Leita í fréttum mbl.is

Sá ekki frétt hér á mbl.is um orð sænska forsætisráðherrans. Svo ég bara birti þau :)

Ótækt þætti í Svíþjóð að þjóðarleiðtogar blönduðust inn í hneykslismál af því tagi sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, er nú flæktur í með aðkomu sinni að félagi í skattaskjóli á Bresku Jómfrúareyjum. Það bendi til græðgi hjá hlutaðeigandi, segir Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar.

Þetta kemur fram í viðtali sænska ríkisútvarpsins við Löfven. Þar var hann spurður sérstaklega hvort hann teldi að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætti að segja af sér sem forsætisráðherra. „Það er spurning sem lýtur að Íslendingum og þeir munu sjá um það, það verða þeir sjálfir að leysa. En frá sænsku sjónarhorni, þess hvernig litið er á svona mál hér, þá væri ótækt að vera þátttakandi í þessu og mér þykir það sýna græðgi hjá viðkomandi, sem mér er þó ekki neitt illa við.“ eyjan.is

img_0583_1280063.jpg


mbl.is Hiti í mönnum utanhúss sem innan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. apríl 2016

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband