Leita í fréttum mbl.is

Ef þú værir sterk efnaður og kæmist í ríkisstjórn. Hvað mundir þú gera?

Gæti verið að þú mundir einbeita þér að:

  • Lækka skatta á há laun?
  • Lækka eignarskatta?
  • Lækka kostnað við fjárfestingar?
  • Koma á leiðum fyrir fjárfesta til að koma fjármagni í skjól m.a. fyrir sköttum?
  • Velta sköttum yfir á launþega sem hafa ekki aðrar tekjumöguleika en lág laun
  • Lækka skatta á fyrirtæki sem þú (og þínir) hafa fjárfest í.

Held að öllum sé það innbyggt að horfa á heiminn að einhverju leit út frá eigin skinni. Og nú höfum við ráðamenn sem báðir eru sterkefnaðir og frá sterkefnuðum fjölskyldum. Halda menn að það hafi engin áhrif? Það er kannski hennt einhverjum brauðmolum í fólk til að kaupa velvilja og kæruleysi en umfram allt er hugað að þeim sem deila kjörum mað ráðamönnum


Þrír ráðherrar tengdir skattaskjólum

Það verður stuð á næstunni:

Nöfn þriggja íslenskra ráðherra og fleira áhrifafólks í íslenskum stjórnmálum eru á listum yfir eigendur aflandsfélaga í skattaskjólum. Þetta sýna gögn sem blaðamenn víðs vegar að úr heiminum hafa undir höndum og hafa unnið úr síðustu mánuði. Ítarleg umfjöllun byggð á þessum upplýsingum verður á dagskrá Sjónvarpsins á næstu dögum.
 

Á næstu dögum verður í sérstökum Kastljós-þætti greint frá áður óbirtum upplýsingum um eignarhald íslenskra stjórnmálamanna á fyrirtækjum í skattaskjólum.  

Þátturinn er unninn í samstarfi við fjölmiðlafyrirtækið Reykjavík Media, ICIJ Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna og þýska blaðið Süddeutsche Zeitung. Þar verða birtar upplýsingar um umfangsmiklar eignir Íslendinga í félögum í skattaskjólum. Meðal annars ráðherra í ríkisstjórn Íslands og fjallað um þáttöku annars áhrifafólks í íslenskum stjórnmálum í starfsemi aflandsfélaganna, sem til þessa hefur farið leynt.  

Upplýsingarnar og gögn um starfsemi aflandsfélaganna spanna 25 ára tímabil. Nýjustu dæmin sýna að einstaklingar í þessum hópi stofnuðu slík félög á árinu 2014. Upplýsingar um félög eins og þau sem um ræðir hefur verið nær ómögulegt að finna til þessa. Mikil leynd er yfir stofnun og starfsemi þeirra og til undantekninga heyrir að hægt sé að finna út  hverjir eru raunverulegir eigendur þessara fyrirtækja. ruv.is


Bloggfærslur 29. mars 2016

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband