Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2006

Ef einhver þarf að tala við mig frá 11 sept til 18

Þá verð ég staddur í þessu húsi

Á Krít.  *cool*

- svo mælir Maggi B

Fann þetta á netinu

 

artemis.bloggar.is:

NOKKUR DÆMI ÚR ÍSLENSKUM AUGLÝSINGUM ÞAR SEM MENN HAFA EKKI VANDAÐ SIG:


Sérstakur hádegisverðarmatseðill:
Kjúklingur eða Buff kr: 600
Kalkúnn kr: 550
Börn kr: 300.

  • Til sölu : Antik skrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.
  • Nú hefur þú tækifæri til að gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.
  • Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það varlega í höndunum.
  • Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.
  • Þetta hótel býður uppá bowling sali,tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.
  • Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska. Brennir brauðið sjálfvirkt!
  • Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar, kvenmann, til starfa.
  • Við byggjum upp líkama sem endist ævilangt!
  • Vantar mann til að vinna í dínamitverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.
  • Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar !
  • Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur.
  • Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.

<<<<<<<<>>>>>>>>>><<<<<<<<<<<<>>>>>>>><<<<<<<<<<<>>>>>>>>>>>

þarna var líka þessi:

Magga fór að kaupa skó


„Hvernig eru þessir?“ spurði skókaupmaðurinn.

„Þeir eru dálítið þröngir,“ sagði Magga.

„Prófaðu að toga tunguna út,“ sagði skókaupmaðurinn.

„Nei, þeið eðu ennþá þðöngið,“ sagði Magga


Jæja nú er Maggi gamli ákveðinn að fara til útlanda

 

Nú er það endanlega ákveðið að ég ætla að verðlauna mig fyrir þetta sumar með utanlandsferð í september.

Mér finnst ég eiga það svo innilega skilið!

  • Fyrir það fyrsta þá tókst okkur hjá BHM að fá umtalsverðar launabætur í stofnanasamningum. Og ég var óvenju duglegur í þeirri baráttu. Hélt úti bloggsíðu og póstlista þar sem við börðum okkur saman. (http://baratta.hexia.net/myblog )
    Náðum alveg ótrúlegri athygli fjölmiðla. Nú kunnum við þetta fyrir næstu baráttu.
  • Fæ leiðréttingu aftur í tímann
  • Ekki verið almennilegt veður hér á SV landi í sumar
  • Dóttir mín var hjá mér í allt sumar en ég taldi að hún mundi verða meira með mömmu sínni og því voru ekki pöntuð nema leikjanámskeið í 2 vikur þannig að sumarið hefur farið í reddingar í vinnu hjá mér og okkar nánustu við að redda þessu. Og verður áfram þar til að hún byrjar í skólanum aftur.
  • Ég hef unnið flestar helgar í sumar eitthvað.
  • Vegna manneklu í sumar hef ég ekkert komist í samfellt frí

Þannig að í byrjun september verð ég staddur á Krít og ligg í sólinni, drekk bjór og vín og svo aðeins meira af bjór og víni. Ætla að hugsa nákvæmlega um ekki neitttttttttttt!!!!!!!!!!!!!!!

- svo mælir Maggi B

 


Þarna fer ég nú til að finna mér eitthvað til að brosa að.

Var að finna helv.. góða síðu með fullt af fyndnum myndskeiðum. Síðan heitir kvikmynd.is og sennilega allir búnir að vera þarna daglegir gestir en ég er alltaf svo seinn að fatta. Þarna má t.d. finna þessi myndbönd.

    og fullt í víðbót.
Smellta á myndirnar til að spila videóð.


Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband