Leita í fréttum mbl.is

Ekki allt fallegt sem um okkur er skrifað og sagt í dag

t.d. þetta

Bananalýðveldið Ísland

Uffe Elleman Jensen: „Það er eins og harðgerðir Íslendingarnir hafi misst allt raunveruleikaskyn.“

Uffe Elleman Jensen: „Það er eins og harðgerðir Íslendingarnir hafi misst allt raunveruleikaskyn.“

Fimmtudagur 7. janúar 2010 kl 14:18

Höfundur: (johannh@dv.is)

„Þegar forseti Íslands synjaði lögum staðfestingar sem skuldbinda Ísland til þess að tryggja innstæður útlendinga í íslenskum bönkum er það ekki aðeins atlaga gegn fulltrúalýðræðinu í landinu. Það er einnig tilraun til þess að skrá Ísland út úr samfélagi þjóðanna.“
Þannig tekur Daninn Uffe Elleman-Jensen, fyrrverandi ráðherra og nú dálkahöfundur til orða í grein í Berlingske Tidene í dag. „Það er eins og harðgerðir Íslendingarnir hafi misst allt raunveruleikaskyn.“
Uffe Elleman segir jafnframt að hugmyndirnar, sem á kreiki séu um afleiðingarnar af þessu, séu geggjaðar og yfirdrifnar. „Þetta segi ég sem gamall Íslandsvinur. Hugsið ykkur hvernig málið lítur út frá bæjardyrum annarra...“

Og hann lýkur þessu svona

„Íslenskur vinur minn sagði eitt sinn þegar við ókum fram hjá gróðurhúsi sem kynt er með jarðvarma. – „Hér ræktum við banana og því gætir þú allt eins kallað okkur bananalýðveldi“.–
„Ég hló að þessu þá. Ég gat ekki látið mig dreyma um að kalla eitt elsta lýðræðisríki veraldar, byggt stoltum og sterkum einstaklingum, bananalýðveldi. Ég er ekki lengur eins viss í minni sök eftir atburði síðustu daga.“  http://www.dv.is/frettir/2010/1/7/bananalydveldid-island/

 

 

 

Og svo segir sá  finnski   Kaarlos Jännäris, bankasérfræðingurinn  og fyrrverandi forstjóri finnska fjármálaeftirlitsins, sem stjórnvöld réðu sem ráðgjafa við endurskipulagningu bankakerfisins hér. m.a. sem er gott að muna þegar við eru að skamma Norðulönd

Um leið kveðst Jännäri skilja reiði þjóðarinnar yfir þeirri stöðu sem hún er í. Á hinn bóginn séu reglur um innlánstryggingar ein af grunnstoðum hins evrópska fjármálakerfis. "Íslendingar eru bundnir af lögum Evrópusambandsins með aðild sinni að Evrópska efnahagssvæðinu og þurfa að haga málum sínum í samræmi við þær reglur." Hann segir ljóst að ef eignir tryggingasjóðs dugi ekki til þá þurfi ríkið að hlaupa undir bagga. "Og nú hafa ríkisstjórnir Hollands og Bretlands greitt þessar inneignir sem tryggingarsjóður ykkar skuldar og ríkisstjórn Íslands ábyrgist," segir Jännäri og kveðst sjálfur hafa farið yfir muninn á nýju lögunum og þeim sem samþykkt voru í ágúst. "Og ég get vel séð af hverju Bretar og Hollendingar geta ekki sætt sig við fyrirvarana sem þá voru settir. Gömlu lögin nægja því ekki."

 

Kaarlo Jännäri segist eiga hér marga góða vini og vilja styðja Íslendinga í raunum þeirra. "En því miður virðast margir hafa misskilið stöðuna sem landið er í. Sumir virðast nú reiðir erlendu ríkjunum, sem þó eru að reyna að hjálpa Íslendingum." Sem dæmi nefnir Jännäri að vegna fjárlagahalla heima fyrir hafi Finnland neyðst til að taka 30 milljarða evra (5.400 milljarða íslenskra króna) að láni. "Samt eru Finnar að lána Íslendingum peninga. Og það sama gildir um mörg önnur lönd sem glíma við vandamál heima fyrir. Ég held að komið hafi verið fram við ykkur af mikilli vinsemd, en þjóðin virðist ekki hafa áttað sig á því." Jännäri segir sér virðast sem íslenskum stjórnvöldum hafi mistekist að skýra stöðu landsins fyrir þjóðinni. olikr

http://vefblod.visir.is/index.php?s=3673&p=86354


mbl.is Bylmingshögg ef Norðurlöndin hjálpa ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband