Leita í fréttum mbl.is

Held að stjórnarandstaðan sé komin í vanda með að halda andlitinu

Miðað við að þessir aðilar eru búnir að fjalla um þetta mál í 14 mánuði hefði maður haldið að menn væru með á hreinu hvað þeir vildu og hvernig væri hægt að ná því. En rökin þeirra hingað til hafa verið bara:

"Okkur ber ekki að borga þetta"

" þetta er lélegir samningar"

" Menn voru að semja með hagsmuni Breta og Hollendinga að leiðarljósi"

"Samninganefndin var ekki starfi sínu vaxin"

Og svo framvegis. Nú gefst þeim tækifæri að komast að samningaborðinu ef okkur gefast möguleikar að taka þá upp aftur. Og þeir segja fólki ekkert um hvað þeir leggja áherslu á og hvernig á að ná því. Er þetta liður í því sem þeir hafa talað fyrir á þingi að allt sé upp á borðum?

Held að þeir séu aðeins að lenda í dæminu með nýju fötin keisarans . Þ.e. þegar grant er skoðað er gasprið þeirra innihaldslaust.


mbl.is Ekki formleg niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

umm...

Ríkisstjórnin er komin er komin í vanda.....

þú veist,  Ólafur Ragnar forseti hafnaði lögunum... Núna vantar þeim hjálp.

btg (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 18:57

2 Smámynd: Gunnlaugur Bjarnason

Hvers lenskir eru þeir fávitar sem virðast gleðjast yfir því að borga Icesave. Þegar kellingar lessan fer með sínar bölbænir stendur þeim upp í strenginn og vona að loksins í veraldarsögunni hafi kommaheilinn rétt fyrir sér. Sem betur fer eru það stundarblekkingar, enda hismið að hrynja utan af landráðalýðnum sem vill selja þjóðina eins og ódýra mellu í ESB.

Gunnlaugur Bjarnason, 15.1.2010 kl. 19:35

3 identicon

Voðalega getur fólk verið orðljótt, leiðinlegt (og sorglegt) að lesa svona texta eins og Gunnlaugur Bjarnason lætur frá sér.  Það sem hann ætlar sér að segja missir algjörlega marks finnst mér. 

Eins og fleiri býð ég spennt eftir úrræðum stjórnarandstöðunnar um hvernig eigi að leysa Icesave, nóg hafa þeir gagnrýnt það sem hefur verið gert þ.a. hljóta að vera með einhverjar betri lausnir á takteinunum.  Því miður sterka tilfinningu að biðin geti orðið löng, enda held að flestum hljóti að vera ljóst að engar töfralausnir í boði.  Finnst alltaf hafa legið fyrir að um ekta Víkinga dilemma að ræða (sem reyndar mjög viðeigandi) og að valið standi á milli mismunandi slæmra kosta.  Vonandi ber okkur sú gæfa að velja þann illskásta sem í boði er og með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi (en ekki stjórnmálaflokka / -manna).

ASE (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 19:49

4 identicon

Við eigum ekki að borga eina einustu krónu. Aldrei láta kúga okkur og gefa skít i alþjóðasamfélagið. Tekur nokkur ár en örugglega betra heldur en að húka við fótskör EB bófanna.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 21:32

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Æi Sigurður þetta er svo barnalegur málflutningur. M.a. Hvað kemur ESB þessu við? Það var í gegnum EES samningin sem að bankarnir fóru að starfa í öðrum löndum. Og svo var það ESB sem kom á sátt í málinu þegar allar okkar eignir og gjaldeyrir var frystur í Bretlandi. Þannig að þú ættir að þakka ESB fyrir. Og ég er orðinn þreyttur á svona "Vondu útlendingar" kenningum

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.1.2010 kl. 23:27

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Magnús. Ég held að stjórnarandstöðunni hafi jafnvel brugðið enn meira eð öllum öðrum, þegar Ólafur hafnaði því að skrifa undir lögin. Þeir hafa sennilega áttað sig á því drengirnir að þarna var stjórnarandstaðan sett upp við vegg sem ekki var neitt þunnir. Tárin hennar Birgittu hafa sennileg verið í ætt við rándyr sem lifir í vatni. Meðan þetta fólk taldi nokkuð öruggt að lögin færu í gegn hefur það látið móðan mása, en nú er alvaran tekin við og hópurinn dreginn til ábyrgðar.  Góða helgi

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.1.2010 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband