Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Dágóður hluti hagnaðar Glitnis fer í laun og bónusa til stjórnenda bankans

Það er náttúrulega athuganavert að svona stór banki eins og Glitnir er skuli eyða allt að 3 til 4% af arði sínum í laun og kaupauka fyrir forstjóra og stjórn bankans.

Af ruv.is

Forstjórar Glitnis vel launaðir

Bjarni Ármannsson fékk 100 miljónir króna í starfslokasamning þegar hann hætti sem forstjóri Glitnis á síðasta ári. Arftaki hans, Lárus Welding, fékk 300 milljónir króna fyrir það eitt að ráða sig til bankans.

Bjarni Ármannsson hætti sem forstjóri Glitnis í lok apríl á síðasta ári. Við starfinu tók Lárus Welding. Þrátt fyrir að Bjarni hefði gegn forstjóraembættinu í fjóra mánuði síðasta árs en Lárus átta fékk Bjarni 90 miljónir króna í laun frá Glitni í fyrra en Lárus 76 miljónir.

Við miljónirnar 90 bætast 100 miljónir króna sem Bjarni fékk í starfslokasamning. Þá hagnaðist Bjarni um 381 miljón króna þegar hann nýtti sér forkaupsrétt á hlutabréfum.

Lárus fékk hins vegar 300 milljónir króna fyrir það eitt að ráða sig til Glitnis.

Alls greiddi Glitnir stjórnarmönnum og forstjórum 646 miljónir króna í laun árið 2007 og 357 miljónir króna í bónusgreiðslur eða starfslokasamninga

Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir aðra eigendur bankas því þetta hlýtur að draga úr arðgreiðslum til þeirra. Held að bankinn hefði nú geta fengið hæfa stjórnendur fyrir kannski  svona 1/6 af því sem hann spreðar í þá nú.


mbl.is Forstjóralaun hjá Glitni 266 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýr verður Kárhnjúkavirkjun öll

Meiri djöfuls steinaldarbúskapur á okkur. Gátum við ekki verið búin að koma skattalögum okkar í eitthvað betra form? Gátum við ekki vandað samninga við þá betur? Ef þeir vinna þetta mál þá verða allir sem taka að sér stór verkefni hér í því að ráða undirverktaka og starfsmannleigur og höfða svo til þess að þeim beri ekki að standa skil á sköttum vegna þeirra starfsmanna sem við verkið vinna!
mbl.is Impregilo krefst 1,2 milljarða í endurgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangur Landsvirkjunar?

Ef að Landsvirkjun hefur slíkt bolmagna að geta lagt milljarða í fjárfestingar erlendis vekur það spurningar hjá mér um tilgang og grundvöll Landsvirkjunar. Ég hef alltaf haldið að Landsvirkjun væri rekin til að skaffa okkur orku á sem lægstu verði. Og eins fyrirtækjum sem skapa atvinnu og tekjur fyrir okkur. Hef einnig haldið að ef þessar virkjanir væru eins hagkvæmar og af er látið þá ættum við að sjá þess merki í lækkun raforkuverðs.

En því hefur ekki verið að heilsa og allur hagnaður virðist fara áfram í fjárfestingar og nú síðast eru þeir orðnir meðeigendur að mörgum af þessum útrásar fyrirtækjum. Ég get bara ekki sætt mig við að fyrirtæki sem er alfarið í eigu okkar sé farið að haga sér eins og fjárfestingarfyrirtæki og sé að leika sér með fjármuni mína og annarra í fjárfestingum erlendis í svo miklu mæli og nú er að verða. Ég sætti mig heldur ekki við þá skýringu að þetta skili væntanlega miklum arði í hugsanlegri framtíð. Ég tel að við eigum að njóta þess nú ef að hægt væri að lækka verð á orku til okkar og fyrirtækja sem nú starfa.

Það á náttúrulega að vera höfuð skylda þeirra sem eru ráðnir til að stýra þessu fyrirtæki að vinna að því að skaffa okkur orku nú á hagstæðara verði. Ekki að vera að leika sér í áhættufjárfestingum. Látum einkaaðila um það.


mbl.is Setja allt að 10 milljarða í HydroKraft Invest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkun c.a. um 412 kr á 90 fm íbúð á mánuði.

Held að fólk verði fyrir vonbrigðum með þessa lækkun. Hún er um 412 kr á mánuði á meðal íbúð. Eða um 5.000 kr á ári.

 En með hækkun fasteignamats þá eru gjöldin í heild sennilega hærri en í fyrra.


mbl.is Álagningarseðill fasteignagjalda birtur að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðiflokkurinn kúvendir varðandi Laugaveg 4 og 6

Rakst á eftirfarandi færslu hjá Salvöru Gissurardóttur:

4. september síðastliðinn lögðu borgarfulltrúar F-lista og VG lögðu fram svohljóðandi tillögu:

"Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að leita leiða til þess að borgin festi kaup á húsunum við Laugaveg 4-6 í því skyni að varðveita þau í því sem næst upprunalegri mynd."

Hvernig fór atkvæðagreiðslan?
Hún fór svona:

Já sögðu: Árni Þór Sigurðsson, Margrét K. Sverrisdóttir, Oddný Sturludóttir og Svandís Svavarsdóttir.

Nei sögðu: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Frímannsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon og Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Sátu hjá: Björk Vilhelmsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Sigrún Elsa Smáradóttir.

Takið sérstaklega eftir hverjir voru á móti því að borgin gerði eitthvað í þessu máli. Hver segir svo ekki að Sjálfstæðisfólk hafi ekki keypt sig inn í meirihluta aftur?


Eftirfarandi hefði kannski átt á koma líka fram í fréttinni

Í þessu sama samtali kom fram að læknisvottorðið fræga var samkomulag sem Ólafur gerð við Gunnar Eydal skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar. En Ólafur hafði reglulega skilað inn læknisvottorðum. Síðan tíðkast að skila inn starfshæfnisvottorði í lok langvarandi veikinda.

Á www.dv.is kemur eftirfarandi fram:

,,Það er af og frá að ég hafi þegið ráð frá einhverjum öðrum,” segir Gunnar Eydal, fyrrverandi skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar, um vottorð sem Ólafur F. Magnússon, núverandi borgarstjóri, skilaði inn vegna veikinda sinna um mánaðaskeið. Ýjað hefur verið að því að það hafi verið Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, eða Margrét Sverrisdóttir, varamaður Ólafs, sem staðið hafi að baki kröfunnar um að Ólafur skilaði inn vottorðinu umdeilda. Gunnar segir að þeir Ólafur hafi verið ásattir um það að vottorði var skilað inn og þvertekur fyrir að hafa tekið við skipunum annarra borgarfulltrúa um að krefjast vottorðsins.

Finnst að blað eins og Morgunblaðið  þar sem ritstjórinn heldur m.a. fram:

Samfylkingin þolir bersýnilega ekki að missa völdin í borgarstjórn og bregst við með afar ógeðfelldum áróðri gegn Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra. Annars vegar með þeirri hrokafullu afstöðu til hins nýja borgarstjóra, sem lýsir sér í orðum bæði Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingar, og Dags B. Eggertssonar, fyrrverandi borgarstjóra, og hins vegar með skipulögðu illu umtali um hinn nýja borgarstjóra, sem er svo skammarlegt að furðu gegnir að þetta fólk vilji leggja nafn sitt við.

ætti að birta afsökun eftir viðtöl helgarinnar þar sem Ólafur talar um að Dagur hafi komið mjög heiðarlega fram við sig. Og hann hefði ekkert út á famkomu Dags að setja.


mbl.is Segir Morgunblaðið hafa gert Ólaf að vígvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsafriðun og umhverfismál

 Þetta er nú ekki gáfuleg byrjun. Þessi kofar keypti á 600 milljónir.

Ég verð bara að benda á þessa mynd sem birtist með þessari frétt. Hún minnir mig frekar á götu í fátækrahverfi einhversstaðar.

Er þetta glæsileg götumynd

Þessi hús hafa aldrei verið glæsileg minna mest á kofa. Rakst á þetta á ljósmyndavef Reykjavíkur

Laugavegur 6 á fyrrihluta 20 aldar nýbyggt

Lýst þá betur á hugmynd Torfusamtakana um breytinga.

laugav_4-6_utlit2_287135

Eins þá hefð sama hugmynd og notuð var við hótelbyggingu í Aðalstræti þ.e. ný hús í gömlum stíl verðið ágæt.

_si32fsb_erlingurg_profiles_mydocuments_my_pictures_a_alstraeti

En ekki í upprunalega mynd á þessum stað.

MAÓ_750

Laugavegur 4 frá byrjun síðustu aldar

Þó vissulega eigi að vernda hús eins og hægt er þá verðum við að leyfa þróun því annars værum við enn í torfkofum.

 

 


mbl.is Áhersla á umhverfis- og húsverndarmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta meirihlutinn sem ætlaði að hagræða á móti lækkun fasteignagjalda

Samkvæmt visir.is kaupir borgin þessi hús á 580 milljónir. Þessa kofa! Og síðan er áætlað að það kosti a.m.k. um 320 milljónir endurbyggja þau. Og svo á að selja þau.
Og hver kaupir verslunarhús sem voru hönnuð sem íbúðar, verslunar og iðnaðarhús miðað við þarfi fólks um 1900. Ekki viss um að borgin fái mikið inn á móti.
Verð að segja að þessi kaup eru með því mesta sukki sem ég hef heyrt um. Síðan er þetta ávísun á að eigendur fleiri húsa á þessu svæði komi í kjölfarið og fari fram á að fá að rífa sín hús og kanni hvort að Reykjavík kaupi þau ekki líka á okurverði.

Og þessi kostnaður sem að Reykjavík leggur í þessi hús er mun meiri en kostnaður Borgarinnar við lækkun fasteignagjalda!

Síðan á að halda áfram að hafa flugvöllinn í Vatnsmýri sem ég heyrði að kæmi í veg fyrir eða hefði áhrif á um 300 hektara svæði við miðbæinn. Hann hefur áhrif á hæð bygginga frá Seltjarnanesi og til Kópavogs.

Bendi á góða pistila Egils Helgasonar um þetta mál hér og hér


mbl.is Borgin kaupir Laugaveg 4 og 6
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg svakaleg lækkun fasteignaskatta eða hvað?

Lækkun fasteignaskatta um 5% þýðir að fasteignaskattar lækka náttúrulega um það en þetta er nú kannski ekki sú upphæð sem fólk býst við.

Ef við gefum okkur að fasteigna skatta af 90 fm íbúð séu um 100.000 kr. Þá nemur lækkunin um 5000 kr. Og á 12 mánuðum nemur þá lækkunin um 416 kr á mánuði.

Vá!!!!!!


mbl.is Heimdallur fagnar endurkomu Sjálfstæðisflokksins að stjórn borgarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágæta Unga Framsóknarfólk! Smá skýring

Ég verð að segja að mér finnst þetta furðuleg yfirlýsing frá Ungum framsóknarmönnum á Akureyri. Og þetta lýsir ekki góðu siðferði.

  • Einstaklingar og fyrirtæki gefa í kosningasjóði. Þeir eru að styrkja flokk til að koma sínum málefnum og frambjóðendum á framfæri til kjósenda.
  • Hingað til hafa menn ekki litið svo á að persónulegur fatnaður eins og sokkar og þessháttar sé beint það sem kosningasjóðir eigi að ganga í. Og aðrir frambjóðendur hafa ekki þennan aðgang að kosningasjóði hvorki hjá Framsókn né öðrum.
  • Og það að þessir 3 menn  þ.e. Björn, Óskar og kosningastjóri  hafi gengið í fé gefnu að góðum hug til að fata sig upp nær að mínu viti ekki nokkurri átt.
  • Þetta lyktar illa og bíður upp á að frambjóðendur/flokkar verði kostaðir af ákveðnum fyrirtækjum og skuldbundnir þeim fyrir.
  • Og þetta ímyndartal bendir til þess að flokkurinn haf þá ekki miklar hugsjónir eða góð mál til að leggja fyrir kjósendur ef það kostar 5 jakkaföt nokkra tugi skyrtna, sokka, leðurjakka, gallabuxur, boli og fleira og keypt í einni dýrustu búð landsins.
Held að málið sé að Björn og fleir eru í pólitík upp á persónulegan hag og  frama, fremur en fyrir hugsjónir. Og það að hann segir af sér í dag fyrsta daginn í minnihluta í Borginni segir sína sögu. Þ.e. hann hefur ekki áhuga lengur.
mbl.is Undrandi á fjölmiðlaumræðu um fatakaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband