Leita í fréttum mbl.is

Ömurleg staða Kópavogs!

Nú er Kópavogur að súpa seiðið af því hafa gefið einum manni nær sjálfdæmi um stjórn bæjarins undanfarin ár. Kópavogur er næst stærsti bær landsins og er nú komið á athuganalista félagsmálaráðuneytis vegna bágrar skuldastöðu.  Nú er bæjarbúum að hefnast fyrir allar fáránlegu fjárfestinga sem Gunnari var leyft að ráðast í:

  • Hesthúsabyggðin í Glaðheimum Þar sem að Kópavogur keypti á endanum 40 ára hesthús á verði sem slagaði upp í einbýlishúsaverði.
  • Íþróttabrjálæðið í Kórnum
  • Vatnsveitan til að redda hestamönnum nýju svæði vegna Glaðheima. Kópavogur t.d. selur Garðabæ vatn á um 5 krónur tonnið sem selur hluta þess áfram til Álftaness fyrir 18 krónur. Og Kópavogsbúar borga mun meira en Garðbæingar.
  • Stórskipahöfnin sem er ekkert notuð lengur

Og svona er hægt að halda lengi áfram. Allt þetta skilur Kópavog eftir með milljarða skuldabagga. Las það einhverstaðar að skuldir Kópavogs hafi aukist um 17 milljónir á dag síðustu 4 ár.

Við tölum svo ekki um spillinguna sem kraumaði undir síðan flestu sem Gunnar gerði.

Þessi maður má ekki koma að málum aftur í Kópavogi.

Nokkur sveitarfélög í gjörgæslu

Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er nú með níu sveitarfélög til skoðunar vegna fjárhagsstöðu þeirra í árslok 2008. Hún tekur væntanlega ákvörðun á næstu dögum um hvort gripið verði til frekari aðgerða hjá þeim.

Ástæðan er oftast mikill rekstrarhalli eða miklar skuldir. Sveitarfélögunum var gert að skila gögnum til nefndarinnar um hvernig þau hygðust snúa þróuninni við, og síðan var óskað eftir viðbótarupplýsingum frá sumum þeirra. Athugun á einu sveitarfélaganna var hætt þar sem staðan þótti fullnægjandi.

Meðal hinna níu eru Álftanes, sem fór í sérmeðferð fyrir mánuði og Bolungarvík, sem fékk heimild til úrvarshækkunar í fyrra, en hluti hennar hefur verið dreginn til baka nú. Hin sjö sveitarfélögin eru Kópavogur, Hafnarfjörður, Reykjanesbær, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbær, Fjarðarbyggð og Fljótsdalshérað.


Að sögn Jóhannesar Finns Halldórssonar starfsmanns eftirlitsnefndarinnar hafa mörg þessara sveitarfélaga tekið vel til í sínum málum en hjá öðrum er enn beðið eftir viðbótarupplýsingum. Hvert sveitarfélag fyrir sig er skoðað sérstaklega og því er ekki ljóst hvenær niðurstaða fæst í mál þeirra. (www.ruv.is )


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ursus

Óttalegur dóni getur þú verið. Þú ert að rakka frjálshyggjuna niður. Er það sanngjarnt? Hafa ekki dæmin sýnt að hún hefur bjargað þessari þjóð? Lestu ekki Hannes Hólmstein? Hlustar þú ekki á Davíð? Hvað er að sumu fólki? Ó, mææ God!

Ursus, 16.1.2010 kl. 20:27

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

SMILE

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.1.2010 kl. 20:52

3 Smámynd: Ursus

Já, já, brostu bara út í bæði, allan hringinn mín vegna. Óli Stef getur alveg klikkað á víti og Frjálshyggjan getur alveg skapað víti á jörð, eins og dæmin sanna. Það er þó ekki henni að kenna, heldur óvönduðu, misheppnuðu pakki, sem kaus að kenna sig við dýrðina. Meistari Hannes hefur þetta alveg á hreinu. Frjálshyggjan er góð, en líður fyrir slæma frjálshyggjumenn. Gunnar Boli Birgisson er fínn karl, sem finnst ofsalega gaman að eyða annarra manna peningum í misgóðar framkvæmdir og til eigin fjölskyldu. Hvað er eiginlega að því? Ó, mææ god!

Ursus, 16.1.2010 kl. 21:05

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hannes er náttúrulega snillingur. Allt sem hann hefur sagt hefur staðist þar til að það hrynur í hausinn á okkur hinum

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.1.2010 kl. 21:23

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það gæti þó ekki verið að frjálshyggjan hafi einmitt sleppt mönnum eins og Gunnari Birgissyni lausum eins og kálfi á vordegi. Einræðistilburðir eru aldrei til góðs, því fólk sem þá sýnir, fer á einhvern hátt út í öfga sem skaðar fjölda fólks.

Ég er þér svo sammála með að tími GBB sé liðinn og vel það.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.1.2010 kl. 21:30

6 Smámynd: Ursus

Já, hann Hannes á Horni frjálshyggjunnar er snillingur. Aðrir fara ekki í hans lakkskó, enda flestir á sauðskinnsskóm. Hann vill græða á daginn og grilla almenning, með meðlæti, á kvöldin. Hvað er eiginlega að því? Smámunasemi og dómsdagsraus hefur alltaf farið í mínar fínustu. Gott grill með víni roðans að kvöldi dags. Er nokkuð göfugra eða fegurra? Ó mææ God!

Ursus, 16.1.2010 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband