Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Væri ekki skynsamlegra að banna glerílát utan skemmtistaðanna?

Hefði haldið að það væri happadrýgra að viðhalda banni við að fara með drykki út af stöðunum í glerílátum (glösum). Held að þetta bjóði hættunni heim að menn fari að byrla einhverri ólyfjan í drykki hjá fólki eða að fólk fari að sturta í sig eins og forðum. Eins þá mundu plast ílát draga kannski aðeins úr þeim glerbrotum sem einkenna miðbæinn eftir föstu- og laugardagskvöld.

Eins þá finnst mér að fólk eigi að fara að taka sig saman og lesa yfir þeim vinum sínum sem eru að beita ofbeldi í miðbænum? Í dag heyrðist af því að ráðist hefði verið á Eið Smára í miðbænum um helgina og bætist það við allt ofbeldið sem þegar höfðu komið fréttir af frá helginni.

www.ruv.is  

Ráðist á Eið Smára í miðbænum

Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, varð fyrir fólskulegri árás í miðborg Reykjavíkur um helgina.

Samkvæmt upplýsingum frá Eggerti Skúlasyni, talsmanni Eiðs Smára, kallaði ókunnugur maður til Eiðs þar sem hann var á gangi ásamt félögum sínum nálægt Lækjartorgi. Eiður þekkti manninn ekki og svaraði því ekki kallinu. Maðurinn veittust þá að Eiði og hrinti í jörðina. Félagi mannsins kom þá aðvífandi og kýldi Eið Smára í andlitið.

Eiður er ómeiddur eftir árásina og verða engir eftirmálar að hans hálfu, að sögn Eggerts.

 Mér dettur í hug að fólk geti neitað að fara út að skemmta sér með fólki sem er að beita ofbeldi þar til að það hefur gert eitthvað í sínum málum.

Mér finnst með öllu óþolandi að saklaust fólk geti ekki lengur verið óhult að skemmta sér í bænum án þess að eiga yfir höfði sér að verða fyrir árásum bara af því að það er statt í bænum. Ég get ekki skilið að það geti verið gaman að fara í bæinn vitandi að maður er líklegur til að ráðast á aðra. Ég held að fólk sem er þannig komið fyrir ætti að hætta drekka/dópa hið snarasta áður en það veldur einhverjum óbætanlegum skaða/ miska.


mbl.is Bannað að taka drykki með sér út af veitingastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til þeirra sem eru að hugsa um erlend lán!

Ég persónulega hef ekki næga þekkingu á þessum lánamöguleikum en var að lesa síðu neytendasamtakana og þar er löng grein þar sem þau vara fólk við þessum lánum og hvetja fólk til að skuldbreyta. M.a. stendur þar:

Gengi, eftirspurn, verðbólga og stýrivextir
Neytendasamtökin geta ekki mælt með töku gengistryggðra lána og mæla einnig með að þau séu greidd upp eins og kostur er á meðan gengi íslensku krónunnar er eins sterkt og nú.  Von er á mikilli veikingu. Stýrivextir stjórna gengi krónunnar vegna þess að möguleikar á að ávaxta íslenskar krónur í ríkisskuldabréfum eykur eftirspurn eftir íslenskum krónum. Hvenær gengið fer að veikjast mun að töluverðu leyti ráðast þegar Seðlabankinn tilkynnir stýrivexti 6. september næstkomandi, ef veiking verður ekki þegar hafin. En almennt er búist við að Seðlabankinn lækki vexti, vegna þess að þenslan hefur hjaðnað töluvert, 12 mánaða verðbólga án húsnæðis er 1,2% og atvinnuleysi hefur aukist í 3,2%.  Helsti óvissuþátturinn þegar spáð er um gengisbreytingar er vaxtaákvarðanir Seðlabankans og þær stjórnast að mestu leyti af verðbólgumælingum Hagstofu Íslands. Helsti óvissuþátturinn í verðbólgu er svo hagstjórn ríkisstjórnarinnar, skattalækkanir eða hallarekstur sem eykur eftirspurn og þar af leiðandi verðbólgu. En verðbólgan eltir krónuna aðallega vegna hækkana á innfluttum vörum.

mbl.is Krónan veiktist um 1,1%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo stóð víst eyrnabíturinn í röðinni eftir þetta og montaði sig

Ég held að sumt fólk ætti að láta vera að nota áfengi. Ef að manneskja er svona rugluð eins og vitni greina frá að hún hafi staðið eftir þetta  atvik og montað sig af því þá er hún alvarlega biluð og má auðsjáanlega ekki við því að slæva dómgreindina með einhverjum meðölum eins og áfengi.  

Konan sem ráðist var á, fór í aðgerð á eyra í dag, á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Henni var mjög brugðið og mun hún fá áfallahjálp í kjölfarið. Ásamt eyrnabitinu var hún dregin á hárinu eftir gangstéttinni og sparkað var í hana. Mun verr hefði getað farið ef henni hefði ekki verið komið til hjálpar af Kristmundi og fleirum á vettvangi.

www.visir.is

Konan sem ráðist var á var að fara í fyrsta  skipti út að skemmta sér frá 6 mánaða gömlu barni.Þeir sem þekkja til árása kvennanna sem ekki hafa náðst og vita hvar þær halda sig ættu að láta lögreglu vita. Svona manneskjur ættu ekki að fá að eyða deginum áður en þær komast undir lögregluhendur.


mbl.is Beit hluta af eyra konu fyrir utan skemmtistað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er bankinn að beita fjallabaks leið við að skýra þetta

Ég veit það ekki en mér finnst þessi kafli í skýringum þeirra vera einhver öfugmæli

Fram kemur í yfirlýsingunni að vaxtabreytingin sé tilkomin vegna þess mikla munar sem myndast hafi á óverðtryggðum og verðtryggðum vöxtum í kjölfar lækkandi verðbólgu og áframhaldandi hárra óverðtryggðra vaxta.

Það er að lækkandi verðbólga sé að kalla á hærri vexti.  Þetta er náttúrulega furðulegt. Hafa þeir þá verið að hagnast á verðbólgunni. Reyndar finnst mér eins og lesa megi úr þessu að þeir séu að miða við háa stýrivexti og áhrif á ótryggða vexti. En þar sem að fólk tekur ekki óverðtryggt lán í íslenskum krónum fyrir húsnæði þá er þessi skýring ekki að gera sig. Og eins þá ættu þeir varðandi húsnæðislán að miða við kjör á erlendum lánum þar sem vextir eru 3 til 4%

Þeir eiga bara að koma hreint fram og viðurkenna að þeir eru að draga úr eftirspurn eftir lánum til að hægja á markaði. Og þetta er  eitthvað spil hjá þeim sem tengist því að þeir eiga mikið undir að húnæðisverð lækki ekki.


mbl.is Kaupþing hækkar vexti á nýjum Íbúðalánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Axel með nokkra góða brandara á síðunni sinni

Nú þegar fólk með lán í erlendri mynnt, horfir nú upp krónuna falla og áhyggjurnar vaxa er við hæfi að benda á eitthvað til að létta lund þeirra. Ég bendi á Jax og færslur hans nú síðustu daga.

Fyrst er til að taka færslu sem hann nefni „Grunnur að nýrri ensk-íslenskri orðasambandabók!" Þar sem þetta kemur m.a. fram:

8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.

9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.

10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.

11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.

12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!

Og svo bréfið sem Kristín skildi eftir handa mömmu sinni  Það er virkilega fyndið.


Atvinnumótmæli - Hver borgar?

Í fréttum á Ruv - sjónvarpinu  var eftirfarandi fullyrt í kvöld:

Mótmælendum greitt fyrir að láta handtaka sig?

Mótmælendur á vegum samtakanna Saving Iceland fá peningagreiðslur ef þeir eru handteknir af lögreglu, samkvæmt heimildum fréttastofu Sjónvarps.

Níu voru teknir vegna mótmæla við Hellisheiðarvirkjun í morgun, þar af einn sem klifraði upp í byggingarkrana.


Talsmaður samtakanna Saving Iceland hafnar því að fólk innan samtakanna fái greitt fyrir að taka þátt í mótmælum eins og þeim sem fram fóru í morgun. Þetta sé hugsjónastarf, unnið af sjálfboðaliðum.
www.ruv.is

Mér er einhvern veginn illa við svona fréttir þegar svona er fullyrt án þess að frekari skýringar fylgi með. T.d. er mér með öllu óskiljanlegt hverjir það eru sem eiga að vera að borga. Er þetta ekki bara kjaftasaga sem hefur verið að vinda upp á sig síðustu vikur? Ég man eftir að hafa heyrt einhvern velta þessu fyrir sér í einhverju viðtali um daginn. Og ef þetta eru einhver erlend samtök þá eigum við rétt á að RUV upplýsi það.


mbl.is Átta mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er að verða skuggalegt

Var að lesa frétt á www.visir.is þar sem m.a. stendur:

Vísir, 25. júlí. 2007 18:56

Fasteignir þjóðarinnar minna virði en eignir Kaupþings


Eignir Kaupþings banka eru nú tæplega þrjátíu prósent meiri en verðmæti allra fasteigna á Íslandi. Metafkoma var á nær öllum sviðum hjá Kaupþingi á fyrri hluta ársins, en sex mánaða uppgjör var kynnt í dag.

Þá kemur einnig fram að hagnaður Kaupþings á fyrstu 6 mánuðum ársins nemur um það bil 60% af verðmæti alls fisks sem veiddist síðasta ári 2006.

Fer að verða spurning hvort að við förum ekki að verða þjóð þar sem að bankastofnanir ráða öllu. Fólk og fyrirtæki bullandi skuldsett og við háð því að bankinn geri ekkert sem veldur okkur skakkaföllum þar sem að við eigum upp á lítið að hlaupa flestir skuldsettir í topp. Bankar reikna út hvað hægt er að pína okkur til að taka há lán fyrir íbúðum sem þeir svo eiga í raun þar sem að þær eru skuldsettar af verktökum.

Bankarnir spila með gengið eftir því sem hentar þeim. Eins með vexti!

Spurning hvort að stjórnmálamenn verða ekki valdalausir og óþarfir þar sem að bankastjórar eru búnir að ná öllum þeim völdum sem máli skipta.


mbl.is Hagnaður Kaupþings 46,8 milljarðar króna á fyrri hluta ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá höfum við það stórhluti af vexti hlutabréfamarkaðarins er tekinn að láni í útlöndum

Skv. þessari frétt í mbl.is má færa að því rök að stórhluti af vaxandi hlutabréfamarkaði hér á landi er tekinn að láni í erlendis. Því má færa rök að því að erlendir bankar eigi stóran hluta af þessum hlutabréfum.

Erlendar lántökur til hlutabréfakaupa?

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar OMXI15 hækkaði um 1,6% í júní og hafði í lok þess mánaðar hækkað um 29,5% frá áramótum. „Almennt er talið að hagstæður tími til lántöku í erlendri mynt sé þegar gengi krónu er veikt. Hins vegar eins og áður hefur komið fram í hálffimm fréttum virðist vöxtur gengisbundinna lána oft hafa verið mikill þegar góður gangur er á hlutabréfamarkaði.

Þá er hugsanlegt að góður gangur á hlutabréfamarkaði á árinu hafi hvatt til lántöku í erlendum gjaldmiðlum til þess að fjármagna hlutabréfakaup, þrátt fyrir sterka stöðu krónunnar," samkvæmt Hálf fimm fréttum Kaupþings.

frétt af mbl.is

Eins þá virðist það lenska hér að allt er keypt á lánum og skulda heimili nú um 756 milljarða. Og bara í júní þá jukust lánin um 11,8 milljarða. Og stæri hluti þessara 12 milljarða eru í erlendri mynnt sem gæti auðveldlega hækkað þessi lán mikið ef að krónan fellur. En allir virðast vera á því að krónan þurfi að falla því hún er farin að skaða útflutningsgreinar okkar gífurlega.

Hef reyndar heyrt að vegna útgáfu á "Jöklabréfum" og "Krónubréfum" af erlendum aðilum þá sé Seðlabankinn kominn í þá stöðu að hann getir varla leyft krónunni að falla eða lækkað vexti því þá kæmi holskefla af erlendum aðilum sem mundu innleysa bréfin sem mundi valda keðjuverkun vegna gjaldeyris útstreymis á stuttum tíma. Og hér færi allt á hliðina.


mbl.is Skuldir heimilanna við bankakerfið 756 milljarðar króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg ótrúlegt bruðl á nýríkum íslendingum

Var að hlusta á fréttirnar í kvöld á Stöð 2 þar sem að kom fram að fólk er jafnvel að borga 100 milljónir fyrir sumarbústað. Síðan hefur maður heyrt að menn séu tilbúnir að bjóða allt að 3 milljónir fyrir hektarann á bújörðum til að nota sem afdrep í sveitinni. Þá er maður að heyra að menn séu að kaupa sér hús á kannski 50 til 80 milljónir sem þeir ætla sér að rífa og byggja sér nýtt hús á lóðinni sem kostar þá tvöfallt í viðbót. Þetta eru dæmi um að menn eru að sleppa sér í fjáraustri. Þannig er nokkuð ljóst að menn geta aldrei  selt þetta á þessu verði nema að að kannski félögum sínum. En það gengur náttúrulega ekki endalaust.

Þó maður viti að þessir menn viti ekki aura sinna tal þá leyfi ég mér að efast um að þetta séu dæmi um skynsamlegar fjárfestingar. Og þá fer maður að hugsa hvernig grunnurinn er undir öðrum fjárfestingum þeirra?


mbl.is Eignaverðsvísitala Kaupþings hækkaði um 0,8% í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anskotans svartsýni er þetta í manninum

Veit ekki betur en að að þessi niðurskurður nemi um það bil 1 af hverjum 3 fiskum í kvótanum og þetta er tímabundið í 2 ár. Ef að menn væru ekki að braska með kvótann og greiða svona himinhátt verð þá væri hægt að þreyja þorrann í þessi ár. En málið er að þar sem fiskur er orðinn svo dýr eru margir sem hafa freistast til að selja kvóta sinn. Og þeir sem eiga kvóta fá nú enn meira fyrir hann. Og fiskvinnslan fær meira fyrir unnar afurðir sem nemur hluta af samdrætti í afla. Veit ekki hvort að það séu efnileg skipti að stefna á að skipta þessum störfum á nýjum störfum í olíuhreinsistöð sérstaklega ef að mengun af þeim er svona mikil sem um er rætt sem og hætta á mengunarslysum!

Frétt af mbl.is

  „Útséð með sjávarútveginn í bili"
Innlent | Bæjarins besta | 23.7.2007 | 20:19
Flosi Jakobsson, útgerðarmaður í Bolungarvík, segir tal þeirra bæjarfulltrúa sem mæla á móti olíuhreinsistöð vera ábyrgðarlaust. „Það er með öllu ábyrgðarlaust að segjast ekki vilja olíuhreinsistöð en benda svo aldrei á neitt annað sem gæti komið í staðinn. Þeir sem eru á móti olíuhreinsistöð verða að koma með eitthvað annað í staðinn“, segir Flosi.
Lesa meira

mbl.is „Útséð með sjávarútveginn í bili"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband