sem í ljós kom að Guðni hafði „gleymt“ að skila öllu andvirði á sölu lánasjóðs landbúnaðarins í ríkissjóð þegar sjóðurinn var seldur eins og annað góss í eigu ríkisins á þeim tíma. Peningana mun hann víst hafa notað sér og sínum til framdráttar eins og gengur og gerist á þeim bænum. (bvg.is )


Framsókn og Sumardagurinn fyrsti!

Heyrði í Guðna Ágústssyni í fréttum Bylgjunar!

Þar var haldið áfram með leikritið sem verið hefur í gangi síðustu vikur eftir að þeir ráku Óskar Bergsson! 

Guðni segist vera að hugsa málið og gefi svar á Sumardaginn fyrsta. 

Ég verð að segja að mig óar við hvert Framsóknarflokkurinn stefnir.  Þeir eru að velja þarna mann til forystu sem svo sannarlega er persónugervingur þjóðernisrembu, íhaldssemi og alls sem ég hélt að við værum vaxin upp úr. Hann er talsmaður landbúnaðarins og stendur í fylkingarbrjóst þeirra sem þar vilja engu breyta. 

Nú allt í einu er hann orðin boðlegur fyrir Framsókn og allir búnir að gleyma því þegar hann hrökklaðist úr formannssætinu þar. 

Ef að þetta verður raunin held ég að Framsókn fari að verða enn hættulegri flokkur sem boðar einangrun okkar, vörð um sérhagsmuni og komið verði aftur upp ástandi hér sem við höfum brennt okkur á aftur og aftur og síðast upp úr 2000 fram að hruni. Svona hugmyndafræði sem er mótuð af því að við séum klárust, ríkust og kunnum allt betur en aðrir.  Sem síðar hrynur í andlitið á okkur. 


Leikritið Guðni sigrar Reykjavík

  1. Óskar fær að tilkynna að hann hafi dregið sig til baka úr oddvitasætinu.  Og allir voða hissa innan framsóknar Wink
  2. Lekið í fjölmiðla að Guðni sé eitt af nöfnunum sem séu í umræðunni
  3. Guðni segist koma af fjöllum en geti ekki annað en skoða málið.
  4. Vigdís sem er jú óvart mágkona hans segir að hann komi til með rífa fylgið upp og hún hafi rætt við hann.
  5. Guðni kemur í fjölmiðla og segist svara þessu fljótlega um eða eftir Páska.
  6. Nú koma fréttir að Sigmundur og Guðni hafi rætt saman.

Það þarf enginn að segja mér að þessi ákvörðun var tekin fyrir löngu og er núna í tilbúnum farvegi!  Bara eitt að Guðni er útskrifaður úr pólitík. Hann er gegn meginhluta borgarbúa í mörgum málum. T.d. ESB málum, landbúnaðarmálum og fleira. 


mbl.is Hefur rætt við Sigmund um framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegur kafli um SP Kef

Örugglega ekki arfleið sem Steingrímur J Sigfússon vildi skilja eftir sig.  En þarna koma náttúrulega margir sérfræðinga að! Svona eftir á er ljóst að þessum banka átti aldrei að reyna að bjarga og láta bara fara lóðrétt á hausinn.  Kostaði okkur skattgreiðendur örugglega 19 milljarða til að verja þarna innistæðu upp á 37 milljarða sýndist mér svona í fljót heitum. En alveg ótrúlega lesning.

http://rna.is/sparisjodir/skyrsla-nefndarinnar/5-bindi/19-kafli/#k196


Nei takk! Þetta fólk á ekki að taka ákvörðun fyrir mig.

Með fullri virðingu þá eru Vigdís Hauksdóttir og Páll Vilhjálmsson ekki fólk sem ég treysti til að ákveða hluti fyrir mig! Og þarna gleypir Vigdís eins og venjulega upp eitthvað sem fyrirspyrjandi nefndi á fundinum og svo gerir hún orð hans að sínum og veit ekkert um vinnu bak við skýrsluna.

Skýrslar styrkir okkur sem viljum klára viðræður og sjá hvaða samningum er hægt að ná. Enda með fullrivirðingu þá vita helstu andstæðingar viðræðna við ESB í raun ekkert um hvað þau eru að tala!  Ég er ekki að halda því fram að ég viti meira en ég vill sjá samning á borðinnu því að eg er búinn að fá nóg af reglulegum hrunum hér á 10 ára fresti. Ég er þreyttur á háum vöxtum, verðbólgu og reglulegum verðbólguskotum. Ég er þreyttur á skorti á samkeppni, fákeppni og einokun sem hefur verið haldið hér við til að mylja undir nokkrar ættir hér. Ég er þreyttur á því að hér séu tollar á vörum sem við flytjum inn og innflutninghöft. Ég er þreyttur á að það sé tollur á fullunnum matvörum sem við seljum erlendis sem koma í veg fyrir að hér sé hægt að skapa fleiri störf.  Því vill ég sá samning við ESB og hvort að hann gæti  samrýmst markmiðum og skapað hér nýja framtíðarsýn. Ekki aftur 2006 eins og Heimssýn og ríkistjórnin stefnir nú á með gervigengi á krónu og svo að viðbættum höftum. 


mbl.is Skýrsla óþekkta embættismannsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband